Ferill 165. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. –
165
. mál.
343. Frumvarp til laga
um atvinnuréttindi útlendinga.
(Eftir 2. umr., 9. des.)
Samhljóða þskj. 179 með svofelldum breytingum:
13. gr. hljóðar svo:
Ekki þarf að sækja um leyfi samkvæmt lögum þessum fyrir:
Ríkisborgara í ríkjum sem eiga aðild að samningi um Evrópska efnahagssvæðið hafi þeir fengið dvalarleyfi eða afhent skráningaryfirvaldi norrænt flutningsvottorð.
Útlendinga sem hafa verið íslenskir ríkisborgarar frá fæðingu en hafa misst íslenskan ríkisborgararétt.
Útlendinga í einkaþjónustu sendimanna erlendra ríkja.
14. gr. hljóðar svo:
Eftirtaldir útlendingar eru undanþegnir kröfu um atvinnuleyfi vegna vinnu í allt að fjórar vikur á ári hér á landi:
Vísindamenn og fyrirlesarar að því leyti sem varðar kennslu eða hliðstæða starfsemi.
Listamenn að undanskildum hljóðfæraleikurum sem ráða sig til starfa á veitingahúsum.
Íþróttaþjálfarar.
Fulltrúar í viðskiptaerindum fyrir fyrirtæki sem ekki hafa útibú hérlendis.
Ökumenn fólksflutningabifreiða sem skráðar eru í erlendu ríki enda hafi þeir komið með erlenda ferðamenn í bifreiðunum til landsins.
Blaða- og fréttamenn erlendra fjölmiðla sem eru í þjónustu fyrirtækja sem ekki hafa starfsstöð á Íslandi.
Sérhæfðir starfsmenn, ráðgjafar og leiðbeinendur sem vinna að samsetningu, uppsetningu, eftirliti eða viðgerð tækja.