Ferill 292. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 292 . mál.


384. Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 38/1990, með síðari breytingum.

Flm.: Jóhann Ársælsson, Steingrímur J. Sigfússon.



1. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 9. gr. laganna:
     a .     1. málsl. 1. mgr. orðast svo: Á hverju fiskveiðiári skulu aflaheimildir af botnfiski, er nema 22 þúsundum þorskígildum í lestum talið, vera til ráðstöfunar til að mæta áföll um sem orðið hafa eða eru fyrirsjáanleg vegna verulegra breytinga á aflamarki ein stakra tegunda.
     b .     Við 2. mgr. bætist nýr málsliður er orðast svo: Úthluta skal þessum viðbótaraflaheimildum til skipa í samræmi við aflahlutdeild þeirra í viðkomandi tegundum og með til liti til skerðinga í aflaheimildum á síðustu þremur fiskveiðiárum.

2. gr.

    Við lögin bætast eftirfarandi bráðabirgðaákvæði:

I.


    Bátum minni en 6 brl., sem hafa leyfi til veiða með aflamarki, skal gefast kostur á að stunda veiðar með línu og handfærum, sbr. ákvæði 6. gr. Skulu þeir sem þann kost velja sækja um slíkt leyfi til sjávarútvegsráðuneytisins fyrir 1. ágúst 1995. Skilyrði fyrir veitingu slíks leyfis er að aflahlutdeild viðkomandi báts sé ekki minni en hún var á árinu 1990.
    Aflahlutdeild þeirra báta, sem þannig bætast við hóp þeirra báta sem stunda veiðar með línu og handfærum, skal bætast við hinn sameiginlega heildarafla hópsins.

II.


    Engum skipum má veita ný leyfi til fullvinnslu sjávarafla innan íslenskrar efnahagslög sögu, sbr. lög nr. 54/1992, frá gildistöku laga þessara til sama tíma að tveimur árum liðnum nema þinglýstir samningar um kaup eða smíði hafi legið fyrir við gildistöku þessara laga.

III.


    Ráðherra skal með útgáfu reglugerðar heimila löndun á fiski utan kvóta og ákveða verð sem fyrir hann skal greiða. Skal við það miðað að útgerðir geti ekki hagnast á að gera sér staklega út á slíkar veiðar en skaðist þó ekki á því að koma með aflann að landi.
    Fiskur, sem landað er samkvæmt þessari heimild, skal seldur hæstbjóðanda og mismun ur þess verðs sem útgerðin fær til sín og þess verðs sem fæst fyrir fiskinn skal renna í Þyrlukaupasjóð Landhelgisgæslunnar.
    Verði það upplýst að afla sé fleygt fyrir borð skal útgerð viðkomandi skips sæta refs ingu, sbr. ákvæði 19. gr., en missi veiðiheimilda ef um ítrekað brot er að ræða.

IV.


    Sjávarútvegsráðherra skal skipa nefnd til að framkvæma heildarendurskoðun á lögum um stjórn fiskveiða, lögum um Þróunarsjóð og öðrum lögum sem varða sjávarútveginn. Í nefndinni skulu sitja fulltrúar tilnefndir af öllum þingflokkum og fulltrúar frá landsam böndum útvegsmanna, samtökum fiskframleiðenda, samtökum sjómanna, samtökum sveit arfélaga og landssamböndum launafólks. Nefndin skal hafa náið samstarf við sjávarút vegsráðuneytið og Fiskistofu. Nefndin skal gefa hagsmunasamtökum, sem láta sig málið varða, tækifæri til að koma hugmyndum sínum á framfæri og fjalla um slíkar hugmyndir með faglegum hætti.
    Nefndin skal í starfi sínu vinna að því markmiði að skapa heildstæða sjávarútvegs stefnu sem víðtæk sátt geti orðið um og tryggi atvinnuöryggi og kjör verkafólks og sjó manna betur en nú og taki auk þess í ríkari mæli en nú er gert mið af áhrifum nýtingar innar á lífríkið. Þá skal nefndin gera tillögur um hæfilega aðlögun að þeim breytingum sem verða á fiskveiðistefnunni.
    Nefndin skal ljúka störfum eigi síðar en 1. september 1995 og skal sjávarútvegsráð herra leggja niðurstöðurnar fyrir Alþingi í byrjun þings haustið 1995.

3. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð. Öllum er nú ljóst að hin svokallaða endurskoðun á lögunum um stjórn fiskveiða, sem staðið hefur yfir á þessu kjörtímabili, hefur algjörlega mistekist. Engin heildstæð stefna er fyrir hendi í málefnum sjávarútvegsins af hálfu ríkisstjórnarinnar þrátt fyrir fögur fyr irheit í stjórnarsáttmála. Það er skoðun flutningsmanna þessa frumvarps að hrinda beri af stað alvöruendurskoðun á lögunum um stjórn fiskveiða. Til að slík endurskoðun geti borið árangur verður að kalla til fulltrúa allra þeirra aðila í þjóðfélaginu sem mestra hagsmuna eiga að gæta og láta sig málið varða.


     Lagt er til að nefnd, sem sjávarútvegsráðherra skipi, hafi forgöngu um málið í samráði við sjávarútvegsráðuneyti og Fiskistofu, sem og samtök hagsmunaaðila. Þær tillögur, sem fram eru bornar í þessu frumvarpi til breytinga á lögunum um stjórn fiskveiða, eru ein ungis neyðarráðstafanir sem geta lítillega dregið úr ýmsum vanköntum kvótakerfisins, en helstu gallar kerfisins eru áfram til staðar.
     Til að draga úr vanda bátaútgerðarinnar, sem á nú í gífurlegum erfiðleikum, eru lagðar til nokkrar ráðstafanir.
     Fyrir báta 6 brl. og stærri, sem hafa orðið fyrir mestum skerðingum vegna samdráttar í þorskveiðum, er lagt til að úthlutað verði til jöfnunar 22 þúsund þorskígildislestum, þ.e. 10 þúsund þorskígildislestum meira en nú er gert. Skal úthluta öllum þessum viðbót araflarétti til skipanna í samræmi við aflaheimildir þeirra í viðkomandi tegundum. Þetta er mjög mikilvægt vegna þess að mörgum útgerðarmönnum hefur ekki nýst úthlutun á tegundum sem bátar þeirra stunda ekki veiðar á. Skal við mat á bótunum taka tillit til skerðinga veiðiheimilda á undanförnum þremur fiskveiðiárum.
     Lagt er til að bátum, sem eru minni en 6 brl. og hafa stundað veiðar á aflamarki, gef ist kostur á að velja þann kost að stunda veiðar með línu og handfærum. Þessir útgerðar menn eru í þeim hópi sem hvað verst hefur farið út úr hinum miklu skerðingum á afla heimildum til veiða á þorski á undanförnum árum. Bent skal á að einmitt þessir útgerðar menn höfðu umtalsverða aflareynslu þegar kvótakerfið var sett á og völdu þess vegna aflamarkið. Það er þess vegna fráleitt að þeir hafi mun verri kost nú til útgerðar en hinir sem enga aflareynslu höfðu. Það verður út frá almennum réttlætissjónarmiðum ekki við annað unað en að útgerðarmönnum í sama útgerðarflokki sé gefinn kostur á svipuðum möguleikum til að fiska.
    Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að látið verði staðar numið í fjölgun svokallaðra full vinnsluskipa og er lagt til að bannað verði um tveggja ára skeið að veita fleiri slíkum skipum veiðileyfi. Það er skoðun flutningsmanna að rétt sé að hafa rúman tíma til endur skoðunar á þessu atriði. Brýn nauðsyn er á að hér verði tekin upp stefna sem leggur áherslu á að fiskurinn verði unninn sem mest áður en hann er fluttur úr landi. Það er ekki gæfuleg þróun að á sama tíma og atvinnu vantar í landinu skuli vera fjárfest í vinnslu skipum sem grófvinna aflann úti á sjó.
    Það er rík ástæða til að taka það til alvarlegrar athugunar hvort þróunin sé í rétta átt hvað varðar fiskiskipaflotann, stærð og samsetningu. Þær gífurlegu fjárfestingar sem ver ið hafa í stórum skipum á sama tíma og lagðir eru milljarðar króna í úreldingu bátaflot ans virðast ekki skynsamlegar hvorki út frá atvinnusjónarmiðum né með tilliti til nýtingar fiskimiðanna.
    Aldrei hafa heyrst glannalegri sögur af því hve miklum fiski sé hent í sjóinn en nú síðustu mánuði og missiri. Fiskistofa er nú farin að viðurkenna að um alvarlegt vandamál sé að ræða og jafnvel er sjávarútvegsráðherra sjálfur farinn að láta að því liggja að þarna sé líklega um vandamál að ræða.
    Lagt er til að heimiluð verði löndun á fiski utan kvóta sem annars vegar ætti að geta komið í veg fyrir þann ósóma að fleygja fiski í sjóinn og hins vegar tryggja að réttar upplýsingar fáist um það magn af fiski sem raunverulega er drepið. Það sýnist sitt hverj um um hve miklu af fiski er fleygt fyrir borð en sú tilhögun, sem hér er lagt til að verði tekin upp, ætti að geta leitt í ljós svo óyggjandi sé hversu mikill vandinn hefur verið á undanförnum árum. Algjör nauðsyn er að tekið verði á áhrifaríkan hátt á þessu máli. Það verður aldrei borin nein virðing fyrir stjórnkerfi í fiskveiðum sem veldur þeirri meðferð auðlindarinnar sem nú viðgengst.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.


