1994. -- 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. -- 268 . mál.
um jöfnun verðlags.
Markmið laga þessara er að stuðla að því að lífskjör þjóðarinnar verði sem jöfnust, óháð búsetu. Í þeim tilgangi ber að tryggja, eftir því sem kostur er, að algengustu lífsnauðsynjar og almenn þjónusta verði boðnar á sama verði hvar sem er á landinu.
Í stað 2. og 3. mgr. 11. gr. laga um stjórn og starfrækslu póst- og símamála, nr. 36/ 1977, kemur ný málsgrein er orðast svo:
Eigi síðar en 1. apríl 1995 skal samgönguráðherra ákveða að landið allt sé eitt gjaldsvæði og öll símtöl innan lands séu verðlögð á sama hátt, óháð vegalengdum milli notenda.
Á eftir 16. gr. laga um Landsvirkjun, nr. 42/1983, kemur ný grein svohljóðandi:
Eigi síðar en 1. apríl 1995 skal Landsvirkjun bjóða raforku í heildsölu til dreifiveitna á sama verði um land allt miðað við afhendingu orkunnar í spennistöð hjá viðkomandi dreifiveitu.
Ríkisstjórnin skal vinna að samræmingu raforkuverðs í smásölu með ákvörðun hámarksverðs sem komi til framkvæmda eigi síðar en 1. apríl 1995. Jafnframt ber að tryggja að mismunur á rafhitunarkostnaði og verðskrá Hitaveitu Reykjavíkur fyrir upphitun meðalheimilis 1. september 1994 lækki um helming fyrir 1. apríl 1995. Í því skyni að gera dreifiveitum raforku kleift að laga sig að samræmdu orkuverði er ríkissjóði heimilt að yfirtaka hluta af skuldum þeirra, svo og að leggja fast gjald á alla raforkuvinnslu til að standa undir viðhaldi og afskriftum af sveitalínum.
1. Við 1. gr. samkeppnislaga, nr. 8/1993, með síðari breytingum, bætist nýr stafliður, svohljóðandi:
d. vinna að því að jafna vöruverð í landinu.
2. Við 20. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Samkeppnisstofnun skal stuðla að því að heildsölufyrirtæki bjóði smásöluverslunum vörur á sama verði um land allt og undirboð á einum stað séu ekki fjármögnuð með hærra verði annars staðar.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Löngu er orðið tímabært að algengustu lífsnauðsynjar og almenn þjónusta verði boðnar á sama verði hvar sem er á landinu svo að lífskjör þjóðarinnar séu sem jöfnust óháð búsetu en staðreyndin er sú að verulegur munur er á verðlagi eftir landshlutum. Má þar nefna rafmagns- og hitunarkostnað, símakostnað, smásöluverð í verslunum, svo og verð á ýmiss konar þjónustu sem háð er flutningskostnaði. Í frumvarpi þessu er leitast við að jafna þennan mun að nokkru á þremur sviðum, þ.e. hvað varðar símakostnað, raforkuverð og heildsöluverð.
Engin rök mæla með því og enn síður nokkur sanngirni að dýrara sé fyrir símnotanda í einum landsfjórðungi en öðrum að hringja til höfuðborgarsvæðisins þar sem langflestar
ríkisstofnanir eru ásamt meiri hluta landsmanna. Mishá gjöld eftir svæðisnúmerum eru leifar frá liðnum tíma þegar símaþjónusta var handvirk. Þessa úreltu mismunun ber því tafarlaust að afnema.
Ódýrustu þriggja mínútna samtöl kosta nú 5,60 kr. en 21,20 kr. þegar taxtinn er hæstur. Hlutfallið er 1:3,8. Þetta hlutfall hefur farið lækkandi á undanförnum árum og var fyrir tæpum áratug um 1:10,7. Póst- og símamálastofnunin hefur greitt rúmlega 900 millj. kr. til ríkisins á hverju ári um skeið eða um 10% af tekjum. Þess er að vænta að eitthvert lát verði á þessari miklu skattheimtu á símnotendur og enginn vafi á því að svigrúm er til að láta fullan jöfnuð símgjalda verða að veruleika.
