Ferill 247. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 247 . mál.
288. Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um fjöleignarhús, nr. 26/1994.
Flm.: Anna Ólafsdóttir Björnsson, Gísli S. Einarsson, Guðný Guðbjörnsdóttir,
Guðrún Helgadóttir, Ingi Björn Albertsson, Matthías Bjarnason,
Pétur Bjarnason, Valgerður Gunnarsdóttir.
1. gr.
13. tölul. A-liðar 41. gr. laganna orðast svo: Um að halda megi hunda og/eða ketti í húsinu ef íbúum stafar heilsufarsleg hætta af því samkvæmt vottorði læknis. Þegar hús skiptist í aðgreinda hluta nægir samþykki þeirra eigenda sem hafa sameiginlegan inngang, stigagang eða annað sameiginlegt húsrými.
2. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1995.
Greinargerð.
Lög um fjöleignarhús voru samþykkt á Alþingi 23. mars 1994 og taka gildi 1. janúar 1995. Í þeim er að finna mörg nýmæli, m.a. ákvæði um bann við katta- og hundahaldi, nema að fengnu samþykki allra eigenda í húsinu. Ákvæðinu var bætt inn í frumvarpið á síðustu stigum umfjöllunar á Alþingi að beiðni samtaka astma- og ofnæmissjúklinga, en aðrir hlutaðeigandi munu ekki hafa fengið tækifæri til að segja sitt álit á því. Sjónarmið dýraeigenda voru þar með fyrir borð borin.
Í skýringum með þessari tillögu til breytinga á frumvarpinu sagði: „Tillagan byggist fyrst og fremst á að nokkuð er um að börn og fullorðnir hafi ofnæmi fyrir þessum dýrum. Getur slíkt ofnæmi haft það alvarleg áhrif að fólk geti jafnvel þurft að flytja úr eigin íbúðarhúsnæði gangi ekki að fá skilning sameigenda á þessu vandamáli. Er breytingunum ætlað að koma í veg fyrir slíkar aðstæður.“ Engar upplýsingar eru gefnar um tíðni slíkra tilvika og engin dæmi nefnd, hvorki í nefndaráliti né í umræðum á Alþingi.
Ákvæðið var að sjálfsögðu sett af góðum hug og umhyggju fyrir ofnæmissjúklingum, en við nánari athugun telja flutningsmenn að það hafi ekki fengið nógu vandaða umfjöllun. Eins og ákvæðið er nú opnar það í rauninni fyrir andstöðu gegn katta- og hundahaldi af hvaða ástæðu sem er. Engin skilyrði eru sett þess efnis að bannið þurfi að rökstyðja með heilsufarslegum ástæðum. Það nægir að einn íbúi segi nei og hann þarf ekki að tilgreina neina ástæðu. Það er því ljóst að með þessu ákvæði er réttur dýraeigenda ekki virtur og hugsanlega verið að bjóða heim misnotkun af hendi þeirra sem af einhverjum ástæðum hafa andúð á þessum dýrum.
Flutningsmenn hafa skilning á því að taka þarf fullt tillit til þess ef heilsu einhvers er hætta búin af návist dýra. Réttlát lagasetning verður hins vegar að byggjast á tilliti til allra sem lagasetningin varðar, ekki bara sumra. Framangreint er auðvelt að leiðrétta ef skilningur og vilji er fyrir hendi.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Í 41. gr. er fjallað um reglur um töku ákvarðana um sameiginleg málefni í fjöleignarhúsum. A-liður greinarinnar fjallar um þær ákvarðanir sem þurfa samþykki allra eigenda, og er í 13. tölul. fjallað um hunda- og kattahald. Hér er lögð til sú breyting að bætt verði við fyrri málslið 13. tölul.: ef íbúum stafar heilsufarsleg hætta af því samkvæmt vottorði læknis.
Um 2. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringar.