Ferill 289. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 289 . mál.
362. Skýrsla
félagsmálaráðherra um málefni fatlaðra.
(Lögð fyrir Alþingi á 118. löggjafarþingi 1994.)
Á undanförnum árum hafa málefni fatlaðra verið talsvert til umræðu í þjóðfélaginu og hugmyndir manna um þjónustu við fatlaða hafa tekið miklum breytingum. Í stað þjónustu á stofnunum eins og áður tíðkaðist er megináherslan nú lögð á að byggja upp stoðþjónustu sem geri fötluðum kleift að lifa eðlilegu lífi í þjóðfélaginu og skapa þannig skilyrði að þeir geti orðið virkir þátttakendur í samfélaginu. Við síðustu endurskoðun laga um málefni fatlaðra, sem tóku gildi 1. september 1992, var þetta sjónarmið lagt til grundvallar og í samræmi við það komu inn í lögin mörg nýmæli sem fela í sér að við framkvæmd laganna skuli stefnt að aukinni einstaklingsaðstoð í samræmi við þarfir hvers og eins.
Segja má að mikilvægur áfangi þeirrar þróunar, sem hefur orðið í málefnum fatlaðra, hefjist með lögum um aðstoð við þroskahefta sem gengu í gildi 1980. Þá var komið á laggirnar sérstakri stjórnarnefnd með fulltrúum þriggja ráðuneyta ásamt fulltrúum hagsmunasamtaka fatlaðra. Enn fremur var landinu skipt í átta þjónustusvæði með sérstakri svæðisstjórn á hverju svæði. Það fyrirkomulag hélst óbreytt í lögum nr. 41/1983, um málefni fatlaðra, sem gengu í gildi 1. janúar 1984. Þau lög voru í gildi þangað til 1. september 1992 þegar núgildandi lög um málefni fatlaðra leystu þau af hólmi.
Hin mikla uppbygging á þjónustu við fatlaða, sem hófst með gildistöku laga um málefni fatlaðra frá 1984, hefur grundvallast á hugmyndafræði um jafnrétti og að skapa fötluðum skilyrði til að lifa eðlilegu lifi og hasla sér völl í þjóðfélaginu þar sem þeim vegnar best. Þessi þróun á uppbyggingu hefur haldið áfram sleitulaust síðan.
Leitast hefur verið við að framfylgja þeirri stefnu að koma á fót fjölbreyttri þjónustu við fatlaða og aðstandendur þeirra í heimabyggð eins og frekast er kostur. Má í þessu sambandi nefna húsnæðismál, atvinnumál, ráðgjöf og margvíslega þjónustu við fötluð börn og aðstandendur þeirra.
Við endurskoðun laganna frá 1983 kom fram að helstu ágallar þeirra væru m.a. þeir að ekki þótti nægilega kveðið á um rétt fatlaðra til almennrar þjónustu samfélagsins né heldur um ábyrgð og skyldur sveitarfélaganna í þessum efnum. Einnig þótti ástæða til að gera verulegar breytingar á stjórnsýslu málaflokksins frá því sem áður var. Þá eru í núgildandi lögum ýmis nýmæli, m.a. varðandi búsetumál, atvinnumál og réttindagæslu fatlaðra.
Í eftirfarandi greinargerð verður fjallað um helstu breytingar og nýmæli í lögum um málefni fatlaðra og framkvæmd á lögunum ásamt þeirri þjónustu sem fatlaðir eiga rétt á í samræmi við lögin. Einnig verður fjallað um stefnumótun í málefnum fatlaðra.
STJÓRNSÝSLA MÁLEFNA FATLAÐRA.
Eins og fyrr var nefnt urðu verulegar breytingar á stjórnsýslu málaflokks fatlaðra með núgildandi lögum frá því sem áður var og má þar einkum nefna tvennt.
Í fyrsta lagi heyrir málaflokkurinn nú óskiptur undir félagsmálaráðuneytið en heyrði áður undir þrjú ráðuneyti, félagsmálaráðuneyti, menntamálaráðuneyti og heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti.
Þessi breyting þótti eðlileg í ljósi þeirrar þróunar sem hefur orðið undanfarinn áratug í menntamálum fatlaðra og heilbrigðismálum, svo og þeirrar áherslu sem lögð er á að fatlaðir njóti þjónustu samkvæmt almennum lögum, svo sem lögum um heilbrigðisþjónustu og lögum um grunn- og framhaldsskóla. Af þessu leiðir að núgildandi lög um málefni fatlaðra kveða fyrst og fremst á um félagslega þjónustu.
Í samræmi við þessa breytingu á yfirstjórn málaflokksins breyttist skipan á stjórnarnefnd málefna fatlaðra þannig að fulltrúum var fækkað um tvo, þ.e. fulltrúum menntamála- og heilbrigðisráðuneytis, og eiga þeir ekki lengur sæti í stjórnarnefnd.
Í öðru lagi heyra svæðisstjórnir sögunni til, en í stað þeirra komu ákvæði um svæðisráð sem gegna m.a. réttindagæslu og eftirlitshlutverki með framkvæmd laganna.
STJÓRNARNEFND.
Stjórnarnefnd um málefni fatlaða er nú skipuð fimm fulltrúum, sbr. 4. gr. laganna. Hlutverk hennar er að vera félagsmálaráðuneytinu til ráðgjafar og gera tillögur um sérhæfða þjónustu á landsvísu og enn fremur er hlutverk stjórnarnefndar að fara með stjórn Framkvæmdasjóðs fatlaðra og gera tillögur til félagsmálaráðherra um úthlutanir úr sjóðnum.
Nýtt ákvæði var sett í núgildandi lög sem kveður á um að fulltrúi, tilnefndur af fjárlaganefnd Alþingis, skuli taka sæti í stjórnarnefndinni þegar fjallað er um málefni Framkvæmdasjóðsins. Þannig hefur formaður fjárlaganefndar gegnt þessu hlutverki og setið fundi stjórnarnefndar þegar fjallað er um Framkvæmdasjóðinn.
Reglugerð um stjórnarnefnd málefna fatlaðra og Framkvæmdasjóð fatlaðra var gefin út í apríl 1994.
STARFSSVÆÐI.
Landinu er skipt í átta starfssvæði og fer svæðaskipting eftir kjördæmaskipan. Heimilt er samkvæmt lögunum að skipta starfssvæðum í sérstök þjónustusvæði sem geta miðast við einstök sveitarfélög, héraðsnefndir eða byggðasamlög sveitarfélaga og er þetta breyting frá eldri lögum. Ekki hefur reynt á þetta ákvæði enn þá.
SVÆÐISRÁÐ.
Svæðisráð eru starfandi á hverju hinna átta starfssvæða. Svæðisráðin eru skipuð sjö fulltrúum skv. 6. gr. laganna. Hlutverk svæðisráða er m.a. að hafa faglegt og fjárhagslegt eftirlit með þjónustu, starfsemi og rekstri þeirra stofnana sem sinna málefnum fatlaðra. Svæðisráðum er einnig ætlað að gera tillögur til svæðisskrifstofu fyrir þjónustu og stuðla að samræmingu. Enn fremur er hlutverk svæðisráða að sinna réttindagæslu fatlaðra sem er nýmæli í lögunum. Verður nánar fjallað um það síðar.
Reglugerð um svæðisráð var gefin út af félagsmálaráðuneytinu í mars 1993. Svæðisráðin halda reglulega fundi og hafa samvinnu við svæðisskrifstofur og aðra aðila sem tengjast þessum málum.
SVÆÐISSKRIFSTOFUR.
Svæðisskrifstofur eru átta, þ.e. ein á hverju starfssvæði.
Svæðisskrifstofum er ætlað að annast rekstur stofnana ríkisins sem falla undir lög um málefni fatlaðra. Þær bera ábyrgð á framkvæmdum sem fé er veitt til úr Framkvæmdasjóði fatlaðra og ekki eru á vegum sveitarfélaga eða sjálfseignarstofnana. Þær skulu samkvæmt lögunum safna upplýsingum um þörf fyrir þjónustu, annast gerð svæðisáætlana og leita eftir upplýsingum frá sveitarfélögum, félagasamtökum fatlaðra og sjálfseignarstofnunum um fyrirhugaðar framkvæmdir og taka afstöðu til þeirra við gerð svæðisáætlana.
Svæðisskrifstofurnar eru undir stjórn framkvæmdastjóra sem eru ráðnir af félagsmálaráðuneytinu og starfa samkvæmt erindisbréfi frá félagsmálaráðherra. Er þetta breyting frá eldri lögum þegar framkvæmdastjórar voru ráðnir af svæðisstjórnum.
Framkvæmdastjórar sjá einnig um ráðningu starfsmanna á svæðisskrifstofur og starfsfólk sambýla og annarra heimila á vegum ríkisins, svo og þjónustustofnana fatlaðra. Eins og fyrr var nefnt er í lögunum lögð rík áhersla á að fatlaðir eigi rétt á almennri þjónustu ríkis og sveitarfélaga, og meðal verkefna svæðisskrifstofa er því að eiga samstarf við sveitarfélög vegna félagsþjónustu og ferlimála og stuðla þannig að því að fatlaðir fái notið þessa réttar.
Reglugerð um svæðisskrifstofur málefna fatlaðra var gefin út af ráðuneytinu í júní 1993.
FRAMKVÆMDASJÓÐUR FATLAÐRA.
Framkvæmdasjóður fatlaðra hefur frá upphafi fjármagnað stofnkostnað þjónustustofnana og heimila fatlaðra sem eru á vegum ríkisins. Enn fremur hafa ár hvert verið veittir styrkir úr sjóðnum til fjölmargra félagasamtaka og sjálfseignarstofnana sem starfrækja þjónustu við fatlaða. Má í því sambandi nefna sambýli, vinnustaði, sumardvalarheimili o.fl.
