Ferill 177. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 177 . mál.
194. Frumvarp til laga
um breytingu á lögum nr. 86 16. desember 1943, sbr. lög nr. 68/1978, um ákvörðun leigu
(Lagt fyrir Alþingi á 118. löggjafarþingi 1994.)
1. gr.
Aftan við síðustu málsgrein 2. gr. laganna bætist eftirfarandi: og skal leiga eftir þær lóðir og lönd tryggð með lögveðsrétti á sama hátt og gildir um lóðir sem leigðar eru til íbúðarhúsabygginga.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Samkvæmt ákvæði 2. gr. laga um ákvörðun leigumála og söluverðs lóða og landa Reykjavíkurkaupstaðar, nr. 86 16. desember 1943, sbr. breyting með lögum nr. 68/1978, fylgir lögveðsréttur á leigugjaldi eftir lóðir sem leigðar eru til íbúðarhúsabygginga en vegna orðalags í lagaákvæðinu er lögveðsrétturinn ekki talinn ná til leigu eftir aðrar lóðir, þ.e. lóðir sem leigðar eru til atvinnustarfsemi eða annarra nota en íbúðar. Þetta hefur leitt til þess að lóðarleigur hafa tapast við nauðungarsölu í nokkrum tilvikum.
Engin rök eru til þess að gera þennan mun á tryggingu fyrir greiðslu lóðarleigu eftir teg
Frumvarp þetta er flutt að ósk borgarráðs Reykjavíkur.