Ferill 261. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 261 . mál.
307. Tillaga til þingsályktunar
um alþjóðlega fjármálamiðstöð á Íslandi.
Flm.: Páll Pétursson, Finnur Ingólfsson.
Alþingi ályktar að kjósa nefnd sjö manna til þess að kanna hvort raunhæfir möguleikar séu á að koma upp alþjóðlegri fjármálamiðstöð á Íslandi.
Nefndin kýs formann úr sínum hópi og skilar skýrslu til Alþingis fyrir árslok 1995.
Greinargerð.
Lega Íslands kann að bjóða upp á ákveðna möguleika á því að koma hér upp alþjóðlegri kauphöll. Á Íslandi er fjármálastofnunum lokað síðar að deginum en í öðrum löndum Evrópu. Héðan væri unnt að gera viðskipti vestan hafs síðdegis eftir að hliðstæðum stofnunum hefur verið lokað í þeim löndum er liggja á austlægari breiddargráðum og hér eru stofnanir opnaðar fyrr að morgninum en í Ameríku. Með aukinni fjarskiptatækni býður lega landsins e.t.v. upp á möguleika til alþjóðlegra fjármálaviðskipta sem aðrir hafa ekki.
Íslendingum er mjög mikilvægt að standa bæði vörð um stjórnarfarslegt og efnahagslegt sjálfstæði sitt og vera sjálfbjarga í landi sínu. Þess vegna er okkur nauðsyn á að starfrækja hér fjölbreytt atvinnulíf.
Flutningsmenn telja að starfsemi sú, er hér er lagt til að könnuð verði, gæti stuðlað að því að skjóta nýrri stoð undir efnahagslíf landsmanna. Ástæða er til þess að leggja áherslu á mikilvægi þess að sú starfsemi, er hér um ræðir, yrði að vera undir stjórn Íslendinga og virkum yfirráðum og hlíta íslenskum lögkjörum.