Í samræmi við nýjar áherslur í búsetumálum fatlaðra heimila lögin að framkvæmdaraðilum félagslegra leiguíbúða og kaupleiguíbúða í leigu sé veittur styrkur úr Framkvæmdasjóði fatlaðra til greiðslu framlags sem þeim ber að leggja fram samkvæmt lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins. Styrkurinn getur numið helmingi af framlagi framkvæmdaraðila þegar sveitarfélög eiga í hlut en má ná til alls framlagsins þegar um aðra framkvæmdaraðila er að ræða. Verður vikið nánar að því síðar.
Samkvæmt núgildandi lögum er heimilt að veita fjármagni úr Framkvæmdasjóðnum til meiri háttar viðhaldsframkvæmda á heimilum og þjónustustofnunum fatlaðra. Skv. 40. gr. laganna er heimilt að verja allt að 25% af ráðstöfunarfé sjóðsins til slíkra verkefna. Á árinu 1993 voru þannig veittar rúmlega 54 millj. kr. til viðhaldsframkvæmda.
FRAMKVÆMD Á LÖGUM UM MÁLEFNI FATLAÐRA.
Hér á eftir verður gerð ítarleg grein fyrir þeirri þjónustu sem veitt er í samræmi við lögin um málefni fatlaða á vegum félagsmálaráðuneytisins.
Annars vegar verður greint á milli þjónustu við fötluð börn og aðstandendur þeirra og hins vegar þjónustu við fullorðna.
ÞJÓNUSTA VIÐ FÖTLUÐ BÖRN (0–16 ÁRA) OG AÐSTANDENDUR ÞEIRRA.
Hlutverk og þjónusta Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins.
Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins starfar skv. 16. gr. laga um málefni fatlaðra og eru hlutverk og starfshættir stöðvarinnar skilgreind í þeirri grein. Af hálfu Greiningarstöðvarinnar er unnið að markmiði laganna á eftirfarandi hátt:
Aðalhlutverk Greiningarstöðvar er rannsókn og greining á fötluðum og ráðgjöf til skjólstæðinga, aðstandenda þeirra og meðferðaraðila. Að öðru jöfnu sitja þeir einstaklingar í fyrirrúmi sem búa við flóknari eða alvarlegri fatlanir, svo og yngri einstaklingar.
Starfsvettvangur stöðvarinnar er allt landið. Lögð er áhersla á skyldur Greiningarstöðvar við landið í heild og nána samvinnu við aðra þjónustuaðila, svo sem svæðisskrifstofur, barnadeildir sjúkrahúsanna, heilsugæslustöðvar, leikskóla, grunnskóla o.fl.
Greiningarstöðin sinnir einnig meðferðarhlutverki og langtímaeftirliti varðandi skjólstæðinga sína, enn fremur rannsóknarvinnu, kennslu, símenntun starfsfólks, skráningu og varðveislu upplýsinga um fötlun einstaklinga í samvinnu við félagsmála-, fræðslu- og heilbrigðisyfirvöld.
Greiningar- og meðferðarvinnan fer fram á fjórum starfsdeildum, göngudeild yngri barna, almennri göngudeild, athugunardeild og sérhæfðum móttökum.
Greiningarstöðin starfrækir leikfangasafn í samræmi við lög um málefni fatlaðra.
Hlutverk leikfangasafnsins er m.a. að veita þjónustu og ráðgjöf við afmarkaðan hóp forskólabarna á Reykjavíkursvæðinu. Enn fremur fer fram þjálfun og ráðgjöf fyrir starfsfólk sem leitar til Greiningarstöðvarinnar vegna uppbyggingar annarra leikfangasafna á hinum ýmsu svæðum landsins. Greiningarstöðin hefur átt samskipti og samvinnu við hliðstæð söfn erlendis.
Greiningarstöðin stendur fyrir sérstökum foreldranámskeiðum nokkrum sinnum á ári og einnig árlegum vornámskeiðum fyrir fagfólk sem hafa notið vaxandi vinsælda. Þannig tóku um 600 manns þátt í síðasta námskeiði.
Meðal fræðilegra rannsókna, sem eru unnar á Greiningarstöðinni, má nefna: afleiðingar höfuðáverka, tíðni fatlana og eðli málhamlana hjá börnum.
Í samræmi við lagaskyldur stofnunarinnar hefur og verið unnið að skráningu fatlaðra i; samvinnu við svæðisskrifstofur.
Á árinu 1993 var 115 börnum og ungmennum vísað til athugunar og rannsóknar á Greiningarstöðinni (nýjar tilvísanir), en alls sinnti stofnunin rúmlega 300 börnum og ungmennum það ár.
Vegna mjög mikillar eftirspurnar eftir þjónustu Greiningarstöðvarinnar hefur verið bið eftir aðstoð. Biðtíminn er mislangur eftir aldri barns og umfangi fötlunar, auk annarrar þjónustu sem kann að standa barninu til boða á biðtímanum. Fyrir yngstu börnin er leitast við að stytta biðtímann eins og kostur er.
Að undanförnu hefur farið fram úttekt á starfsemi Greiningarstöðvarinnar í því skyni að auka skilvirkni og stytta biðtíma. Er árangur úttektarinnar þegar farinn að skila sér í betra skipulagi.
Stöðugildi Greiningarstöðvarinnar eru tæplega 30, en alls starfa 34 við stofnunina, læknar, sálfræðingar, félagsráðgjafar, þroskaþjálfar, fóstrur, sjúkraþjálfar, iðjuþjálfar og fleira fagfólk.
Sú breyting varð með núgildandi lögum að stjórnarnefnd málefna fatlaðra fer ekki lengur með stjórn Greiningarstöðvarinnar heldur skal skipa sérstaka fimm manna stjórn stofnunarinnar og var hún skipuð í mars 1994.
LEIKFANGASÖFN OG UPPELDISLEG RÁÐGJÖF.
Á undanförnum árum hefur verið lögð mikil áhersla á að koma upp leikfangasöfnun ásamt ráðgjöf á öllum átta þjónustusvæðum landsins og færa þannig þjónustuna nær fjölskyldum fatlaðra barna.
Þannig eru nú starfandi 16 leikfangasöfn á landinu auk safnsins á Greiningarstöðinni, og eru þau dreifð á öll þjónustusvæðin og sums staðar allt að þrjú á sama svæði. Má í þessu sambandi nefna Norðurland vestra en þar eru leikfangasöfn á Blönduósi, Sauðárkróki og Siglufirði.
Leikfangasöfnin gegna ákaflega mikilvægu hlutverki í uppeldislegu tilliti, en þar fá foreldrar ráðgjöf og leiðbeiningar um uppeldi og þjálfun fatlaðra barna. Í leikfangasöfnum fer fram útlán á sérhæfðum leikföngum til að þjálfa börn. Þetta getur átt við skynhreyfiþjálfun, málþjálfun, fínhreyfingar og samhæfingu hreyfinga og félagslegra samskipta. Leikfangasöfn veita þjónustu börnum með hvers kyns fatlanir, jafnt andlegar sem líkamlegar. Í flestum tilvikum er um að ræða tilvísun frá ýmsum aðilum, svo sem barnalæknum, dagvistarheimilum, heilsugæslustöðvum, skólum o.fl. Einnig geta aðstandendur snúið sér beint til leikfangasafns.
Öll þjónusta leikfangasafna er foreldrum að kostnaðarlausu.
STUÐNINGSFJÖLSKYLDUR.
Í 21. gr. laga um málefni fatlaðra er ákvæði þess efnis að fjölskyldur fatlaðra skuli eiga kost á þjónustu stuðningsfjölskyldu eftir því sem þörf krefur. Reglugerð um stuðningsfjölskyldur var gefin út árið 1985 og hefur verið óbreytt í gildi síðan. Nú er unnið að endurskoðun reglugerðarinnar.
Hlutverk stuðningsfjölskyldu er að taka fatlað barn í sólarhringsvistun í skamman tíma og er miðað við 3–5 sólarhringa í mánuði. Þess er ekki krafist að stuðningsfjölskyldan veiti barninu þjálfun eða hæfingu, heldur er þessi þjónusta hugsuð til að létta álagi af foreldrum.
Starfsfólk svæðisskrifstofa sér um að útvega stuðningsfjölskyldur í samvinnu við foreldra. Oft er um að ræða ættingja eða vandamenn sem taka að sér að vera stuðningsfjölskyldur, en í öðrum tilvikum getur verið um vandalausar fjölskyldur að ræða. Svæðisskrifstofur sjá um að gera skriflega samninga við hlutaðeigandi aðila.
Ríkið greiðir laun stuðningsfjölskyldna samkvæmt ákveðnum reglum í samningnum og er þessi þjónusta foreldrum að kostnaðarlausu.
Þessi þjónusta hefur mælst vel fyrir og virðist henta vel í mörgum tilvikum. Hins vegar getur reynst erfitt að fá stuðningsfjölskyldur fyrir börn með alvarlegustu fatlanirnar.
Árið 1992 nutu 168 börn og unglingar þjónustu stuðningsfjölskyldu en samningar eru að jafnaði gerðir fyrir 6–12 mánuði í senn.
SKAMMTÍMAVISTUN.
Tilgangur skammtímavistunar er nokkuð hliðstæður við aðstoð stuðningsfjölskyldna að því leyti að hann er að létta álagi af foreldrum og forráðamönnum fatlaðra. Enn fremur er um að ræða að veita fötluðum tímabundna dvöl vegna erfiðra heimilisaðstæðna, svo sem skyndilegra veikinda eða annars álags. Algengt er einnig að foreldrar og aðstandendur nýti sér skammtímavistun á meðan þeir dvelja í sumarleyfi.
Skammtímavistun svipar því til þeirrar þjónustu sem stuðningsfjölskyldur láta í té. Þó er þar nokkur munur á.
