Ferill 198. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 198 . mál.
224. Frumvarp til laga
um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu.
(Lagt fyrir Alþingi á 118. löggjafarþingi 1994.)
I. KAFLI
Gildissvið.
1. gr.
Lög þessi ná til vöru sem boðin er neytendum hér á landi í atvinnuskyni eða neyt
Lögin ná ekki til matvæla, lyfja eða eiturefna og hættulegra efna. Ákvæði laga þess
2. gr.
Vörur, sem ætlaðar eru til sölu, leigu eða hvers kyns annarrar afhendingar í atvinnu
Með opinberri markaðsgæslu er leitast við að tryggja að vörur á markaði uppfylli settar reglur að þessu leyti.
3. gr.
Framkvæmd laga þessara og almenn mál er varða öryggi vöru og markaðsgæslu heyra undir viðskiptaráðherra.
Dagleg framkvæmd laga þessara er í höndum Löggildingarstofunnar og annarra eft
Viðskiptaráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd laga þessara.
II. KAFLI
Skilgreiningar.
4. gr.
Í lögum þessum hafa eftirfarandi orð merkingu sem hér greinir:
Ábyrgðaraðili merkir aðila sem ber ábyrgð á markaðssetningu vöru hér á landi, hvort sem um er að ræða framleiðanda, fulltrúa hans eða innflytjanda.
Eftirlitsstjórnvald merkir stjórnvald sem hefur samkvæmt sérstökum lögum heimild eða skyldu til eftirlits á markaði með tilteknum vöruflokkum. Eftirlitsstjórnvald getur verið ráðuneyti, stofnun eða ráðuneyti og undirstofnun þess í sameiningu. Löggilding
Faggilt prófunarstofa merkir fyrirtæki eða stofnun sem annast prófun og hefur verið faggilt til þess í samræmi við staðla og aðrar þær reglur sem um faggildingu fjalla.
Faggilt skoðunarstofa merkir fyrirtæki eða stofnun sem annast skoðun og hefur verið faggilt til þess í samræmi við staðla og aðrar þær reglur sem um faggildingu fjalla.
Framleiðandi merkir framleiðanda vöru og hvern annan aðila sem kynnir sig sem framleiðanda vöru með því að merkja vöruna með nafni sínu, viðskiptaheiti eða öðru kennimarki. Þá getur framleiðandi talist aðili sem endurgerir vöru eða er umboðsmaður framleiðanda með staðfestu innan Evrópska efnahagssvæðisins ef framleiðandi hefur ekki staðfestu á því svæði. Loks getur framleiðandi átt við aðra þá aðila í aðfangakeðju vöru sem hafa framleitt íhluti sem öryggi vörunnar byggist á.
Hættuleg vara merkir sérhverja vöru sem ekki fellur undir skilgreiningu laga þessara á öruggri vöru.
Markaðseftirlit merkir skipulegt eftirlit með vörum á markaði. Það greinist í markaðsskoðun annars vegar og skipulega öflun upplýsinga um vörur á markaði hins vegar, m.a. með því að taka á móti ábendingum um vörur sem taldar eru hættulegar. Markaðs
Markaðsskoðun merkir rannsókn á vöru og ákvörðun um hvort hún samræmist sérstökum eða almennum kröfum. Mat á samræmi vöru er framkvæmt eftir föstum og skil
Neytandi merkir einstakling sem kaupir vöru eða þjónustu í tengslum við vöruviðskipti enda séu kaupin ekki gerð í atvinnuskyni af hans hálfu.
Opinber markaðsgæsla merkir skipulagða viðleitni stjórnvalda til að tryggja að vörur á markaði uppfylli settar reglur um öryggi, heilsuvernd og umhverfisvernd. Opinber markaðsgæsla greinist í markaðseftirlit og stjórnvaldsaðgerðir. Opinber markaðsgæsla er ávallt á ábyrgð opinberra stjórnvalda.
Prófun merkir tæknilega framkvæmd sem felur í sér ákvörðun á einu eða fleiri einkennum tiltekinnar vöru, ferils eða þjónustu samkvæmt fyrir fram tilgreindum verklags
Samvinnunefnd merkir samstarfsvettvang eftirlitsstjórnvalds, Löggildingarstofunnar og skoðunarstofu sem annast framkvæmd markaðseftirlits.
Seljandi merkir framleiðanda vöru, umboðsmann framleiðanda, innflytjanda, millilið á síðari stigum, dreifingaraðila og smásala.
Stjórnvaldsaðgerðir merkja ákvarðanir, úrskurði og aðgerðir eftirlitsstjórnvalds, sbr. 14. gr.
Vara merkir sérhverja framleiðsluvöru sem boðin er neytendum gegn gjaldi eða endurgjaldslaust í tengslum við atvinnurekstur seljanda, hvort sem hún er ný, notuð eða endurgerð. Þetta gildir ekki ef um er að ræða notaða vöru sem telst hafa fornmunagildi eða þarfnast lagfæringar fyrir notkun enda geri seljandi kaupanda grein fyrir því áður en viðskiptin fara fram eða kaupanda má vera það ljóst.
