Ferill 243. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 243 . mál.


284. Fyrirspurn



til samgönguráðherra um varaflugvöll á Egilsstöðum.

Frá Jóni Kristjánssyni.



    Eru ráðstafanir í undirbúningi til þess að Egilsstaðaflugvöllur geti þjónað hlutverki sínu að fullu sem varaflugvöllur fyrir millilandaflug? Hvenær má vænta þess að það geti orðið?