Ferill 242. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 242 . mál.


283. Frumvarp til laga



um heimild til sölu hlutabréfa ríkissjóðs í Lyfjaverslun Íslands hf.

(Lagt fyrir Alþingi á 118. löggjafarþingi 1994.)



1. gr.


    Fjármálaráðherra er heimilt að selja öll hlutabréf ríkissjóðs í Lyfjaverslun Íslands hf.

2. gr.


    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Tilgangur þessa frumvarps er að afla heimildar Alþingis til að selja, að öllu leyti eða hluta, þann helming hlutabréfa ríkisins í Lyfjaverslun Íslands hf. sem ekki er lagaheimild fyrir. Heimild var í lögum nr. 75/1994, um stofnun hlutafélags um rekstur Lyfjaverslunar ríkisins, til að selja allt að helming hlutabréfa ríkisins í félaginu.
    Í kjölfar laga nr. 75/1994 var hlutafélag stofnað sem tók við rekstri fyrirtækisins 1. júlí 1994.
    Undirbúningur að einkavæðingu Lyfjaverslunar ríkisins hófst í ágúst 1991 með skipun starfshóps sem falið var að gera tillögur um einkavæðingu fyrirtækisins. Tillögur hópsins gerðu ráð fyrir að fyrirtækinu væri breytt í hlutafélag sem síðan yrði selt. Þessar tillögur voru síðan lögfestar með framangreindum lögum. Fyrir hönd fjármálaráðuneytis hefur framkvæmdanefnd um einkavæðingu sinnt undirbúningi að einkavæðingu fyrirtækisins og hefur nefndin fengið til liðs við sig verðbréfafyrirtækið Kaupþing hf. sem annast hefur verðmat og undirbúning sölu. Hefur við þann undirbúning verið farið eftir reglum ríkisstjórnarinnar um framkvæmd einkavæðingar.
    Stofnefnahagsreikningur Lyfjaverslunar Íslands hf. var staðfestur af fjármálaráðherra 7. nóvember 1994 og er eigið fé félagsins tæpar 430 m.kr., þar af hlutafé 300 m.kr. Heildareignir Lyfjaverslunar eru metnar á rúmar 791 m.kr.
    Í verðmati Kaupþings var lagt til að gengi hlutabréfa yrði 1,34. Sú niðurstaða var yfirfarin af verðbréfafyrirtækinu Handsali hf. sem staðfesti hana. Ákveðið var að bjóða hlutabréfin til sölu á því gengi.
    Sala hlutabréfa í Lyfjaverslun hófst 17. nóvember 1994 og þann dag seldust öll þau hlutabréf sem heimild var til að selja. Söluskilmálar fólu í sér að hlutabréfin væru seld á föstu gengi á tímabilinu 17. nóvember til 31. desember 1994 og að sala til hvers aðila verði að lágmarki 30.000 kr. og að hámarki 500.000 kr. að söluverði. Á þessum tíma væru almenningi boðin sérstök greiðslukjör: Heimilt væri að greiða hlutabréf að hámarki 250.000 kr. með fimm jöfnum, vaxtalausum greiðslum á tveimur árum, fimmtung við kaup og síðan fimmtung hverju sinni á sex mánaða fresti. Jafnframt var starfsmönnum Lyfjaverslunar gefinn kostur á að kaupa hlutabréf að hámarki 1.000.000 kr. að söluverði. Greiðslukjör voru boðin við kaup á hlutabréfum fyrir allt að 450.000 kr. að söluverði. Greiða skyldi 50.000 kr. út og eftirstöðvar vaxtalaust á þremur árum með sex jöfnum afborgunum.
    Ákvörðun um þessi greiðslukjör hvíldi á reynslu af sölu hlutabréfa ríkisins í Jarðborunum hf. til almennings. Sú sala hefur gengið hægt og hefur ástæðan verið talin lægð á hlutabréfamarkaði. Margt benti einnig til að áhugi fjárfesta í röðum almennings gæti orðið dræmur þar sem ríkið ætlaði áfram að eiga helming hlutafjárins fram yfir áramót og þar með ríkti óvissa um eignarhaldið á afgerandi hlut í fyrirtækinu. Til stóð í janúar 1995 að leita tilboða í kaup á öllum þeim hlutabréfum sem óseld yrðu í árslok 1994. Í þessu ljósi þykir rétt að gefa almenningi kost á sambærilegum greiðslukjörum og kaupendum annarra fyrirtækja, t.d. SR-mjöls hf., var boðið. Er skemmst frá því að segja að áhugi reyndist meiri meðal almennings á kaupum á þessum kjörum en bjartsýnustu menn þorðu að vona.
    Með þessu sölufyrirkomulagi átti framkvæmd ákvæðis í 4. gr. laga nr. 75/1994 að vera tryggð, en þar segir að við sölu hlutabréfa skuli þess gætt að samkeppni verði tryggð á sviði dreifingar og framleiðslu lyfja. Dreift og almennt eignarhald á hlutabréfum í fyrirtækinu er talin öruggasta leiðin til að tryggja þetta markmið.
    Í fskj. I er greinargerð Kaupþings hf., sem annaðist söluna, um hvernig til tókst og í fskj. II er útdráttur úr sölulýsingu.
    Með þessu frumvarpi er leitað eftir heimild til að halda áfram sölu hlutabréfa í fyrirtækinu til almennings og tryggja þannig með öruggum hætti að eignaraðild verði dreifð og samkeppni á lyfjamarkaði tryggð.


Fylgiskjal I.


Greinargerð Kaupþings hf.:

Sala á hlutabréfum ríkisins í Lyfjaverslun Íslands hf.


(17. nóvember 1994.)



REPRÓ































Pálmi Kristinsson,


forstöðumaður.




Fylgiskjal II.

Almennar upplýsingar um sölu hlutabréfa Lyfjaverslunar Íslands hf.


(Útdráttur úr sölulýsingu.)



REPRÓ


Fylgiskjal III.

Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:


Umsögn um frumvarp til laga


um heimild til sölu hlutabréfa ríkissjóðs í Lyfjaverslun Íslands hf.


    Með frumvarpinu er leitað heimildar til sölu hlutabréfa í Lyfjaverslun Íslands hf. Með lögum nr. 75/1994, um stofnun hlutafélags um Lyfjaverslun ríkisins, var veitt heimild til sölu helmings hlutafjár. Sala hófst 17. nóvember 1994 og seldust upp þau hlutabréf sem boðin voru til sölu. Nafnverð þeirra bréfa var 150 m.kr. Þau voru seld á genginu 1,34 og var söluverð því 201 m.kr. Óseld hlutabréf í Lyfjaverslun eru að nafnverði 150 m.kr. og gert er ráð fyrir að þau verði seld á sama gengi og fyrr.
    Ekki verður séð að frumvarpið hafi í för með sér kostnaðarauka fyrir ríkissjóð.