Ferill 270. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 270 . mál.
319. Frumvarp til laga
um breytingu á útvarpslögum nr. 68/1985, sbr. lög nr. 40/1986 og lög nr. 82/1993.
(Lagt fyrir Alþingi á 118. löggjafarþingi 1994.)
1. gr.
Við 1. gr. laganna bætast tvær málsgreinar svohljóðandi:
Læst útsending sem boðin er gegn greiðslu: Hljóðvarps- eða sjónvarpsútsending ætluð almenningi, þar sem hljóð- eða myndmerkjum hefur verið breytt í því skyni að veita einungis þeim aðgang að útsendingunni sem greitt hafa fyrir hana.
Myndlykill: Búnaður sem með einum eða öðrum búnaði er ætlað að veita aðgang að dagskrá læstrar útsendingar eða er aðlagaður sérstaklega í því skyni.
2. gr.
Við 2. mgr. 3. gr. laganna bætist nýr málsliður svohljóðandi: Leyfi til útvarps verða ekki framseld.
3. gr.
9. gr. laganna orðast svo:
Stofna skal dagskrárgerðarsjóð útvarpsstöðva.
4. gr.
10. gr. laganna orðast svo:
Hlutverk dagskrárgerðarsjóðs útvarpsstöðva er að veita útvarpsstöðvum eða framleiðendum dagskrárefnis framlög til dagskrárgerðar, þeirrar er verða má til eflingar íslensku menningarlífi og aukinnar fræðslu um íslenskt þjóðlíf.
Framlög úr dagskrárgerðarsjóði útvarpsstöðva skulu veitt þeim útvarpsstöðvum, sem fengið hafa leyfi útvarpsréttarnefndar til útvarpsreksturs, sbr. 2. mgr. 2. gr. og 3. gr. laga þessara, eða sjálfstæðum framleiðendum dagskrárefnis til afmarkaðra, tilgreindra viðfangsefna á sviði innlendrar dagskrárgerðar. Framlög skulu veitt til:
Við úthlutun skv. 2. og 3. tölul. skal þess gætt að fyrir liggi staðfesting á sölu dagskrárefnis eða samvinnu við innlenda ljósvakamiðla um framleiðslu eða fullvinnslu þess. Ráðherra getur ákveðið með reglugerð hve hátt hlutfall úthlutunarfjár rennur til sjálfstæðra framleiðenda vegna verkefna sem fyrirhugað er að flytja í Ríkisútvarpinu.
Framlög skulu vera styrkir, en heimilt skal þó að veita lán eftir nánari ákvörðun sjóðstjórnar.
Nú lýkur útvarpsstöð eða framleiðandi innlends dagskrárefnis ekki við gerð dagskrár innan hæfilegs tíma að mati sjóðstjórnar og er þá styrkhafa skylt að kröfu stjórnarinnar að endurgreiða styrk sem honum hefur verið veittur ásamt venjulegum vöxtum sem vera skulu jafnháir og meðalvextir banka og sparisjóða af óverðtryggðum útlánum eins og þeir eru reiknaðir af Seðlabanka Íslands á hverjum tíma. Sama á við þegar styrkur hefur verið veittur til kaupa á dagskrárefni.
Ráðherra setur með reglugerð nánari ákvæði um skilyrði úthlutunar.
5. gr.
11. gr. laganna orðast svo:
Tekjur dagskrárgerðarsjóðs útvarpsstöðva eru tollar og/eða vörugjöld af hljóðvarps- og sjónvarpstækjum og hlutum í þau.
6. gr.
12. gr. laganna orðast svo:
Stjórn dagskrárgerðarsjóðs útvarpsstöðva skipa þrír menn, tveir tilnefndir af útvarpsréttarnefnd og einn af menntamálaráðherra og skal hann vera formaður nefndarinnar.
Stjórn dagskrárgerðarsjóðs útvarpsstöðva skal skipuð til tveggja ára í senn.
7. gr.
13. gr. laganna orðast svo:
Menntamálaráðherra skal kveða nánar á um starfsreglur dagskrárgerðarsjóðs útvarpsstöðva í reglugerð.
8. gr.
15. gr. laganna orðast svo:
Ríkisútvarpið skal leggja rækt við íslenska tungu, sögu þjóðarinnar og menningararfleifð.
Ríkisútvarpið skal halda í heiðri lýðræðislegar grundvallarreglur og mannréttindi og frelsi til orðs og skoðana. Það skal gæta fyllstu óhlutdrægni í frásögn, túlkun og dagskrárgerð.
Útvarpsefni skal miða við fjölbreytni íslensks þjóðlífs. Ríkisútvarpið skal veita almenna fréttaþjónustu og vera vettvangur almennrar þjóðfélagsumræðu. Það skal flytja menningar-, fræðslu- og skemmtiefni við hæfi fólks á öllum aldri. Ríkisútvarpið skal leggja áherslu á innlenda dagskrárgerð, einkum á sviði lista og bókmennta, vísinda og sögu, auk tónlistar, bæði með eigin framleiðslu og með verk- og samstarfssamningum við sjálfstæða framleiðendur dagskrárefnis.
Efni á erlendu máli, sem sýnt er í sjónvarpsdagskrá Ríkisútvarpsins, skal jafnan fylgja íslenskt tal eða texti á íslensku eftir því sem við á hverju sinni. Það á þó ekki við þegar fluttir eru erlendir söngtextar eða þegar dreift er viðstöðulaust um gervitungl og móttökustöð fréttum eða fréttatengdu efni sem sýnir að verulegu leyti atburði sem gerast í sömu andrá. Við þær aðstæður skal Ríkisútvarpið, sjónvarp, eftir því sem kostur er, láta fylgja endursögn eða kynningu á íslensku á þeim atburðum sem gerst hafa. Skal lögð áhersla á að allt tal og texti sé á lýtalausu íslensku máli.
9. gr.
16. gr. laganna orðast svo:
Ríkisútvarpið skal senda út til alls landsins og næstu miða eina sjónvarpsdagskrá og minnst eina hljóðvarpsdagskrá árið um kring.
Heimilt er Ríkisútvarpinu að senda út fleiri dagskrár hljóðvarps eða sjónvarps, í lengri eða skemmri tíma, til alls landsins eða hluta þess samkvæmt ákvörðunum útvarpsstjóra og útvarpsráðs.
Ríkisútvarpið annast hljóðvarp til annarra landa samkvæmt ákvörðunum útvarpsstjóra og útvarpsráðs í samráði við Póst- og símamálastofnun.
Ríkisútvarpið reisir eftir þörfum sendistöðvar og endurvarpsstöðvar að fenginni heimild Póst- og símamálastofnunarinnar fyrir tíðni og útgeislað afl í samræmi við settar reglur og alþjóðasamþykktir.
Heimilt er Ríkisútvarpinu að hafa samvinnu við aðra aðila um dagskrárgerð og útsendingar.
Ríkisútvarpið skal leita leiða til þess að tryggja starfsemi svæðisútvarpa í öllum landshlutum.
Heimilt er Ríkisútvarpinu að leigja öðrum aðilum afnot af tækjabúnaði sínum til útsendinga.
10. gr.
18. gr. laganna orðast svo:
Forseti Íslands skipar útvarpsstjóra samkvæmt tillögu menntamálaráðherra. Útvarpsstjóri annast rekstur Ríkisútvarpsins, sér um fjárreiður þess og semur ár hvert fjárhagsáætlun þess. Hann skal skipaður til fimm ára í senn, en heimilt er að endurnýja skipun hans einu sinni til jafnlangs tíma.
Útvarpsstjóri undirbýr og stjórnar framkvæmd dagskrár og gætir þess að settum reglum um hana sé fylgt.
Útvarpsstjóri gefur út nánari reglur en kveðið er á um í lögum þessum um fréttaflutning og auglýsingar í hljóðvarpi og sjónvarpi, þar á meðal auglýsingatíma, að fengnu samþykki útvarpsráðs.
11. gr.
2. mgr. 20. gr. laganna orðast svo:
Ráðið setur reglur eins og þurfa þykir til gæslu þess að fylgt sé ákvæðum 2.–7. mgr. 4. gr. og 15. gr. Ákvarðanir útvarpsráðs um útvarpsefni eru endanlegar. Útvarpsstjóri getur þó stöðvað gerð þegar samþykkts dagskrárefnis þyki sýnt að það reynist fjárhagslega ofviða.
12. gr.
21. gr. laganna orðast svo:
Ríkisútvarpið starfar í tveimur deildum, hljóðvarpsdeild og sjónvarpsdeild, undir yfirstjórn útvarpsstjóra.
Hljóðvarpsdeild og sjónvarpsdeild annast öflun og útsendingu dagskrárefnis samkvæmt ákvörðun útvarpsstjóra og útvarpsráðs. Gerð dagskrárefnis getur farið fram í deildunum sjálfum eða utan þeirra samkvæmt sérstökum verksamningum. Kappkosta skal að hlutur innlends efnis í dagskránni verði ætíð sem mestur og til þess vandað svo sem verða má.
Framkvæmdastjóri er fyrir hvorri deild.
Framkvæmdastjórn Ríkisútvarpsins skipa útvarpsstjóri, framkvæmdastjórar og formaður útvarpsráðs. Útvarpsstjóri er formaður stjórnarinnar. Skal framkvæmdastjórn vinna að samræmingu á starfi deilda og gera tillögur um önnur mál sem fyrir hana verða lögð. Tveir fulltrúar starfsmanna, annar frá hljóðvarpsdeild, hinn frá sjónvarpsdeild, eiga sæti á fundum framkvæmdastjórnar og hafa þar málfrelsi og tillögurétt.
Framkvæmdastjórar skulu ráðnir af útvarpsstjóra að fenginni tillögu útvarpsráðs. Framkvæmdastjórar skulu ráðnir til allt að fimm ára í senn en heimilt er að endurnýja ráðningu þeirra einu sinni til jafnlangs tíma. Aðrir starfsmenn Ríkisútvarpsins skulu ráðnir af útvarpsstjóra, þó að fengnum tillögum útvarpsráðs ef um starfsfólk dagskrár er að ræða.
13. gr.
22. gr. laganna orðast svo:
Ríkisútvarpið hefur sjálfstæðan fjárhag. Tekjum þess má eingöngu verja í þágu útvarpsstarfsemi.
Megintekjustofnar Ríkisútvarpsins eru gjöld fyrir útvarpsafnot, gjöld fyrir auglýsingar í hljóðvarpi og sjónvarpi og aðrir tekjustofnar sem Alþingi kann að ákveða.
Útvarpsstjóri kynnir fjárhagsáætlun fyrir útvarpsráði en sendir hana menntamálaráðherra. Alþingi staðfestir fjárhagsáætlun Ríkisútvarpsins endanlega í fjárlögum.
Menntamálaráðherra staðfestir útvarpsgjald að fengnum tillögum útvarpsstjóra.
Útvarpsstjóri gefur út auglýsingataxta og aðrar gjaldskrár eftir tillögum framkvæmdastjóra hljóðvarps- og sjónvarpsdeilda.
14. gr.
23. gr. laganna orðast svo:
Leggja skal 10% af brúttótekjum stofnunarinnar í sjóð sem nefnist Framkvæmdasjóður Ríkisútvarpsins.
Fé Framkvæmdasjóðs skal verja til að tryggja viðunandi húsnæði, tækjakost og dreifikerfi fyrir starfsemi Ríkisútvarpsins.
15. gr.
2. mgr. 25. gr. laganna orðast svo:
Hver sá, er fæst við sölu viðtækja, skal tilkynna innheimtudeild Ríkisútvarpsins í fyrstu viku næsta mánaðar eftir sölumánuð hverjir séu kaupendur. Í tilkynningunni skal greina fullt nafn, kennitölu og heimilisfang kaupanda og seljanda, enn fremur aðrar upplýsingar samkvæmt reglugerð.
