Ferill 272. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 272 . mál.
321. Tillaga til þingsályktunar
um gerð brúar yfir Héraðsvötn hjá Flatatungu í Skagafirði.
Flm.: Stefán Guðmundsson.
Alþingi ályktar að fela samgönguráðherra að láta Vegagerðina gera áætlun um vegtengingu Skagafjarðarvegar, nr. 752, við þjóðveg nr. 1, Norðurlandsveg, með gerð brúar yfir Héraðsvötn hjá Flatatungu í Skagafirði.
Greinargerð.
Um langt skeið hafa hugmyndir verið uppi um gerð brúar yfir Héraðsvötn við Flatatungu og til skamms tíma var á vegaskrá Vegagerðarinnar talað um vegtengingu af Héraðsdalsvegi, nr. 754, yfir brú hjá Flatatungu á þjóðveg nr. 1. Jafnhliða hugmyndum um Villinganesvirkjun var rætt um brúargerð á þessum stað og tengingar við Héraðsdalsveg, nr. 754, eða um Tunguháls á Skagafjarðarveg.
Með þeirri framkvæmd, sem hér er lagt til að verði athuguð, kemst á hringtenging um framhluta Skagafjarðar. Slík vegtenging opnar margvíslega nýja möguleika til hagræðis og mikils ávinnings, svo sem á flutningi afurða og mjög bættum þjónustuleiðum. Slík vegtenging opnar einnig nýjar leiðir fyrir þá er vilja njóta fegurðar skagfirskra dala og þeirra er öræfin heilla og vilja m.a. aka um Sprengisand.
Ferðaþjónusta er mjög vaxandi atvinnugrein. Enginn vafi er á að ferðaþjónusta á þessu svæði mun hafa af því mikinn ávinning að sú áætlun, sem hér er lagt til að verði gerð, komist sem allra fyrst til framkvæmda.
Fylgiskjal.