Ferill 276. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 276 . mál.


332. Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins, nr. 97/1993, með síðari breytingum.

Flm.: Anna Ólafsdóttir Björnsson, Guðrún J. Halldórsdóttir,


Kristín Ástgeirsdóttir, Kristín Einarsdóttir,


Jóna Valgerður Kristjánsdóttir.



1. gr.


    Á eftir 1. mgr. 79. gr. laganna kemur ný málsgrein er orðast svo:
    Breytist aðstæður kaupanda verulega er heimilt að endurmeta ákvörðun um vexti lána hans hvenær sem er á samningstímanum sæki kaupandi um það.

2. gr.


    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Þegar lög um Húsnæðisstofnun ríkisins voru endurskoðuð ítarlega fyrir fjórum árum var tekin sú ákvörðun að endurskoða vexti á félagslegum íbúðum eftir sex ár með tilliti til tekna og eigna íbúðarkaupanda. Ef hann fór yfir ákveðin tekju- og/eða eignamörk átti hann að greiða sömu vexti og voru á öðrum húsnæðislánum. Hins vegar var ekkert svigrúm til að lækka vextina aftur ef breytingar urðu á högum íbúðarkaupanda til hins verra á nýjan leik. Þegar lög þessi voru endurskoðuð hafði atvinnuleysi lítt stungið sér niður hér á landi og raunveruleiki flestra var sá að bættur fjárhagur væri í flestum tilvikum varanlegur. Miðað við þann raunveruleika var þetta ákvæði sett í lögin. Nú eru aðstæður breyttar í þjóðfélaginu. Dæmi eru um að fólk, sem fór yfir tekju- og/eða eignamörk að sex árum liðnum frá húsnæðiskaupum, sé nú atvinnulaust og eigi fullt í fangi með að standa í skilum með afborganir af húsnæði sínu þótt í félagslega kerfinu sé. Það hefur enn minni möguleika á að greiða fulla vexti af lánum sínum. Því býðst sjaldan önnur úrlausn en greiðsluerfiðleikalán. Sú lausn er skammgóður vermir, enda hefur það sýnt sig að helmingur slíkra lána var í vanskilum undir árslok 1994. Ýmsir þeirra sem búa við atvinnuleysi og berjast fyrir því að halda húsnæði sínu gætu ráðið við að greiða vexti þá sem bjóðast í félagslega íbúðakerfinu í takt við raunverulegar tekjur og eignir. Því benda flutningsmenn frumvarpsins á þessa réttlátu leiðréttingu sem unnt er að gera innan gildandi kerfis án mikilla vandkvæða en til ómældra hagsbóta fyrir þá sem standa höllum fæti vegna tekjurýrnunar og eru með skuldabagga á bakinu vegna íbúðakaupa.