Örugg vara merkir sérhverja vöru sem við eðlilega eða fyrirsjáanlega notkun fullnægir þeim kröfum sem gerðar eru vegna almannahagsmuna um öryggi og vernd heilsu og umhverfis.
III. KAFLI
Öryggi vöru.
5. gr.
Ábyrgðaraðilar og aðrir seljendur, sem selja eða afhenda vöru á annan hátt í at
Við mat á öryggi vöru skal einkum taka tillit til eftirtalinna þátta:
1 . Eðlis hennar, þar með talin samsetning, umbúðir, samsetningarleiðbeiningar og viðhald.
2 . Áhrifa hennar á aðrar vörur er ljóst þykir að hún verði notuð með.
3 . Kynninga sem henni fylgja, svo sem merkinga á henni, leiðbeininga um notkun og förgun og annarra upplýsinga sem framleiðandi lætur í té.
4 . Öryggis hennar gagnvart viðkvæmum notendum, svo sem börnum.
Við mat á öryggi vöru skal það ekki sjálfkrafa leiða til þess að hún sé metin hættuleg að til sé á markaði önnur vara sem sé talin enn fullkomnari með tilliti til öryggis eða unnt væri að auka öryggi hennar.
6. gr.
Falli vara ekki undir önnur eftirlitsstjórnvöld er viðskiptaráðherra heimilt að ákveða eftirfarandi í reglugerð:
1 . Kröfur sem vara verður að uppfylla til að teljast örugg.
2 . Aðferðir sem framleiðandi getur beitt til að sýna fram á samræmi vöru við settar reglur, t.d. með merkingu, vottorði, yfirlýsingu um samræmi, prófunarskýrslu, skjali með tæknilegum upplýsingum o.fl.
3 . Merkingar vöru, leiðbeiningar og upplýsingar um notkun og förgun vöru, viðvaranir um hugsanlega hættu við notkun hennar og aðra þætti er varða upplýsingar til neytenda. Heimilt er að áskilja að varúðarmerkingar og notkunarleiðbeiningar skuli vera á íslensku.
Heimilt er í reglugerð um framangreint efni að vísa til staðla sem gilda um öryggi vöru á sameiginlegum markaði ríkja Evrópska efnahagssvæðisins.
7. gr.
Falli vara ekki undir önnur eftirlitsstjórnvöld er viðskiptaráðherra heimilt að ákveða í reglugerð að vörum í ákveðnum vöruflokkum, sem settar eru á markað hér á landi, skuli fylgja tilteknar upplýsingar um eiginleika þeirra og notagildi til þess að auðvelda neytendum vöruval. Skal þá beita ákvæðum laga þessarra um markaðsgæslu, eftir því sem við á, í því skyni að hafa eftirlit með því að slík reglugerðarákvæði séu virt.
IV. KAFLI
Opinber markaðsgæsla.
8. gr.
Með opinberri markaðsgæslu skal vinna að því að vörur á markaði uppfylli settar reglur og skapi ekki hættu.
Löggildingarstofan og eftirlitsstjórnvald fara með stjórnvaldsþátt markaðsgæslu í samræmi við ákvæði 9. og 10. gr.
Skoðunarstofa annast markaðseftirlit í samræmi við 11. gr.
Samvinna Löggildingarstofunnar, eftirlitsstjórnvalds og skoðunarstofu fer fram á vettvangi samvinnunefndar í samræmi við 12. gr.
9. gr.
Hlutverk eftirlitsstjórnvalds í opinberri markaðsgæslu er sem hér greinir:
að setja reglur um þá vöruflokka sem það ber ábyrgð á samkvæmt sérlögum; slíkar reglur taka að lágmarki til öryggis, verndar heilsu og umhverfis en geta einnig tek
að móta meginstefnu um áherslur í markaðseftirliti og umfang eftirlits með þeim vöruflokkum sem það ber ábyrgð á,
að annast í samvinnu við Löggildingarstofuna samningsgerð við skoðunarstofu og greiða þann kostnað vegna hans sem ekki er greiddur af gjöldum skv. 16. og 17. gr.,
að fella úrskurði í einstökum málum, sbr. 14. gr., eftir að samvinnunefnd hefur fjallað um málið og lagt fram tillögu sína.
10. gr.
Hlutverk Löggildingarstofunnar í opinberri markaðsgæslu er:
að vera eftirlitsstjórnvald fyrir alla vöruflokka sem ekki eru á ábyrgð annarra eftir
að annast heildarskipulag opinberrar markaðsgæslu í samvinnu við önnur eftirlits
að hafa, í samstarfi við eftirlitsstjórnvöld, umsjón með samningum við skoðunar
að úrskurða hvaða eftirlitsstjórnvald ber ábyrgð á markaðsgæslu tiltekinnar vöru eða vöruflokks leiki vafi á slíku,
að samhæfa aðgerðir eftirlitsstjórnvalda ef eiginleikar vöru eða vöruflokks eru slíkir að ábyrgð á markaðsgæslu sé í höndum fleiri en eins eftirlitsstjórnvalds.
11. gr.
Markaðseftirlit skal framkvæmt af faggiltri skoðunarstofu. Skoðunarstofa annast markaðsskoðun, aflar á skipulegan hátt upplýsinga um vörur á markaði og tekur við kvörtunum og ábendingum frá neytendum og öðrum aðilum.