Jöfnun raforkuverðs er miklu flóknara mál vegna þess hve skipulag raforkumála er flókið. Fullri jöfnun raforkuverðs má þó ná með ýmsum leiðum. Í þessu frumvarpi er við það miðað að vandinn verði leystur með sameiginlegu átaki Landsvirkjunar og ríkissjóðs, svo og einhverju framlagi orkuneytenda í formi orkugjalds ef hjá því verður ekki komist.
Rafmagnsverð til ljósa og heimilisnotkunar er nú um 14% hærra hjá Rafmagnsveitum ríkisins en hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur og hefur munurinn minnkað verulega á seinustu árum en svipað verð er á svonefndum iðnaðartöxtum sem m.a. gilda fyrir fiskvinnsluna. Talið er að árssala Rarik til ljósa og almennrar heimilisnotkunar mundi lækka enn um 100 millj. kr. ef taxtinn yrði hliðstæður taxta Rafmagnsveitu Reykjavíkur.
Meginástæða þess munar sem er á taxta Rarik og taxta Rafmagnsveitu Reykjavíkur er sú að Rarik ber kostnað af viðhaldi og afskriftum af dreifikerfinu um sveitir landsins og nema afskriftirnar af dreifilínum í sveitum um 164 millj. kr. árlega en Rarik fær aðeins brot af þessum kostnaði greiddan úr ríkissjóði --- á þessu ári 14 millj. kr. Hliðstætt gildir um Orkubú Vestfjarða. Engin rök eru fyrir því að viðskiptavinir Rarik, m.a. í þéttbýli víðs vegar um land, eigi einir að standa undir kostnaði af dreifikerfi í sveitum. Ljóst er að fengi Rarik helming af afskriftum sveitalínanna greiddan af almannafé árlega ætti fyrirtækið auðvelt með að bjóða raforku til heimilisnota á hliðstæðu verði og Rafmagnsveita Reykjavíkur.
Rafhitunarkostnaður er nú talinn nærri tvöfalt meiri fyrir meðalheimili en hitunarkostnaður samkvæmt verðskrá Hitaveitu Reykjavíkur. Þar sem fjölmargar hitaveitur selja orku sína á hærra verði en Hitaveita Reykjavíkur er ekki raunhæft að samræma hitunarkostnað heimila sem skipta við Rarik og Hitaveitu Reykjavíkur. Engu að síður er nauðsynlegt og sanngjarnt að reynt verði að minnka þennan mun hitunarkostnaðar verulega. Heildartekjur Rarik af sölu rafhita til heimila eru áætlaðar um 1.000 millj. kr. á árinu 1994 og má því ætla að yrði munurinn á hitunarkostnaði heimila, sem skipta við Rarik og Hitaveitu Reykjavíkur, lækkaður um 50% mundi það kosta Rarik um 250 millj. kr. Að öðrum seljendum rafhitunar meðtöldum má ætla að heildarkostnaðurinn vegna þessarar lækkunar rafhitunarkostnaðar næmi um 300 millj. kr.
Niðurgreiðslur úr ríkissjóði til rafhitunar heimila á orkuveitusvæði Rarik munu nema um 275 millj. kr. á árinu 1994.
Haustið 1991 kannaði Verðlagsstofnun verð í á annað hundrað matvöruverslunum um land allt. Nú hefur Samkeppnisstofnun tekið við hlutverki Verðlagsstofnunar en sambærileg könnun hefur því miður ekki verið gerð síðan haustið 1991. Í könnuninni þá kom í ljós að smásöluverð á landsbyggðinni hafði farið hækkandi tvö árin á undan í samanburði
við verðlag í Reykjavík. Það reyndist t.d. 9% hærra á Vestfjörðum en á höfuðborgarsvæðinu en var 6% hærra en tveimur árum áður. Svipuð þróun hafði átt sér stað á Vesturlandi, Norðurlandi og Suðurlandi.