Í fyrsta lagi er veitt þar þjálfun og fagleg umönnun auk tómstundaiðkunar og henta því skammtímavistanir betur til að sinna mikið fötluðum einstaklingum en stuðningsfjölskyldur.
Í öðru lagi geta skammtímavistanir boðið upp á lengri og samfelldari vistanir en stuðningsfjölskyldur.
Skammtímavistun er til staðar á öllum þjónustusvæðum landsins, annaðhvort í tengslum við aðra starfsemi eða starfrækt sem sjálfstæð stofnun. Dvöl í skammtímavistun getur verið breytileg og varað frá einni helgi til nokkurra vikna.
Þessi þjónusta er greidd af ríkinu og er foreldrum og forráðamönnum að kostnaðarlausu. Þeir geta snúið sér beint til skammtímavistunar með umsóknir, án milligöngu svæðisskrifstofa.
Ekki liggur fyrir hversu mörg börn hafa notið skammtímavistunar á síðustu árum en samkvæmt upplýsingum frá svæðisskrifstofum er mikil eftirspurn eftir þessari þjónustu og sums staðar meiri en hægt er að sinna. Þetta á þó sérstaklega við um Reykjavíkursvæðið og Reykjanessvæðið.
SUMARDVÖL.
Í 23. gr. laga um málefni fatlaðra er hvatt til þess að fötluðum börnum sé gefinn kostur á sumardvöl.
Almennt er miðað við að sveitarfélög sinni þessu verkefni, enda eru á vegum félagsmálanefnda margra sveitarfélaga skipulagðar sumardvalir fyrir börn.
Æskilegt er að fötluð börn njóti sömu tækifæra í þessum efnum og ófötluð börn og blandist í hóp þeirra. Engu að síður er talið nauðsynlegt að starfrækja sérstök sumardvalarheimili fyrir fötluð börn og eru slík heimili víða starfrækt af félagasamtökum fatlaðra með styrk frá félagsmálaráðuneytinu. Má í því sambandi t.d. nefna Þroskahjálp á Vesturlandi og Þroskahjálp á Suðurnesjum. Enn fremur er starfrækt sumardvalarheimili á Norðurlandi eystra.
LIÐVEISLA.
Samkvæmt 24. gr. laga um málefni fatlaðra eru sveitarfélög hvött til að gefa fötluðum kost á liðveislu. Er þá átt við persónulegan stuðning og liðveislu sem er einkum ætlað að rjúfa félagslega einangrun fatlaðra.
Hér getur verið um að ræða fylgd og aðstoð við fatlaða á skemmtanir, í kvikmyndahús og leikhús og gera þeim þannig fært að taka þátt í menningar- og tómstundalífi.
Ekki hefur farið fram athugun á því hversu mörg sveitarfélög láta í té liðveislu við fatlaða í einhverjum mæli en þau ákveða sjálf hversu miklum fjármunum er árlega varið í þetta viðfangsefni. Mörg stærstu sveitarfélögin hafa veitt fötluðum ungmennum liðveislu á undanförnum árum.
HEIMILI FYRIR FÖTLUÐ BÖRN (LANGTÍMAVISTUN).
Þrátt fyrir umfangsmikla og margvíslega stoðþjónustu við fötluð börn og foreldra þeirra sem að framan er rakin og miðast við að fötluð börn geti alist upp hjá fjölskyldu sinni hefur reynst nauðsynlegt að koma á fót heimilum fyrir börn þar sem vistun þeirra er til langframa að ósk aðstandenda.
Nokkrum slíkum heimilum hefur verið komið á fót á undanförnum árum, einkum fyrir einhverf börn og fjölfötluð börn, þar sem veitt er sérhæfð þjálfun og umönnun miðað við þarfir þeirra. Slík heimili eru til staðar í Reykjavík, á Reykjanesi og á Suðurlandi.
Nýjasta heimilið af þessum toga var tekið í notkun í byrjun júní á þessu ári í Reykjavík, en þar er rými fyrir langtímavistun fyrir fimm fjölfötluð börn. Samtals eru 13 börn á þessum þremur heimilum.
FJÁRHAGSLEG AÐSTOÐ.
Í eldri lögum um málefni fatlaðra voru ákvæði um rétt framfærenda til fjárhagslegrar aðstoðar vegna fatlaðra barna sem fengu takmarkaða þjónustu utan heimilis. Samkvæmt reglugerð, sem félagsmálaráðuneytið gaf út 1989, voru greiðslur mismunandi háar og fóru eftir hversu alvarleg fötlunin var, svo og þeirri þjónustu sem í boði var utan heimilis fyrir barnið.
Þessi ákvæði um fjárhagslega aðstoð voru felld niður úr lögum um málefni fatlaðra og lögfest í lögum um almannatryggingar frá 1. janúar 199Í. Rökin fyrir þessari breytingu eru m.a. þau að eðlilegt sé að lagaákvæði af þessu tagi sé að finna í lögum um almannatryggingar vegna samræmingar á bótagreiðslum og þau eigi ekki heima í sérlögum um málefni fatlaðra sem eru fyrst og fremst þjónustulög. Á hinn bóginn sé eðlilegt að svæðisskrifstofum í málefnum fatlaðra sé falið að meta umönnunarþörf sem bæturnar byggjast á, enda tengist sú umönnunarþörf þeirri þjónustu sem barn fær á vegum svæðisskrifstofu.
Breyting varð á þessu fyrirkomulagi með nýjum lögum, nr. 118/1993, um félagslega aðstoð en þau tóku gildi eins og kunnugt er l. janúar 1994. Þar er aðeins heimilt að greiða framfærendum fatlaðra og sjúkra barna, sem dveljast í heimahúsi eða á sjúkrahúsi um stundarsakir, styrk, allt að 9.247 kr., eða umönnunarbætur, allt að 47.912 kr., á mánuði ef andleg eða líkamleg hömlun barns hefur í för með sér tilfinnanleg útgjöld eða sérstaka umönnun eða gæslu. Réttur aðstandenda er ekki lengur fyrir hendi til þessara bóta heldur er nú um heimildarákvæði að ræða.
Tryggingastofnun ríkisins úrskurðar og annast greiðslu styrks og umönnunarbóta að fengnum tillögum svæðisskrifstofa ef um fatlað barn er að ræða.
Tryggingastofnun annast mat á greiðslum til sjúkra barna.
Greiðsla styrks skal miðuð við 10–40 klst. þjónustu á mánuði en greiðsla umönnunarbóta við 40–175 klst. þjónustu á mánuði. Dagleg þjónusta við barn utan heimilis skerðir umönnunarbætur.
Lög þessi heyra undir heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið og er lagagreinin tekin nánast óbreytt úr lögum um almannatryggingar að öðru leyti en því að nú eru umönnunarbæturnar eingöngu greiddar þeim sem lögheimili eiga hér á landi.
Svæðisskrifstofur meta umönnunarþörf fatlaðra barna með tilliti til fjárhagsaðstoðar samkvæmt reglugerð sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið hefur sett.
Árið 1993 fengu 941 einstaklingur umönnunarbætur og 348 fengu umönnunarstyrk í samræmi við framangreind ákvæði.
Samtals námu greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins á árinu 1993 rúmlega 270 millj. kr. til þessara bóta.
ÞJÓNUSTA VIÐ FULLORÐNA (16–67 ÁRA).
Búsetuúrræði.
Í samræmi við 10. gr. laga um málefni fatlaðra skulu fatlaðir eiga kost á búsetu í samræmi við þarfir þeirra og óskir eftir því sem kostur er. Hér getur verið um mismunandi valkosti að ræða sem eru eftirfarandi: Félagslegar íbúðir, verndaðar íbúðir, sambýli, vistheimili og áfangastaðir.
Á síðustu árum hefur búseta fatlaðra þróast í þá átt að nýta í auknum mæli félagslega húsnæðiskerfið og hafa sveitarfélög, félagasamtök og sjálfseignarstofnanir fengið lán til bygginga eða kaupa á íbúðum í samræmi við þær reglur sem gilda um lánveitingar í félagslega íbúðakerfinu. Íbúðirnar eru síðan leigðar fötluðum.
Framkvæmdasjóður fatlaðra hefur veitt framkvæmdaraðilum styrk fyrir framlagi þeirra að hálfu þegar sveitarfélög eiga í hlut en að öllu leyti þegar um aðra framkvæmdaraðila er ræða. Hefur þetta fyrirkomulag örvað byggingu leiguíbúða fyrir fatlaða innan félagslega kerfisins.
Samkvæmt núgildandi lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins nemur framlag framkvæmdaraðila 10% af kostnaðarverði íbúðar.
Töluverð reynsla er komin á þetta fyrirkomulag sem virðist lofa góðu, en 105 félagslegar íbúðir hafa nú verið teknar í notkun fyrir fatlaða og búa í þeim 146 fatlaðir einstaklingar. Hér er fyrst og fremst átt við íbúðir þar sem íbúar tengjast þjónustu svæðisskrifstofa á einn eða annan hátt. Ekki eru meðtaldar íbúðir sveitarfélaga ellegar íbúðir á vegum Öryrkjabandalags Íslands þar sem fatlaðir búa en tengjast ekki svæðisskrifstofum.
Nauðsynlegt er að veita stoðþjónustu í samræmi við þarfir íbúanna, svo sem heimaþjónustu sem er á vegum sveitarfélaga, heimahjúkrun samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu og frekari liðveislu samkvæmt lögum um málefni fatlaðra. Verður síðar fjallað um hið síðastnefnda.
SAMBÝLI.
Margra ára reynsla er komin á starfrækslu sambýla og eru þau til staðar á öllum svæðum landsins nema Vestfjörðum. Samtals eru sambýlin í landinu orðin um 60 sem eru rekin í samræmi við lög um málefni fatlaðra.