Samið skal við eina eða fleiri skoðunarstofur um framkvæmd markaðseftirlits. Mið
Viðskiptaráðherra er heimilt að setja í reglugerð nánari ákvæði um markaðseftirlit og um skoðunarstofur sem framkvæma markaðseftirlit.
12. gr.
Samstarf Löggildingarstofunnar, eftirlitsstjórnvalds og skoðunarstofu fer fram í sér
Að jafnaði skal starfa ein samvinnunefnd á verksviði hvers eftirlitsstjórnvalds en að
Aðilar ákveða fjölda fulltrúa í samvinnunefnd. Samvinnunefnd velur formann úr hópi nefndarmanna.
Viðskiptaráðherra er heimilt að setja í reglugerð nánari ákvæði um skipan og starf
V. KAFLI
Markaðseftirlit.
13. gr.
Skoðunarstofu er heimilt að skoða vörur hjá seljanda og krefjast upplýsinga um ábyrgðaraðila, svo og að taka sýnishorn vöru til rannsóknar. Seljanda er skylt að halda skrá með upplýsingum um ábyrgðaraðila allra þeirra vara sem hann hefur á boðstólum.
Skoðunarstofa getur krafið ábyrgðaraðila um vottorð, yfirlýsingu um samræmi við reglur og staðla, prófunarskýrslu, tæknilegar upplýsingar og aðrar nauðsynlegar upp
Starfsmenn Löggildingarstofunnar, eftirlitsstjórnvalds og skoðunarstofu eru bundnir þagnarskyldu um atriði er fram koma við rannsókn og viðskiptaleynd hvílir yfir. Það skal þó ekki vera því til fyrirstöðu að þeir birti opinberlega upplýsingar um hættulega vöru ef brýna nauðsyn ber til sökum þess að af vörunni stafar hætta fyrir öryggi, heilsu eða umhverfi.
VI. KAFLI
Stjórnvaldsaðgerðir.
14. gr.
Ef vara uppfyllir ekki formleg skilyrði um merkingar, leiðbeiningar, vottorð, yfir
Ef ábyrgðaraðili torveldar skoðun eða rannsókn vöru eða hefur ekki tiltæk fullnægj
Ef rökstuddur grunur leikur á að vara uppfylli ekki settar öryggisreglur getur eftir
Þyki ljóst að vara uppfylli ekki settar öryggisreglur getur eftirlitsstjórnvald bannað sölu hennar.
Ef vara er álitin sérstaklega hættuleg getur eftirlitsstjórnvald krafist tafarlausrar aft
15. gr.
Eftirlitsstjórnvald skal, eftir því sem unnt er, hafa samvinnu við ábyrgðaraðila um málsmeðferð, svo sem öflun gagna, skoðun og prófun vöru og aðgerðir eins og stöðvun sölu og afturköllun vöru.
Eftirlitstjórnvaldi ber að tilkynna ábyrgðaraðila um rökstudda ákvörðun sína svo fljótt sem unnt er. Ákvörðunin skal studd viðeigandi gögnum sem eftir aðstæðum geta verið skoðunarskýrsla, prófunarskýrsla eða önnur gögn.
Ábyrgðaraðila skal veittur eðlilegur frestur til að koma sjónarmiðum sínum á fram
Hafi eftirlitsstjórnvald bannað sölu vöru á grundvelli þess að hún uppfylli ekki ör
Heimilt er eftirlitsstjórnvaldi að endurskoða ákvörðun ef breyttar aðstæður eru fyrir hendi.
Ákvörðunum lægra setts eftirlitsstjórnvalds má skjóta til úrskurðar viðkomandi ráð
16. gr.
Ábyrgðaraðili ber kostnað vegna þeirra sýnishorna vöru sem tekin eru til rannsókn
Ábyrgðaraðili ber allan kostnað af afturköllun vöru. Sé vara ekki í samræmi við sett
17. gr.
Heimilt er að leggja sérstakt markaðsgæslugjald á ábyrgðaraðila og aðra seljendur til að standa straum af greiðslum til skoðunarstofa, kostnaði samvinnunefnda og kostn
Gjaldið skal miðast við umfang eftirlits með hverjum aðila sem ræðst af fjölda vöru
18. gr.
Sé fyrirmælum eftirlitsstjórnvalds við framkvæmd laga þessara ekki hlítt má fylgja þeim eftir með ákvörðun viðkomandi ráðherra um dagsektir sem lagðar skulu á ábyrgð
Ef mikil hætta er á að vara valdi verulegu tjóni og fyrirmælum eftirlitsstjórnvalds skv. 14. gr. hefur ekki verið hlítt skal viðkomandi eftirlitsstjórnvald leitast við að koma í veg fyrir tjónið með tiltækum aðgerðum og getur það kvatt lögreglu sér til aðstoðar í því sambandi.
VII. KAFLI
Gildistaka o.fl.
19. gr.
Fyrir brot á lögum þessum skal refsa með sektum eða varðhaldi liggi ekki þyngri refsing við broti samkvæmt öðrum lögum.
20. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Inngangur.