16. gr.
29. gr. laganna orðast svo:
Þegar mánuður er liðinn frá eindaga útvarpsgjalda getur innheimtustjóri krafist aðfarar fyrir ógreiddum gjöldum ásamt dráttarvöxtum skv. III. kafla vaxtalaga, nr. 25/1987, og öllum kostnaði. Hafi gjaldandi eigi greitt á eindaga skal hann greiða dráttarvexti frá og með gjalddaga. Um aðför fer samkvæmt ákvæðum aðfararlaga, nr. 90/1989.
17. gr.
30. gr. laganna orðast svo:
Innheimtustjóri getur framkvæmt eða látið framkvæma innsiglun á viðtæki ef hlutaðeigandi aðili óskar eftir innsiglun viðtækis og hefur þar með sagt upp útvarpsafnotum.
18. gr.
34. gr. laganna orðast svo:
Hver sá, sem heimild hefur til að reka útvarp samkvæmt lögum þessum, skal varðveita í a.m.k. níu mánuði hljóð- og/eða myndupptöku af öllu frumsömdu útsendu efni eftir því sem við á. Þó skal heimilt að varðveita fréttir í handriti. Skylt er að láta þeim sem telur misgert við sig í útsendingu í té afrit af hljóð- eða myndupptöku þeirrar útsendingar.
19. gr.
37. gr. laganna orðast svo:
Óheimilt er að framleiða, afhenda, leigja, setja upp eða gera við myndlykla með það að markmiði að veita einhverjum utan hóps áskrifenda aðgang að innihaldi læstrar útsendingar sem boðin er gegn greiðslu.
Óheimilt er að taka með ólögmætum hætti á móti læstri sendingu sem send er út gegn greiðslu án þess að greiða áskriftargjaldið.
20. gr.
38. gr. laganna orðast svo:
Óheimil hagnýting útvarpsefnis skv. 33. gr. varðar sektum. Beita má varðhaldsrefsingu ef sök er stórfelld. Upptæk má gera viðtæki sem notuð hafa verið til hagnýtingar á útvarpsefni í fjárgróðaskyni, sbr. 33. gr.
Vanræksla á tilkynningum skv. 25. gr. varðar sektum.
Brot gegn ákvæðum 37. gr. varða sektum eða varðhaldi allt að einu ári. Tilraun til brots varðar sektum.
Hluti og búnað, sem notaðir hafa verið við brot gegn ákvæðum 37. gr., skal gera upptæka nema þeir séu eign aðila sem ekki er við brotið riðinn. Ávinning, sem aflað hefur verið með brotinu, skal gera upptækan. Hið upptæka skal vera eign ríkissjóðs. Hafi einhver beðið tjón við brotið skal sá eiga forgang til andvirðisins ef bætur fást ekki á annan hátt.
Um mál vegna brota á lögum þessum fer að hætti opinberra mála.
21. gr.
39. gr. laganna orðast svo:
Ráðherra setur með reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd laganna í heild eða einstakra kafla þeirra. Ákveða má í reglugerð að brot gegn ákvæðum hennar varði refsingu samkvæmt lögum.
22. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Ákvæði til bráðabirgða.
Við gildistöku laga þessara er Menningarsjóður útvarpsstöðva lagður niður og fellur umboð stjórnar hans þar með niður. Stjórn dagskrárgerðarsjóðs skal skipuð í fyrsta sinni fyrir 1. ágúst 1995.
Dagskrárgerðarsjóður útvarpsstöðva yfirtekur við gildistöku laga þessara eignir og skuldbindingar Menningarsjóðs útvarpsstöðva.
Afnotagjöld Ríkisútvarpsins skulu vera óbreytt næstu tvö ár frá gildistöku þessara laga.
ATHUGASEMDIR MEÐ ÞESSU MÁLI ERU LESNAR OG FRÁGENGNAR Á ÞSKJ. 834, 535. MÁL 117. LÖGGJAFARÞINGS
UM ÁKVÆÐI TIL BRÁÐABIRGÐA, BLS. 11, STYTTIST Á MILLI ÞINGA OG ÞARF AÐ ATHUGA SÉRSTAKLEGA
FSKJ. I ER ÓBREYTT MILLI ÞINGA, EN FSKJ. II BREYTIST, EINKUM TÖLUR
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Lagafrumvarp þetta er samið af meirihluta þeirrar nefndar, sem skipuð var 29. apríl 1992 til að endurskoða útvarpslög. Í nefndinni áttu sæti þau Tómas Ingi Olrich alþingismaður, formaður, Baldvin Jónsson útvarpsstjóri, Guðni Guðmundsson rektor, Hjálmar Jónsson prófastur, Jóhann Óli Guðmundsson framkvæmdastjóri, Sólveig Pétursdóttir alþingismaður og Sigbjörn Gunnarsson alþingismaður, sem skipaður var í nefndina 10. nóvember 1993 í stað Karls Steinars Guðnasonar alþingismanns. Skilagrein nefndarinnar er fylgiskjal 1 með frumvarpi þessu, en þar kemur fram að einn nefndarmanna Jóhann Óli Guðmundsson stendur ekki að tillögum nefndarinnar.
Meginefni þessa frumvarps er m.a. að núverandi Menningarsjóður útvarpsstöðva verði lagður niður og þeirri kvöð, sem hvílt hefur á Ríkisútvarpinu og einkaútvarpsstöðvum að greiða 10% gjald af auglýsingatekjum til sjóðsins, verði aflétt. Þess í stað verði stofnaður nýr sjóður, Dagskrárgerðarsjóður útvarpsstöðva, sem hafi að meginstefnu til sama hlutverk og Menningarsjóður útvarpsstöðva hefur haft, þó þannig að Ríkisútvarpið hefur ekki heimild til þess að sækja um eða hljóta framlög úr sjóðnum. Tekjur hins nýja sjóðs verði tollar og/eða vörugjöld, áður aðflutningsgjöld, af innfluttum útvarpsviðtækjum eða hlutum í þau. Þá er einnig gert ráð fyrir að létt verði af Dagskrárgerðarsjóðnum þeirri kvöð að greiða hlut Ríkisútvarpsins í rekstri Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Þær tillögur, sem felast í frumvarpi þessu, gera einnig ráð fyrir breytingum á innra skipulagi Ríkisútvarpsins þannig að stofnuninni verði skipt í tvær deildir, hljóðvarps- og sjónvarpsdeild, undir einni yfirstjórn útvarpsstjóra. Verkefni tækni- og fjármáladeilda færast þannig að stærstum hluta til megindeildanna, en á skrifstofu útvarpsstjóra yrðu sameiginleg verkefni sem ekki væri talið hagkvæmt að skipta á milli megindeildanna. Tillögur þessar miða að því að auka fjármálalega og rekstrarlega ábyrgð framkvæmdastjóra og útvarpsstjóra. Útvarpsstjóri og framkvæmdastjórar hljóðvarps og sjónvarps myndi framkvæmdastjórn sem samræmi reksturinn. Tveir starfsmanna hvorrar deildar sitji fundi framkvæmdastjórnar. Ráðning útvarpsstjóra og framkvæmdastjóra verði tímabundin. Tillögur nefndarinnar fela það enn fremur í sér að afnotagjöld Ríkisútvarpsins hækki ekki á næstu tveimur árum frá gildistöku laganna.
Hvað varðar innheimtuúrræði Ríkisútvarpsins vegna vangoldinna afnotagjalda þá er gerð tillaga um að afnema heimild Ríkisútvarpsins til þess að innsigla tæki í innheimtutilgangi. Jafnframt fellur niður heimild til þess að leggja 10% álag á vangoldin afnotagjöld, sbr. 1. mgr. 29. gr. núgildandi útvarpslaga. Að öðru leyti er ekki gerð breyting á innheimtuúrræðum Ríkisútvarpsins frá því sem nú er, en orðalag útvarpslaga er fært til samræmis við ákvæði núgildandi aðfararlaga.
Þá er lagt til það nýmæli að þeim útvarpsstöðvum, sem innheimta áskriftargjöld með sérstökum myndlyklabúnaði, er veitt sérstök vernd, þannig að óheimilt er að koma upp myndlykli í þeim tilgangi að hagnýta læsta útsendingu án heimildar eða án greiðslu áskriftargjalds. Víða um heim hefur verið sett löggjöf af þessu tagi og hefur við samningu þessa frumvarps verið tekið mið af löggjöf í Svíþjóð, Frakklandi, Bretlandi og Hollandi.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Skilgreining á þeim tveimur hugtökum, sem hér er fjallað um, er nauðsynleg til þess að ná fram þeim markmiðum sem breytingar á 37. og 38. grein útvarpslaga með frumvarpi þessu fjalla um, þ.e. um refsivernd læstra útsendinga sem boðnar eru gegn greiðslu.
Um 2. gr.
Hér er lagt til að reglugerðarákvæði það, sem bannar framsal útvarpsleyfa, verði tekið upp í útvarpslög og þannig verði með ótvíræðum hætti kveðið á um það atriði.
Um 3. gr.
Hér er lagt til að Menningarsjóður útvarpsstöðva verði lagður niður og í hans stað verði stofnaður Dagskrárgerðarsjóður útvarpsstöðva.
Um 4. gr.
Tillögur frumvarpsins gera ráð fyrir því að Dagskrárgerðarsjóður hafi sama hlutverk og Menningarsjóður útvarpsstöðva hefur haft. Það er þó nýmæli að lögfest er til hvers konar viðfangsefna framlög skuli veitt. Áskilið er að staðfesting á sölu dagskrárefnis eða samvinnu við innlenda ljósvakamiðla liggi fyrir, sbr. 2. og 3. tl. 2. mgr. Þar með er leitast við að tryggja dreifingu fullbúins dagskrárefnis í útvarpsstöðvum. Rétt er að taka það sérstaklega fram að sjóðnum er ætlað að veita framlög til hvers kyns menningar- og fræðsluefnis þ.m.t. svokallaðs afþreyingar- eða skemmtiefnis.
Önnur ákvæði þessarar greinar geyma fyllri reglur um hvaða aðilar geti sótt um framlög úr sjóðnum, en það eru einkareknar útvarpsstöðvar og allir framleiðendur innlends dagskrárefnis, þ.e. þeir aðilar sem vinna að gerð eða framleiðslu þess. Samkvæmt þessu ákvæði á Ríkisútvarpið þess ekki kost að sækja um framlög úr sjóðnum, þ.m.t. fastráðnir starfsmenn stofnunarinnar og einstaklingar eða fyrirtæki sem eru á föstum verktakasamningi við Ríkisútvarpið. Þessi ákvæði girða ekki fyrir það að Ríkisútvarpið kaupi til sýninga dagskrárefni sem styrkt hefur verið af sjóðnum. Þar sem megintilgangur þessarar tilhögunar er að jafna möguleika einkarekinna útvarpsstöðva og Ríkisútvarpsins hvað dagskrárgerð snertir, þykir rétt að heimila ráðherra að ákveða með reglugerð hversu hátt hlutfall dagskrárefnis, sem styrkt er úr sjóðnum, megi sýna í Ríkisútvarpinu. Þykir rétt að veita ráðherra þessa heimild þar sem framkvæmdin á eftir að leiða í ljós í hve ríkum mæli þetta úrræði kemur til með að bæta hag einkarekinna útvarpsstöðva.
Jafnframt er kveðið sérstaklega á um rétt sjóðsins til endurgreiðslu framlaga ef ekki er staðið við gerð dagskrárefnis og eru þau að mestu leyti í samræmi við ákvæði þeirrar reglugerðar sem gilt hafa hingað til um Menningarsjóð útvarpsstöðva.
Um 5. gr.