Um 1. gr.


    Með þessari breytingu er verið að auka verulega það aflamagn sem nota má til jöfnun ar vegna samdráttar í aflaheimildum eða um tíu þúsund þorskígildistonn. Miðað er við að sá samdráttur í aflaheimildum sem orðið hefur á síðustu þremur árum verði lagður til grundvallar. Ástæða þess er hinn mikli þorskaflasamdráttur á þessu tímabili sem einungis hefur verið mætt að hluta með úthlutun Hagræðingarsjóðsaflaheimildanna og þeim 12 þúsund tonnum sem eru til ráðstöfunar samkvæmt lögunum um stjórn fiskveiða. Með því að úthluta öllu magninu í samræmi við aflahlutdeild skipa í viðkomandi tegundum verður sú breyting að úthlutunin nýtist að fullu sem uppbætur til skipanna, en mikið hefur borið á því við fyrri úthlutanir að skip hafa fengið í sinn hlut aflaheimildir í tegundum sem viðkomandi skip stundar ekki veiðar á.

Um 2. gr.


Bráðabirgðaákvæði I.


    Núverandi ástand felur í sér hróplegt misrétti innbyrðis í þessum stærðarflokki báta. Þeir útgerðarmenn, sem best höfðu fiskað fyrir daga krókakerfisins og völdu aflamark, hafa mun minni aflamöguleika en félagar þeirra hafa nú orðið með krókaleyfi en þeir höfðu sumir hverjir enga aflareynslu. Með þeirri tilhögun, sem hér er lagt til að verði tekin upp, er öllum gefinn kostur á að sitja við sama borð í þessum flokki báta.

Bráðabirgðaákvæði II.


    Ákvæðið þarfnast ekki frekari skýringa.

Bráðabirgðaákvæði III.


    Í reglugerð þeirri, sem hér er kveðið á um að ráðherra skuli setja, er nauðsynlegt að útfærður verði allur framgangur málsins, þ.e. hverjir skuli annast sölu aflans, reiknings skil og eftirlit.

Bráðabirgðaákvæði IV.