Um 290 manns búa á sambýlum og langir biðlistar eru eftir búsetu á sambýlum á Reykjavíkur- og Reykjanessvæðinu.
A þessu ári er gert ráð fyrir 500 millj. kr. til reksturs sambýlanna. Hér er nær eingöngu um að ræða launagreiðslur til starfsmanna. Íbúar sambýla standa sjálfir undir sameiginlegum kostnaði af heimilisrekstri, svo sem fæði, rafmagni, hita, síma o.fl. sem þeir greiða af tryggingabótum.
Ekki er heimilt samkvæmt reglugerð um sambýli að taka meira en 75% af tryggingabótum í sameiginlegan rekstur. Flestir íbúar á sambýlum eiga kost á vinnu á vernduðum vinnustöðum eða þeir dvelja á dagvistarstofnunum eða hæfingarstöðvum daglangt eða hluta úr degi.
Íbúafjöldi á sambýlum er að jafnaði 4–6 manns og fer starfsmannafjöldi eftir fötlun og þjónustuþörf íbúa.
ÁFANGASTAÐIR.
Í núgildandi lögum um málefni fatlaðra kom inn það nýmæli að gera ráð fyrir áfangastöðum sem búsetuúrræði fyrir fatlaða. Hér eru einkum hafðir í huga geðfatlaðir sem eiga nú rétt á þjónustu samkvæmt lögunum.
Áfangastaðir eiga að auðvelda geðfötluðum að aðlagast samfélaginu á þann hátt að þar geti þeir dvalist í öryggi á meðan þeir ná fótfestu á vinnumarkaði og afla sér varanlegs húsnæðis.
Í ágúst á þessu ári var tekinn í notkun nýr áfangastaður í Reykjavík þar sem gert er ráð fyrir að 10 geðfatlaðir íbúar geti átt heimili og er þetta liður í átaki á vegum félagsmálaráðuneytisins til að efla þjónustu við geðfatlaða. Félagsmálaráðuneytið gerði samning við félagasamtökin Geðhjálp um að sjá um rekstur áfangastaðarins, en samvinna er við svæðisskrifstofu Reykjavíkur um inntöku í áfangastaðinn. Þjónusta við geðsjúka hefur lengst af verið á vegum heilbrigðisþjónustunnar, sveitarfélaga eða félagasamtaka og fallið utan laga um málefni fatlaðra þangað til á síðustu árum.
Í núgildandi lögum um málefni fatlaðra voru tekin af öll tvímæli um rétt geðfatlaðra til þjónustu og kemur það fram í 2. gr. laganna.
VISTHEIMILI.
Hér er átt við sólarhringsstofnanir eins og Skálatún og Tjaldanes í Mosfellsbæ, Bræðratungu á Ísafirði, Sólborg á Akureyri, Vonarland á Egilsstöðum, Sólheima í Grímsnesi og Kópavogshæli. Samtals eru um 260 íbúar á fyrrnefndum vistheimilum.
Enda þótt vistheimili séu talin með í lögunum sem búsetuúrræði fyrir fatlaða er ekki gert ráð fyrir aukningu slíkra úrræða varðandi búsetu þar sem fyrirkomulag þeirra þykir ekki samrýmast nægilega vel nútímahugmyndafræði um búsetu. Ekki hefur þó verið tekin ákvörðun um að leggja þau af nema vistheimilið Sólborg á Akureyri, en stefnt er að lokun stofnunarinnar á fyrri hluta næsta árs og er unnið markvisst að þeim framkvæmdum í samræmi við þar til gerðar áætlanir af hálfu ráðuneytis og svæðisskrifstofu Norðurlands eystra. Einungis 15 vistmenn á eftir að útskrifa af Sólborg og er gert ráð fyrir að flestir verði fluttir í annað og betra húsnæði á miðju næsta ári. Einnig er verið að gera breytingar á vistheimilinu Vonarlandi og breyta því í tvö sambýli.
Þá má einnig geta þess að frá áramótum 1994 fluttist rekstur Tjaldanessheimilisins í Mosfellsbæ til félagsmálaráðuneytisins og svæðisskrifstofu Reykjaness en það tilheyrði áður heilbrigðisráðuneyti og stjórnarnefnd ríkisspítala. Gert er ráð fyrir breytingum á stofnuninni á næstu árum, en endanlegar ákvarðanir hafa þó ekki verið teknar enn sem komið er þar að lútandi.
Eins og kunnugt er heyrir fyrrum Kópavogshæli ekki undir félagsmálaráðuneytið, heldur stjórnarnefnd ríkisspítala og heilbrigðisráðuneyti. Heilbrigðisráðuneyti hefur ákveðið að Kópavogshæli verði endurhæfingar- og hæfingardeild Landspítalans í Kópavogi. Í nóvember 1992 skipaði stjórnarnefnd Ríkisspítala fimm manna nefnd til að vinna að skipulagningu nýrrar endurhæfingardeildar Landspítalans. Félagsmálaráðuneytið átti ekki fulltrúa í þeirri nefnd. Nefndin skilaði til stjórnarnefndar Ríkisspítala greinargerð og áætlun um útskriftir vistmanna í mars 1994.
Ekki hefur verið unnt að framfylgja þeirri áætlun um útskriftir þar sem rekstrarfjármagn hefur ekki fylgt vistmönnum út í sambýli eða aðra búsetu. Félagsmálaráðuneytið hefur þó falið framkvæmdastjóra svæðisskrifstofu Reykjaness að kanna möguleika á því að koma á fót einu sambýli á næsta ári fyrir íbúa Kópavogshælis, svo framarlega sem stöðugildi fylgja með af stofnuninni.
A þeim tíma, sem frumvarp til laga um málefni fatlaðra var samþykkt á Alþingi, kom fram hjá meiri hluta félagsmálanefndar að hann teldi mikilvægt vegna þeirrar óskýru réttar stöðu sem íbúar Kópavogshælis búa við að heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra beitti sér þegar fyrir skipan fimm manna nefndar sem hefði það verkefni að gera tillögur um framtíðarhlutverk og skipan Kópavogshælis. Meiri hluti nefndarinnar taldi eðlilegt að félagsm álaráðherra, fjármálaráðherra, stjórnarnefnd Ríkisspítalanna og stjórnarnefnd í málefnum fatlaðra tilnefndu sinn fulltrúa hver og að jafnframt skipaði heilbrigðis- og trygginga málaráðherra formann án tilnefningar. Nokkrir fundir hafa átt sér stað með fulltrúum frá félags- og heilbrigðisráðuneyti og stjórnarnefnd Ríkisspítalanna.
Á þeim tíma, sem liðinn er frá gildistöku laganna, hafa ekki hafist útskriftir frá Kópavogshæli á sambýli og er ástæðan einkum skortur á stöðuheimildum. Í frumvarpi, sem lagt hefur verið fram um ráðstafanir í ríkisfjármálum 1995, kemur fram að verja megi allt að 40% af ráðstöfunarfé framkvæmdasjóðs til nánar tilgreindra verkefna, þar á meðal til greiðslu rekstrarkostnaðar á sambýlum sem hafinn verður rekstur á eftir l. janúar 1995. Gert er ráð fyrir að hér sé um að ræða sambýli sem komið er á fót til að greiða fyrir útskrift af Kópavogshæli.
Ákveðið hefur verið að skipa hóp til að vinna að því að tryggja réttarstöðu íbúa Kópavogshælis í samræmi við lög um málefni fatlaðra og hefur félagsmálaráðuneytið óskað eftir tilnefningu frá þeim aðilum sem fjalla um málefni Kópavogshælis. Þess er vænst að unnt verði að finna nýjar leiðir er bæti aðstöðu íbúanna.
ATVINNUMÁL.
Í lögum um málefni fatlaða er lögð áhersla á að finna leiðir til að auka möguleika fatlaðra til starfa á almennum vinnumarkaði. Jafnframt hefur verið dregið úr starfrækslu verndaðra vinnustaða.
Á það er bent í þessu sambandi að verndaðir vinnustaðir eru mjög fjármagnsfrekir og talið er að þeim fjármunum væri betur varið með því að stuðla að vinnu fatlaðra á almennum vinnumarkaði með ákveðnum stuðningsaðgerðum.
Í þessu skyni gera lögin ráð fyrir ýmiss konar aðstoð og má þar nefna t.d. atvinnuleit, starfsráðgjöf, starfsþjálfun, sérstaka vinnumiðlun, sérstaka liðveislu á vinnustað, fræðslu og leiðbeiningar til starfsmanna á vinnustöðum, starfssamninga o.fl.
ATVINNULEIT.
Atvinnuleit fyrir fatlaða var komið á samkvæmt eldri lögum, nr. 41/1983, um málefni fatlaðra og var það nýjung á þeim tíma. Það er því komin margra ára reynsla á þetta fyrir komulag og hefur það gefist vel. Hefur þetta dregið úr þörf fyrir að koma á fót sérstökum vinnustöðum.
Svæðisskrifstofur hafa nýtt sér heimildir til að ráða sérstaka starfsmenn varðandi atvinnu leit með það að markmiði að afla fötluðum vinnu við sitt hæfi á almennum vinnumarkaði eða vernduðum vinnustöðum þar sem þeir eru fyrir hendi.
Enda þótt atvinnuleit fatlaðra sé á vegum svæðisskrifstofa er víðast hvar um að ræða samvinnu við sveitarfélög í tengslum við vinnumiðlanir sveitarfélaga þar sem þær eru til staðar. Má í því sambandi nefna Reykjavík, Akureyri, Kópavog og fleiri sveitarfélög.
Samkvæmt skýrslu vinnumiðlunar fyrir fatlaða í Reykjavik fyrir árið 1993 kemur fram að 349 einstaklingar leituðu til vinnumiðlunarinnar á árinu og er það óveruleg lækkun frá árinu 1992 en þá leituðu 357 fatlaðir til stofnunarinnar.
Af umsækjendum árið 1993 voru 285 einstaklingar með 75% örorkumat. Einstaklingar með greindarskerðingu og geðræn vandamál voru samtals 210 manns. Af heildarfjölda umsækjenda voru 199 karlar og 150 konur. „Eins og jafnan fyrr var fjölmennasti aldursflokk urinn 26–45 ára eða 154 einstaklingar af 349“ segir í skýrslunni.
Ráðningar á almennan vinnumarkað voru í heild 107 á árinu, þar af 96 í störf á vegum Reykjavíkurborgar í garðyrkju, skógrækt og vinnuskólaverkefni að sumrinu til. Ráðningar á verndaða vinnustaði voru samtals 91 sem er ívið færri en árið áður eða 95 árið 1992. Á skrá í árslok 1993 hjá Vinnumiðlun fatlaðra í Reykjavík voru 62 einstaklingar, en auk þess voru 23 fatlaðir á skrá hjá almennri deild Ráðningarstofunnar sem áttu rétt á atvinnuleysisbótum og voru jafnframt í tengslum við Vinnumiðlun fatlaðra.
Í febrúarlok 1994 voru umsóknir hjá Vinnumiðlun fatlaðra um eitt hundrað. Af þeim óskuðu 65 eftir vinnu á vernduðum vinnustöðum en 35 óskuðu eftir vinnu á almennum vinnumarkaði. Hér er um athyglisverðar tölur að ræða og hljóta þær að vekja spurningar með hliðsjón af þeim áherslubreytingum í lögunum sem eru þar eins og fyrr segir til að draga úr starfsemi verndaðra vinnustaða.
VERNDAÐIR VINNUSTAÐIR OG HÆFINGARSTÖÐVAR.
Eins og drepið var á hér að framan er gert ráð fyrir að draga úr vægi verndaðra vinnustaða og kemur sú stefnubreyting skýrt fram í núgildandi lögum um málefni fatlaðra frá því sem áður gilti í eldri lögum.
Þannig er ekki lengur gert ráð fyrir skyldum hins opinbera að koma á fót og starfrækja verndaða vinnustaði, heldur er einungis um að ræða heimildarákvæði í 30. gr. laganna varðandi starfsrækslu verndaðra vinnustaða fyrir fatlaða. Þar segir einnig um markmið þessara stofnana að verndaðir vinnustaðir skuli annars vegar veita fötluðum launaða starfsþjálfun svo að þeir geti starfað á frjálsum vinnumarkaði. Hins vegar skuli þeir veita fötluðum launuð föst störf.
Verndaðir vinnustaðir eru alls fimmtán í landinu á sex þjónustusvæðum af átta, undan skilin eru Vestfjarðasvæði og Norðurland vestra sem ekki hafa sett fram sérstakar beiðnir um að koma slíkum stofnunum á fót. Af þessum fimmtán vinnustöðum eru átta starfræktir af ríkinu/svæðisskrifstofum (Ríkisspítalar), aðrir eru stofnaðir af félagasamtökum fatlaðra og reknir af þeim. Verndaðir vinnustaðir fjármagna starfsemi sína með tekjum af seldum vörum og þjónustu, en auk þess fá flestir staðanna nokkurt fjárframlag frá ríkinu. (Sjá fylgiskjal IV um framlög til atvinnumála fatlaðra árin 1990–1993.)
Meiri hluta verndaðra vinnustaða var komið á fót á sl. áratug en aðrir eiga sér lengri starfstíma.
Margir vinnustaðanna sinna blönduðum hópi fatlaðra, en aðrir eru starfræktir fyrir sérstaka hópa, t.d. blinda, þroskahefta og geðfatlaða.
Samkvæmt skýrslu, sem var gefin út af Sambandi verndaðra vinnustaða 1992, um verndaða vinnustaði á Íslandi kemur m.a. fram að fjöldi fatlaðra starfsmanna á vernduðum vinnustöðum var 364 og meðaltalsfjöldi starfsmanna á hverjum stað var 22,7. Um 70% þeirra sem njóta þjónustu vinnustaðanna eru andlega fatlaðir, greindarskertir og geðfatlaðir.
Fjöldi á biðlistum eftir plássi á vernduðum vinnustað var 127 manns. Þessar tölur eru miðaðar við apríl 1992. Í sömu skýrslu koma fram upplýsingar um ráðningar fatlaðra á almennan vinnumarkað og annað gegnumstreymi að lokinni þjálfun á vernduðum vinnustað. „Árið 1991 fengu 21 einstaklingur vinnu á almennum vinnumarkaði eða um 5,8% sé miðað við fjölda fatlaðra starfsmanna á vernduðum vinnustöðum í apríl 1992. Á Norðurlöndum þykir gott að þetta hlutfall sé 3–6%, þannig að árangur íslensku staðanna er viðunandi miðað við það.“
Möguleikar fatlaðra til starfa á almennum vinnumarkaði eru að sjálfsögðu háðir því atvinnuástandi sem ríkir á hverjum tíma og hverjum stað. Því miður sýnir reynslan bæði hér á landi og í nágrannalöndum okkar að fatlaðir eiga erfitt uppdráttar á almennum vinnumarkaði þegar samdráttur verður í atvinnulífi og almennt atvinnuleysi eykst. Þessa hefur og gætt hér á landi síðustu tvö ár samkvæmt umsögnum forstöðumanna verndaðra vinnustaða og atvinnuleitar.
Á allra síðustu árum hefur verið komið á fót svonefndum hæfingarstöðvum og er hlutverk þeirra að veita fötluðum alhliða hæfingu/þjálfun til starfa á almennum vinnumarkaði eftir því sem unnt er.
Hæfingarstöðvar eru fyrir hendi í Reykjavík, á Reykjanesi og á Norðurlandi eystra.
STARFSÞJÁLFUN FATLAÐRA.
Í samræmi við markmið laganna hefur verið leitast við að efla starfsþjálfun fatlaðra með það að markmiði að gera þá hæfari til starfa á almennum vinnumarkaði.
Í því skyni hefur verið starfrækt sérstök stofnun, Starfsþjálfun fatlaðra, að Hátúni 10, Reykjavík, sem er rekin sameiginlega af félagsmálaráðuneytinu og Öryrkjabandalagi Íslands. Markmiðið er að búa fatlaða undir störf á almennum vinnumarkaði eða frekara nám í framhaldsskólum.
Megináherslan er lögð á námsgreinar, svo sem almenna tölvunotkun, bókfærslu, verslunarreikning, íslensku, ensku, samfélagsfræði og margt fleira. Auk þess er í boði náms- og starfsráðgjöf, starfskynning og námskeið í að sækja um vinnu.
Starfsþjálfun fatlaðra er einkum ætluð fólki frá 18 ára aldri sem hefur fatlast vegna slysa eða sjúkdóma og tekur námið yfir þrjár annir, eitt og hálft ár. Skólagjöld eru engin og öll helstu námsgögn eru lögð til nemendum að kostnaðarlausu. Auk almenna námsins eru haldin nokkur tveggja vikna tölvunámskeið vor og haust sem ávallt hafa verið fullskipuð.
A undanförnum sex árum hafa á þriðja hundrað fatlaðir nemendur nýtt sér almenna námið og tölvunámskeiðin í Starfsþjálfun fatlaðra.
Í framhaldi af því hafa um 70% haslað sér völl á almennum vinnumarkaði eða farið í framhaldsnám innan hins almenna skólakerfis, fjölbrautaskóla, iðnskóla o.fl. Um þriðjungur nemenda hefur leitað eftir störfum á vernduðum vinnustöðum eða hefur ekki tekist að fá atvinnu.
Aðsókn að Starfsþjálfun fatlaðra hefur verið langtum meiri en unnt er að verða við vegna þrengsla í núverandi húsnæði. Einungis hefur verið unnt að veita inngöngu um 30% umsækjenda. Hefur aðsóknin farið vaxandi með hverju ári að undanförnu. Af þeim sökum er nú hafinn undirbúningur að nýju húsi sem verður byggt á lóð Öryrkjabandalagsins að Hátúni 10, Reykjavík. Framkvæmdasjóður fatlaðra hefur lagt fram fjármagn til bygging arinnar og er gert ráð fyrir að hún verði tilbúin í lok næsta árs, 1995. Auk Starfsþjálfunar innar verður rými fyrir Tölvumiðstöð fatlaðra í hinu nýja húsi.
NEFND UM ATVINNUMÁL FATLAÐRA.
Í nóvember 1992 skipaði þáverandi félagsmálaráðherra nefnd sem fékk það hlutverk að útfæra tillögur í atvinnumálum fatlaðra á almennum vinnumarkaði og í vernduðu starfsumhverfi, ekki síst með hliðsjón af nýjum lögum um málefni fatlaðra.
Nefndin hefur skilað tveimur áfangaskýrslum en hefur ekki endanlega lokið störfum. Í fyrri áfangaskýrslunni er fjallað um eftirfarandi þætti: Almenna stefnumótun, atvinnu og menntun, vinnumiðlun/starfsráðgjöf, viðhorf til fatlaðra á almennum vinnumarkaði, tengsl atvinnu og bóta og sértæk úrræði.
Í síðari áfangaskýrslunni er fjallað um skilgreiningar á sértækum úrræðum í atvinnumálum fatlaðra. Má þar nefna hæfingu/starfshæfingu, iðju, verndaða vinnu, vinnu á almennum vinnu markaði, verkstjórn, liðveislu og starfsþjálfun.
Nefndin vinnur að lokaskýrslu þar sem hún mun leggja fram endanlegar tillögur sínar, en þær fjalla m.a. um:
* að yfirstjórn atvinnumála fatlaðra heyri undir Vinnumálaskrifstofu félagsmála ráðuneytis,
* að settar verði á fót svæðisbundnar vinnumiðlanir sem veiti sérfræðiráðgjöf um atvinnu mál fatlaðra en eftir sem áður verði skráning og vinnumiðlun fatlaðra sem ófatlaðra í hverju sveitarfélagi,
* að kannaðir verði kostir þess að flytja örorkulífeyrisgreiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins til Atvinnuleysistryggingasjóðs félagsmálaráðuneytis,
* að stofnaður verði rannsókna- og tilraunasjóður í atvinnumálum fatlaðra; tilgangur sjóðs ins sé að stuðla að tilraunum og rannsóknum í atvinnumálum sem beinast á einn eða annan hátt að aukinni þátttöku fatlaðra á vinnumarkaði, tækninýjungum sem auðvelda fötluðum störf og aðgerðum í vinnuvernd og slysavörnum til að koma í veg fyrir fötlun,
* að samið verði við eitt eða fleiri ríkisfyrirtæki í tilraunaskyni til að rannsaka möguleika vinnumarkaðarins á að hagræða störfum til að auðvelda fötluðum að fá vinnu,
* að auka þurfi fjölbreytni í verkefnavali í verndaðri vinnu og að leggja þurfi aukna áherslu á hvers kyns þjónustustarfsemi við almenning,
* að þegar verði skipuð samninganefnd sem semji um laun, réttindi og skyldur starfs manna í verndaðri vinnu; félagsmálaráðuneyti, fjármálaráðuneyti, hagsmunasamtök fatlaðra og aðilar vinnumarkaðarins eigi fulltrúa í nefndinni.
Nefndin hefur auk þess unnið að tillögum um leiðir til að auðvelda atvinnuþátttöku fatlaðra á almennum vinnumarkaði, svo sem með starfsþjálfun fatlaðra og liðveislu. Einnig hefur verið unnið að tillögum sem lúta að tengslum atvinnulífs og skóla. Nefndin leggur áherslu á mikilvægi menntunar fyrir atvinnuþátttöku fatlaðra. Tillögur um þessi framan greindu atriði verða lögð fram í lokaskýrslu.
Nefndin mun efna til kynningar og umræðu um tillögur í skýrslum nefndarinnar.
FERLI- OG AÐGENGISMÁL.
Í 14. kafla laga um málefni fatlaðra er að finna ákvæði um ferlimál og ferðaþjónustu. Þar er sú skylda lögð á sveitarfélög að sinna ferlimálum með skipulögðum hætti, m.a. með gerð áætlana um endurbætur á aðgengi opinberra bygginga og þjónustustofnana samkvæmt byggingarlögum og byggingarreglugerð, svo og skipulagslögum.
Þá er eining lögð áhersla á að svæðisskrifstofur hafi forgöngu um að koma á samskiptum við byggingarnefndir sveitarfélaga á svæðinu og að upplýsingar um nauðsynlegar úrbætur berist til byggingarnefnda á viðkomandi svæði.
Í lögunum er einnig að finna hvatningu til sveitarstjórna til að skipa sérstakar ferlinefndir en slíkar nefndir hafa verið starfandi í nokkrum sveitarfélögum undanfarin ár.
Í nóvember 1991 skipaði þáverandi félagsmálaráðherra ferlinefnd ráðuneytisins sem hefur það hlutverk að fjalla um hönnun bygginga með tilliti til aðgengis fatlaðra. Enn fremur er hlutverk nefndarinnar að gera tillögur varðandi breytingar á opinberum byggingum með aðgengi fatlaðra í huga í tengslum við endurbætur og endurbyggingu þeirra.
Nefndin hefur í starfi sinu m.a. bent á nauðsyn þess að í reglugerð, sem sett verður með lögum um málefni fatlaðra, verði skýrt kveðið á um umsagnarrétt svæðisskrifstofu (og ferli nefnda þar sem þær eru starfandi) varðandi byggingarnefndir, sbr. 34. gr. laganna.
Tillaga ferlinefndar er sú að svipaður háttur verði viðhafður í framtíðinni hjá byggingar nefndum og nú á sér stað hjá nefndunum um heilbrigðiseftirlit og eldvarnaeftirlit. Aðilar frá báðum þessum sviðum þurfa að yfirfara uppdrætti og gefa umsögn um að þeir standist í einu og öllu viðkomandi lög og reglugerðir áður en byggingarnefnd veitir sitt endanlega samþykki.
Ferlinefnd félagsmálaráðuneytisins gæti í þeim tilvikum þar sem erfitt er fyrir svæðis skrifstofur að gefa slíka umsögn veitt aðstoð og gefið umsagnir.
Ljóst er að núverandi ákvæði í skipulags- og byggingarlögum varðandi aðgengi fatlaðra tryggja ekki svo óyggjandi sé nauðsynlegt aðgengi. Það er því að nokkru leyti háð þekkingu, skilningi og velvilja hönnuða og yfirvalda hvort fullnægjandi lausnir fást fram. Þá ber einnig að geta þess að nákvæm hönnun margra svæða, svo sem gatna og margra útisvæða, er ekki háð samþykki skipulags- og byggingarnefnda eins og nú háttar til. Því er nauðsynlegt að setja um þau mál skýr ákvæði í lög og reglugerðir um skipulags- og byggingarmál.
Varðandi aðgengismál komu nýjar áherslur inn í lögin um fatlaðra þar sem m.a. er heimilt að verja allt að 10% af ráðstöfunarfé Framkvæmdasjóðs fatlaðra til lagfæringa á aðgengi opinberra bygginga, en þó aldrei meira en sem nemur helmingi af kostnaði við hverja einstaka framkvæmd.
Á árinu 1993 var þannig úthlutað) úr sjóðnum rúmlega 12 millj. kr. til að bæta aðgengi fyrir fatlaða. Má þar t.d. nefna lyftur í skóla og aðgengi utan húss að ýmsum þjónustu stofn unum, sundlaugar o.fl.
Á yfirstandandi ári hafa verið veittar 7,3 millj. kr. í ýmsar framkvæmdir til að betrumbæta aðgengi fyrir fatlaða.
Ferðaþjónusta fatlaðra fluttist frá ríki til sveitarfélaga l. janúar 1993 og hafa þau sinnt þeirri skyldu síðan og sett sér reglur um rekstur ferðaþjónustunnar. Markmiðið er að gera fötluðum, sem ekki geta nýtt sér almenn farartæki, kleift að stunda atvinnu og nám og njóta tómstunda.
Skyldur sveitarfélaga í þessum efnum taka til allrar almennrar ferðaþjónustu. Eina undan tekningin í þessum efnum er akstur fyrir íbúa á vistheimilum.
FREKARI LIÐVEISLA.
Eitt þeirra nýmæla, sem er að finna í lögum um málefni fatlaðra og flokkast undir stoðþjónustu, er ákvæði um frekari liðveislu við fatlaða (25. gr.). Slík liðveisla felur í sér margháttaða aðstoð við ýmsar athafnir daglegs lífs til að koma í veg fyrir dvöl á stofnun og er ætluð mikið fötluðum einstaklingum. Gert er ráð fyrir að þessi þjónusta komi til viðbótar heimaþjónustu sveitarfélaganna.
Svæðisskrifstofur taka ákvörðun um frekari liðveislu samkvæmt heimildum fjárlaga hverju sinni að fenginni umsögn svæðisráða.
Á árinu 1993 var varið 26 millj. kr. til frekari liðveislu og var fjöldi einstaklinga sem hennar nutu 120. Eftirspurn eftir þessari þjónustu hefur aukist verulega hin síðustu ár.
Með lagabreytingu, sem samþykkt var á Alþingi í desember 1993, er heimilt að verja alltað 25% úr Framkvæmdasjóði fatlaðra til að standa undir kostnaði við frekari liðveislu ásamt útgjöldum vegna 27. gr. laga um málefni fatlaða.
Á yfirstandandi ári hefur verið samþykkt að veita rúmlega 50 millj. kr. úr sjóðnum til að standa straum af kostnaði vegna frekari liðveislu, en samtals er gert ráð fyrir að verja um 60 millj. kr. á árinu til greiðslu kostnaðar við frekari liðveislu við fatlaða.
Samkvæmt 27. gr. laga um málefni fatlaðra er heimilt að veita fötluðum styrk til verkfæra- og tækjakaupa vegna heimavinnu eða sjálfstæðrar starfsemi að endurhæfingu lokinni. Enn fremur er heimilt að veita styrk til greiðslu námskostnaðar sem ekki er greiddur samkvæmt ákvæðum annarra laga. Þessi ákvæði eru nokkurn veginn samhljóða ákvæðum fyrri laga og hafa litið breyst.
Á árinu 1993 voru rúmlega 7 millj. kr. á fjárlögum til að veita í fyrrnefnda styrki, en alls voru veittir um 120 styrkir til fatlaðra í samræmi við þetta heimildarákvæði. Á yfirstandandi ári er búið að úthluta 10 millj. kr. úr Framkvæmdasjóðnum til styrkja til að greiða atvinnu- og námskostnað fatlaðra.
RÉTTINDAGÆSLA.
Nýtt ákvæði um réttindagæslu er að finna í 36. og 37. gr. laganna. Með réttindagæslu er átt við að fylgst sé með því að fatlaðir njóti lagalegs réttar síns og að ljóst sé hvernig með skuli fara leiki grunur á að brotinn sé réttur á hinum fatlaða og að hann fái þá notið aðstoðar til að leita réttar síns.
Svæðisráðum er ætlað að standa vörð um rétt fatlaðra til þjónustu. Svæðisráðum er heimilt að ráða sérstakan trúnaðarmann fatlaðra á hverju svæði sem fylgist með högum hinna fötluðu og að réttur þeirra sé ekki fyrir borð borinn.