Hér er gerð sú meginbreyting á tekjustofni sjóðsins, að í stað 10% gjalds af auglýsingum í útvarpi, falla til sjóðsins tollar og/eða vörugjöld af hljóðvarps- og sjónvarpstækjum, sbr. ákvæði tollalaga nr. 55/1987 með áorðnum breytingum og laga um vörugjald nr. 97/1987 með áorðnum breytingum. Rétt er að árétta að í frumvarpi þessu er átt við þau gjöld sem áður voru nefnd aðflutningsgjöld í 2. mgr. 22. gr. núgildandi útvarpslaga, en þetta orðalag þykir skýrara.
Þar sem reynslan hefur sýnt að viðurhlutamikið er að staðreyna og innheimta gjöld af auglýsingum auk þess sem heppilegra þykir að útvarpsstöðvar ráðstafi aflafé sínu sjálfar, þá er með lagagrein þessari lagt til að í stað 10% gjalds renni tollar og/eða vörugjöld, áður aðflutningsgjöld, af hljóðvarps- og sjónvarpstækjum og hlutum í þau til Dagskrárgerðarsjóðsins. Aðflutningsgjöld hafa samkvæmt útvarpslögum verið einn af megintekjustofnum Ríkisútvarpsins, en þau hafa í raun alltaf, nema árið 1986, runnið í ríkissjóð skv. ákvörðun Alþingis. Hér er lagt til að tollar og/eða vörugjöld, áður aðflutningsgjöld, sem greidd eru af viðtækjaeigendum nýtist til eflingar á innlendri dagskrárgerð og komi þannig íslenskum sjónvarps- og hljóðvarpsnotendum til góða.
Með þeim breytingum, sem í frumvarpi þessu felast, er aflétt þeirri kvöð, sem hvílt hefur á Menningarsjóði útvarpsstöðva, að greiða hlut Ríkisútvarpsins í rekstri Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Því er ekki gert ráð fyrir því að rekstrarkostnaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands greiðist úr Dagskrárgerðarsjóði útvarpsstöðva. Þessi kvöð, sem hvílt hefur á Menningarsjóði útvarpsstöðva, hefur nánast gert sjóðnum ókleift að sinna hlutverki því sem honum var falið með útvarpslögum. Skuld sjóðsins við ríkissjóð vegna Sinfóníuhljómsveitar Íslands er umtalsverð og sýnir að það er ekki forsvaranlegt að tengja starfsemi sjóðsins við rekstur Sinfóníuhljómsveitar Íslands með þessum hætti. Í 3. mgr. Ákvæðis til bráðabirgða er gert ráð fyrir því að skuld Menningarsjóðs útvarpsstöðva vegna greiðslu hluta rekstrarkostnaðar Sinfóníuhljómsveitar Íslands verði felld niður. Að öðru leyti yfirtaki Dagskrárgerðarsjóður útvarpsstöðva eignir og skuldbindingar Menningarsjóðs útvarpsstöðva.
Að síðustu er lagt til að ekki verði kveðið á um viðskiptatengsl Ríkisútvarpsins við Sinfóníuhljómsveit Íslands í útvarpslögum og að Ríkisútvarpið verði jafnsett og aðrar útvarpsstöðvar við að ná samningum við Sinfóníuhljómsveit Íslands og njóti þar engra forréttinda.
Um 6. gr.
Með hliðsjón af stjórnsýslulögum, sem gera ríkar kröfur til sérstaks hæfis stjórnsýsluhafa og til þess að tryggja einfalda framkvæmd á skipan stjórnar sjóðsins, er hér lagt til að Útvarpsréttarnefnd skipi tvo fulltrúa í stjórn Dagskrárgerðarsjóðs útvarpsstöðva og að tilnefningarréttur Ríkisútvarpsins og einkastöðva á fulltrúum í sjóðsstjórnina verði afnuminn.
Um 7. gr.
Þarfnast ekki skýringar.
Um 8. gr
Hér er fjallað um menningarhlutverk Ríkisútvarpsins. Efnislega er hlutverk Ríkisútvarpsins óbreytt frá því sem verið hefur, en með breytingu á orðalagi í þessari grein frumvarpsins er þó lögð sérstök áhersla á að Ríkisútvarpið efli innlenda dagskrárgerð og flutning á fjölbreyttu innlendu dagskrárefni í sem víðtækustum menningarlegum skilningi. Af efni þessarar greinar er ljóst að það fellur ekki undir verksvið Ríkisútvarpsins að endurvarpa heildardagskrám erlendra sjónvarpsstöðva.
Um 9. gr.
Að mestu leyti er grein þessi í samræmi við ákvæði 16. gr. núgildandi útvarpslaga. Þó er hér lagt til að það sé fortakslaust tekið fram að Ríkisútvarpið sjónvarpi einvörðungu einni sjónvarpsdagskrá. Jafnframt er skylda Ríkisútvarpsins til þess að útvarpa tveimur hljóðvarpsdagskrám felld niður og skylda þess til að starfrækja fræðsluútvarp er afnumin.
Hvað varðar efni 4. mgr. þessarar greinar þá er hún óbreytt frá núgildandi lögum. Ekki þótti tímabært að fella þessa grein niður þar sem mál, er varða dreifikerfi stofnunarinnar, þarfnast gagngerrar endurskoðunar.
Þá er lagt til í 6.mgr. að ákvæði um að Ríkikútvarpinu beri að stefna að því að koma upp aðstöðu til dagskrárgerðar og hljóðvarps í öllum kjördæmum verði breytt þannig að Ríkisútvarpinu beri að leita leiða til að tryggja starfsemi svæðisútvarpa í öllum landshlutum. Það byggist síðan á mati Ríkisútvarpsins með hvaða hætti landshlutum verði þjónað sem best í dagskrá, þ.e. hvort sérstakri aðstöðu verði komið upp eða hvort starfsemin verði tryggð með verksamningum við einstaklinga eða fyrirtæki. Þessi breyting er gerð með tilliti til tækniþróunar, en augljóst er að tækniframfarir hafa dregið úr mikilvægi þess að koma upp aðstöðu til dagskrárgerðar víða um land.
Þá þykir niðurlagsákvæði 8.mgr. 16.gr. núgildandi laga óþarft, enda hefur það óljósa lagalega merkingu.
Um 10. gr.
Með grein þessari er lagt til að skipun útvarpsstjóra verði tímabundin.
Um 11. gr.
Breyting sú, sem gerð er á grein þessari, felur það í sér að útvarpsráði ber að auki að fylgjast með að reglum um auglýsingar sé fylgt í Ríkisútvarpinu.
Um 12. gr.
Í grein þessari er fjallað um meginbreytingu á skipulagi Ríkisútvarpsins sem er skipting stofnunarinnar í tvær deildir í stað fjögurra deilda áður. Breyting þessi felur í sér að framkvæmdastjórar hvorrar deildar, hljóðvarps- og sjónvarpsdeilda, fara bæði með málefnalega, tæknilega og fjármunalega stjórnun og ábyrgð á starfi hvorrar deildar fyrir sig. Þannig eykst valdsvið framkvæmdastjóra deildanna frá því sem verið hefur með því að fjármála- og tæknideildir eru lagðar niður og þar með stöður framkvæmdastjóra þeirra deilda. Þessar tvær megindeildir yrðu undir yfirstjórn útvarpsstjóra, en á vegum hans yrðu sameiginlegir þættir starfseminnar, eins og t.d. sameiginleg stefnumótun og innheimta afnotagjalda. Hlutverk framkvæmdastjórnar Ríkisútvarpsins breytist ekki með frumvarpinu og er þannig miðað við að með skipulögðu samráði væri tryggt að samstarf héldist milli aðila, t.d. um dagskrármál. Skipan framkvæmdastjórnarinnar breytist í samræmi við breytingar á fjölda deilda.
Með þessari breytingu yrðu skapaðir möguleikar á að þróa betur verkefnaskipulagningu innan stofnunarinnar, þar sem framkvæmdastjórar og deildarstjórar væru ábyrgir fyrir kostnaði við gerð dagskrárefnis. Verkefnaskipulag gæti leyst af hólmi það deildaskipulag sem nú er, þar sem fjármáladeildin fer með kostnaðareftirlit og gerir tillögur um útdeilingu tekna.
Þá er í frumvarpi þessu gert ráð fyrir að framkvæmdastjórar deilda verði ráðnir tímabundið af útvarpsstjóra að fenginni tillögu útvarpsráðs.
Um 13. gr.
Sú breyting, sem gerð er með þessu ákvæði, er að aðflutningsgjöld eru afnumin sem einn af megintekjustofnum Ríkisútvarpsins, en þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. 22. gr. núgildandi laga hefur Ríkisútvarpið einungis einu sinni frá gildistöku laganna, þ.e. á árinu 1986, notið þessara tekna og vísast í því sambandi til almennra athugasemda hér að framan. Með þeim breytingum, sem lagt er til að gerðar verði á ákvæði 11. gr. útvarpslaganna, er gert ráð fyrir því að aðflutningsgjöld, þ.e. tollar og/eða vörugjöld, renni þess í stað í Dagskrárgerðarsjóð útvarpsstöðva.
Ákvæði um staðfestingu á útvarpsgjaldi er óbreytt frá gildandi lögum, en vegna breytinga, sem frumvarp þetta gerir ráð fyrir á innra skipulagi Ríkisútvarpsins með fækkun deilda, er útvarpsstjóra veitt heimild til þess að gefa út auglýsingataxta og aðrar gjaldskrár að fengum tillögum framkvæmdastjóra hljóðvarps- og sjónvarpsdeilda.
Um 14. gr.
Tekjur framkvæmdasjóðs hafa numið 10% af afnotagjöldum og auglýsingum hljóðvarps og sjónvarps og á árinu 1994 er áætlað að þær tekjur verði 207 m.kr. Þar sem aðflutningsgjöld eru felld niður sem einn af tekjustofnum Ríkisútvarpsins, sbr. 22. gr. svo sem henni er breytt með frumvarpi þessu, er 2. mgr. 23. gr. núgildandi laga felld niður. Hlutverk Framkvæmdasjóðs er óbreytt frá því sem verið hefur.
Um 15. gr.
Í 2. mgr. kemur orðið „kennitölu“ í stað „nafnnúmers“.
Um 16. gr.
Með breytingu þeirri, sem lagt er til að gerð verði á þessari grein laganna, er felld niður heimild til þess að leggja 10% álag á útvarpsgjald vegna kostnaðar af innheimtu. Þykir eðlilegra að kröfur af þessu tagi beri almenna dráttarvexti auk innheimtukostnaðar svo sem kveðið er á um í greininni samkvæmt frumvarpi þessu. Lagt er til að ákvæði 29. gr. verði færð til samræmis við ákvæði núgildandi aðfararlaga nr. 89/1990.
Um 17. gr.
Með þeirri breytingu, sem hér er lagt til að gerð verði á 30. gr. útvarpslaga, er felld brott heimild til þess að innsigla viðtæki, ef viðtæki er notað til móttöku án þess að það hafi verið tilkynnt Ríkisútvarpinu eða vanskil eru orðin á greiðslu afnotagjalds. Þessi heimild hefur í reynd verið lítið notuð og því ekki talin þörf á að hafa heimild þessa í lögum. Á hinn bóginn er ljóst að gagnvart notendum er sjálfsagt að það úrræði sé fyrir hendi að þeir geti leitað eftir innsiglun viðtækis ef þeir af einhverjum ástæðum hyggjast ekki nýta sér viðtækið til móttöku.
Um 18. gr.