Frumvarp til laga um öryggi framleiðsluvöru var lagt fyrir Alþingi á 115. og 116. löggjafarþingi en varð ekki útrætt. Frumvarpið var endurskoðað veturinn 1993–94 og lagt fyrir Alþingi á ný á vorþingi 1994 sem frumvarp til laga um öryggi vöru og opin
Frumvarpið um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu, sem lagt var fram á 117. löggjafarþingi, var samið á grundvelli frumvarpsins sem lagt var fram á 115. og 116. löggjafarþingi. Frumvarpinu var þó breytt í nokkrum veigamiklum atriðum, auk þess sem því var gefið nýtt heiti. Ástæður breytinganna eru nokkrar:
Við undirbúning að sameiginlegum markaði Evrópubandalagsins ákváðu aðildar
Í frumvarpinu er kveðið á um reglur um öryggi vöru og þjónustu sem veitt er í tengslum við vöruviðskipti. Í fyrra frumvarpinu var þjónusta hins vegar ekki þrengd með þessum hætti. Er það í samræmi við norræna löggjöf að hafa þjónustu einnig innifalda. Það er hins vegar ekki gert í tilskipun EB um öryggi framleiðsl
Við umfjöllun um fyrra frumvarpið komu fram athugasemdir um að þar væru tak
Gerðar hafa verið nokkrar minni háttar breytingar á frumvarpinu frá því það var lagt fram á 117. löggjafarþingi í samræmi við ábendingar sem fram komu í umsögnun hags
Reglur um öryggi vöru á Evrópska efnahagssvæðinu.
Frumvarp þetta er samið í tengslum við aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu, sbr. lög nr. 2/1993. Samkvæmt 23. gr. og II. viðauka EES-samningsins skal samræma löggjöf aðildarríkjanna með tilliti til þeirra krafna sem gerðar eru til margvíslegra vöru
Að sömu kröfur séu gerðar til vöru í öllum aðildarríkjum EES-samningsins í því skyni að tryggja frjálsa vöruflutninga innan Evrópska efnahagssvæðisins og koma í veg fyrir tæknilegar viðskiptahindranir.
Að vörur uppfylli samræmdar kröfur um öryggi þannig að þær valdi ekki hættu fyr
Segja má að reglur um öryggi vöru á Evrópsku efnahagssvæði séu þríþættar.
Í fyrsta lagi nákvæmar reglur um einstakar vörur eða vöruflokka. Undir þennan flokk fellur fjöldi tilskipana og annarra gerða. Þær byggja oftast á ítarlegum tæknileg
Í öðru lagi tilskipanir samkvæmt hinni „nýju aðferð“ („New Approach“). Vegna þess hve ákvarðanataka við setningu tilskipana var seinvirk var í tengslum við undirbúning innri markaðar EB ákveðið að taka upp „nýja aðferð“ við gerð og setningu tilskipana. Meginþættir aðferðarinnar eru að aðeins eru settar grundvallarkröfur vegna heilbrigðis, öryggis og umhverfis en um allar tæknilegar kröfur er vísað til staðla. Hægt er að sam
Gerðar eru samræmdar kröfur um eftirlit í öllum tilskipunum. Samkvæmt hinni svo
Auk þeirra krafna, sem gerðar eru til framleiðenda, eru einnig gerðar kröfur um að opinber stjórnvöld í hverju ríki standi fyrir eftirliti með vörunum á markaði. Þau skulu fylgjast með að vörur á markaði uppfylli sett skilyrði (séu merktar með CE-merki) og séu öruggar. Finnist hættulegar vörur skal banna þær og senda tilkynningar um það til stofnana Evrópska efnahagssvæðisins (framkvæmdastjórnar EB og eftirlitsstofnunar EFTA). Ef rannsókn þessara aðila staðfestir úrskurð einstakra ríkja skal vara tekin af markaði á öllu svæðinu.
Í þriðja lagi almenn tilskipun um öryggi vöru. Ekki er ætlunin að sérhæfðar tilskip
Tilgangur laganna.
Tilgangur með lagafrumvarpinu er þríþættur:
að setja almenn lög um öryggi vöru,
að mynda lagalegan grunn fyrir tilskipanir um öryggi vöru sem ekki falla undir sér
að setja í lög ákvæði um opinbera markaðsgæslu í samræmi við eftirlitsreglur sam
Almenn ákvæði um öryggi vöru.
Hér á landi hafa ekki verið í gildi sérstök lög um öryggi vöru. Hins vegar hafa ákvæði laga nr. 24/1936, um eftirlit með matvælum og öðrum neyslu- og nauðsynjavör
Í tengslum við endurskoðun matvælalaga er gert ráð fyrir því að fyrrnefnd lög verði felld úr gildi. Því er nauðsynlegt að setja sérstakar reglur um öryggi annarrar vöru en matvæla. Í því efni er að sjálfsögðu eðlilegt að litið sé til tilskipunar EB um öryggi framleiðsluvöru enda er hún í viðbótarpakka vegna EES sem tók gildi 1. júlí 1994. Ákvæði hennar þarf því að taka í íslenskan rétt. Þess má geta að á undanförnum árum hafa verið lögfest almenn lög í öðrum EES-ríkjum um öryggi vöru.
Aðrar reglur um öryggi vöru.
