Ferill 229. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 229 . mál.
269. Tillaga til þingsályktunar
um fullgildingu samnings um stofnun Alþjóðaviðskiptastofnunar.
(Lögð fyrir Alþingi á 118. löggjafarþingi 1994.)
Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að fullgilda fyrir Íslands hönd samning um stofnun Alþjóðaviðskiptastofnunar sem undirritaður var í Marakess í Marokkó 15. apríl 1994.
Athugasemdir við þingsályktunartillögu þessa.
Á ofanverðum áttunda áratugnum stefndu almennar verðhækkanir og verndarsjónarmið í viðskiptasamskiptum ríkja efnahagsþróun í hættu. Æ betur varð ljóst að hið almenna samkomulag um tolla og viðskipti (GATT) svaraði ekki lengur kröfum nútímaheimsviðskipta sem urðu stöðugt umfangsmeiri og flóknari. Reglur vantaði t.d. um þjónustuviðskipti sem fóru stöðugt vaxandi en GATT fjallar eingöngu um vöruviðskipti. Einnig var orðið brýnt að setja skýrar reglur um hugverkaréttindi í viðskiptum og kröfur voru um að fella viðskipti með landbúnað betur undir GATT-reglurnar. Þá voru spunavörur og klæðnaður einnig háð sérsamningnum á skjön við hinar almennu reglur GATT með þeim afleiðingum að flest iðnríki höfðu verndað markaði sína fyrir innflutningi frá þróunarríkjum sem knúðu orðið á um aukið frjálsræði í verslun með þessar vörur.
Úr þessum jarðvegi spruttu hugmyndir um Úrúgvæviðræðurnar og var ákveðið eftir töluverðan aðdraganda að hleypa þeim af stokkunum á ráðherrafundi aðildarríkjanna í Punta del Este í Úrúgvæ árið 1986. Þátttökuríki urðu 124 auk ESB áður en samningsniðurstöður lágu fyrir.
Með Úrúgvæviðræðunum færðust þátttökuríkin afar mikið í fang enda um að ræða langviðamestu viðskiptaviðræður um aukið frelsi í heimsversluninni sem átt hafa sér stað. Markmið viðræðnanna var að taka viðskiptakerfi GATT til gagngerrar endurskoðunar og koma á nýskipan heimsviðskipta. Til að samkomulag næðist um að hefja þessar viðræður var nauðsynlegt að þær fjölluðu um hina fjölmörgu og ólíku hagsmuni aðildarríkjanna. Með þessu móti var ætlunin að allir tækju á sig skuldbindingar og fórnuðu a.m.k. stundarhagsmunum á einu sviði gegn því að hljóta ávinning á öðru.
Niðurstöður viðræðnanna eru í lokagerð þeirra sem samanstendur af samningi um stofnun Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (World Trade Organization, WTO), viðaukum við hann auk ýmissa ráðherraákvarðana og -viljayfirlýsinga sem ráðherrar samþykktu 15. apríl 1994 í Marakess.
Við lok seinni heimsstyrjaldarinnar var ætlunin að setja á stofn þrjár nátengdar stofnanir um alþjóðlega efnahags- og viðskiptasamvinnu ríkja. Einungis náðist samkomulag um stofnun tveggja þeirra, þ.e. Alþjóðgjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans. Með gildistöku samningsins um stofnun Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar verður þriðja stofnunin loks sett á fót.
Megintexti stofnsamnings Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar fjallar um gildissvið stofnunarinnar, starfsemi, uppbyggingu, aðalskrifstofu, fjármál, ákvarðanatöku, aðild, gildistöku o.fl. Hann myndar stofnanalegan ramma utan um hina ólíku samninga sem gerðir voru í Úrúgvæviðræðunum og eru í viðaukunum. Viðaukarnir eru eftirfarandi:
1A. Alþjóðasamningar um vöruviðskipti. Í þessum viðauka er hinn almenni samningur um tolla og viðskipti og ýmis samkomulög um nánari túlkun einstakra ákvæða hans. Einnig eru í viðaukanum sérsamningar á vörusviðinu, þar á meðal samningur um landbúnað, samningur um beitingu ráðstafana um hollustuhætti og heilbrigði dýra og plantna, samningur um styrki og jöfnunarráðstafanir o.fl.
1B. Hinn almenni samningur um þjónustuviðskipti.
1C. Samningur um hugverkarétt í viðskiptum.