Hér er gerð tillaga um að stytta þann tíma sem útvarpsstöðvum er gert skylt að geyma frumsamið útsent dagskrárefni í hljóð- eða myndbandsafriti, eftir því sem við á. Í núgildandi lögum er kveðið á um 18 mánaða geymslutíma, en reynslan hefur sýnt að sá tími er óhæfilega langur. Með hliðsjón af 29. gr. hegningarlaga nr. 19/1940 um kærufrest þykir hæfilegt að geymslutími sé 9 mánuðir.
Um 19. gr.
Efni þessarar greinar er nýmæli, en hér er kveðið á um bann við óheimilli notkun myndlykla í þeim tilgangi að nota sjónvarpssendingar án heimildar og án greiðslu áskriftargjalda. Nauðsynlegt þykir að treysta stöðu þeirra útvarpsstöðva sem afla tekna með áskriftargjöldum og beita sérstökum myndlyklabúnaði í þeim tilgangi að veita einungis þeim aðgang að útsendingu sem hafa greitt fyrir hana. Mjög færist í vöxt að sjónvarpsstöðvar notfæri sér myndlyklabúnað til þess að treysta tekjuöflun sína, og eru því verulegir fjárhagslegir hagsmunir í húfi að þeir geti beitt þessum búnaði og að þeim séu sköpuð réttarúrræði til þess vinna bug á óheimilli notkun myndlykla. Við samningu þessa lagaákvæðis var höfð hliðsjón af nýsettum lögum í Svíþjóð og lögum í Bretlandi, Frakklandi og Hollandi.
Með ákvæði þessu gerast bæði þeir aðilar, sem framleiða og koma á framfæri ólögmætum myndlyklum og þeir sem með ólögmætum hætti taka á móti læstum útsendingum án greiðslu áskriftargjalds, brotlegir við ákvæði þessarar greinar. Kveðið er á um refsingu og eignaupptöku ef um slík brot er að ræða í 3. mgr. og 4. mgr. 38. gr., sbr. 20. gr. frumvarps þessa.
Um 20. gr.
Fyrstu mgr. þessarar greinar eru óbreyttar frá ákvæðum 1. og 2. mgr. 37. gr. núgildandi útvarpslaga. 3. mgr. og 4. mgr. þessarar greinar fela í sér nýmæli og helgast efni þeirra af ákvæðum 37. gr. svo sem lagt er til að henni verði breytt með frumvarpi þessu. Við mat á refsingu var tekið mið af ákvæðum 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 um nytjastuld en við samningu 4. mgr.var höfð hliðsjón af ákvæðum 69. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 um eignaupptöku. 5. mgr. þessarar greinar er efnislega samhljóða 3. mgr. 37. gr. núgildandi laga.
Um 21. gr.
Þarfnast ekki skýringar.
Um 22. gr.
Þarfnast ekki skýringar.
Um ákvæði til bráðabirgða
1. mgr. þarfnast ekki skýringar.
2. mgr. felur það í sér að Dagskrárgerðarsjóður útvarpsstöðva yfirtekur eignir, réttindi og skuldbindingar Menningarsjóðs útvarpsstöðva.
Markmið 3. mgr. er að veita Ríkisútvarpinu ótvírætt aðhald til þess að taka á hagræðingar- og skipulagsmálum innan stofnunarinnar. Þetta ákvæði er og sett með hliðsjón af því að gert er ráð fyrir aukinni fjárhagslegri ábyrgð útvarpsstjóra og framkvæmdastjóra deilda.
Fylgiskjal I.
Skilagrein
Útvarpslaganefndar
til menntamálaráðherra
Með skilagrein þessari fylgja tillögur nefndar, sem skipuð var með bréfi dags. 29. apríl 1992, til þess að endurskoða útvarpslög nr. 68 frá 1985.
Nefndin er þannig skipuð: Tómas Ingi Olrich alþingismaður, formaður, Baldvin Jónsson útvarpsstjóri, Guðni Guðmundsson rektor, Hjálmar Jónsson prófastur, Jóhann Óli Guðmundsson framkvæmdastjóri, Sólveig Pétursdóttir alþingismaður og Sigbjörn Gunnarsson alþingismaður sem skipaður var í nefndina 10. nóv. 1993 í stað Karls Steinars Guðnasonar alþingismanns.
Nefndin hafði sér til aðstoðar við störf sín Þórunni J. Hafstein, deildarstjóra í Menntamálráðuneytinu, og Björgu Ellingsen stjórnarráðsfulltrúa. Auk þess veitti Baldur Guðlaugsson hæstaréttarlögmaður nefndinni ráðgjöf.
Nefndinni var gert að fjalla um eftirtalda þætti:
I.
Nefndin hélt samtals 49 fundi og boðaði til funda eftirtalda aðila:
* Árna Bergmann ritstjóra, Ellert B. Schram ritstjóra, Guðmund Heiðar Frímannsson menntaskólakennara, Hjálmar H. Ragnarsson tónskáld, Hrafn Gunnlaugsson kvikmyndagerðarmann, Jónas Ingimundarson píanóleikara, Pál Magnússon útvarpsstjóra, Stefán Jón Hafstein dagskrárstjóra, Styrmi Gunnarsson ritstjóra, Þorbjörn Broddason lektor og Þórhildi Þorleifsdóttur leikstjóra til að ræða menningarhlutverk fjölmiðla og markaðsaðstöðu fjölmiðla og rekstrarforsendur.
* Friðrik Þór Friðriksson frá Samtökum kvikmyndaleikstjóra, Eirík Thorsteinsson og Önnu Th. Rögnvaldsdóttur frá Félagi kvikmyndagerðarmanna, Sveinbjörn Baldvinsson frá Bandalagi íslenskra listamanna, Tómas Þorvaldsson, Ágúst Guðmundsson og Snorra Þórisson frá Sambandi íslenskra kvikmyndaframleiðenda og Johnny G. Wright frá First Baptist Curch. Þessir aðilar höfðu sent erindi til nefndarinnar og var boðið að koma til að gera grein fyrir máli sínu.
* Hörð Vilhjálmsson fjármálastjóra, Eyjólf Valdimarsson tæknistjóra, Pétur Guðfinnsson framkvæmdastjóra og Elfu-Björk Gunnarsdóttur framkvæmdastjóra til að svara fyrirspurnum frá nefndarmönnum um ýmis málefni Ríkisútvarpsins.
* Kjartan Gunnarsson formann, Ingibjörgu Hafstað, Skúla B. Árnason og Sigrúnu Jónsdóttur frá útvarpsréttarnefnd til að ræða útvarpslög frá sjónarmiðum útvarsréttarnefndar.
* Knút Hallsson, formann kvikmyndalaganefndar, til að ræða dagskrárgerðarsjóðinn út frá sjónarmiðum kvikmyndalaganefndar.
* Pál Bergþórsson veðurstofustjóra til að ræða öryggismál.
* Hörð Vilhjálmsson fjármálastjóra til að ræða fjármál Ríkisútvarpsins.
* Árna Pál Árnason ráðgjafa frá utanríkisráðuneytinu til að ræða áhrif EES á útvarpslög.
* Hörð Haraldsson og Guðmund Ólafsson frá fjarskiptaeftirliti Pósts og síma til að ræða um tæknimál.
* Gústav Arnar frá Póst- og símamálastofnun og Þórhall Jósepsson frá samgönguráðuneytinu til að segja álit sitt á tækniatriðum um endurvarp í frumvarpsdrögum.
* Sólveigu Ólafsdóttur framkvæmdastjóra og Hall A. Baldursson formann frá Sambandi íslenskra auglýsingastofa til að svara fyrir erindi sem sent var sambandinu um vægi ljósvakamiðla og markaðshlutdeild.
* Gústav Arnar og Þorvarð Jónsson frá Póst- og símamálastofnun til að fjalla um dreifikerfið.
* Guðmund Sigurðsson frá Samkeppnisstofnun til að ræða útvarpslögin út frá samkeppnissjónarmiðum.
* Elfu-Björk Gunnarsdóttur framkvæmdastjóra, Pétur Guðfinnsson framkvæmdastjóra og Snævar Guðmundsson frá Hagsýslu ríkisins til að ræða skýrslu um skipulag Ríkisútvarpsins.
* Kristján Jóhannsson lektor og Sæmund Óskarsson prófessor frá Viðskiptafræðistofnun Háskóla Íslands til að ræða skýrslu um athugun á dreifingu útvarpsefnis.
Nefndin sendi erindi til eftirtalinna aðila:
* Fjármálaráðuneytis – athugun á nefskatti.
* Íslenska útvarpsfélagsins – óskað eftir upplýsingum um hlutfall íslensk efnis af heildarútsendingatíma sjónvarpsins.
* Pósts og síma — óskað eftir greinargerð um dreifingu útvarpsefnis og eignaraðild að tæknibúnaði.
* Pósts og síma — óskað eftir greinargerð um sjónarmið stofnunarinnar á tillögum nefndarinnar að breytingum á útvarpslögum með tilliti til tilskipunar Evrópubandalagsins.
* Ríkisútvarpsins — óskað eftir upplýsingum um fjárhag Ríkisútvarpsins 1991.
* Ríkisútvarpsins— óskað eftir greinagerð um starfsemi svæðisútvarps.
* Ríkisútvarpsins — óskað eftir upplýsingum um hlutfall íslensks efnis af heildarútsendingartíma sjónvarpsins.
* Sambands íslenskra auglýsingastofa, — um auglýsingamarkaðinn.
* Samgönguráðuneytis — óskað eftir greinagerð frá formanni endurskoðunarnefndar fjarskiptalaga á tillögum nefndarinnar að breytingum á útvarpslögum með tilliti til tilskipunar Evrópubandalagsins.
* SFH, Sambands flytjenda og hljómplötuframleiðenda — hvort setja eigi hertar reglur um skil útvarpsstöðva á höfundagreiðslum.
* STEF, Sambands tónskálda og eigenda flutningsréttar — hvort setja eigi hertar reglur um skil útvarpsstöðva á höfundagreiðslum.
* Samkeppnisstofnunar — óskað eftir áliti hvort gildandi útvarpslög brjóti í bága við ákvæði samkeppnislaga.
* Utanríkisráðuneytis — um heimild ríkisútvarpsins til að fjármagna sig bæði með afnotagjöldum og auglýsingum.
* Utanríkisráðuneytis — um milliríkjaviðskipti í sjónvarpssendingum.
Nefndin lét vinna fyrir sig eftirfarandi skýrslur:
* Skipulag Ríkisútvarpsins unnið af Elfu-Björk Gunnarsdóttur, Pétri Guðfinnssyni og Snævari Guðmundssyni.
* Athugun á dreifingu útvarpsefnis unnið á vegum Viðskiptafræðistofnunar Háskóla Íslands.
Nefndarmenn fóru í kynnisferð í Ríkisútvarpið og skoðuðu þar aðstöðu bæði hljóðvarps og sjónvarps og ræddu við framkvæmdastjórn Ríkisútvarpsins. Einnig var farið í kynnisferð til Íslenska útvarpsfélagsins og aðstaða þar skoðuð og rætt við Pál Magnússon útvarpsstjóra.
II.
Nefndin skilaði tillögum að frumvarpi til laga um breytingu á útvarpslögum til menntamálaráðherra 29. október 1992. Í frumvarpinu er einkum fjallað um þær skuldbindingar sem fylgja aðild Íslands að hinu sameiginlega evrópska efnahagssvæði, með vísan til 36. gr. EES samningsins, sbr. viðauka X þar sem Ísland fellst á að taka inn í löggjöf sína tilskipun ráðsins frá 3. október 1989 um samræmingu tiltekinna ákvæða í lögum og stjórnsýslufyrirmælum í aðildarríkjum um sjónvarpsrekstur (89/552/EBE) og var tilskipunin fylgirit með frumvarpinu.
16. nóvember lagði ráðherra frumvarpið fyrir ríkisstjórn með tillögu um að frumvarpið yrði lagt fram sem stjórnarfrumvarp. Tillögurnar voru samþykktar, með smávægilegum breytingum, sem lög frá Alþingi þann 6. maí 1993.