Í fréttatilkynningu Verðlagsstofnunar, sjá fskj. II, voru dregnar fram ýmsar hugsanlegar skýringar á þessari þróun. Þar sagði m.a.:
,,Dæmi eru um að heildverslanir og innlendir framleiðendur hafi veitt stórmörkuðum mun meiri afslátt á síðustu missirum en áður tíðkaðist. Hefur það í sumum tilvikum leitt til þess að innkaupsverð minni verslana, m.a. á landsbyggðinni, hefur verið hærra en smásöluverð í stórmörkuðum. Ýmsir kaupmenn halda því fram að víða sé afslátturinn til stórmarkaða orðinn óeðlilega mikill og mun Verðlagsstofnun kanna það nánar.``
Augljóst er að samkeppni stórmarkaða á höfuðborgarsvæðinu hefur aukist mjög í seinni tíð og leitt til lægra vöruverðs þar. Því ber að fagna, en á hinn bóginn leikur sterkur grunur á að í mörgum tilvikum hafi landsbyggðin verið látin borga herkostnaðinn af verðstríðinu í Reykjavík.
Nauðsynlegt er að Samkeppnisstofnun sé falið að setja reglur sem stuðlað geti að sem jöfnustu vöruverði í landinu og landsbyggðin sé ekki látin njóta verri kjara en gerist á höfuðborgarsvæðinu.
Fylgiskjal I.
Hlutfall milli kostnaðar af staðarsímtali og langlínusímtali fer eftir því hvert er hringt, hvenær sólarhringsins og hversu langt símtalið er. Þegar Póstur og sími upplýsir um þetta hlutfall er miðað við þriggja mínútna símtal að degi til. Er sú símtalalengd viðurkennd í alþjóðlegum samanburði og eins er það að tímamæling símtala á Íslandi sýnir að símtöl að degi til eru á bilinu 150 til 240 sekúndur.
Ef miðað er við þriggja mínútna símtal á dagtaxta er hlutfall milli staðarsímtals og lengri langlínu 1:3,8 og hlutfall milli staðarsímtals og styttri langlínu er 1:2,7 (fskj.). Ef símtal er lengra t.d. 20 mínútur er hlutfallið 1:6,4 ef borið er saman staðarsímtal og lengri langlína og 1:4,3 ef borið er saman staðarsímtal og styttri langlína.
Þrátt fyrir mismunandi hlutfall milli staðarsímtala og langlínusímtala eftir lengd þeirra er ljóst að kostnaður við langlínu samanborið við staðarsímtöl hefur lækkað mjög verulega í áföngum á síðasta áratug. Frá 1. nóvember 1981 hefur hlutfall þriggja mínútna staðarsímtals að degi til og lengri langlínu lækkað úr 1:10,7 í 1:3,8 og hlutfall 20 mínútna símtals hefur lækkað úr 1:23,3 í 1:6,4 á sama tíma.
Auk breytinga á gjaldskrá fyrir símaþjónustu, sem áfanga til jöfnunar símakostnaðar innan lands, hafa miklar breytingar verið gerðar á stærð gjaldsvæða víða um land. Stækkun gjaldsvæða hefur í för með sér að símnotendur geta hringt til fleiri notenda á staðartaxta. Þessar breytingar jafna enn frekar aðstöðu milli landshluta og atvinnusvæða.
Eins og málum er háttað í dag er höfuðborgarsvæðið (svæðisnúmer 91) eitt gjaldsvæði og sama gildir um Reykjanes (svæðisnúmer 92) en það var gert að einu gjaldsvæði árið 1986. Árið 1987 var sú breyting gerð að gjald milli stöðva innan sama hnútsvæðis var lækkað úr gjaldflokki 2 í gjaldflokk 1. Þar með var hvert hnútsvæði orðið eitt gjaldsvæði. Síðan hafa smávægilegar breytingar verið gerðar.
Fskj.
Póst- og símamálastofnunin,
hagdeild:
Verð í kr. m/vsk:
Staðarsímtal 5 ,814 ,574 ,57
Styttri langlína 15 ,7711 ,629 ,55
Lengri langlína 22 ,0015 ,7712 ,66
Hlutföll:
Staðarsímtal 1:1 1:1 1:1
Styttri langlína 1:2 ,711:2 ,541:2 ,09
Lengri langlína 1:3 ,791:3 ,451:2 ,77
Fylgiskjal II.