Auk almennra ákvæða um öryggi vöru er sértæk ákvæði um einstaka vöruflokka að finna í mörgum lögum hér á landi. Ábyrgð á framkvæmd laganna er í höndum ýmissa stjórnvalda sem hvert um sig ber ábyrgð á eftirliti með tilteknum vöruflokkum. Sem dæmi um vöruflokka sem fullnægja þurfa lögboðnum lágmarkskröfum um öryggi vöru samkvæmt ákvæðum núgildandi laga hér á landi má nefna eftirfarandi:
Vöruflokkar Stjórnvald Lög
Vélar, vinnuvélar, katl
Eiturefni og hættuleg efni.
Matvæli og aðrar neysluvör
Búnaður sem gefur frá sér jónandi geisla.
Vinnueftirlit ríkisins.
Hollustuvernd ríkisins.
Hollustuvernd ríkisins.
Geislavarnir ríkisins.
Lög um aðbúnað, hollustu
Lög um eiturefni og hættu
Lög um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, nr. 81/1988, og lög um eftirlit með matvælum, nr. 24/1936.
Lög um geislavarnir, nr. 117/1985.
Vöruflokkar Stjórnvald Lög
Ökutæki, barnabílstólar, hjólreiðahjálmar o.fl.
Byggingarvörur.
Notendabúnaður fjar
Skotvopn, sprengiefni og skoteldar.
Rafföng.
Vogir og önnur mæli
Viðskiptaráðuneyti, um
Fjarskiptaeftirlit ríkisins.
Dómsmálaráðuneyti.
Rafmagnseftirlit ríkisins.
Löggildingarstofan. Umferðarlög, nr. 50/1987.
Reglugerð um viðskipti með byggingarvörur, nr. 431/ 1994, lög um rannsóknir í þágu atvinnuveganna, nr. 64/1985, og byggingarreglu
Fjarskiptalög, nr. 73/1984, sbr. lög nr. 32/1993.
Lög um skotvopn, sprengi
Lög um Rafmagnseftirlit ríkisins, nr. 60/1979.
Lög um mál, vog og fag
Ákvæði um eftirlit með vörum á markaði er að finna í mörgum tilskipunum sem sam
Tilskipun um notendabúnað til fjarskipta.
Tilskipun um leikföng.
Tilskipun um einföld þrýstihylki.
Tilskipun um ósjálfvirkan vogarbúnað.
Tilskipun um rafföng sem notuð eru innan ákveðinna spennumarka.
Tilskipun um tæki sem orsaka segulsviðssamhæfi.
Tilskipun um ígræðanleg lækningatæki.
Tilskipun um búnað véla.
Tilskipun um tæki sem brenna gasi.
Einnig má nefna tilskipun EB-ráðsins frá 25. júní 1987 (87/357/EBE) um vörur sem reynst gætu hættulegar heilsu og öryggi neytenda þar eð þær virðast aðrar en þær eru, oft nefndar hættulegar eftirlíkingar.
Að auki eru væntanlegar nýaðferðartilskipanir um fleiri vöruflokka. Meðal annars má nefna:
Tilskipun um lyftur og lyftubúnað.
Tilskipun um lækningatæki.
Tilskipun um bólstruð húsgögn.
Tilskipun um tæki á leikvöllum.
Tilskipun um tæki í skemmtigörðum.
Tilskipun um búnað skipa.
Tilskipun um togbrautabúnað.
Tilskipun um sjúkdómsgreiningarbúnað.
Tilskipun um þrýstigeyma.
Tilskipun um vélar.
Tilskipun um skemmtibáta.
Í nokkrum tilvikum er þegar kveðið á um öryggi ofangreindra vöruflokka og eftirlit með þeim í gildandi lögum, t.d. notendabúnaðar til fjarskipta og raffanga, en í öðrum til
Með frumvarpi þessu er lagt til að úr þessu verði bætt þannig að viðskiptaráðherra verði falið að setja fram kröfur um öryggi vöru í þeim tilvikum þegar ekki er sérstaklega kveðið á um slíkt í öðrum lögum.
Ákvæði um opinbera markaðsgæslu.
Með gagnkvæmri viðurkenningu á vottunum og prófunum á Evrópska efnahagssvæðinu fellur niður það eftirlit sem haft hefur verið með vöru í einstökum ríkum áður en hún kem
Í núgildandi lögum eru mjög takmörkuð ákvæði um hvernig staðið skuli að eftirliti á markaði, þ.e. hvernig eftirlit skuli framkvæmt og hvaða aðgerða stjórnvöld geti gripið til í einstökum tilfellum. Ákvæðin eru ekki í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru til mark
Við núverandi aðstæður er öryggi í raun takmarkað þar sem ekki er unnið með skipu
Eins og áður er nefnt er í mörgum tilskipunum gerð krafa til þess að einstök ríki komi á fót opinberri markaðsgæslu og því þykir nauðsynlegt að settar séu skýrar reglur um hana hér á landi. Opinber markaðsgæsla skiptist í markaðseftirlit annars vegar og stjórnvaldsað
Markaðseftirlit byggist á markaðsskoðunum, þ.e. vörur eru skoðaðar af hæfum aðila á markaði. Skoðanir geta verið úrtaksskoðanir, skoðanir vegna sérstaks átaks og ábend
Stjórnvaldsaðgerðir geta verið af ýmsu tagi. Stjórnvöld geta veitt leiðbeiningar, komið með ábendingar um úrbætur, bannað sölu vöru, annaðhvort tímabundið eða varanlega, eða krafist innköllunnar vörunnar af markaði og frá neytendum.