III.
Nefndin skilar ráðherra hér með tillögum að frumvarpi. Sex af sjö nefndarmönnum standa að tillögunum, þó þannig að Baldvin Jónsson gerir grein fyrir sjónarmiðum sínum með sérstakri bókun. Einn nefndarmanna Jóhann Óli Guðmundsson stendur ekki að tillögum nefndarinnar og áskilur sér rétt til að skila séráliti síðar.
IV.
Af erindisbréfi nefndarinnar verður ráðið að henni er ætlað að fjalla um yfirgripsmikil málefni, sem snerta annars vegar alþjóðlegar skuldbindingar Íslendinga og áhrif þeirra á íslensk útvarpsmál, en á hinn bóginn stefnumörkun stjórnvalda í málefnum ljósvakamiðla og hlutdeild þessara miðla í menningarmálum. Að því er síðari málaflokkinn varðar, er nefndinni ætlað að fjalla um stöðu íslenskra ljósvakamiðla, samkeppni ríkisfjölmiðils við einkastöðvar, en ekki síst framlag ljósvakamiðlanna til íslenskrar menningar og stöðu þeirra í samkeppni við erlenda ljósvakamiðla.
1. Skilgreining á veigamiklum hugtökum útvarpsmiðlunar, til dæmis um þráð, móttöku og endurvarp útvarpsefnis, útsendingu , dagskrárefni og dagskrárliði.
Lög nr. 82/1993 hafa að geyma skilgreiningar á nokkrum hugtökum, þ.á m. útvarpi, útvarpsstöð og útvarpsdagskrá. Þau hugtök, sem í erindisbréfinu greinir, eru út af fyrir sig ekki skilgreind sérstaklega, en efnislega er í lögunum fjallað um umrædda þætti útvarpsmiðlunar. Telur nefndin ekki þörf á því að aðhafast neitt frekar í þeim þætti málsins.
2. Aðild Íslands að alþjóðasamningum og samstarf á sviði útvarps.
Í framangreindum lögum voru útvarpslög löguð að þeim skuldbindingum, sem fylgja aðild Íslands að hinu evrópska efnahagssvæði. Telur nefndin sig hafa fjallað um þá alþjóðlegu samninga, sem Ísland á aðild að og hafa bein áhrif á íslenska löggjöf og gert viðeigandi tillögur þar að lútandi.
3. Hvernig bregðast megi við þróun útvarpsmála erlendis, einkum í Evrópu.
Nefndin leit svo á að hér væri átt annars vegar við samningsbundnar skuldbindingar vegna aðildar Íslands að hinu evrópska efnahagssvæði en hins vegar aðstöðu íslenskrar ljósvakamiðlunar og íslenskrar dagskrárgerðar í samkeppni við erlenda ljósvakamiðla og erlent dagskrárefni. Nefndin hefur í störfum sínum leitast við að varpa sem skýrustu ljósi á vægi íslenskra ljósvakamiðla í menningarlífi þjóðarinnar. Hún hefur leitast við að fá glögga mynd af því með hvaða hætti efla mætti ljósvakamiðlana í samkeppni þeirra við erlent dagskrárefni, um leið og leitað væri leiða til að jafna samkeppnisstöðu þeirra innbyrðis.
Staða íslenskra ljósvakamiðla í innbyrðis samkeppni um hlustendur eða áhorfendur og í samkeppni við erlenda ljósvakamiðla ræðst að mati útvarpslaganefndar fyrst og fremst af því hve sterkir þessir miðlar eru á sviði dagskrárgerðar. Það skiptir með öðrum orðum meginmáli hversu vönduð dagskráin er, hve vel og almennt hún höfðar til íslenskra hlustenda og hve sterk tengsl eru milli dagskrárefnis og íslenskrar menningar og þjóðlífs. En jafnframt er ljóst að styrk sinn sækja íslenskir fjölmiðlar einnig til vandaðs og fjölbreytilegs framboðs á erlendu efni.
Útvarpslaganefnd telur því að árangursríkast sé að bregðast við samkeppni erlendra ljósvakamiðla með því að tryggja sem best innlenda dagskrárgerð í Ríkisútvarpinu og efla aðra íslenska ljósvakamiðla og sjálfstæða framleiðendur til dagskrárgerðar, í samræmi við þær menningarlegu skyldur sem gildandi lög leggja þeim á herðar.
4. Hlutdeild ríkisins í útvarpsrekstri, þar með talin fjármögnun og rekstrarfyrirkomulag.
Þótt ólíkra sjónarmiða gæti innan útvarpslaganefndar um það hvort og í hve ríkum mæli ríkið eigi að blanda sér í útvarpsrekstur, gengur nefndin út frá því í tillögum sínum að Ríkisútvarpið verði starfrækt áfram sem sjálfstæð stofnun í eigu íslenska ríkisins og að lögbundið hlutverk þess verði í stórum dráttum óbreytt. Þó leggur nefndin til að enn skýrar verði kveðið á um það en nú er gert að Ríkisútvarpið skuli leggja áherslu á innlenda dagskrárgerð, bæði með eigin framleiðslu og með verk- og samstarfsamningum við sjálfstæða framleiðendur. Er þar með hlutverk sjálfstæðra framleiðenda dagskrárefnis staðfest með lögum, svo og sú fjölbreytni, sem af því hlýst að efla sem flesta til starfa við íslenska dagskrárgerð.
Nefndin leggur ennfremur til að felld verði úr lögum skylda Ríkisútvarpsins til að senda til alls landsins og næstu miða tvær hljóðvarpsdagskrár. Ef tillögurnar yrðu samþykktar, standa lög ekki í vegi fyrir því að Ríkisútvarpið leggi niður aðra hljóðvarpsrás sína, ef það kýs að útvarpa á einni rás. Er þessi breyting gerð í samræmi við þá skoðun útvarpslaganefndar að Ríkisútvarpið gegni best því hlutverki sínu að vera samnefnari þjóðarinnar og sameiginlegur vettvangur þjóðmálaumræðu, upplýsinga og skoðanaskipta með því að höfða til breiðs hlustendahóps á einni rás. Nefndin tekur hins vegar enga afstöðu til þess hvort Ríkisútvarpið notar eina eða fleiri rásir til að uppfylla aðrar skyldur sínar, þar með talin ákvæði um starfsemi svæðisútvarps.
Samkvæmt útvarpslögum hefur Ríkisútvarpið sjálfstæðan fjárhag og eru meginstofnar þess lögum samkvæmt afnotagjöld, gjöld fyrir auglýsingar og aðflutningsgjöld af hljóðvarps- og sjónvarpstækjum og hlutum í þau. Með lögum nr. 82/1993 var jafnframt í lög leitt að Ríkisútvarpinu sé heimilt að afla kostunar við gerð einstakra dagskrárgerðarliða.
Ítarlegar umræður fóru fram í nefndinni um tekjuöflun Ríkisútvarpsins, einkum um auglýsingar og um afnotagjöld eða opinber framlög í þeirra stað, annaðhvort í formi „nefskatts“ eða framlaga á fjárlögum. Nefndin gerir eftirfarandi tillögur til breytinga á þessum málum.
Lagt er til að aðflutningsgjöld verði afnumin sem tekjustofn fyrir Ríkisútvarpið og að þau renni þess í stað í Dagskrárgerðarsjóð útvarpsstöðva, en meginhlutverk hans er að styrkja ljósvakamiðla í einkaeign og sjálfstæða framleiðendur til dagskrárgerðar. Rétt er að taka fram að aðflutningsgjöld eru í tillögum nefndarinnar kölluð tollar og/eða vörugjöld af hljóðvarps- og sjónvarpstækjum og hlutum í þau. Ekki er lagt til að nein grundvallarbreyting verði á afnotagjöldum Ríkisútvarpsins. Felld er úr lögum heimild til handa Ríkisútvarpinu til að innsigla viðtæki vegna vangoldinna útvarpsgjalda. Fellt er úr lögunum ákvæði um 10% álag vegna kostnaðar við innheimtu vangoldinna afnotagjalda. Þá er gerð tillaga um að afnotagjald verði óbreytt næstu tvö ár frá gildistöku laganna. Er það gert til að veita Ríkisútvarpinu aðhald og hvetja stofnunina til að vinna að hagræðingu í rekstri.
Að því er varðar rekstrarfyrirkomulag Ríkisútvarpsins hefur útvarpslaganefnd haft til hliðsjónar tillögur nefndar, sem menntamálaráðherra skipaði að beiðni útvarpslaganefndar. Hefur að hluta til verið tekið tillit til ábendinga nefndarinnar að svo miklu leyti sem þær snerta útvarpslög. Leggur útvarpslaganefnd til að Ríkisútvarpið skiptist í tvær megindeildir, hljóðvarps- og sjónvarpsdeild, í stað fjögurra sem nú eru starfræktar, þar af þrjár samkvæmt lögum. Er með þessum breytingum verið að gera lagafyrirmæli um stjórn og skipulag Ríkisútvarpsins einfaldari og boðleiðir styttri, í þeim tilgangi að auka svigrúm stofnunarinnar til að ná niður kostnaði við yfirstjórn og umsýslu og efla dagskrárgerð. Er með þessu tekið undir það sjónarmið nefndarinnar, sem segir í skýrslu sinni: „Eitt aðalvandamál (Ríkisútvarpsins) er hve fastur kostnaður (þess) er mikill í hlutfalli við það fé sem rennur til dagskrárgerðar. Það felst í rekstri og bindingu fjármuna í illa nýttu húsnæði að Efstaleiti, mikilli yfirstjórn og að einhverju leyti í mannahaldi sem miðast við að geta annað miklu álagi, einkum í sjónvarpi.“ Staða framkvæmdastjóra fjármáladeildar og staða framkvæmdastjóra tæknideildar verða samkvæmt tillögunum lagðar niður, en verkefni tækni- og fjármáladeildar færast að stærstum hluta til megindeildanna tveggja, en á skrifstofu útvarpsstjóra yrðu sameiginleg verkefni. Útvarpsstjóri ásamt framkvæmdastjórum hljóðvarps og sjónvarps mynda framkvæmdastjórn stofnunarinnar. Þá er einnig lagt til að ráðning útvarpsstjóra og framkvæmdastjóra verði til fimm ára, með heimild til endurráðningar einu sinni. Lagt er til að framkvæmdastjórar verði ráðnir af útvarpsstjóra.
Útvarpslaganefnd telur óráðlegt að ganga lengra til einföldunar, t.d. með því að sameina hljóðvarp og sjónvarp í eina deild. Liggja einkum til þess þær ástæður að hljóðvarp og sjónvarp eru í grundvallaratriðum ólíkir miðlar, sem nálgast viðfangsefni sín, hvort sem um fréttir eða dagskrárgerð er að ræða, með ólíkum hætti. Er full ástæða til að ýta undir það með skipulagi að hvor deild fyrir sig njóti sérstöðu og nokkurs sjálfstæðis. Er það ekki síst gert með hagsmuni hljóðvarps í huga.
5. Skilyrði fyrir leyfisveitingu til útvarpsrekstrar.
Með lögum nr. 82/1993 voru gerðar nokkrar breytingar á þeim almennu skilyrðum sem leyfi til útvarps er háð, auk þess sem sett voru ákvæði um leyfi til starfrækslu útvarps þar sem einvörðungu er dreift viðstöðulaust óstyttri og óbreyttri heildardagskrá útvarpsstöðva og ákvæði um skilyrði fyrir slíkum leyfum.
