Ferill 172. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 172 . mál.


186. Tillaga til þingsályktunar



um útsendingar sjónvarps og útvarps til fiskimiða.

Flm.: Guðjón Guðmundsson, Guðmundur Hallvarðsson, Eggert Haukdal,


Sturla Böðvarsson, Árni R. Árnason, Árni M. Mathiesen.



    Alþingi ályktar að fela menntamálaráðherra að láta gera könnun á þeim kostum sem í boði eru til að bæta útsendingar sjónvarps og útvarps til fiskimiðanna kringum landið með hliðsjón af þeirri tækniþróun sem orðið hefur á sviði ljósvakamiðlunar.

Greinargerð.


    Mál þetta var flutt á 116. og 117. löggjafarþingi en varð þá ekki útrætt og er það því endurflutt.
    Móttökuskilyrði sjónvarps eru mjög misjöfn á fiskimiðunum umhverfis landið. Þau eru allgóð frá Faxaflóa austur að Ingólfshöfða, afleit út af Austurlandi og gloppótt fyrir Norðurlandi, Vestfjörðum og suður fyrir Snæfellsjökul. Skilyrðin eru þó skárri þegar háþrýstisvæði er yfir landinu.
    Móttökuskilyrði útvarps eru einnig mjög misjöfn. Langbylgja heyrist víðast hvar, þó illa út af Vestfjörðum og á Breiðafirði. Miðbylgja heyrist út af Norðausturlandi, Austfjörðum og Suðausturlandi. Rás 2 heyrist þar sem sjónvarp næst. Erlendar stöðvar yfirgnæfa langbylgju og miðbylgju þegar dimmir.
    Það er tvímælalaust mikið öryggismál að bæta sendingar útvarps til fiskimiðanna. Farsíminn virkar þar sem sjónvarp næst og heldur víðar. Þegar hann virkar ekki er eina sambandið við land í gegnum talstöð. Ef hún bilar er ekkert samband hægt að hafa í land og ekki hægt að fylgjast með aðvörunum um hættu, t.d. fárviðrisspám og tilkynningum um ís.
    Tækniþróun á sviði sjónvarps og útvarps er mjög ör. Á síðustu árum hefur fleygt fram gervihnattatækni og annarri útsendingartækni. Má þar nefna fregnir af tilraunum með fjölrása sjónvarpssendingar í Bandaríkjunum. Einnig kann að vera fýsilegt að skoða möguleika á notkun gervihnattasendinga fyrir hljóðvarp og sjónvarp sem þjónað geti dreifikerfi innan lands og bætt þjónustu við sjómenn á hafi úti.
    Ekki skal á það lagður dómur hverjir kostir eru vænlegastir, en með hliðsjón af því hve tækni á þessu sviði hefur fleygt fram telja flutningsmenn fyllstu ástæðu til að íslensk stjórnvöld láti hið fyrsta fara fram athugun á því hvaða leiðir eru hagkvæmar til bóta í þessum efnum.


Fylgiskjal I.


Sjónvarpsskilyrði á fiskimiðunum umhverfis landið.



(Repró, kort. á bls. 5153 í 20. hefti 1992–93.)




Fylgiskjal II.


ÚR UMSÖGNUM SEM BÁRUST MENNTAMÁLANEFND


Á 117. LÖGGJAFARÞINGI.



Umsögn Landssambands íslenskra útvegsmanna.


(8. desember 1993.)


    Erindi þetta var rætt á fundi stjórnar LÍÚ 2. þ.m. og samþykkt að mæla með samþykkt tillögunnar.
    Okkur berast miklar kvartanir frá útgerðarmönnum og sjómönnum um hve erfitt sé að ná útvarps- og sjónvarpssendingum. Við fögnum því samþykkt tillögunnar um athugun á því hvernig megi bæta útsendingar.

Umsögn Slysavarnafélags Íslands.


(30. desember 1993.)


    Slysavarnafélag Íslands mælir eindregið með því að tillaga til þingsályktunar um útsendingar sjónvarps og útvarps verði samþykkt.
    Á undanförnum árum hefur töluverð breyting verið á tækniþróun á sviði ljósvakamiðlunar. Það er því rétt að kanna hvort ekki sé hægt að bæta móttökuskilyrði sjónvarps og hljóðvarps þannig að sendingar berist með góðu móti til fiskimiða landsins. Fjöldi landsmanna stundar sjómennsku og oft við mjög erfið skilyrði. Það er því nauðsynlegt að þeim berist aðvaranir um hættu og þannig verði bætt öryggi þeirra til muna á sjónum.