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir því að markaðseftirliti verði sinnt af óháðum faggiltum skoðunarstofum, einni eða fleiri. Gert er ráð fyrir að skoðunarstofur verði í flestum tilfell
Nauðsynlegt er að skoðunaraðili sé faglega hæfur. Með faggildingu er tryggt að skoð
Með því að fela skoðunarstofu markaðseftirlit eru hefðbundin stjórnsýsluverkefni skilin frá framkvæmd eftirlits. Náin tengsl stjórnsýslu og eftirlits eru óæskileg. Í eftirliti fer fram margháttað tæknilegt mat. Óheppilegt er að aðili, sem tekur ákvarðanir, beri beina ábyrgð á hinu tæknilega mati og mikilvægt er að skýr skil séu milli tæknilegs mats og stjórnsýslu
Af hálfu skoðunarstofu þarf ekki aðeins að sýna fram á hæfni, það verður einnig að sýna fram á að unnið sé eftir skýrum og skjalfestum reglum og hlutleysis gætt og jafnræðis í markaðseftirliti.
Sama skoðunarstofan getur unnið að markaðseftirliti fyrir mörg stjórnvöld. Með því fæst mikilvæg samþætting eftirlits með ýmsum vöruflokkum. Það segir sig sjálft að engin skynsemi er í því að margar stofnanir hafi eftirlitsmenn á sínum vegum sem hafa meira og minna eftirlit með vörum hjá sömu aðilum. Með samþættingu má lækka kostnað og ein
Þess skal getið í þessu sambandi að viðskiptaráðuneytið gerði síðari hluta ársins 1992 samning við Bifreiðaskoðun Íslands hf. um þróunarverkefni á sviði markaðseftirlits með rafföngum. Þetta verkefni hefur gengið að óskum og að mati ráðuneytisins liggur nú að mestu ljóst fyrir hvaða verklagsreglum þurfi að fylgja við markaðseftirlit, hvernig háttað skuli verksamningum við þá aðila sem taka að sér markaðseftirlit og hvernig skipuleggja skuli samstarf stjórnvalds og skoðunarstofu. Í september 1994 var síðan gerður tímabund
Gert er ráð fyrir því að samstarf stjórnvalds og skoðunarstofu fari fram í sérstakri sam
Verkaskipting stjórnvalda.
Þegar setja á almenn lög á sviði þar sem fyrir eru mörg sérlög þarf að ákveða hvar mörkin milli sérlaga og almennra laga eigi að liggja. Í þessu tilfelli þarf að móta hvaða þættir varðandi öryggi vöru eiga að vera í höndum Löggildingarstofunnar og hvaða þættir eiga að vera í höndum annarra stjórnvalda. Við undirbúning frumvarpsins voru nokkrar leiðir kannaðar.
Einfaldasta leiðin er e.t.v. að allt eftirlit með öryggi almenns neysluvarnings sé á ábyrgð sama aðila. Þessi aðferð hefur ýmsa kosti, svo sem samhæfingu og möguleika á hagkvæmni í eftirliti. Gallar hennar eru að hætt er við að farið sé á mis við mikilvæga sér
Önnur leið er að gildissvið almennra ákvæða sé eins takmarkað og unnt er. Eftirlit er þá að öllu leyti í höndum stjórnvalda sem annast framkvæmd sérlaga nema varðandi þá vöruflokka sem ekki falla undir slík stjórnvöld. Þetta var að miklu leyti sú leið sem valin var í frumvarpinu sem lagt var fram á 115. og 116. löggjafarþingi. Við nánari athugun hef
Þörf fyrir samhæfingu er af ýmsu tagi. Mikilvægt er að markaðseftirlit sé framkvæmt eftir samræmdum reglum og að reglurnar séu túlkaðar á samræmdan hátt. Í mörgum tilfell
Eins og nefnt var að framan er mikil hagkvæmni fólgin í því að samþætta markaðseftir
Í ljósi þessa er gert ráð fyrir að tekin verði upp ákveðin verkaskipting milli Löggilding
Verkaskiptingin er í stuttu máli sú að eftirlitsstjórnvöld (og viðkomandi ráðuneyti) setja reglur um þá vöruflokka sem undir þau heyra, móta meginstefnu um áherslur í markaðseft
Löggildingarstofan annast heildarskipulag opinberrar markaðsgæslu, sker úr um undir hvaða eftirlitsstjórnvald vöruflokkur heyrir leiki vafi á slíku og sér um samhæfingu þegar vara heyrir undir fleiri en eitt eftirlitsstjórnvald. Löggildingarstofan er eftirlitsstjórnvald fyrir þá vöruflokka sem ekki eru á ábyrgð annarra eftirlitsstjórnvalda samkvæmt sérlögum. Samningsgerð við skoðunarstofur annast eftirlitsstjórnvöld og Löggildingarstofan í sam
Kostnaður og fjármögnun.
Fjármögnun markaðseftirlits er nokkrum vandkvæðum bundin. Með niðurfellingu tæknilegra viðskiptahindrana næst umtalsverður sparnaður fyrir framleiðendur og innflytj
Gert er ráð fyrir að þeir aðilar, sem bera ábyrgð á vöru sem ekki uppfyllir settar regl
Gert er ráð fyrir að heimilt verði að innheimta sérstakt markaðseftirlitsgjald sem lagt verði á þá aðila sem framleiða, dreifa og selja þær vörur sem eftirlit er haft með. Gjaldið verður breytilegt eftir því hve umsvif hvers aðila eru mikil og eftir skoðana
Þá er einnig gert ráð fyrir því að eftirlitsstjórnvöld greiði þann kostnað sem ekki er greiddur af gjöldum vegna markaðseftirlits. Eftirlitsstjórnvöld eiga nú þegar að hafa eftirlit með vörum á markaði og geta því af núverandi fjárveitingum staðið fyrir mark
Auk beins kostnaðar opinberra aðila mun nokkur kostnaður lenda á fyrirtækjum. Erfitt er að meta hversu hár slíkur kostnaður er, en hann ætti ekki að vera umtalsverður. Vert er að vekja athygli á því að sá kostnaður, sem hér er gert ráð fyrir að lagt verði í, er bein af
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Lagt er til að lögin nái bæði til vöru og þjónustu sem veitt er í tengslum við vöruvið
Lagt er til að lögin nái jafnt til öryggis vara sem seldar eru hér á landi og vara sem sett
Ekki er gert ráð fyrir að lögin nái til matvæla, lyfja, eiturefna og hættulegra efna. Um lyf gilda mjög sérhæfðar reglur og eftirlit með þeim er mun nákvæmara en það eftirlit sem lög þessi mæla fyrir um. Gert er ráð fyrir að ný almenn lög um matvæli taki gildi mjög fljótlega og því þykir ekki þörf á að ákvæði þessara laga taki til matvæla. Eftirlit með mat
Þá er heldur ekki gert ráð fyrir að ákvæði laganna um opinbera markaðsgæslu nái til vöru sem nær eingöngu er notuð í atvinnurekstri. Í frumvarpinu, sem lagt var fram á 117. löggjafarþingi, var þetta ákvæði víðtækara því að þá var gert ráð fyrir að slík vara yrði al
Um 2. gr.
Hér er fjallað um þá meginreglu að vörur, sem ætlaðar eru til hvers konar sölu, leigu eða annarrar afhendingar á markaði í atvinnuskyni, verði að fullnægja þeim kröfum sem gerðar eru til þeirra vegna almannahagsmuna í reglugerðum eða viðurkenndum stöðlum um öryggi og vernd heilsu og umhverfis. Í 2. mgr. er ákvæði um að komið skuli á fót opin
Um 3. gr.
Almenn framkvæmd laganna er í höndum viðskiptaráðherra en dagleg framkvæmd er í höndum Löggildingarstofunnar og eftirlitsstjórnvalda. Um verkaskiptingu þessara aðila vísast til athugasemda við 9. og 10. gr.
Um 4. gr.
Í þessari grein er fjallað um ýmsar skilgreiningar orða sem notuð eru í frumvarpinu. Við samningu skilgreininganna er m.a. stuðst við ákvæði fyrrnefndrar tilskipunar EB um ör
Um 5. gr.
Hér er lögð sú ábyrgð á ábyrgðaraðila, en ábyrgðaraðili er sá aðili sem ber ábyrgð á markaðssetningu vöru, sbr. 4. gr., að þeir gæti þess að vara þeirra sé örugg og er óheimilt að setja hættulega vöru á markað. Þeim er jafnframt skylt að tilkynna um leið og þeir fá vitneskju um hættulega vöru sem þeir kunna að hafa sett á markað fyrir vangá eða van
Um 6. gr.
Eins og rakið er í athugasemdum við frumvarpið er ekki ætlunin að breyting verði á verkaskiptingu ráðuneyta varðandi setningu reglna um öryggi vöru verði frumvarp þetta að lögum. Þvert á móti er gert ráð fyrir að viðskiptaráðherra setji aðeins fram kröfur um öryggi vöru ef öðrum er ekki falið það verkefni með lögum. Þannig mun t.d. setning reglna um öryggi barnabílstóla áfram heyra undir dómsmálaráðuneytið á grundvelli umferðarlaga en hins vegar mun viðskiptaráðherra setja reglur um öryggi leikfanga á grundvelli ákvæða í þessu frumvarpi.
Í greininni er ráðherra heimilt að ákveða í reglugerð um kröfur sem gerðar eru til ör
Um 7. gr.
Hér er lagt til að ráðherra fái heimild til þess að ákveða með reglugerð að vörum í ákveðnum vöruflokkum skuli fylgja upplýsingar um eiginleika þeirra og notagildi í því skyni að auðvelda neytendum vöruval. Hér er ekki skilyrði að upplýsingarnar fjalli um ör
Um 8. gr.
Hér er fjallað um markmið opinberrar markaðsgæslu sem er að vörur á markaði uppfylli settar reglur og skapi ekki hættu.