    Með þjóðinni er mikil samstaða um að standa vörð um fiskstofnana og lífríkið í sjón um, það er sú auðlind sem verið hefur burðarásinn í atvinnulífi landsmanna. Hin mikla samstaða landsmanna í baráttunni fyrir yfirráðum Íslendinga yfir fiskimiðunum í kringum landið ber þess gleggstan vott. Árhundruðum saman höfðu erlendir fiskimenn haft aðgang að miðunum við landið og full yfirráð Íslendinga yfir 200 mílna fiskveiðilögsögunni var stórsigur í lífi þjóðarinnar. Þess vegna er eðlilegt að flestir landsmenn líti svo á að þessi auðlind, þ.e. fiskstofnarnir og lífríkið í sjónum, sé og eigi að vera um alla framtíð sam eign allrar þjóðarinnar.
     Allt frá því að lög nr. 82 28. desember 1983, um breytingar á lögum nr. 81 31. maí 1976, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, fyrstu lögin um kvótakerfið, voru sett hefur verið mikill ágreiningur um þau og framkvæmd þeirra. Mestur hefur ágreiningurinn verið um það ígildi eignarréttar á fiskstofnunum sem felst í því að einstakar útgerðir eigi rétt á að nýta ákveðinn hluta fiskstofna og hafi leyfi til að kaupa og selja þann rétt. Í reynd hefur rétturinn til aflahlutdeildar úr einstökum fiskstofnum og frjálst framsal aflaheimilda orðið í framkvæmd ígildi eignarréttar á viðkomandi fiskstofni.
     Framkvæmd laganna er því í andstöðu við það meginmarkmið um sameign þjóðarinn ar á nytjastofnunum á Íslandsmiðum sem þó var sett í 1. gr. núgildandi laga um stjórn fiskveiða.
     Fjölmargir aðrir annmarkar hafa komið í ljós við framkvæmd þessara laga og skulu hér rakin fáein dæmi:
—    Tilflutningur veiðiheimilda hefur valdið byggðaröskun og af þeim ástæðum hafa mörg sveitarfélög orðið að leggja mikla fjármuni í kaup á veiðiheimildum eða ábyrgðir tengdar slíkum kaupum.
—    Kvótakerfið virðist ætla að neyða þeirri stefnu upp á sveitarstjórnir að til lengri tíma litið verði þær að hafa tök á að halda veiðiheimildunum í byggðarlaginu. Verði kerf ið fest endanlega í sessi munu þau byggðarlög, sem mjög eru háð fiskveiðum, verða að bregðast við með því að reyna enn frekar að ná tangarhaldi á þeim kvóta sem verður til sölu.
—    Þróunin hefur einnig sýnt mjög skýrt að aflaheimildir safnast á stærstu aðilana í út gerð og færast þar með úr bátaútgerð til togskipaútgerða.
—    Sannað er að afla er kastað í sjóinn vegna kerfisins, t.d. lélegum fiski úr netum, smáum fiski, verðlitlum fiski og síðast en ekki síst meðafla, þ.e. vegna þess að kvóti er ekki til staðar í tegund sem veiðist með annarri (þorskur sem kemur með við veiðar á ýsu).
—    Afla hefur verið landað fram hjá vigt.
—    Tegundir afla hafa verið rangt skráðar.
—    Gangi lítill fiskur á miðin hefur reynslan sýnt að sókn eykst verulega því að miklu meira en áður er kostað til að sækja þann kvóta sem viðkomandi útgerð hefur eign arrétt á. Nái viðkomandi útgerð ekki að veiða sinn hlut getur hún fengið önnur skip til veiðanna og geymt hluta hans til næsta árs. Þannig verður ásókn á miðin mest þegar fiskstofnarnir eru veikastir.
—    Þrátt fyrir að aðalmarkmið kvótakerfisins hafi verið að byggja upp fiskstofnana hefur ekkert miðað í þá átt. Í stað þess að vera fyrst og fremst til verndunar fiskstofnunum hefur aðalhlutverk kerfisins orðið að skipta með mjög flóknum og umdeilanlegum hætti réttinum til að nýta fiskstofnana milli einstaklinga og fyrirtækja.
    Höfuðtilgangur með þeirri endurskoðun, sem hér er lagt til að fari fram, er að koma á kerfi við stjórn fiskveiða sem fullnægir betur en núgildandi kerfi þeim kröfum sem gera verður um umgengni og nýtingu þeirrar auðlindar sem þjóðin byggir tilveru sína á.
     Helstu markmið endurskoðunarinnar eiga að mati flutningsmanna að vera eftirfarandi:
     1.     Að tryggja til frambúðar óumdeilanlegan eignarrétt og fullan ráðstöfunarrétt þjóðar innar á auðlindum íslenska hafsvæðisins.
     2.     Að við nýtingu auðlindarinnar verði gætt réttlætis gagnvart byggðarlögum, sjómönn um og fiskvinnslufólki til jafns við útgerðaraðilana.