2. Samningur um reglur og málsmeðferð við lausn deilumála.
3. Heildarathugun á viðskiptastefnu aðildarríkjanna.
4. Fjölþjóðaviðskiptasamningar.
Með fullgildingu samningsins um stofnun Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar felst aðild að stofnuninni og samþykki á megintexta samningsins og viðaukum 1–3 við hann. Ekki er skylduaðild að fjölþjóðasamningunum sem eru í viðauka 4 við hann. Ísland er ekki aðili að neinum þeirra samninga. Ráðherraákvarðanirnar og -viljayfirlýsingar, sem ráðherrar samþykktu í Marakess, eru ýmist mjög almenns eðlis eða ákvarðanir um áframhaldandi samningaviðræður á þeim sviðum þjónustuviðskipta þar sem ekki náðist samstaða fyrir lok Úrúgvæviðræðnanna. Þær hafa að mestu þegar komið til framkvæmda.
Gildistökudagur samningsins um stofnun Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar er samkvæmt lokagerð Úrúgvæviðræðnanna 1. janúar 1995 eða fljótlega þar á eftir. Endanleg ákvörðun um gildistökudag samningsins verður tekin á fundi aðildarríkjanna í desember 1994.
Ástæðan fyrir því að sú leið var valin að leggja samninginn fyrir Alþingi í formi þingsályktunar frekar en með frumvarpi til laga er m.a. sú að hér er um milliríkjasamning að ræða um samskipti ríkja á viðskiptasviðinu og því geta einungis ríki en ekki einstaklingar eða fyrirtæki leitað til stofnunarinnar. Þá verða ýmsir sérsamninganna endurskoðaðir reglulega sem mundi kalla á lagabreytingar í samræmi við það ef samningurinn yrði lögfestur. Þess skal og getið að Finnland, Noregur og Svíþjóð hafa sama háttinn á.
Hinn 3. mars 1994 skipaði forsætisráðherra samstarfsnefnd fimm ráðuneyta til að undirbúa nauðsynlegar breytingar á löggjöf um innflutning og vöruviðskipti sem leiðir af fullgildingu Íslands á samningnum um stofnun Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar og þá einkum í tengslum við viðskipti með landbúnaðarvörur.
Í fskj. I er gerð grein fyrir samningnum um stofnun Alþjóðaviðskiptastofnunar og viðaukum hans, í fskj. II beinum og óbeinum ávinningi Íslands af þeim samningi. Íslensk þýðing lokagerðar Úrúgvæsamningaviðræðnanna og samningsins um Alþjóðaviðskiptastofnunina er í fskj. III og enskur texti lokagerðarinnar og samningsins í fskj. IV. Í fskj. V er skrá Íslands yfir framkvæmd skuldbindinga þess samkvæmt hinum almenna samningi um viðskipti með þjónustu. Þessar skuldbindingar varða markaðsaðgang fyrir þjónustu og ýmis réttindi og skyldur í tengslum við hann. Nánar er fjallað um þær í fskj. I. Þátttökuríkin í Úrúgvæviðræðunum þurftu einnig að gera skuldbindingaskrá fyrir tollalækkanir á iðnaðarvörum og fyrir framkvæmd skuldbindinga sem felast í landbúnaðarsamningnum (um innanlandsstuðning, markaðsaðgang og útflutningsbætur). Skrárnar um markaðsaðganginn munu fylgja sem viðaukar við frumvarp til breytinga á tollalögum sem lagt verður fyrir Alþingi. Skrárnar um innanlandsstuðning og útflutningsbætur eru hins vegar í fskj. VI ásamt bréfi fastafulltrúa Íslands hjá GATT sem fylgdi skuldbindingaskránum í landbúnaði þegar þær voru lagðar fram.
Fylgiskjal I.
Samningur um stofnun Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar.
REPRÓ 9 bls.
Fylgiskjal II.
REPRÓ 22 bls.
..........
Á fskj. III og IV var birtur megintexti stofnsamnings Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (á íslensku og ensku) ásamt viðaukum samkvæmt lokagerð niðurstaðna Úrúgvæsamningaviðræðnanna um alþjóðaviðskipti. Um þessi gögn vísast til þingskjalsins (lausaskjalsins). Samningurinn verður enn fremur prentaður í C-deild Stjórnartíðinda.
..........
Á fskj. V var birtur á íslensku og ensku texti af skrá yfir framkvæmd sérstakra skuldbindinga Íslands samkvæmt hinum almenna samningi um viðskipti með þjónustu; um þau gögn vísast til þingskjalsins (lausaskjalsins).
..........
Fylgiskjal VI.
SKJAL REPRÓ, þ.e. íslenski textinn.
..........
Á fskj. VI var einnig birtur á ensku texti skránna um innanlandsstuðning og útflutningsbætur og texti bréfs fastafulltrúa Íslands hjá GATT sem fylgdi skuldbindingaskránum í landbúnaði þegar þær voru lagðar fram.