Ferill 203. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 203 . mál.
229. Tillaga til þingsályktunar
um framkvæmdaáætlun í umferðaröryggismálum.
Flm.: Steingrímur J. Sigfússon.
Alþingi ályktar að fela dómsmálaráðherra að gera framkvæmdaáætlun til fjögurra ára í umferðaröryggismálum. Áætlunin feli í sér aðgerðir til að draga úr umferðarslysum með sérstakri áherslu á að fækka óhöppum og slysum þar sem ungmenni eiga í hlut.
Áætlunin taki m.a. til:
— aðgerða á sviði forvarna og fræðslu og annarra fyrirbyggjandi ráðstafana,
— breytinga á lögum og reglum um umferðarmál, þjálfun ökumanna og ökuréttindi,
— samþættingar umferðaröryggismála og stefnumótunar í samgöngumálum,
— aðgerða á sviði slysavarna,
— tillagna um fjármögnun.
Ályktunin verði lögð fyrir Alþingi til afgreiðslu ásamt tilheyrandi lagafrumvörpum, ef þörf krefur, eigi síðar en í október 1995.
Greinargerð.
Það er því miður vel þekkt staðreynd að tíðni slysa og óhappa í umferðinni er há hér á landi og óheyrileg meðal yngstu ökumannanna. Þessi hörmulegu slys hvort heldur þau hafa í för sér með dauða eða varanleg örkuml eru böl sem snerta fjölda fólks árlega. Þegar rýnt er í skýrslur um slys og óhöpp kemur í ljós að ekki aðeins er tíðni slysa og óhappa mest í hópi yngstu ökumannanna, heldur er tíðnin einnig á uppleið. Fyrir tveimur árum flutti flutningsmaður þessarar tillögu ásamt fleirum frumvarp til laga um breytingu á umferðar
Ljóst er að umferðaröryggismál eru fjölþætt og til þess að árangur náist þurfa margir að leggja hönd á plóginn. Auka þarf fræðslu og umræður um þessi mál, bæta kennslu og þjálfun ökumanna, gera löggæslu og fleiri aðilum kleift að sinna enn frekar fyrirbyggjandi starfi og móta áherslur í samgöngumálum sem stefna að auknu umferðaröryggi. Er þá bæði átt við mannvirkjagerð og áherslur í rekstri samgöngukerfisins, svo sem auknar almenn
Tillagan gerir ráð fyrir að samin verði sérstök framkvæmdaáætlun sem taki til allra þátta þessa fjölþætta verkefnis. Tillagan þarf að mæla fyrir um samstarf mismunandi aðila að verkefninu og hvernig fjármögnun aðgerða verði háttað. Umferðarslys eru þjóðinni dýr því að fyrir utan þjáningar og/eða óbætanlegan missi einstaklinga og fjölskyldna eru miklar fjárhæðir í húfi fyrir þjóðarbúið. Nýlega kom fram í fréttum að á fyrstu níu mánuðum ársins hafi 12.000 bílar lent í árekstrum, með tilheyrandi kostnaði. Því fer víðs fjarri að þeim fjármunum, sem varið yrði til þess að auka umferðaröryggi, yrði kastað á glæ, en ljóst er að stórauka verður fjárveitingar til málaflokksins.
Heildstæðar áætlanir um verkefni af þessu tagi hafa víða skilað miklum árangri. Nefna má heilbrigðisáætlun og ýmsar framkvæmdaáætlanir sem dæmi þar sem byggt er á tiltekn
Sjálfsagt er að dómsmálaráðherra leiti samstarfs við helstu aðila sem þessum málum tengjast, svo sem Umferðarráð, slysavarnaráð, lögregluna, samgönguráðuneyti og Vegagerðina, menntamálaráðuneyti o.fl.
Jafnvel mætti hugsa sér að fela einstaka þætti verksins aðilum eins og Umferðarráði, sbr. ákvæði XV. kafla umferðarlaga um hlutverk þess.
Enginn vafi er á að unnt er að ná árangri, auka öryggi í umferðinni og draga úr slysum með markvissum aðgerðum. Reynslan hefur sýnt að átak í fræðslumálum og aukið umferð
Fylgiskjal I.
ÚR ÁRSSKÝRSLU UMFERÐARRÁÐS 1993
Repró 15 síður
Fylgiskjal II.
Frumvarp til laga um breytingu á umferðarlögum, nr. 50/1987.
(194. mál á 116. löggjafarþingi. Flm.: SJS, KÁ, VS.)
1. gr.
Í stað 1.–2. mgr. 51. gr. laganna koma þrjár nýjar málsgreinar er orðast svo:
Ökuskírteini eru þrenns konar: Reynsluskírteini, bráðabirgðaskírteini og fullnaðarskír
Reynsluskírteini er gefið út til byrjenda og gildir í sex mánuði. Brjóti handhafi reynslu
Bráðabirgðaskírteini er gefið út að loknum gildistíma reynsluskírteinis og gildir í tvö ár.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Greinargerð.
Frumvarp þetta gengur út á að gera eina einfalda breytingu á þeim kafla umferðarlaga sem fjallar um ökupróf og ökuskírteini, breytingu sem felur það í sér að við upphaf öku
Horfast verður í augu við þá staðreynd að tíðni óhappa og slysa er óheyrilega mikil meðal yngstu ökumannanna og þar af verða sorglega mörg alvarleg slys á fyrstu vikum og mánuðum sem menn stjórna ökutækjum. Eins og reglur eru í dag eru því engin sérstök tak
Hér er valin sú leið að gera það að skilyrði á reynslutíma (gildistíma reynsluskírteinis) ökumanns að í fylgd með honum sé a.m.k. einn reyndari stjórnandi.
