Ferill 258. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 258 . mál.


303. Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 92 24. maí 1994, um Þróunarsjóð sjávarútvegsins.

(Lagt fyrir Alþingi á 118. löggjafarþingi 1994.)



1. gr.


    Lokamálsliður 2. mgr. 8. gr. laganna orðast svo: Hafi Þróunarsjóður greitt styrk vegna úreldingar skips er óheimilt að flytja það inn að nýju og skrá hér á landi, sem og að veita því leyfi til veiða í atvinnuskyni.

2. gr.


    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Með frumvarpi þessu er lagt til að óheimilt verði að flytja inn að nýju og skrá aftur hér á landi skip sem úrelt hafa verið með styrk frá Þróunarsjóði. Þykja núgildandi ákvæði 2. mgr. 8. gr. laga um Þróunarsjóð sjávarútvegsins ekki veita næga tryggingu fyrir því að skip sem úrelt eru með styrk frá sjóðnum hverfi varanlega úr íslenska skipaflotanum.
    Eitt af meginhlutverkum Þróunarsjóðs sjávarútvegsins er að stuðla að fækkun fiskiskipa. Gerir sjóðurinn það með greiðslu styrkja vegna úreldingar. Eru styrkir þessir tiltekið hlutfall af húftryggingarverðmæti fiskiskips allt að 45%. Hefur sjávarútvegsráðherra, að fengnum tillögum sjóðstjórnar, ákveðið að beita hámarksstyrkhlutfalli vegna úreldingar á yfirstandandi ári. Mikil eftirspurn hefur verið eftir að úrelda fiskiskip síðan sjóðurinn hóf störf síðasta sumar. Stjórn Þróunarsjóðs hafði veitt loforð fyrir 87 úreldingarstyrkjum að fjárhæð um 1.515 m.kr. 7. nóvember sl. Á síðasta stjórnarfundi lágu fyrir 49 óafgreiddar umsóknir. Frá síðasta stjórnarfundi sjóðstjórnar til 7. nóvember sl. höfðu sjóðnum borist til viðbótar 63 nýjar umsóknir. Voru 34 hinna óafgreiddu umsókna vegna skipa sem húftryggingarmat er á og er styrkupphæð vegna þeirra umsókna áætluð um 413 m.kr. verði þær allar samþykktar. Ekki er unnt að meta styrkfjárhæð annarra óafgreiddra umsókna þar sem þær eru vegna opinna báta en samræmt mat á húftryggingarverðmæti þeirra liggur enn ekki fyrir.
    Forsenda fyrir greiðslu úreldingarstyrks er sú að skipið, sem úrelda skal, verði tekið af skipaskrá og endurnýjunarréttur þess falli niður. Er augljóst að styrkveitingar vegna úreldingar fiskiskipa ná ekki tilgangi sínum nema fulltryggt sé að viðkomandi skip hverfi varanlega úr íslenska skipaflotanum. Er skv. 2. mgr. 8. gr. laga nr. 92/1994 óheimilt að greiða úreldingarstyrki fyrr en fyrir liggur vottorð Siglingamálastofnunar um afskráningu skipsins af skipaskrá. Jafnframt þarf umsækjandi að undirrita yfirlýsingu þar sem hann heitir því að stuðla ekki að því að hið úrelta skip verði flutt inn á ný. Loks er í gildandi lögum ákvæði um að óheimilt sé að veita skipi, sem úreldingarstyrkur hefur verið greiddur út á, leyfi til veiða í atvinnuskyni.
    Í ljós hefur komið að 2. mgr. 8. gr. laga um Þróunarsjóð sjávarútvegsins veitir ekki þá tryggingu fyrir að lögin séu ekki sniðgengin sem ætlað var við setningu laganna. Þannig er vel hugsanlegt að beðið sé að nýju um skráningu skips sem úrelt hefur verið, t.d. í því skyni að nota það til tómstundaveiða eða veiða utan lögsögu. Eins og lögum um Þróunarsjóð sjávarútvegsins og lögum um skráningu skipa er nú háttað er ekkert sem bannar skráningu skipsins á skipaskrá á ný. Þurfi skipið ekki leyfi til veiða í atvinnuskyni vegna þeirra verkefna sem því eru ætluð verður Þróunarsjóður í hverju einstöku tilviki að sanna að slík tengsl séu milli þess sem styrk þáði á sínum tíma og þess er nýskráningar beiðist nú að styrkurinn sé endurkræfur. Er augljóst að sú sönnun verður í mörgum tilvikum örðug. Sýnist nauðsynlegt að koma með virkum hætti í veg fyrir að skip sem styrkur hefur verið veittur til að afmá af skipaskrá verði ekki skráð á ný. Er því lagt til að óheimilt verði að flytja slík skip inn að nýju og skrá hér á landi.



Fylgiskjal.

Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:

Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum


nr. 92/1994, um Þróunarsjóð sjávarútvegsins.


    Ekki verður séð að frumvarp þetta valdi kostnaðarauka.