Í maí á síðasta ári, 1993, var öllum svæðisráðum tilkynnt að þeim væri heimilt að ráða trúnaðarmenn til að sinna réttindagæslu fyrir fatlaða og hafa sjö svæðisráð af átta nýtt sér þessa heimild og ráðið sér trúnaðarmenn, en þau eru Reykjavíkursvæði, Reykjanessvæði, Suðurland, Norðurland eystra, Norðurland vestra, Austurland og Vesturland.
Á árinu 1993 hafði trúnaðarmaður fatlaðra í Reykjavík afskipti af 25 málum af margvíslegum toga. Má þar nefna fjármál, forræðismál, grun um kynferðisafbrot, húsnæðis mál, vistunarúrræði o.fl.
Á Suðurlandi, svo dæmi sé tekið af landsbyggðinni, hafði trúnaðarmaður á árinu 1993 afskipti af 18 málum af svipuðum toga og koma fyrir í Reykjavík. Á öðrum svæðum hafa trúnaðarmenn haft afskipti af færri málum.
STARFSMENNTUN Í ATVINNULÍFINU.
Námskeið fyrir meðferðar-og uppeldisfulltrúa.
Fræðslunefnd félagsmálaráðuneytisins var skipuð í byrjun mars 1993 og fékk það hlut verk að hafa umsjón með fræðslumálum starfsfólks sem sinnir málefnum fatlaðra, enn fremur að sjá um gerð námsefnis og skipulagningu námskeiða og annarrar fræðslu. Áður en nefndin var skipuð höfðu ráðuneytinu borist eindregnar óskir frá starfsmönnum ýmissa stofnana og félagasamtökum um að koma á laggirnar starfsnámi í þeim tilgangi að efla færni og þekkingu þeirra sem vinna við umönnun og meðferð fatlaðra.
Nokkur undirbúningsvinna hafði raunar átt sér stað að frumkvæði nokkurra stofnana sem bæði sinntu málefnum fatlaðra og málefnum barna og unglinga (Unglingaheimili ríkisins og barna- og unglingageðdeild). Samkvæmt ósk þessara aðila ákvað fræðslunefndin að fella saman í eina heild grunnnámskeið fyrir starfsfólk í þessum þjónustugreinum.
Fyrsta gunnnámskeiðið hófst í Reykjavík í byrjun nóvember 1993 og spannaði yfir 160 kennslustundir. Því lauk í lok marsmánuðar 1994. Umsækjendur voru rúmlega 70 en hægt var að veita 30 manns inngöngu og luku 28 fullnaðarnámi. Nemendur komu frá Reykjavíkur svæðinu, Suðurnesjum og Suðurlandi.
Kennslan fór fram í húsnæði BSRB, Grettisgötu 90, og voru kennslugreinar m.a. almenn stjórnsýsla, lög um málefni fatlaðra, lög um barnavernd, lög um félagsþjónustu sveitarfélaga, réttindi og skyldur opinberra starfsmanna, siðfræði, uppeldisfræði, þroskasálfræði, erfðafræði, félagssálfræði, næringarfræði, tómstundastarf og fleira.
Fræðslunefndin fékk úthlutað 1,4 millj. kr. úr Starfsmenntasjóði félagsmálaráðuneytisins til að standa straum af kostnaðinum við þetta fyrsta námskeið og þurftu nemendur því ekki að greiða námskeiðsgjöld.
Námskeiðið var metið til hækkunar tveggja launaflokka.
Fræðslunefndin hefur siðan fengið fjárframlög sem gerði henni kleift að hleypa af stokkunum fyrri hluta grunnnámskeiðs í byrjun apríl á þessu ári, síðari hlutinn hófst í september og lauk um miðjan nóvember sl.
Fræðslunefnd félagsmálaráðuneytisins stóð í samvinnu við Farskóla á Norðurlandi vestra og svæðisskrifstofu málefna fatlaðra fyrir fyrri hluta námskeiðs á Sauðárkróki í september og október sl. Var þannig hægt að koma til móts við óskir frá landsbyggðinni um aukið fræðslu starf á þessum vettvangi. Þátttakendur voru 31 og komu víðs vegar frá Norðurlandi vestra. Síðari hluti námskeiðsins hefst í mars á næsta ári.
Auk grunnnámskeiða hefur fræðslunefndin unnið að námsskrá fyrir framhaldsnámskeið og er nú unnið að skipulagningu slíks námskeiðs haustið 1995. Auk þess er áformað að halda tvö grunnnámskeið á næsta ári, annað í Reykjavík og hitt á Vesturlandi. Þá hafa fræðslu nefnd inni borist óskir um að skipuleggja styttri og afmarkaðri námskeið fyrir starfsfólk sem vinnur við mjög sérhæfða meðferð og umönnun.
Augljóst er að mikið starf er fram undan á vettvangi starfsmenntunar og fræðslu af því tagi sem hér hefur verið lýst og er þetta einungis byrjun á viðamiklu verkefni sem þarf að ná til alls landsins. Góð starfsmenntun er grundvöllur fyrir betri þjónustu.
ÞRÓUN ÚTGJALDA Í MÁLAFLOKKI FATLAÐRA.
Á árinu 1984, sem markaði upphaf framkvæmdar á fyrstu heildarlöggjöf um málefni fatl aðra, voru framlög til málefna fatlaðra um 195 millj. kr. sem svarar til 737 millj. kr. á verð lagi ársins 1993.
Framlög ríkisins á árinu 1993, sem var fyrsta ár nýrrar löggjafar, voru 2.074 millj. kr. og hafa þau þannig aukist um rúmar l.300 millj. kr. að raungildi sem svarar til 181% hækkunar á þessu 10 ára tímabili. Sem hlutfall af útgjöldum ríkissjóðs til velferðarmála hafa útgjöld til málefna fatlaðra aukist úr 3,1% í 5% á þessum áratug.
Allt frá árinu 1987 hefur þjóðin gengið í gegnum samdrátt í atvinnu- og efnahagsmálum sem m.a. hefur kallað á niðurskurð ríkisútgjalda. Ljóst er að í okkar miklu efnahags þreng ingum og niðurskurði útgjalda, m.a. til velferðarmála, hefur málefnum fatlaðra ekki eingöngu verið hlíft, heldur hefur orðið veruleg aukning fjárveitinga til málaflokksins eða um 52% að raungildi á samdráttarskeiðinu frá 1987–1994.
STEFNUMÓTUN TIL FRAMTÍÐAR.
Með hliðsjón af hinni geysimiklu uppbyggingu á þjónustu við fatlaða undanfarinn áratug má gera ráð fyrir að á næstu árum verði dregið úr stofnanauppbyggingu í þágu fatlaðra af hálfu ríkisins.
Stjórnvöld hafa markað þá stefnu að flytja í auknum mæli verkefni frá ríki til sveitarfélaga á næstu árum og þar á meðal eru málefni fatlaðra. Út frá slíkri stefnumótun hljóta því að fara í hönd viðræður við sveitarfélög, einkum reynslusveitarfélög, um burði þeirra og vilja til að taka við jafnviðamiklu verkefni og málefnum fatlaðra.
Það hlýtur að teljast eðlilegt út frá sjónarmiði hugmyndafræði um hæfingu fatlaðra að þjóðfélaginu að sveitarfélög sinni allri félagslegri þjónustu við þegna sína, bæði fatlaða og ófatlaða.
Hagsmunasamtök fatlaðra, Landssamtökin Þroskahjálp og Oryrkjabandalag Íslands, hafa margoft lýst eindregnum stuðningi sínum við framangreinda stefnu og telja að með flutningi til sveitarfélaga fáist betri þjónusta þegar heimamenn bera ábyrgð á henni fjárhagslega og faglega. Fullvíst má telja að með flutningi málaflokksins til sveitarfélaga fáist betri nýting á fjármagni, meiri hagræðing og öflugra eftirlit með ýmsum framkvæmdum.
Á undanförnum áratug hefur orðið til mikil þekking og reynsla, bæði stjórnsýsluleg og fagleg, í málefnum fatlaðra.
Mikilvægt er að sú þekking fari ekki forgörðum heldur verði reynt að nýta hana við til flutn ing verkefna og stuðla að því að sveitarfélögin njóti í framtiðinni starfskrafta sem búa yfir sérfræðikunnáttu á þessu sviði.
Sú mikla þróun, sem hefur átt sér stað á undanförnum árum í málefnum fatlaðra, hefur beinst í æ ríkari mæli frá stofnanaþjónustu til einstaklingsaðstoðar. Má í því sambandi benda á nýjar áherslur í búsetumálum fatlaðra sem eru að færast í auknum mæli til félagslega íbúðakerfisins. Líklegt er, ef svo fer fram sem horfir, að í framtíðinni megi gera ráð fyrir að rekstur sambýla muni dragast saman en þess í stað verði húsnæðisþörf fatlaðra leyst að mestu innan félagslega húsnæðiskerfisins og með húsnæði á vegum sveitarfélaga, en einnig má vænta þess að öflug félagasamtök eins og Oryrkjabandalag Íslands haldi áfram að vera mikilvirk varðandi húsnæðismál fatlaðra hér eftir sem hingað til.
Jafnhliða slíkri búsetuþróun liggur í hlutarins eðli að efla verður heimahjúkrun, heimaþjónustu og frekari liðveislu sem felur í sér margháttaða aðstoð og ráðgjöf. Það hlýtur að verða teljast ótvíræður kostur fyrir hinn fatlaða ef slík þjónusta verður samræmd á þann hátt að ábyrgðin sé á hendi sama stjórnvalds, þ.e. sveitarfélagsins í stað þriggja aðila eins og fyrirkomulagið er nú.