                  Sjávarútvegsbyggðirnar urðu til vegna nálægra fiskimiða og fiskvinnslufólk hefur sest að og fjárfest í íbúðum og sameiginlegum eignum sveitarfélagsins vegna þeirrar útgerðar og fiskvinnslu sem starfrækt hefur verið í byggðinni. Sama á við um sjálfa fiskvinnsluna. Með því að skilja á milli eignarréttar á skipunum og réttarins til að draga fisk úr sjó hefur því jafnvægi verið raskað sem fyrir var.
     3.     Að með stjórnkerfi fiskveiða verði stuðlað að bættri meðferð afla, verndun smáfisks og því að verja lífríkið í sjónum fyrir óheppilegum áhrifum veiðarfæra og veiðiað ferða.
                  Þessu markmiði verður ekki náð nema með því að allir möguleikar, sem stjórnun araðilar hafa yfir að ráða, verði látnir vinna saman í þessu augnamiði, þ.e. að allar ákvarðanir um hinar ýmsu takmarkanir verði teknar með þessi markmið í huga.
                  Til að unnt sé að ná árangri eru margvíslegar rannsóknir og eftirlit nauðsynlegt.          Þær rannsóknir eru að hluta til fyrir hendi en mjög skortir á að vitneskja sé fyrir hendi, t.d. um áhrif veiðiaðferða og veiðarfæra.
     4.     Að í stjórnkerfinu verði fólginn hvati til nýsköpunar og hagræðingar í greininni og tryggðir eðlilegir möguleikar á aðgangi nýrra aðila að atvinnurekstri í sjávarútvegi. Þetta markmið næst ekki nema með því að gefa vel rekinni útgerð með góð skip og góða áhöfn tækifæri til að njóta árangursins af því að fiska vel, með því að nýjungar í veiðarfærum og veiðiaðferðum fái að koma fram í auknum afla og með því að úr elda þau skip sem skila minnstum þjóðhagslegum arði.
                  Ein aðalröksemdin fyrir kvótakerfinu hefur verið sú að frjálst framsal aflaheimilda tryggði hagræðingu í útgerð og minnkun veiðiflotans. Hvorugt markmiðið hefur náðst með kvótakerfinu. Eðlilegt markmið er að fækka skipum í þeim útgerðarflokk um sem ekki teljast hafa nægileg verkefni til lengri tíma litið.
                  Að beina sameiginlegu átaki við úreldingu skipa að þeim skipum sem minnstum þjóðhagslegum arði skila og láta þær útgerðir, sem eftir standa í viðkomandi útgerð arflokki, njóta aukinna veiðimöguleika jafnóðum án þess að einstakar útgerðir þurfi að íþyngja sér með stórátaki í kaupum á skipi til úreldingar eða rándýrum kvóta kaupum.
                  Því að losa þjóðina við þessi vandamál hefur fylgt ígildi eignarréttar á aflaheim ildum. Hins vegar hefur það gjörsamlega ruglað alla verðmætamyndun í útgerð. Verð á aflakvóta hefur í reynd tekið mið af jaðarkostnaði þeirra útgerða sem best hafa staðið og hafa í raun verið að nýta sér möguleika á að spara sér skattgreiðslur með kvótakaupum og nú í vaxandi mæli möguleika stóru kvótaeigendanna til að keyra niður hráefnisverð í viðskiptum við kvótalitlar útgerðir.
                  Í upphafi var því haldið fram að kvótaverð mundi með tímanum ráðast af kostn aðarverði nýs skips og ávöxtunarkröfunni á peningamarkaði. Þetta hefur gjörsamlega brugðist. Nauðsynlegt er að verðmæti útgerða fari aftur að ráðast af ástandi skipsins og veiðimöguleikum. Nýir aðilar þurfa að hafa möguleika á að kaupa skip með veiðileyfi. Verð skips sem útgerðareiningar á ef eðlilegt ástand ríkir að fara eftir þeim arði sem hægt er að hafa af rekstri þess en ekki eftir jaðarkostnaði veiðiheim ilda eins og nú.
     5.     Að rannsóknir á sviði sjávarútvegs verði stórauknar. Til að mögulegt verði að ná þeim markmiðum, sem eðlilegt er að setja til að tryggja hámarksafrakstur af þessari sameiginlegu auðlind þjóðarinnar, er í raun algjör forsenda að hægt verði að stjórna nýtingu auðlindarinnar skynsamlega með langtímahagsmuni þjóðarinnar að leiðar ljósi. Sú stjórnunaraðferð, sem upp verður tekin, þarf að taka fyrst og fremst mið af hagsmunum þjóðarheildarinnar þegar til lengri tíma er litið. Ekki er vafi á að skyn samleg verndun lífríkisins er óhjákvæmilegur hluti slíkra markmiða. Til að góður ár angur náist við nýtingu auðlindarinnar verða að vera fyrir hendi umfangsmiklar rann sóknir og upplýsingar um áhrif nýtingaraðferða og umgengni um lífríkið í sjónum.
    Með frumvarpi þessu eru ýmis fylgiskjöl, þar á meðal nýjustu ályktanir allra helstu hagsmunaaðila og sýna þær svo að ekki verður um villst að engin ánægja eða sátt ríkir um núverandi ástand í málefnum sjávarútvegsins. Mikil þörf er því á endurskoðun af því tagi sem hér er gert ráð fyrir.


Fylgiskjal I.


Hafsteinn Guðfinnsson:

Áhrif friðunar á fiskgengd við Vestmannaeyjar.


(Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1994.)


1. Inngangur.
    Eins og mörgum mun kunnugt var þriggja mílna svæði kringum Vestmannaeyjar lokað með reglugerð fyrir tog- og dragnótaveiðum í ársbyrjun 1992. Tvær undanþágur hafa ver ið fyrir veiðum á svæðinu þau tvö ár sem lokunin hefur verið í gildi. Í fyrsta lagi er opið svæði norðan og vestan við Þrídranga og Einidrang á tímabilinu 15. febrúar til 15. maí til kolaveiða, og í öðru lagi hefur verið opið svæði til veiða vestan við Heimaey á tíma bilinu 16. maí til 31. júlí.
    Þau tvö ár sem lokunin hefur verið í gildi, þ.e. 1992 og 1993, hefur verið haldið áfram rannsóknum á fiskgengd við Vestmannaeyjar, einkum með tilliti til þeirrar þriggja mílna landhelgi sem sett var á svæðið í febrúar 1992. Niðurstöður byggjast einkum á mælingum úr tilraunatogum í botnvörpuleiðöngrum sem farnir hafa verið á tb. Álsey VE á svæðið eða systurskipi hennar, Bjarnarey VE. Togað hefur verið um svæðið með botn trolli með karfapoka (135 mm möskvi).
    Í þessari grein er ætlunin að segja frá helstu niðurstöðum þessara rannsókna frá árinu 1991 til 1993. Rætt verður um breytingar á afla, sýndar verða lengdardreifingar ýsu og þorsks og birt gögn um aldursskiptingu aflans. Þá verða aflabrögð á tímaeiningu borin saman, þ.e. sem ýsuafli á togtíma. Athuganir hafa þó ekki verið staðlaðar hvað varðar togstöðvar og togtíma. Hins vegar hefur verið togað á svipuðum slóðum, þó ekki hafi verið fetað í sama farið hvað eftir annað. Togtími er hafður frekar stuttur (ca 1 til 2 klst).
    Rannsóknarsvæðinu er skipt í tvennt, í norður- og suðursvæði, um línu sem hugsast dregin úr Heimakletti í Þrídrangavita og áfram. Verður vísað í þessa svæðisskiptingu í texta hér síðar.

2. Niðurstöður.
    Enginn vafi leikur á að fiskgengd hefur aukist á svæðinu eftir að lokunin tók gildi. Á þetta einkum við um ýsu en einnig um ungþorsk. Aukinn afli á línu og handfæri hjá smábátum bæði árin og ýsuafli í net í lok sumars 1993 sýnir einnig svo ekki verður um villst að fiskgengd hefur aukist verulega. Þá virtust ætisskilyrði mjög góð á svæðinu sumarið 1993 og voru átulóðningar miklar upp í sjó. Umtalsverð síldargengd hefur verið í kringum Eyjar síðustu tvö sumur.