Fréttatilkynning frá Verðlagsstofnun:
Í október sl. kannaði Verðlagsstofnun verð á yfir 400 vörutegundum í hátt á annað hundrað matvöruverslunum um land allt. Var verðið kannað á mat- og drykkjarvörum og hreinlætis- og snyrtivörum. Við úrvinnslu var vörunum gefið vægi í samræmi við almenna neyslu á þeim. Samsvarandi kannanir hafa verið gerðar á undanförnum árum og eru þær umfangsmestu verðkannanir sem Verðlagsstofnun gerir.
Höfuðborgarsvæðið --- landsbyggðin --- verðmunur fer vaxandi.
Samkvæmt könnunum Verðlagsstofnunar hefur verðlag á landsbyggðinni farið hækkandi á síðustu tveimur árum í samanburði við verðlag í matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu.
Verðlag á landsbyggðinni hærra en á höfuðborgarsvæðinu:
Október 1989 3 ,8%
Júní 1990 4 ,5%
Október 1991 4 ,9%
Aukin samkeppni stórmarkaða --- meiri verðmunur.
Skýringin á vaxandi verðmun á milli landsbyggðarinnar og höfuðborgarsvæðisins felst að hluta í minni verðbólgu. Vafalaust vegur þó þyngst hin aukna samkeppni stórmarkaða á höfuðborgarsvæðinu, sérstaklega eftir að Bónus-verslanir náðu þar fótfestu. Hin aukna samkeppni stórmarkaða hefur ekki aðeins aukið verðmuninn á milli landsbyggðarinnar og höfuðborgarsvæðisins heldur hefur verðmunur á milli stórmarkaða og minni verslana á höfuðborgarsvæðinu einnig aukist. Dæmi eru um að heildverslanir og innlendir framleiðendur hafi veitt stórmörkuðum mun meiri afslátt á síðustu missirum en áður tíðkaðist. Hefur það í sumum tilvikum leitt til þess að innkaupsverð minni verslana, m.a. á landsbyggðinni, hefur verið hærra en smásöluverð í stórmörkuðum. Ýmsir kaupmenn halda því fram að víða sé afslátturinn til stórmarkaða orðinn óeðlilega mikill og mun Verðlagsstofnun kanna það nánar.
Sem dæmi um verðlagsþróunina á síðustu árum má nefna að verðlag á landsbyggðinni var 7% hærra en verðlag í stórmörkuðum á höfuðborgarsvæðinu í júní 1990 en 10% hærra í október 1991.
Hæsta verðlag á landinu á Vestfjörðum.
Ef litið er á einstaka landshluta í samanburði við höfuðborgarsvæðið var verðlag hærra á landsbyggðinni sem hér segir:
Í okt. 1989 Í okt. 1991
Vesturland 2 ,2%3 ,8%
Vestfirðir 6 ,1%9 ,0%
Norðurland vestra 2 ,5%4 ,2%
Norðurland eystra 3 ,4%3 ,9%
Austurland 6 ,2%6 ,2%
Suðurland 3 ,1%4 ,8%
Suðurnes 2 ,3%1 ,0%
Munurinn á verðlagi á Vestfjörðum og höfuðborgarsvæðinu hefur aukist mest á umræddu tveggja ára tímabili. Hins vegar hefur munurinn á Suðurnesjum minnkað, m.a. vegna aukinnar samkeppni stórmarkaða. Fjölgun heildsala og umboðsmanna á landsbyggðinni og aukin umsvif þeirra hafa vakið athygli á sama tíma og þeim fækkar á höfuðborgarsvæðinu. Starfsemi þeirra hefur án efa dregið úr kostnaði smásöluverslana á landsbyggðinni. Hins vegar má leiða að því líkur að starfsemi þeirra hafi dregið úr samkeppni á landsbyggðinni og kostnaður vegna rekstrar umboðs- og heildverslana lagst ofan á vöruverð þar. Hyggst Verðlagsstofnun rannsaka sérstaklega áhrif heildsala á landsbyggðinni á vöruverð.
Fylgiskjal III.
REPRÓ