Ferill 185. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 185 . mál.
207. Fyrirspurn
til utanríkisráðherra um styrk til íslenskra fyrirtækja til markaðsátaks í EES-löndunum.
Frá Finni Ingólfssyni.
1 . Hvenær má vænta að búið verði að úthluta þeim 50 millj. kr. sem Alþingi samþykkti á síðasta þingi að veita íslenskum fyrirtækjum til markaðsátaks í EES-löndunum?
2 . Verður ekki allri upphæðinni, þ.e. 50 millj. kr., varið til íslenskra fyrirtækja?