Framkvæmd laganna er í höndum Löggildingarstofunnar, eftirlitsstjórnvalds og skoðun
Um 9. gr.
Eftirlitsstjórnvald annast hinn raunverulega stjórnvaldsþátt opinberrar markaðsgæslu, þ.e. ákveður umfang og áherslur og tekur ákvarðanir sem beinast að vöru sem ekki uppfyll
Um 10. gr.
Hér er lagt til að Löggildingarstofan annist samhæfingarhlutverk í opinberri markaðs
Sú tillaga að fela Löggildingarstofunni þetta verkefni er þáttur í áætlun iðnaðar- og við
Þótt ekki sé beinlínis kveðið á um það í frumvarpinu er gert ráð fyrir að samskipti við eftirlitsstofnun EFTA, þar með talið að senda og taka við tilkynningum um hættulegar vör
Um 11. gr.
Í greininni er að finna ákvæði um að markaðseftirlit skuli framkvæmt af faggiltri skoð
Um 12. gr.
Hér er fjallað um starfsemi samvinnunefndar. Gert er ráð fyrir að meginreglan verði sú að á starfssviði hvers eftirlitsstjórnvalds starfi ein samvinnunefnd. Þó er heimilt að víkja frá þessu, t.d. ef eftirlitsstjórnvald ber ábyrgð á vöruflokkum sem eru mjög ólíkir og kalla á ólíka sérþekkingu fulltrúa eftirlitsstjórnvalds og skoðunarstofu í samvinnunefnd. Einnig geta eftirlitsstjórnvöld sameinast um samvinnunefnd sé slíkt talið henta. Með þessu móti er unnt að tryggja að verkefni hverrar samvinnunefndar séu hæfilega umfangsmikil og að fagleg sérþekking nefndarmanna sé tryggð.
Um 13. gr.
Í greininni er fjallað um rétt og skyldur aðila sem framkvæma markaðsskoðun og jafn
Um 14. gr.
Hér er fjallað um úrræði stjórnvalds ef í ljós kemur að vara er hættuleg eða rökstuddur grunur bendir til þess. Úrræðin eru tímabundið bann við sölu, varanlegt bann við sölu og loks afturköllun vöru.
Þá er kveðið á um skyldu ábyrgðaraðila til þess að lagfæra vöru svo að hún uppfylli settar reglur, afhenda kaupendum sams konar vöru hættulausa eða greiða þeim andvirði vörunnar. Þá er hægt að skylda ábyrgðaraðila til að eyðileggja öll eintök vörunnar með ör
Um 15. gr.
Hér er fjallað um samskipti eftirlitsstjórnvalds og þess sem ábyrgð ber á markaðssetn
Um 16. gr.
Hér er fjallað um kostnaðarskiptingu milli ábyrgðaraðila og þess sem annast markaðs
Reynist nauðsynlegt að afturkalla vöru ber ábyrgðaraðili allan kostnað af því og eins ber hann kostnað af rannsókn vöru ef hún reynist ekki vera í samræmi við settar reglur um öryggi vöru. Hins vegar ber hin opinbera markaðsgæsla kostnaðinn ef ekkert reynist at
Lagt er til að heimilað sé að ákveða gjöld fyrir rannsókn vöru með gjaldskrá sem stað
Um 17. gr.
Hér er fjallað um sérstakt markaðsgæslugjald sem gert er ráð fyrir að heimilt verði að leggja á ábyrgðaraðila og aðra seljendur. Eins og áður hefur komið fram þótti þetta skyn
Um 18. gr.
Í þessari grein er ráðherra heimilað að leggja á dagsektir, sem nema mega allt að 50.000 krónum á sólarhring, til þess að knýja ábyrgðaraðila eða forsvarsmenn hans til þess að hlíta fyrirmælum stjórnvalds við framkvæmd laganna. Ákvörðun um slíkar dagsektir er aðfarar
Í 2. mgr. er mælt fyrir um að stjórnvald geti kvatt lögreglu sér til aðstoðar til að koma í veg fyrir verulegt tjón hafi fyrirmælum þess samkvæmt lögunum ekki verið hlítt.
Um 19. gr.
Greinin þarfnast ekki sérstakra skýringa.
Um 20. gr.
Greinin þarfnast ekki sérstakra skýringa.
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til laga um öryggi vöru
og opinbera markaðsgæslu.
Frumvarpið er lítið breytt frá frumvarpi um sama efni sem flutt var á 117. löggjafar
Samkvæmt IV. kafla frumvarpsins ber Löggildingarstofu að annast heildarskipulag op
Ekki er enn ljóst hversu mikið sjálf markaðsgæslan muni kosta því að enn er eftir að móta reglur um gjöld skv. 17. gr. Það er stefna stjórnvalda að umrætt markaðsgæslugjald kosti að fullu þá markaðsgæslu sem höfð verður uppi og fjármagni algjörlega greiðslur til skoðunarstofu og samvinnunefnda og kostnað Löggildingarstofunnar sjálfrar af þessum starfsþætti hennar. Ekki er ætlað að til sérstakrar fjárveitingar úr ríkissjóði þurfi að koma vegna þessa.