Eins og hörmuleg dæmi sanna er ekkert því til fyrirstöðu í dag að nýútskrifaður stjórn
Með viðveru reyndari stjórnenda og reynsluskírteini byrjandans vinnst a.m.k. tvennt, til staðar er meiri reynsla og þjálfun í mati á aðstæðum og akstri sem þeim hæfir og með reynslutímabili og reynsluskírteini er byrjandinn minntur á stöðu sína.
Með tillögu þessari er á engan hátt verið að varpa rýrð á ökukennslu í landinu eða þær kröfur sem gerðar eru til nemenda á ökuprófi og niðurstaða flutningsmanna var að gera ekki að svo stöddu neinar tillögur um breytingar á því fyrirkomulagi sem þar er við lýði.Vissulega hafa á undanförnum árum komið fram hugmyndir og tillögur um breytingar á tilhögun ökukennslu og ökuprófa sem eru allrar athygli verðar en hér er lögð til einföld en að mati flutningsmanns árangursrík aðferð við að draga úr þeim hlutfallslega mikla háska sem fylgir fyrstu mánuðum bílstjóraferilsins og dapurlegar staðreyndir úr skýrslum um slys og óhöpp í umferðinni tala skýru máli um.
Upplýsingar úr gagnabanka Umferðarráðs, sem fylgja tillögunni og taka til áranna 1986–1991, að báðum árum meðtöldum, sýna ekki aðeins að tíðni óhappa og slysa er mest í hópi yngstu ökumannanna, heldur einnig að tíðnin er vaxandi á þessu tímabili.
Ef árið 1991 er skoðað sérstaklega og tekið fyrir aldursbilið 17–64 ára, flokkað eins og gert er á skráningarblöðum Umferðarráðs, kemur eftirfarandi í ljós:
Fjöldi slasaðra og látinna.
Bifreiðar: 17–20 ára 133 = 33 að meðaltali úr árgangi
21–24 ára 58 = 15 að meðaltali úr árgangi
25–64 ára 229 = 6 að meðaltali úr árgangi
Bifhjól: 17–20 ára 26 = 7 að meðaltali úr árgangi
21–24 ára 10 = 3 að meðaltali úr árgangi
25–64 ára 11 = >1 að meðaltali úr árgangi
Ef aldur ökumanna, sem áttu aðild að slysum, er skoðaður nánar kemur í ljós að á árinu 1991 voru
17 ára ökumenn 136
18 ára ökumenn 96
19–24 ára ökumenn 244 eða 41 að meðaltali úr árgangi
25–64 ára ökumenn 563 eða 16 að meðaltali úr árgangi
(Meðaltöl hækkuð eða lækkuð í næstu heila tölu.)
Önnur ár segja svipaða sögu. Ef tekið er meðaltal yfir árabilið 1986–1991, að báðum árum meðtöldum, er útkoman eins og sjá má í meðfylgjandi töflu, sjá fskj. I. Rétt er að hafa í huga að hér eru einungis skoðaðir aldurshóparnir 17–64 ára og ekki er leiðrétt til samræmis við mismunandi fjölda í árgangi eða því um líkt. Engu að síður segja þessar tölur mikið um hina háu slysatíðni í hópi yngstu ökumannanna og í því sambandi er sláandi að í öllum tilvikum er fjöldi 17 ára ökumanna, sem tengjast óhöppum, mun meiri en þeirra sem eru ári eldri.
Fskj I.
Fjöldi slasaðra og látinna.
1986 Meðalt. 1987 Meðalt. 1988 Meðalt. 1989 Meðalt. 1990 Meðalt. 1991 Meðalt. Samtals Meðalt. Meðalt. í árgangi
í árg. í árg. í árg. í árg. í árg. í árg. á tímab. yfir allt tímab.
Bifreiðar:
17–20 ára 98 24.5 107 26.8 104 26.0 82 20.5 102 25.5 133 33.3 626 104.3 26.1
21–24 ára 44 11.0 65 16.3 48 12.0 34 8.5 48 12.0 58 14.5 297 49.5 12.4
25–64 ára 168 4.2 196 4.9 175 4.4 174 4.4 179 4.5 229 5.7 1121 186.8 4.7
Bifhjól:
17–20 ára 15 3.8 4 1.0 7 1.8 19 4.8 19 4.8 26 6.5 90 15.0 3.8
21–24 ára 8 2.0 2 0.5 7 1.8 9 2.3 5 1.3 10 2.5 41 6.8 1.7
25–64 ára 3 0.1 2 0.1 4 0.1 8 0.2 5 0.1 11 0.3 33 5.5 1.4
Aldur ökumanna sem lenda í slysum.
17 ára 70 70.0 76 76.0 91 91.0 76 76.0 83 83.0 136 136.0 532 88.7 88.7
18 ára 62 62.0 61 61.0 78 78.0 64 64.0 63 63.0 96 96.0 424 70.7 70.7
19–24 ára 231 38.5 250 41.7 220 36.7 172 28.7 206 34.3 244 41.0 1323 220.5 36.8
25–60 ára 386 10.7 435 12.6 447 12.4 394 10.9 442 12.3 563 16.0 2685 447.5 12.4