Útvarpslaganefnd átti fund með fulltrúum Útvarpsréttarnefndar þar sem þetta atriði var rætt sérstaklega. Niðurstaða þeirra viðræðna sem og umræðna innan nefndarinnar var sú að ekki væri ástæða til þess að setja frekari skilyrði fyrir leyfisveitingu til útvarpsrekstrar í útvarpslögum. Þó var á það bent í samtölum við fulltrúa Útvarpsréttarnefndar að e.t.v. væri ástæða til þess að kveða á um í útvarpslögum að framsal útvarpsleyfa sé óheimilt. Nefndin leggur því til að reglugerðarákvæði það, sem nú gildir um bann við framsali útvarpsleyfa, verði tekið upp í útvarpslög.
6. Hvernig tryggja megi sem jafnasta aðstöðu ljósvakamiðla hér á landi.
Með erindisbréfi var útvarpslaganefnd gert að leita leiða til að tryggja sem jafnasta aðstöðu íslenskra ljósvakamiðla. Lög nr. 68/1985 kveða á um heimild til að veita öðrum aðilum en Ríkisútvarpinu leyfi til útvarps og mæla fyrir um skilyrði til slíkrar starfsemi. Þessum aðilum er heimilt að afla sér tekna með auglýsingum, afnotagjaldi (sem hér eftir verður nefnt áskriftargjald til aðgreiningar frá afnotagjaldi Ríkisútvarpsins), eða með sérstöku gjaldi vegna framleiðslu fræðslu- og skýringarefnis. Með lögum nr. 82/1993 voru sett ákvæði um kostun og auglýsingar og gilda samsvarandi ákvæði um þau mál hjá einkareknum ljósvakamiðlum og hjá Ríkisútvarpi.
Í lögum nr. 68/1985 voru jafnframt staðfestir megintekjustofnar Ríkisútvarpsins, en þeir eru gjöld fyrir útvarpsafnot, svokallað afnotagjald, gjöld fyrir auglýsingar í hljóðvarpi og sjónvarpi, aðflutningsgjöld af hljóðvarps- og sjónvarpstækjum og hlutum í þau, svo og aðrir tekjustofnar sem Alþingi kann að ákvarða. Fjárhagsáætlun Ríkisútvarpsins er kynnt fyrir útvarpsráði og send menntamálaráðherra. Alþingi staðfestir áætlunina endanlega í fjárlögum. Menntamálaráðherra staðfestir afnotagjald að fengnum tillögum útvarpsstjóra. Í sjóð, sem nefnist Framkvæmdasjóður Ríkisútvarpsins, skal leggja 10% af brúttótekjum stofnunarinnar, en í þann sjóð renna einnig samkvæmt útvarpslögum aðflutningsgjöld af hljóðvarps- og sjónvarpstækjum og hlutum í þau.
Ríkisútvarpið er samkvæmt þessu B-hluta stofnun með sjálfstæðan fjárhag. Stofnuninni eru samkvæmt útvarpslögum tryggðir sérstakir tekjustofnar. Þess eru ekki dæmi að löggjafinn hafi svipt Ríkisútvarpið afnotagjaldinu eða hluta þess, þótt þess séu dæmi að menntamálaráðherra hafi neitað að staðfesta afnotagjaldshækkun sem var innan ramma fjárhagsáætlunar Ríkisútvarpsins, sem staðfest hafði verið af Alþingi. Að því er aðflutningsgjöldin varðar hafa þau aðeins einu sinni runnið til Ríkisútvarpsins eftir að lögin tóku gildi 1985, en það var árið 1986. Æ síðan hefur löggjafinn ákveðið að þrátt fyrir ákvæði útvarpslaga skuli aðflutningsgjöld renna í ríkissjóð.
Ljóst er að Ríkisútvarpið og ljósvakamiðlar í einkaeign eiga í harðri samkeppni á auglýsingamarkaði, bæði innbyrðis og við aðra auglýsingamiðla. Hljóðvarpsstöðvar í einkaeign hafa ekki aðra fjármögnunarmöguleika en auglýsingastarfsemi og finna því mun meira fyrir samkeppni við Ríkisútvarpið en sjónvarpsstöðvar sem hafa tækifæri á að fjármagna sig með áskriftum að lokaðri dagskrá auk auglýsinga.
Á auglýsingar í ljósvakamiðlum er lagt sérstakt gjald, menningarsjóðsgjald, sem rennur til Menningarsjóðs útvarpsstöðva, en ákvæði um hann er að finna í útvarpslögum. Veitir sjóðurinn framlög til eflingar innlendri dagskrárgerð. Auk þess greiðist hlutur Ríkisútvarpsins af rekstri Sinfóníuhljómsveitar Íslands af menningarsjóðsgjaldinu, en samkvæmt lögum um Sinfóníuhljómsveit Íslands er hlutur Ríkisútvarpsins í rekstri hljómsveitarinnar 25% af kostnaði. Ljóst er að hlutfallslega hvílir þetta gjald á auglýsingar þyngra á einkareknum hljóðvarpsstöðvum en öðrum ljósvakamiðlum, þar sem þær hafa ekki aðra tekjustofna.
Ýmsar ráðstafanir koma til greina til að jafna með lögum samkeppnisstöðu einkarekinna ljósvakamiðla gagnvart Ríkisútvarpinu. Í stórum dráttum stendur valið milli ákvæða, sem miða að því að setja hömlur á samkeppnisstarfsemi ríkisfjölmiðilsins annars vegar, og hins vegar ákvæða sem miða að því að bæta stöðu einkarekinna ljósvakamiðla. Verður hér getið nokkurra kosta, sem nefndin hefur íhugað.
Hægt er að afnema afnotagjöld Ríkisútvarpsins og gera því að fjármagna sig með gjöldum fyrir auglýsingar og áskriftargjöldum. Má segja að þá væri náð fullkomlega jafnri aðstöðu ríkisrekins og einkarekins sjónvarps, en hljóðvarpsstöðvar án tengsla við sjónvarp byggju enn við skertan hlut, þar sem þær eru reknar með auglýsingatekjum einum. Hægt er að takmarka eða banna með öllu auglýsingar í Ríkisútvarpinu. Má geta þess að í Bretlandi er BBC fjármagnað með afnotagjöldum og ríkisframlagi, en stofnunin hefur ekki heimild til að afla sér tekna með auglýsingum. Samkvæmt lögum nr. 82/1993 er skilgreindur rammi um auglýsingastarfsemi sjónvarpsstöðva, þar sem sett er hámark hlutfalls auglýsinga innan daglegs útsendingartíma og hámark hlutfalls auglýsinga innan tiltekins „klukkutíma skeiðs“. Þennan ramma mætti þrengja að því er varðar sjónvarpsstarfsemi Ríkisútvarpsins. Hægt er að setja hömlur á auglýsingastarfsemi með svipuðum hætti og gert er í Þýskalandi, en þar hafa ríkissjónvarpsstöðvarnar ARD og ZDF, sem afla sér tekna með afnotagjaldi og auglýsingum, aðeins leyfi til að auglýsa ákveðna daga og innan ákveðinna tímamarka á sólarhring. Þá er einnig hægt að skerða auglýsingastarfsemi í hljóðvarpi sérstaklega, ellegar þrengja ramma um ákveðna tegund auglýsinga, svo sem leiknar auglýsingar í hljóðvarpi.
Þegar talað er um að takmarka auglýsingastarfsemi með lögum, er rétt að taka það fram að erfitt getur verið að átta sig á áhrifum slíkra takmarkana á markaðinn. Bann við auglýsingum í Ríkisútvarpinu gæti haft áhrif á markaðinn og leitt til fákeppni á markaði sjónvarpsauglýsinga. Þrengjandi ákvæði um auglýsingastarfsemi, t.d. að því er varðar hámark hlutfalls auglýsinga á klukkustund eða sólarhring, geta haft þau áhrif að verðmæti auglýsinga á hinum skerta tíma eykst verulega og eftirsókn eftir þeim í samræmi við það.
Ekki er hægt að fjalla um starfsemi ljósvakamiðla sem hreinræktuð þjónustuviðskipti. Þeir hafa öðrum þræði með höndum mikilvæga menningarstarfsemi, sem hefur veruleg áhrif á uppeldi, viðhorf, skoðanaskipti, menntun og málfar þjóðarinnar. Þessi menningarstarfsemi á í vaxandi samkeppni við erlenda alþjóðlega ljósvakamiðla. Umræður og ráðstafanir löggjafans í málefnum ljósvakamiðla hljóta að taka mið af þessum staðreyndum.
Hafa ber í huga að það, sem ræður mestu um samkeppnisstöðu ljósvakamiðils á auglýsingamarkaði, er öllu öðru fremur dagskrárstefna hans. Sé dagskráin fjölbreytt, vel sniðin að þörfum íslenskra hlustenda og áhorfenda og höfði til breiðs neytendahóps, er staða hans á auglýsingamarkaði sterk. Vandað framboð á efni, bæði innlendu og erlendu, skiptir því mestu um áhorf og markaðsstöðu þegar til lengri tíma er litið. Vægi innlendrar dagskrárgerðar er mikið í þessu sambandi.
Um takmarkanir á auglýsingastarfsemi Ríkisútvarpsins varð mikill ágreiningur í nefndinni. Nefndin hefur hvorki náð saman um tillögur um bann við auglýsingastarfsemi Ríkisútvarpsins né séð sér fært að móta sameiginlegar hugmyndir um takmarkanir á auglýsingastarfsemi stofnunarinnar. Á hinn bóginn telur útvarpslaganefnd nauðsynlegt að gera ráðstafanir til að jafna samkeppnisstöðu annarra ljósvakamiðla gagnvart Ríkisútvarpinu. Leggur nefndin til að eftirfarandi ráðstafanir verði gerðar, sem áfangar á þeirri braut að jafna aðstöðumuninn.
Lagt er til að Menningarsjóður útvarpsstöðva verði lagður niður. Þar með verði felld niður gjaldtaka af auglýsingum í útvarpi, sem nú er 10%. Mun þessi ráðstöfun ein sér bæta stöðu einkarekinna hljóðvarpsstöðva, sem einungis fjármagna starfsemi sína með auglýsingum. Ennfremur mun hún auka svigrúm á auglýsingamarkaði almennt, en þar hefur gætt samdráttar að undanförnu.
Lagt er til að rofin verði rekstrarleg tengsl milli Ríkisútvarpsins og Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Þessi tengsl hafa haft óheppileg áhrif á framlög Menningarsjóðs útvarpsstöðva til innlendrar dagskrárgerðar og sett stafsemi sjóðsins í nokkra óvissu. Þá hefur samband Ríkisútvarpsins og Sinfóníuhljómsveitarinnar, sem kveðið er á um í lögum, reynst næsta lítilvirkt og ekki ástæða til að kveða á um það samband sérstaklega í útvarpslögum.