Umsögn útvarpsráðs.


(3. janúar 1994.)


    Útvarpsráð sér ekkert því til fyrirstöðu að menntamálaráðherra verði falið að láta gera könnun á þeim kostum sem í boði eru til að bæta útsendingar sjónvarps og útvarps til fiskimiðanna kringum landið.

Umsögn framkvæmdastjóra tæknideildar Ríkisútvarpsins.


(3. janúar 1994.)


    Á árinu 1988 var síðast unnin kostnaðaráætlun um dreifingu útvarps og sjónvarps til alls landsins og helstu fiskimiða í framhaldi af þingsályktun þar um. Áætlunin var unnin í samvinnu Ríkisútvarpsins og Pósts og síma og voru frumáætlanir frá 1974 og 1976 m.a. grunnur að þeirri vinnu. Áætlunin var send menntamálaráðherra 19. desember 1988. Í febrúar 1989 skipaði menntamálaráðherra sérstakan starfshóp til þess að fjalla nánar um dreifingu útsendinga Ríkisútvarpsins í tilefni af þingsályktuninni. Í starfshópinn voru skipaðir fulltrúar menntamálaráðuneytis, Ríkisútvarpsins og Pósts og síma. Hópurinn var aldrei kallaður saman.
    Í framhaldi af falli langbylgjumastursins á Vatnsenda í febrúar 1991 skipaði menntamálaráðherra starfshóp „til að fara yfir þá möguleika sem fyrir hendi eru um þá þjónustu sem langbylgjustöð Ríkisútvarpsins hefur annast og leggja fram álit um hvernig best verði staðið að þeim málum til frambúðar“. Starfshópurinn skilaði áliti til menntamálaráðherra 6. desember 1991. Í skýrslu nefndarinnar er ítarleg úttekt á möguleikum og kostnaði við útsendingar útvarps til alls landsins og helstu fiskimiða.
    Ríkisútvarpið lýsir sig reiðubúið til samstarfs um frekari athuganir og áætlunargerð verði þess óskað.

Umsögn Farmanna- og fiskimannasambands Íslands.


(27. janúar 1994.)


    FFSÍ tekur heilshugar undir þá tillögu að fela menntamálaráðherra að láta gera könnun á þeim kostum sem í boði eru til að bæta útsendingar sjónvarps og útvarps til fiskimiðanna kringum landið.
    Á undanförnum árum hefur FFSÍ oftar en einu sinni ályktað um nauðsyn þess að bæta skilyrði fyrir útsendingu sjónvarps og útvarps til sjómanna á hafsvæðinu kringum landið. Á síðasta þingi FFSÍ, sem haldið var í nóvember 1993, var samþykkt eftirfarandi áskorun til mennntamálaráðherra:
    „36. þing FFSÍ haldið í Reykjavík 24.–26. nóvember 1993 skorar á menntamálaráðherra að beita sér fyrir því að sjómenn, sem eru við störf á miðunum umhverfis Ísland, geti notið þjónustu ríkisútvarpsins og sjónvarps að fullu.
     Greinargerð:
    Svo virðist sem þeir aðilar sem skipulögðu og sáu um uppsetningu á dreifikerfi útvarps og sjónvarps hafi ekki gert sér grein fyrir að þjónusta frá þessum miðlum þyrfti einnig að heyrast og sjást umhverfis landið. Þau dreifikort sem hafa verið gefin út af hálfu Ríkisútvarpsins/sjónvarps gera aðeins ráð fyrir dreifingu inn á landinu og er þar gert ráð fyrir að hvert afdalakot geti notið þessarar þjónustu. Á sumum stöðum heyrast tvær ólíkar útvarpsstöðvar samtímis á sömu bylgjulengdinni.
    Á nokkrum stöðum er hægt með góðu móti að koma fyrir endurvarpssendum sem gætu þjónað sjómönnum, svo sem á Bolafjalli, Hornbjargi, Gunnólfsvíkurfjalli, Grænunípu, Háöxl í Öræfum og fleiri stöðum. Hér er ekki aðeins um þjónustu að ræða heldur einnig öryggismál fyrir alla sjófarendur við Ísland.“