Ferill 156. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 156 . mál.
169. Fyrirspurn
til félagsmálaráðherra um endurskoðun laga um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum.
Frá Kristni H. Gunnarssyni.
Hvenær er þess að vænta að nefnd sú, sem ráðherra skipaði 15. júní sl. til þess að endurskoða lög um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum, nr. 28/1985, hefji störf, og hvernig hyggst ráðherra mæta samhljóða áliti félagsmálanefndar Alþingis frá því í apríl sl. þar sem áhersla var lögð á að endurskoðun laganna yrði hraðað og frumvarp þar um lagt fram nú í haust?