Frá menningarlegu sjónarmiði er það mikilvægt fyrir stjórnvöld að efla innlenda dagskrárgerð og hvetja til flutnings innlends efnis. Ef það fer saman að löggjafinn getur eflt innlenda dagskrárgerð og þar með bætt samkeppnisstöðu einkarekinna ljósvakamiðla, er það í sjálfu sér leið til jöfnunar. Því er lagt til að stofnaður verði sérstakur Dagskrárgerðarsjóður útvarpsstöðva, er styrki innlenda dagskrárgerð með svipuðum hætti og Menningarsjóður útvarpsstöðva gerði, að öðru leyti en því að ekki er gert ráð fyrir að Ríkisútvarpið geti sótt um styrki úr sjóðnum. Það geta hins vegar aðrir ljósvakamiðlar og sjálfstæðir framleiðendur útvarpsefnis. Lagt er til að í sjóðinn renni tollar og/eða vörugjöld af hljóðvarps- og sjónvarpstækjum og hlutum í þau, sem samsvara aðflutningsgjöldum af sjónvarps- og hljóðvarpstækjum og hlutum í þau. Með þessum tillögum er fé til innlendrar dagskrárgerðar stóraukið og hlutur einkarekinna ljósvakamiðla verulega bættur. Ennfremur styrkist staða sjálfstæðra dagskrárgerðaraðila til muna. Sú ráðstöfun leiðir til valddreifingar í dagskrárgerð og ýtir undir fjölbreytni í framboði dagskrárefnis. Rétt er að taka það fram að með framleiðanda dagskrárefnis er átt við hvern þann er getur boðið efni til dagskrárgerðar ekki síður en tæknilega og faglega framleiðendur dagskrárefnis fyrir útvarp. Þjóðin á öflugan hóp fagfólks á sviði lista og listflutnings, vísinda, bókmennta og tækni, sem æskilegt er að virkja til dagskrárgerðar fyrir ljósvakamiðla. Er gert ráð fyrir því í tillögum útvarpslaganefndar að slíkir aðilar geti sótt um styrki til dagskrárgerðar, að því tilskildu að þeir tryggi sér faglega aðstoð og ráðgjöf við framleiðslu dagskrárefnis og fyrir liggi staðfesting ljósvakamiðla um útsendingu efnis.
Með þeirri breytingu á tekjustofnum Ríkisútvarpsins, sem hér er gerð tillaga um, og með stofnun Dagskrárgerðarsjóðs útvarpsstöðva, er verið að breyta í mikilvægum atriðum þeirri stefnu í opinberum stuðningi við dagskrárgerð, sem útvarpslög kveða á um annars vegar gagnvart Ríkisútvarpinu og hins vegar gagnvart ljósvakamiðlum í einkaeign. Fram til þessa hafa gjöld sem leggjast á not sjónvarps og hljóðvarpstækja og á innflutning þessa búnaðar runnið samkvæmt útvarpslögum til Ríkisútvarpsins. Sú breyting er nú gerð á þessum málum að hluti þessarar heildargjaldtöku, þ.e.a.s. tollar og/eða vörugjöld af hljóðvarps- og sjónvarpstækjum og hlutum í þau, rennur til dagskrárgerðar á vegum annarra ljósvakamiðla en Ríkisútvarpsins og sjálfstæðra dagskrárgerðaraðila.
7. Hvaða kröfur beri að gera um eignaraðild einkarekinna ljósvakamiðla, sérstaklega með tilliti til samþjöppunar eignarhalds á þessu sviði.
Samkeppnislög gilda um einkarekna ljósvakamiðla jafnt sem önnur fyrirtæki. Nefndin telur ekki rétt að setja önnur og strangari skilyrði um eignaraðild einkarekinna ljósvakamiðla en gilda um aðra fjölmiðla eða atvinnufyrirtæki almennt.
8. Hvert er menningarlegt hlutverk ljósvakafjölmiðla.
Í lögum nr. 82/1993 segir að útvarpsstöðvar skuli stuðla að almennri menningarþróun og efla íslenska tungu. Einnig segir að þær skuli kosta kapps um að meiri hluti útsendrar dagskrár sé íslenskt dagskrárefni og dagskrárefni frá Evrópu. Sérstök ákvæði eru í lögum um skyldur Ríkisútvarpsins að þessu leyti og eru þau fyllri en ákvæði um skyldur einkarekinna ljósvakamiðla.
Útvarpsstöðvum er úthlutað senditíðnum, sem verður að líta á sem takmörkuð gæði, þar sem rými á tíðnisviðinu er lítið. Hljóðvarp og sjónvarp er virkur þáttur í lífi og starfi sérhvers Íslendings. Hafa þessir miðlar þannig mjög veruleg áhrif á viðhorf almennings til flestra mála. Útvarpslaganefnd lítur svo á að sú almenna skilgreining á menningarhlutverki ljósvakamiðla, sem bundin er í lögum, sé æskileg og gerir ekki tillögur um að breyta henni.
Nefndin leggur áherslu á þær menningarlegu skyldur, sem lagðar eru á ljósvakamiðla aðra en Ríkisútvarpið. Telur nefndin eðlilegt að styrkja þessa miðla til dagskrárgerðar mun meira en nú er gert með starfsemi Menningarsjóðs útvarpsstöðva. Vísast þar um til þess kafla sem fjallar um Dagskrárgerðarsjóð útvarpsstöðva.
9. Efling innlendrar dagskrárgerðar.
Nefndin fjallaði ítarlega um stöðu innlendrar dagskrárgerðar. Ljóst er að innlend dagskrárgerð á í vök að verjast í samkeppni við erlent dagskrárefni. Íslenskar útvarpsstöðvar styðjast við afar fámennan neytendahóp á takmörkuðu málsvæði. Framleiðslukostnaður er því hlutfallslega mjög hár, og freistandi fyrir ljósvakamiðla að byggja dagskrá sína að mestu upp á erlendu efni.
Áhrifamáttur ljósvakamiðla á uppeldi og menntun þjóðarinnar er mikill. Þeir hafa m.a. sterk áhrif á stöðu móðurmálsins. Gætir nú þegar mikilla áhrifa ensku á málfar Íslendinga og má rekja þau áhrif að talsverðum hluta til sjónvarps.
Stuðningur hins opinbera við innlenda dagskrárgerð er því mikilvægt framlag til menningarmála. Þar sem hlutverk Dagskrárgerðarsjóðs útvarpsstöðva er skilgreint í tillögum nefndarinnar, ber að leggja almenna víðtæka merkingu í orðalagið íslenskt menningarlíf. Á það ekki síður við um framleiðslu afþreyingar- og skemmtiefnis en annað dagskrárefni. Er lögð áhersla á það hlutverk Dagskrárgerðarsjóðs að efla framleiðslu fjölbreytilegs alþýðlegs menningarefnis, sem á rætur í sem flestum sviðum íslensk þjóðlífs. Telur nefndin að með tillögum sínum um Dagskrárgerðarsjóð og afnámi auglýsingagjalds séu möguleikar á framleiðslu innlends dagskrárefnis stórefldir.
10. Menningarsjóður útvarpsstöðva.
Útvarpslaganefnd leggur til að Menningarsjóður útvarpsstöðva verði lagður niður. Falla þar með niður ákvæði um að af Menningarsjóðsgjaldi skuli greiðast hlutur Ríkisútvarpsins af rekstrarkostnaði Sinfóníuhljómsveitarinnar, sbr. lög um Sinfóníuhljómsveit Íslands nr. 36/1982. Útvarpslaganefnd leggur til við menntmálaráðherra að framangreindum lögum um Sinfóníuhljómsveitina verði breytt á þann hátt á Ríkisútvarpið taki ekki þátt í rekstrarkostnaði Sinfóníuhljómsveitarinnar. Að öðru leyti er ekki fjallað sérstaklega um Menningarsjóð útvarpsstöðva undir þessum lið en vísað til kafla um jöfnun samkeppnisstöðunnar í lið 6 hér að ofan og umfjöllunina um Dagskrárgerðarsjóð útvarpsstöðva.
11. Ábyrgð á útvarpsefni.
Í gildandi útvarpslögum er kveðið á um að frumsamið útsent efni skuli geymt í 18 mánuði. Þar sem upptöku- og geymslukostnaður hefur reynst útvarpsstöðvum mjög dýr er talið rétt með hliðsjón m.a. af 29. gr. hegningarlaga nr. 19/1940 að stytta þennan tíma um helming. Að öðru leyti hefur ekki þótt ástæða til þess að gera frekari breytingar á ábyrgðarreglum útvarpslaga.
12. Auglýsingar í ljósvakamiðlum.
Í lögum nr.82/1993 er að finna ítarleg ávæði um auglýsingar og um kostun. Telur nefndin sig þar með hafa tekið á þeim þætti erindisbréfsins, sem snertir auglýsingar í ljósvakamiðlum að öðru leyti en því sem lýtur að jöfnun samkeppnisstöðu, en að því er vikið áður í þessari skilagrein.
13. Nauðsynlegar breytingar á löggjöf vegna tækninýjunga.
Í lög nr. 82/1993 voru sett ákvæði sem heimila starfsemi svokallaðra endurvarpsstöðva og setja tæknilegan ramma um starfsemi þeirra, auk þess sem felldar voru niður takmarkanir á því hvaða tíðnisviðum Póst- og símamálastofnun úthlutar til útvarps. Ennfremur tók nefndin til ítarlegrar umfjöllunar þau nýju viðhorf í dreifikerfismálum, sem lagning ljósleiðara hefur haft í för með sér. Þótt nefndin hafi ekki séð ástæðu til að breyta lögum að því er dreifingu útvarpsefnis varðar, hefur hún fjallað sérstaklega um og samþykkt sérstakt álit um stefnu í þeim málum. Verður gerð sérstök grein fyrir þeim tillögum síðar í þessari skilagrein. Að öðru leyti telur nefndin ekki ástæðu til frekari breytinga á útvarpslögum vegna tækninýjunga, en tekur það fram að mikilla breytinga er að vænta innan tiltölulega fárra ára með tilkomu stafræns hljóðvarps og sjónvarps. Tækninýjungar á sviði ljósvakamiðlunar eru örar, en krafa um stöðlun og undirbúning hins vegar sterk vegna þess hve miklar fjárfestingar eru bundnar bæði í sendi-, dreifi- og móttökubúnaði. Það liggur því í hlutarins eðli að útvarpslög verður sífellt að endurskoða með tilliti til tækninýjunga.
Dreifikerfi.
Á vegum útvarplaganefndar vann Viðskiptafræðistofnun Háskóla Íslands skýrslu um dreifikerfi Ríkisútvarpsins, sem hefur að geyma athugun á því hvort þjóðhagslega hagkvæmt sé að Ríkisútvarpið dreifi sínu efni um ljósleiðarakerfi Pósts og síma. Samkvæmt 31. gr. útvarpslaga skulu Ríkisútvarpið, útvarpsréttarnefnd og Póst- og símamálastofnun hafa náið samstarf til að tryggja að útvarps- og fjarskiptastarfsemi verið í heild sem hagkvæmust fyrir þjóðina.
Ljóst er að sú skipan mála, sem tíðkast hefur í samskiptum Ríkisútvarps og Pósts- og síma varðandi dreifingu útvarpsefnis, er óviðunandi. Fjárfesting ríkisins í ljósleiðara er illa nýtt á sama tíma og Ríkisútvarpið áformar að verja um 400 milljónum króna til að endurnýja að óþörfu dreifikerfi sitt um örbylgju. Útvarpslaganefnd taldi brýnt að varpa skýru ljósi á þetta mál og telur að það hafi verið gert með skýrslu Viðskiptafræðistofnunar Háskóla Íslands. Gerir nefndin tillögu um það til ráðherra hvernig unnið skuli að því að koma í veg fyrir fjárfestingamistök í dreifikerfismálum Ríkisútvarpsins. Nefndin telur hins vegar ekki rétt að gera nú breytingu á lögum að því er dreifingu útvarpsefnis varðar
Innheimtuúrræði.
Þau ákvæði útvarpslaga um innheimtuúrræði vegna vangoldinna afnotagjalda þurfti að endurskoða m.a. með tilliti til nýrra aðfararlaga. Jafnframt er ljóst að það úrræði Ríkisútvarpsins að innsigla tæki í þvingunartilgangi hefur lítið sem ekkert verið nýtt og því er lagt til að heimild til þess að beita slíku úrræði verði fellt úr lögum. Útvarpsnotendur geta þó óskað eftir innsiglun viðtækis ef þeir hyggjast hætta útvarpsnotum.
