Ferill 175. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 175 . mál.


311. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 99/1993, um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum.

Frá landbúnaðarnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið. Á fund hennar kom Haukur Halldórsson, formaður Stéttarsambands bænda.
    Nefndin mælir með samþykkt frumvarpsins með eftirfarandi

BREYTINGU:



    Við 1. gr.
    Orðið „nýrra“ í 2. málsl. 2. efnismgr. falli brott.
    Orðin „frá og með 1. apríl ár hvert“ í 1. málsl. 3. efnismgr. falli brott.

    Árni M. Mathiesen, Einar K. Guðfinnsson og Ragnar Arnalds voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 6. des. 1994.



Egill Jónsson,

Guðni Ágústsson.

Eggert Haukdal.


form., frsm.



Kristín Ástgeirsdóttir.

Jóhannes Geir Sigurgeirsson.

Gísli S. Einarsson.