Ferill 180. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 180 . mál.


202. Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um álagningu vatnsgjalds og aukavatnsgjalds.

Frá Kristni H. Gunnarssyni.



     1 .     Hver er lagastoð þess ákvæðis í 9. gr. reglugerðar um vatnsveitur sveitarfélaga að sveitarstjórn sé heimilt að ákveða vatnsgjald miðað við rúmmál húseigna?
     2 .     Hver eru rök ráðherra fyrir því að lög um vatnsveitur sveitarfélaga heimili frávik frá hámarki aukavatnsgjalds í undantekningartilvikum á þann veg að hámark megi vera hærra en almennt gildir og hvers vegna gildir það frávik ekki til þess að ákveða lægra hámark í undantekningartilvikum?
     3 .     Hvaða kostnaði á, að mati ráðherra, aukavatnsgjald að mæta við framkvæmdir og rekstur vatnsveitu?