Ferill 246. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 246 . mál.


287. Tillaga til þingsályktunar



um úttekt á námskrám og kennslubókum grunn- og framhaldsskóla með hliðsjón af jafnréttislögum.

Flm.: Guðný Guðbjörnsdóttir, Kristín Ástgeirsdóttir, Anna Ólafsdóttir Björnsson,


Guðrún J. Halldórsdóttir, Björk Jóhannsdóttir.



    Alþingi ályktar að fela menntamálaráðherra að skipa nefnd sem geri úttekt á námskrám og kennslubókum grunn- og framhaldsskóla með hliðsjón af 10. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla og setji fram tillögur um verklag sem tryggi að þær kennslubækur, sem eru í notkun hverju sinni, samræmist þeirri grein.

Greinargerð.


    Allt frá árinu 1976 þegar Alþingi Íslendinga samþykkti fyrst lög um jafnrétti kynjanna, fyrst allra Norðurlanda, hefur verið ákvæði um það að ekki megi mismuna kynjunum í kennslubókum. Þrátt fyrir það hefur lítið verið gert til úrbóta og ekkert sem tryggir að kennslubækur mismuni ekki kynjum. Einnig er óljóst hvernig má losa skólann við þær kennslubækur sem augljóslega brjóta í bága við gildandi lög.
    Í 10. gr. núgildandi laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla segir m.a.:
    „Í skólum og öðrum mennta- og uppeldisstofnunum skal kynjum ekki mismunað. Skylt skal að gæta þessa í námi og kennslu, starfsháttum og daglegri umgengni við nemendur. Á öllum skólastigum skal veita fræðslu um jafnréttismál, m.a. með því að leggja áherslu á að búa bæði kynin jafnt undir virka þátttöku í samfélaginu, fjölskyldulífi og atvinnulífi. Gæta skal þess sérstaklega að kennslutæki og kennslubækur séu þannig úr garði gerð að kynjum sé ekki mismunað.“
    Starfshópur um jafna stöðu kynja í skólum, sem starfaði á vegum menntamálaráðuneytisins frá 1987–90, sendi Námsgagnastofnun bréf í desember 1987 og benti á að í nokkrum könnunum á námsefni skólanna hefði komið í ljós að kynjum væri víða mismunað, sums staðar verulega. Mikilvægt væri að upplýsa höfunda nýs efnis um málið og að eldra efni væri ekki endurprentað nema rækileg endurskoðun færi fram. Einnig var gerð tillaga um að ráðinn yrði starfsmaður í hlutastarf til að sinna þessu verkefni. Í svari Námsgagnastofnunar frá því í febrúar 1988 var sagt að höfundar efnis fengju gátlista í hendur þar sem minnt væri á að gát þyrfti m.a. að hafa varðandi jafna stöðu kynja við samningu og endurskoðun námsefnis. Einnig kom fram að ekki væru tök á að ráða starfsmann til að sinna svo sértæku verkefni. Þar sem starfshópurinn taldi þetta ekki fullnægjandi var samið leiðbeinandi bréf til allra námsefnishöfunda sem Námsgagnastofnun var beðin um að koma á framfæri, sjá Skýrslu starfshóps um jafna stöðu kynja í skólum, menntamálaráðuneytið, 1990. Nú styðst Námsgagnastofnun við leiðbeiningar til höfunda efnis ( Gátlisti og leiðbeiningar um frágang, Námsgagnastofnun, 1994). Í þeim lista segir m.a. á bls. 4:
    „Í námsefni skal kynjum ekki mismunað. Þess skal gætt að ámóta fjöldi dæma sé tekinn af hvoru kyni, að áhugamálum beggja kynja sé gert jafnhátt undir höfði og að drengir og stúlkur séu ekki eingöngu sýnd í hefðbundnum hlutverkum.“
    Þessum lista er dreift til nýrra höfunda en ekki er ljóst hvernig eftirliti er háttað þar sem töluvert virðist enn vanta á að bækur Námsgagnastofnunar samræmist framangreindri lagagrein. Fjárhagsvandi stofnunarinnar ræður trúlega einhverju um það að gamlar og úreltar bækur eru enn í notkun, en það er áhyggjuefni að allar nýjar bækur virðast heldur ekki í lagi samkvæmt athugunum fjölmargra aðila. Ekki er vitað til að nokkurt eftirlit sé haft með þeim bókum sem kenndar eru í framhaldsskólum að þessu leyti.