Varðandi framtíðarstefnu í atvinnumálum fatlaðra koma fram nýjar áherslur í lögunum eins og áður hefur verið fjallað um í þessari skýrslu. Þar er megináherslan lögð á atvinnu þátttöku fatlaðra á almennum vinnumarkaði í stað sértækra úrræða. Með auknum mögu leikum fatlaðra til framhaldsnáms og sérmenntunar ættu jafnframt opnast auknir möguleikar fatlaðra til að hasla sér völl á almennum vinnumarkaði í framtíðinni. Mikilvægt er að efla starfsþjálfun, hæfingu og starfsráðgjöf ásamt liðveislu og eftirfylgd á almennum vinnu markaði.
Í þessu sambandi er eðlilegt að undirstrika þann athyglisverða árangur sem hefur náðst í Starfsþjálfun fatlaðra og áður hefur verið fjallað um í þessari skýrslu. Er þess að vænta að í framtíðinni verði hægt að veita fleirum aðgang að Starfsþjálfuninni með tilkomu hins nýja húsnæðis sem er í byggingu.
Í tillögum nefndar um atvinnumál, sem greint er frá í skýrslunni, er bent á ýmsar leiðir til að auðvelda fötluðum þátttöku á almennum vinnumarkaði. Þar er m.a. bent á mikilvægi samstarfs þeirra aðila sem tengjast á einn eða annan hátt vinnumarkaðs- og atvinnumálum fatlaðra. Leggja þarf aukna áherslu á þennan þátt þegar horft er til framtíðar, svo og að auka tengsl skóla og atvinnulífs.
Í aðgengis- og ferlimálum fatlaðra hefur vissulega þokast í rétta átt þótt enn sé mikið óunnið í þeim efnum. Má í því sambandi nefna starf ferlinefnda sveitarfélaga sem hafa beitt sér fyrir að bæta aðgengi opinberra stofnana í sínu sveitarfélagi og enn fremur hafa eftirlit með að nýbyggingar séu þannig úr garði gerðar að reglum um aðgengi sé fullnægt. Einnig hafa umtalsverðir fjármunir verið veittir úr Framkvæmdasjóði fatlaðra til að bæta aðgengi ýmissa stofnana og hefur umsóknum fjölgað hin síðustu ár hvað þetta varðar.
Svæðisskrifstofur málefna fatlaðra hafa beitt sér fyrir bættu aðgengi í samstarfi við sveitarfélög og fulltrúa þeirra.
Ferlinefnd félagsmálaráðuneytisins og starf hennar, sem fjallað er um í þessari skýrslu, hefur haft starfsmann í hlutastarfi til að sinna aðgengismálum og veita ráðgjöf þegar þess er óskað.
Þá má geta þess að snemma á næsta ári er að vænta handbókar um ferlimál fatlaðra sem er samstarfsverkefni Arkitektafélags Íslands og fjölmargra félaga fatlaðra og samtaka heil brigðis stétta. Er hér um að ræða uppsláttarrit fyrir arkilekta og aðra hönnuði og einnig mun handbókin nýtast almenningi varðandi aðgengilegt húsnæði.
Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins mun kosta prentun bókarinnar og annast dreifingu. Veittur var styrkur úr Framkvæmdasjóði fatlaðra í þetta verkefni.
Framtíðarstefna í ferli- og aðgengismálum fatlaðra hlýtur að byggjast á víðtæku samstarfi milli þeirra aðila sem bera ábyrgð á skipulagi umhverfis, hönnun og eftirliti bygginga og upplýsingum og ábendingum frá félögum fatlaðra sem gerst þekkja hvar úrbóta er þörf. Ríki og sveitarfélög þurfa að taka höndum saman og vinna skipulega að úttekt á aðgengi og í framhaldi af því leggja fram fjármagn til að standa straum af breytingum. Framtíðarsýnin hlýtur að vera gott aðgengi fyrir alla.
Fylgiskjöl:
* Yfirlit um reglugerðir.
* Fjárveitingar til svæða samkvæmt fjárlögum 1984–1993.
* Sambýli, tölfræðilegt yfirlit.
* Framlög til atvinnumála fatlaðra.
* Úthlutun úr Framkvæmdasjóði fatlaðra 1993.
* Þróun útgjalda í málaflokki fatlaðra 1983–1993.
Fylgiskjal I.
Reglugerðir um málefni fatlaðra.
Fyrst leit dagsins ljós reglugerð um svæðisráð málefna fatlaðra, nr. 142 30. mars 1993. Svæðisráð skulu hafa eftirlit með því að þjónusta við fatlaða sé í samræmi við lögin, auk hins mikilvæga verkefnis að hafa á hendi almenna réttindagæslu fyrir fatlaða og ráða sérstakan trúnaðarmann fyrir þá fötluðu sem búa á stofnunum eða sérstökum heimilum fyrir fatlaða. Einnig er svæðisráðunum falið það þýðingarmikla hlutverk að beita sér fyrir samningum við sveitarfélögin um að þau yfirtaki málaflokkinn að hluta til eða öllu leyti. Ekkí verða verkefni svæðisráðs þó tæmandi talin hér.
Reglugerð um svæðisskrifstofur málefna fatlaðra var næst í röðinni, nr. 273 28. júní 1993. Svæðisskrifstofur fara með umfangsmikil verkefni, framkvæmd alls málaflokksins á sínu svæði, svo sem áætlanagerðir, rekstur sem og faglega þjónustu sem of langt mál er að rekja hér.
Um stjórnarnefnd málefna fatlaðra og Framkvæmdasjóð fatlaðra var sett reglugerð, nr. 204 15. apríl 1994. Sem fyrr er eitt meginverkefni stjórnarnefndar að hafa á hendi stjórn Framkvæmdasjóðs fatlaðra, auk þess sem stjórnarnefnd skal vera félagsmálaráðuneyti til ráðgjafar um málefni fatlaðra. Framkvæmdasjóður fatlaðra hefur nú fjölþættara hlutverk en áður þar sem sjóðnum er, auk þess að standa undir stofnkostnaði stofnana og heimila fatlaðra, ætlað að veita fé til félagslegra íbúða, aðgengismála, viðhalds o.fl. Auk þess er Framkvæmdasjóði fatlaðra nú falið með tímabundnum lögum að rísa undir kostnaði við frekari liðveislu og félagslega hæfingu (styrkir vegna námskostnaðar og til verkfæra- og tækjakaupa).
Ákveðið var að semja reglugerð um búsetu fatlaðra í stað reglugerðar um sambýli. Reglugerðin er frá 11. október, nr. 555/1994. Bæði þykir hagkvæmt að á einum stað sé kveðið á um alla möguleika fatlaðra í húsnæðismálum, svo og að sambýlin skipa ekki lengur þann yfirgnæfandi sess sem áður var, heldur leita fatlaðir í vaxandi mæli eftir því að búa sjálfstætt í félagslegum íbúðum eins og reglugerðin ber með sér. Hvað sambýlin varðar er í lögð áhersla á að hver og einn íbúi eigi kost á einkarými, ásamt snyrtiaðstöðu ef kostur er, í stað sérherbergis. Auk sambýla og félagslegra íbúða er í reglugerðinni kveðið á um önnur úrræði og skal hér einkum bent á áfangastaði sem henta vel geðfötluðum, en þjónustu við geðfatlaða er ætlaður sérstakur forgangur í núgildandi lögum um málefni fatlaðra.
Í reglugerð um styrki vegna námskostnaðar og verkfæra- og tækjakaupa, frá 21. september, nr. 550/1994, er eitt mikilverðasta nýmælið að svæðisskrifstofur sjái að öllu leyti um þennan málaflokk í stað þess að slík einstaklingsmál séu á vegum ráðuneytisins. Var hér haft til hliðsjónar að á sínum tíma var umsjón með þjónustu stuðningsfjölskyldna færð frá ráðuneyti til svæðisskrifstofa og þykir vel hafa tekist til.
Nefndin taldi ekki tímabært að semja reglugerð um frekari liðveislu fyrr en meiri reynsla væri fengin af þessari nýju þjónustu. Með frekari liðveislu er í grófum dráttum átt við margháttaða aðstoð við mikið fatlað fólk sem býr sjálfstætt. Þessi nýja tegund þjónustu hefur þegar sannað gildi sitt og gert fötluðum kleift að búa í íbúðum sem ella þyrftu að dveljast á stofnun. Í stað reglugerðar var að svo stöddu brugðið á það ráð að semja leiðbeiningar reglur, ætlaðar svæðisskrifstofum, og voru þær reglur fullbúnar í júnímánuði 1994. Þar er þjón ustan skilgreind og tilgreindir ýmsir möguleikar við framkvæmdina. Ætlunin er að endur skoða reglur þessar á næsta ári og verður þá væntanlega samin reglugerð um málefnið.
Þegar þetta er ritað (desember 1994) er í vinnslu reglugerð um þjónustu við fötluð börn og fjölskyldur þeirra, stuðningsfjölskyldur, skammtímavistun og leikfangasöfn. Heildstæð reglugerð um þetta efni hefur ekki áður verið samin.
Fram undan eru tvær reglugerðir um atvinnumál fatlaðra og síðast en ekki sist um samninga milli ríkis og sveitarfélaga um það að sveitarfélögin taki á sig aukna ábyrgð í málefnum fatlaðra, en tilfærsla málaflokksins til sveitarfélaga er nú í brennidepli eins og kunnugt er.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Fylgiskjal IV.
Framlög til atvinnumála fatlaðra.
| Upphæðir á verðlagi 1993. (þús. kr.) |
||||
| 1990 | 1991 | 1992 | 1993 | |
| Verndaðir vinnustaðir | 99.550 | 93.600 | 92.326 | 80.327 |
| Hæfingarstöðvar / Starfsþjálfun | 57.811 | 6I.776 | 63.131 | 70.969 |
| Atvinnuleit / verkstjórn | 11.887 | 16.298 | 18.563 | 19.516 |
| 169.248 | 171.674 | 174.021 | 170.812 | |
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Fylgiskjal VI.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.