Samkvæmt tillögum nefndarinnar verður krafa vegna vangoldinna afnotagjalda aðfararhæf, svo sem verið hefur eftir gildistöku aðfararlaga nr. 89/1990, sbr. 10.tl. 1.gr. þeirra laga, en gerð er tillaga um að ákvæði þess efnis í útvarpslögum verði færð til samræmis við aðfararlögin. Þá er ekki lagt til að breyting verði gerð á því að lögveðsréttur stofnist í kröfu vegna vangoldinna afnotagjalda.
Vernd læstra útsendinga.
Nefndin leggur til að í útvarpslög verði tekin upp ítarleg ákvæði um að læstar útsendingar, sem boðnar séu gegn greiðslu, njóti refsiverndar. Í tillögum nefndarinnar felst að heimildarlaus móttaka á læstum útsendingum sjónvarpsstöðvar, heimildarlaus framleiðsla og sala á tækjum til að að afrugla læstar útsendingar sjónvarpsstöðvar, heimildarlaus breyting á afruglurum í þeim tilgangi að afrugla útsendingu sjónvarpsstöðvar án þess að áskriftargjald til hennar sé greitt og tenging afruglara við fleiri en eitt heimili án leyfis viðkomandi sjónvarpsstöðvar sé refsivert athæfi. Jafnframt er veitt heimild til eignaupptöku á þeim búnaði sem nýttur er til þessa.
_____________________
Tómas Ingi Olrich alþm.
formaður
sign.
__________________
Sólveig Pétursdóttir alþm.
sign.
Bókun.
Undirritaður, sem stendur að frumvarpinu, er engu að síður þeirrar skoðunar, að ekki sé með því gengið nógu langt í því að jafna samkeppnisstöðu Ríkisútvarpsins og annarra útvarpsstöðva.
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að lögbundið afnotagjald Ríkisútvarpsins verði óbreytt.
Miðað við það, hefði átt að skerða rétt Ríkisútvarpsins til að athafna sig á hinum frjálsa auglýsingamarkaði og kostunar efnis. Þá ætti væntanlegur dagskrárgerðarsjóður eingöngu að þjóna frjálsum útvarpsstöðvum og framleiðendum. En í frumvarpinu er gert ráð fyrir að Ríkisútvarpið hafi aðgang að sjóðnum, í gegnum þriðja aðila.
Það er því mín skoðun að aðili, sem nýtur lögverndar á einu sviði, eigi ekki að vera í samkeppni á öðrum. Það eru að mínu mati óeðlilegir viðskiptahættir.
Ég tel því rétt að gera grein fyrir mínu sjónarmiði með þessari bókun
________________
Baldvin Jónsson
sign.
Fylgiskjal II.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa
Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á útvarpslögum
nr. 68/1985, sbr. lög nr. 40/1986 og lög nr. 82/1993
Frumvarpið er samið af útvarpslaganefnd sem skipuð var af menntamálaráðherra til að endurskoða útvarpslög nr. 68/1985. Kostnaðarumsögn byggist á frumvarpinu og greinargerð með því, en einnig að hluta til á skilagrein útvarpslaganefndar og undirnefndar hennar sem fjallaði um skipulag Ríkisútvarpsins.
Helstu þættir í frumvarpinu er snerta útgjöld og tekjur eru eftirfarandi:
1. Dagskrárgerðarsjóður útvarpsstöðva
Stofnaður verður nýr sjóður, Dagskrárgerðarsjóður útvarpsstöðva, í stað Menningarsjóðs útvarpsstöðva. Hlutverk þessara sjóða eru hliðstæð en úthlutunarákvæði og skilyrði fyrir úthlutun úr Dagskrárgerðarsjóði eru ítarlegri og skýrari. Sú veigamikla breyting er þó gerð að RÚV getur ekki fengið úthlutað úr sjóðnum. Ekki er heldur gert ráð fyrir að hluti rekstrarkostnaðar Sinfóníuhljómsveitar Íslands verði greiddur úr hinum nýja sjóði.
Tekjur Dagskrárgerðarsjóðs verða tollar og vörugjöld af hljóðvarps- og sjónvarpstækjum og hlutum í þau. Í núgildandi lögum er þetta markaður tekjustofn RÚV en tekjur hafa runnið í ríkissjóð þrátt fyrir ákvæði útvarpslaga. Tekjur þessar eru áætlaðar 130 m.kr. í frumvarpi til fjárlaga 1995 en gert er ráð fyrir að þær verði um 125 m.kr. á yfirstandandi ári. Þetta þýðir samsvarandi tekjutap fyrir ríkissjóð ef gjöldin renna óskert í Dagskrárgerðarsjóð útvarpsstöðva. Það hefur hins vegar engin áhrif á núverandi tekjur RÚV þar sem tekjustofninn hefur verið skertur að fullu nema árið 1986.
2. Menningarsjóður útvarpsstöðva
Gert er ráð fyrir að sjóður þessi verði lagður niður, en tekjur hans eiga að nema 10% af öllum auglýsingum í útvarpi. Ríkisútvarpið hefur á árunum 1988–1992 greitt 216,1 m.kr. í sjóðinn og fengið 95,8 m.kr. úthlutað úr honum. Á síðasta ári greiddi RÚV 35,4 m.kr. en fékk 22,9 m.kr. úthlutað. Ef tekið er mið af síðasta ári sparast um 12,5 m.kr. hjá RÚV vegna þessarar breytingar. Á móti kemur að sjóðurinn hefur greitt hlut RÚV í rekstrarkostnaði Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Á árunum 1988–1993 eru bókuð framlög Menningarsjóðs útvarpsstöðva til hljómsveitarinnar 189,8 m.kr. en í ríkisreikningi 1993 er bókfærð skuld sjóðsins við hljómsveitina 125 m.kr. Samkvæmt upplýsingum frá Ríkisbókhaldi er skuld sjóðsins við Sinfóníuhljómsveitina í lok október áætluð um 163 m.kr. Þessi skuld leiðir af sér samsvarandi skuld hljómsveitarinnar við ríkissjóð. Viðræður hafa farið fram milli menntamálaráðuneytis, stjórnar Menningarsjóðs útvarpsstöðva og fjármálaráðuneytis um hvernig staðið skuli að skuldauppgjöri og er niðurstöðu að vænta á næstunni.
Hinn nýi Dagskrárgerðarsjóður yfirtekur eignir og skuldbindingar Menningarsjóðs útvarpsstöðva en eignir sjóðsins eru einungis bankainnistæður sem námu 111 m.kr. um miðjan október 1994. Útistandandi viðskiptakröfur voru um 49 m.kr. þannig að eignir sjóðsins eru alls um 160 m.kr. Skuldbindingar Menningarsjóðs útvarpsstöðva, að frátalinni skuld vegna Sinfóníuhljómsveitarinnar, eru bindandi loforð um styrki að fjárhæð 20 m.kr. sem gilda út þetta ár. Skilyrði styrkjanna er að styrkþegar hafi útvegað nægilegt fjármagn annars staðar til að fjármögnun sé tryggð.
3. Tengsl Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Ríkisútvarpsins
Skv. lögum nr. 36/1982, um Sinfóníuhljómsveit Íslands, skal Ríkisútvarpið greiða 25% af rekstrarkostnaði hljómsveitarinnar. Samkvæmt núgildandi útvarpslögum greiðir Menningarsjóður útvarpsstöðva hlut RÚV, en gert er ráð fyrir að fella ákvæði um sjóðinn niður og fellur því þessi kvöð sjálfkrafa á RÚV að óbreyttum lögum um Sinfóníuhljómsveitina. Rekstrarkostnaður hljómsveitarinnar er áætlaður 181 m.kr. nettó í frumvarpi til fjárlaga 1995 og yrði því um að ræða 45,3 m.kr. útgjaldaauka fyrir RÚV. Af skilagrein útvarpslaganefndar má ráða að nefndin telur að þessi kvöð eigi ekki að hvíla á RÚV, en til að svo megi verða þarf að breyta lögum um Sinfóníuhljómsveitina.
4. Skipulag og rekstur Ríkisútvarpsins
Í 9. grein er ákvæði núgildandi laga, um skyldu Ríkisútvarpsins til að reka tvær útvarpsrásir, breytt á þá lund að stofnuninni er heimilt að reka aðeins eina rás. Ef rás 1 eða 2 verður lögð niður eða breytt verulega, hefur það að sjálfsögðu mikil áhrif á rekstrarkostnað, en ógerlegt er að meta á þessu stigi hvort eða að hve miklu leyti útgjöld breytast þar sem það fer alfarið eftir því með hvaða hætti þessi heimild verður nýtt. Í frumvarpi til fjárlaga 1995 er velta beggja útvarpsrásanna, að frátöldum tækja- og búnaðarkaupum, áætluð rúmlega 830 m.kr.
Áformað er að einfalda yfirstjórn stofnunarinnar og fækka um eina lögbundna deild þannig að deildirnar verði tvær. Deildirnar eru nú fjórar: Fjármáladeild, tæknideild, hljóðvarpsdeild og sjónvarpsdeild. Gert er ráð fyrir að fella verkefni fjármála- og tæknideildar undir tvær síðastnefndu deildirnar. Kostnaðaráhrif eru óljós þó ætla megi að einhver hagræðing hljótist af þessari breytingu. Á móti kemur að efla þarf fjármála- og tækniumsýslu í hvorri deild fyrir sig. Til lengri tíma ætti þetta að geta sparað verulega fjármuni ef stjórnun og skipulag verður skilvirkara en nú er. Í tillögum undirnefndar útvarpslaganefndar sem fjallaði um skipulag Ríkisútvarpsins, er lagt til að skipaðir verði vinnuhópar til að útfæra nánar ýmis atriði sem fylgja í kjölfar þessarar breytingar og kæmi þá nánar í ljós hvaða áhrif það hefur á rekstrarkostnað stofnunarinnar.
Að lokum er rétt að benda á að í ákvæði til bráðabirgða segir að afnotagjöld skulu vera óbreytt næstu tvö ár frá gildistöku laganna. Þetta hefur ekki bein áhrif á rekstur RÚV á þessu stigi, en getur sett stofnuninni þrengri ramma ef verulegar breytingar verða á útgjöldum af völdum verðlagsbreytinga eða annarra þátta. Á móti vegur svigrúm sem skapast af aukinni framleiðni sem ætla verður að eigi sér stað.
Það er mat fjármálaráðuneytis að frumvarpið muni leiða til um 32,8 m.kr. kostnaðarauka fyrir Ríkisútvarpið. Kostnaðarauki vegna reksturs Sinfóníuhljómsveitarinnar er um 45,3 m.kr. en á móti kemur sparnaður vegna niðurlagningar Menningarsjóðs, sbr. lið 2 hér að framan. Óvissuþættir eru þó margir, t.d. hvað varðar breytt skipulag RÚV. Að mati fjármálaráðuneytis mun árlegt tekjutap ríkissjóðs verða um 130 m.kr. vegna tolla og vörugjalda.
Í skilagrein útvarpslaganefndar er fjallað um tvö atriði sem geta haft veruleg áhrif á fjármál Ríkisútvarpsins. Ekki eru gerðar tillögur um breytingar á lögum vegna þeirra og því skal aðeins bent á þessi atriði hér. Annars vegar er um að ræða dreifikerfi RÚV og hvort hagstæðara sé að dreifa dagskrárefni um ljósleiðara í eigu Pósts og síma í stað þess að endurnýja örbylgjukerfi RÚV. Að mati Viðskiptafræðistofnunar Háskóla Íslands er fyrri kosturinn um 400 m.kr. ódýrari. Hitt atriðið varðar húsnæðismál Ríkisútvarpsins, en talið er að flutningur allrar starfsemi í Efstaleitið geti kostað á annan milljarð króna. Í skilagrein undirnefndar útvarpslaganefndar sem fjallaði um skipulag RÚV er fjallað um húsnæðismál, m.a. kosti og galla þess að halda núverandi fyrirkomulagi samanborið við að flytja alla starfsemina á einn stað.