    Samkvæmt tiltækum könnunum á kennslubókum, bæði á grunn- og framhaldsskólastigi, er ástæða til að ætla að töluvert vanti á að kennslubækur samræmist áðurnefndri lagagrein. Þau viðmið, sem nota má í slíku mati, geta verið breytileg, allt frá því að athuga hvort kynin eru jafnsýnileg almennt, ekki síst sem gerendur, sem myndefni, sem söguefni eða á hvaða hátt er fjallað um konur og karla, pilta og stúlkur. Fræðilegar athuganir á námsefni í sögu og samfélagsfræði, bæði hér og erlendis, benda til að kennslubækur geti þróast í gegnum sex stig að þessu leyti: Á fyrsta stigi séu konur ósýnilegar, á öðru stigi fyrirfinnist ein og ein kona sem er hetja á forsendum karla eða vegna afreka í opinberu lífi og á þriðja stigi séu konur sýndar sem undirokaður minnihlutahópur. Loks á fjórða stigi sé konum lýst sem gerendum út frá eigin sjónarhóli, á fimmta og sjötta stigi sé síðan einn altækur sjónarhóll beggja kynja og annarra hópa eða lögð áhersla á marga texta eða kafla í bókum út frá sjónarhóli mismunandi hópa. Þær athuganir, sem liggja fyrir á íslenskum bókum, benda til fyrsta til þriðja stigs og að töluvert vanti upp á að tiltækar rannsóknir um líf og starf kvenna séu kynntar í kennslubókum nema helst í sérköflum sem oft er sleppt. Athugað er gjarnan hvort kynin eru sýnd í trúverðugum hlutverkum og hvort raddir beggja kynja fá að koma fram jafnt í gegnum söguhetjur, lýsingar á veruleikanum eða sem raddir höfunda.
    Í þingsályktunartillögunni er einnig kveðið á um að gera skuli úttekt á námskrám grunn- og framhaldsskólans með hliðsjón af 10. gr. jafnréttislaganna. Einkum er þar átt við eftirfarandi þátt greinarinnar: „Á öllum skólastigum skal veita fræðslu um jafnréttismál, m.a. með því að leggja áherslu á að búa bæði kynin jafnt undir virka þátttöku í samfélaginu, fjölskyldulífi og atvinnulífi.“ Athuga þarf rækilega hvort einhver jafnréttisfræðsla á sér stað í íslenskum skólum, hvernig það námsefni, sem gefið hefur verið út, er notað og hvort námskrár grunn- og framhaldsskóla taka mið af því að bæði kynin séu búin jafnt undir virka þátttöku í samfélaginu, fjölskyldulífi og atvinnulífi.
    Mikilvægt er að ljóst sé hvað foreldrar, kennarar eða Námsgagnastofnun geta gert til að losna við bækur sem brjóta framangreind lög. Þörf er á matsaðila með vald til að meta hvort bækur samræmast jafnréttislögunum eða ekki ef það er ætlun löggjafans að þau séu virt í reynd.
    Þess má geta að í Noregi hafa lengi tíðkast árlegar ráðstefnur menntamálayfirvalda, jafnréttisyfirvalda, námsgagnahöfunda, námsefnisútgefenda og fræðimanna í þeim tilgangi að bæta norskar kennslubækur að þessu leyti. Mikil áhersla hefur verið lögð á að koma rannsóknum í kvennafræðum inn í kennslubækurnar til að tryggja að fjallað sé um konur út frá þeirra eigin forsendum eins og fjallað er um karla. Þetta er einnig mikilvægt að gera hér og um leið að efla rannsóknir og kennslu í kvennafræðum við Háskóla Íslands. Einnig má nefna að innan norska rannsóknarráðsins er sérstök deild um kvennarannsóknir þannig að tryggt er að kvennarannsóknir fái sinn skerf af rannsóknafé norska ríkisins. Hver mótar þekkinguna og hvaða þekkingu er miðlað í kennslubókum er mjög áhrifamikið valdatæki sem konur hafa loks fengið aðgang að þó að enn vanti mikið á jafna stöðu kynja í þeim efnum sem öðrum.
    Þess skal að lokum getið að í framkvæmdaáætlun til fjögurra ára um aðgerðir til að ná fram janfrétti kynjanna eru þrír liðir sem snerta efni þessarar tillögu, liður 9.2.3 um námsefni, liður 9.2.5 um nám í fjölskyldufræðum, svo og liður 9.2.7 um að efla kennslu og rannsóknir í kvennafræðum á háskólastigi. Þessi tillaga virðist því samræmast stefnu ríkisstjórnarinnar og er því vonandi að hún verði samþykkt til að auka líkurnar á að eitthvað raunhæft verði gert á þessu sviði 18 árum eftir að fyrstu lögin um jafnrétti kynjanna voru samþykkt.