Ferill 282. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. –
282
. mál.
349. Frumvarp til laga
um breyting á lögum nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum.
(Lagt fyrir Alþingi á 118. löggjafarþingi 1994.)
1. gr.
2. mgr. 67. gr. laganna, sbr. 9. gr. laga nr. 49/1987, orðast svo:
Tekjuskattur af þeim tekjum barna, sem um ræðir í 2. mgr. 65. gr., skal vera 4% af tekj
um umfram 75.000 kr. og skal barn ekki njóta persónuafsláttar.
2. gr.
Við upptalningu í 122. gr. laganna bætist: 2. mgr. 67. gr.
3. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1995 og koma til framkvæmda við álagningu á árinu 1996 á tekjur ársins 1995.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Í frumvarpi þessu er lagt til að almennar launatekjur barna og ungmenna að fjárhæð 75.000 kr. á ári skuli ekki skattlagðar. Sérstök skattlagning á launatekjur barna og ung
menna hefur verið í lögum frá árinu 1980, sbr. lög nr. 40/1978, um tekjuskatt og eignar
skatt, sem síðar voru útgefin sem lög nr. 75/1981 og hér er lögð til breyting á. Fram að þeim tíma var launatekjum barna og ungmenna bætt við tekjur foreldra. Fór þá um þær tekjur eins og tekjur foreldranna. Reglan um sérskattlagningu í lögum nr. 40/1978 hefur þó ekki gilt um aðrar tekjur en launatekjur.
Skattlagning launatekna barna og ungmenna hefur verið talsvert frábrugðin skattlagn
ingu fullorðinna. Þannig hefur skattprósenta við álagningu á tekjur barna verið mun lægri en við álagningu hjá fullorðnum og börn hafa ekki notið persónuafsláttar eins og fullorðnir. Frá upptöku staðgreiðslu hefur skattprósentan verið 4% tekjuskattur og 2% útsvar.
Hér er lögð til sú breyting að tekjuskattur verði ekki lagður á launatekjur barna og ung
menna undir 75.000 kr. á ári. Jafnframt er gert ráð fyrir að fjármálaráðherra gefi út reglu
gerð þar sem tekjur að sömu fjárhæð hjá sama launagreiðanda verði undanþegnar stað
greiðslu. Með þessu er lagt til að tilfallandi tekjuöflun barna og ungmenna, t.d. við merkja- og blaðasölu, unglingavinnu og önnur störf, myndi ekki stofn til álagningar tekjuskatts. Gert er ráð fyrir því að sams konar breytingar verði gerðar á lögum um tekjustofna sveitar
félaga þannig að sömu tekjur verði undanþegar útsvari til sveitarfélaga.
Tekjutap ríkissjóðs vegna þessara breytinga er áætlað um 30 milljónir kr.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Eins og fram kemur í almennum athugasemdum er lagt til að gerðar verði breytingar á skattlagningu barna og ungmenna. Í þessari grein er kveðið á um að launatekjur barna og ungmenna að fjárhæð 75.000 kr. á ári skuli ekki skattlagðar af ríkinu. Um nánari skýringar vísast til almennra athugasemda.
Um 2. gr.
Í þessari grein er lagt til að fjárhæð sú sem er undanþegin skatti taki breytingum sam
kvæmt skattvísitölu skv. 122. gr. laganna.
Um 3. gr.
Greinin fjallar um gildistöku. Samkvæmt henni kemur þessi breyting á skattlagningu barna til framkvæmda á tekjuárinu 1995.