Ferill 157. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 157 . mál.


170. Fyrirspurn


til félagsmálaráðherra um húsaleigubætur.

Frá Kristni H. Gunnarssyni.


    Hverjar urðu niðurstöður viðræðna ráðherra við forráðamenn sveitarfélaga um undirbúning að framkvæmd húsleigulaga, sbr. yfirlýsingu ráðherra þar um á Alþingi 6. maí sl., og eru einhverjar tillögur væntanlegar um breytingu á lögunum?
    Hvernig miðar athugun á málefnum Búseta í tengslum við húsaleigulög áður en þau taka gildi um næstu áramót, sbr. áðurnefnda yfirlýsingu ráðherra?