2.1. Afli á hinu lokaða svæði 1991 til 1993.
    Ástandið á svæðinu árið 1991 áður en til lokunar kom var þannig að mjög hafði dreg ið úr afla þá um sumarið og um haustið fékkst nauðalítið á svæðinu nema þá helst tveggja ára ýsa. Á árinu 1992 varð strax vart við ýsu á svæðinu (einkum tveggja og þriggja ára) og fór afli vaxandi er leið á haustið. Hér var þó aðallega um smáa ýsu að ræða. Á árinu 1993 jókst afli enn frá fyrra ári, einkum sunnan til á svæðinu, þ.e. í kring um Heimaey og suðureyjarnar. Í sumar- og haustleiðangri var afli mjög góður í mörgum tilraunatoganna. Samantekt á meðalafla togtíma á suðursvæðinu og norðursvæðinu (sjá skilgreiningu á svæðinu að framan) gefur fróðlega mynd af breytingum á ýsuaflanum (mynd 1). Þar kemur fram að ýsuafli hefur aukist verulega á suðursvæðinu frá árinu 1991 til 1993 og nær um 2,4 tonna meðalafla á togtíma haustið 1993. Aflinn er hins vegar áfram lélegur á norðursvæðinu eða innan við 100 kg á togtíma (mynd 1) og breytingar á afla fyrst og fremst milli sumars og hausts fremur en milli ára.
    Jafnframt auknum afla á suðursvæðinu hefur stærðarsamsetning ýsunnar orðið mun betri en var á árunum 1991 og 1992 þó að hlutfall undir viðmiðunarmörkum (<48 cm) sé enn 50–60%. Þess ber þó að minnast að hér er veitt með smáriðnari poka en gerist við venjubundnar togveiðar á ýsu á grunnslóð.
    Þorskafli á svæðinu hefur farið vaxandi, bæði í þessum rannsóknarleiðöngrum og hjá línu- og handfærabátum. Hefur afli í togi, t.d. í sumarleiðangri 1993, komist upp í um 800 kg sem gerir um 400 til 500 kg á togtíma. Er hér aðallega um ungþorsk að ræða úr árgöngunum frá 1990 og 1991. Í hólfi, sem opið var í tvo og hálfan mánuð samkvæmt reglugerð vestur af Heimaey sumarið 1993, fengu tog- og dragnótabátar allgóðan þorskafla í júní.
    Afli á króka fer einnig vaxandi á árunum 1992 og 1993. Úrvinnsla á gögnum úr veiði skýrslum fyrir línu og handfæri sýnir að þorsk- og ýsuafli á sóknareiningu fer vaxandi síðastliðin tvö ár (mynd 2) þ.e. eftir að lokunin kom til framkvæmda.






(Myndir 1 og 2)














2.2. Lengdardreifing ýsu árin 1991 til 1993.
    Uppistaða í ýsuveiðinni sumarið 1991 við Vestmannaeyjar var ýsa úr 1985-árgangin um af stærðinni 40 til 55 cm en einnig var vart við tveggja ára ýsu í aflanum. Afli á tog tíma var fremur slakur (mynd 1). Er leið fram á haustið hurfu allir eldri ýsuárgangar úr aflanum og nær einungis fékkst 30 til 40 cm ýsa í leiðangri í nóvember það ár sem var úr árgangi frá 1989. Svipaðar niðurstöður fengust með allri suðurströndinni þetta haust.
    Í tilraunatogum sumarið 1992 var uppistaðan í lengdarmælingum ýsu við Eyjar af stærðinni 25 til 30 cm og 35 til 45 cm og var þetta tveggja og þriggja ára ýsa. Sömu ár gangar voru til staðar á norðursvæðinu en þar var þó mun hærra hlutfall af tveggja ára ýsu og ýsan þar því í heildina tekið smærri. Er kom fram á haust fór afli á suðursvæðinu vaxandi og ýsan stækkandi. Sömu árgangarnir voru áfram yfirgnæfandi í aflanum í til raunatogunum sem tekin voru í október eins og í júlíleiðangri.
    Sumarið 1993 fór magn ýsu í tilraunatogum mjög vaxandi (mynd 1) á suðursvæðinu en fremur litlar aflabreytingar komu fram á norðursvæðinu. Lengdardreifing ýsuaflans sýndi að mest var af 40 til 54 cm ýsu á suðursvæði en 30 til 44 cm á norðursvæðinu (mynd 3). Lengdardreifing ýsuaflans fyrir þessi tvö svæði er því mjög mismunandi og endurspeglar í rauninni árgangaskipanina. Uppistaðan í aflanum á suðursvæði er þriggja og fjögurra ára ýsa (mynd 4). Á norðursvæðinu er yfirgnæfandi hluti ýsuaflans þriggja ára (mynd 4) en einnig fæst eins og tveggja ára ýsa á svæðinu. Það eru sem sagt árgang arnir frá 1989 og 1990 sem eru hér í aðalhlutverki, enda eru þeir taldir mjög sterkir í skýrslum Hafrannsóknastofnunar.
    Munur á lengd ýsu miðað við aldur hefur komið fram milli þessara tveggja svæða undanfarin ár. Þessi munur er ákaflega skýr milli þeirra árganga sem mest er af í aflanum (mynd 5), þ.e. hjá þriggja og fjögurra ára ýsunni. Ekki er hægt að fullyrða af hverju þessi munur stafar, en benda má á að munur á fæðuframboði og gæðum fæðunnar virðist vera mikill milli þessara svæða samkvæmt lauslegum athugunum sem gerðar hafa verið í þess um rannsóknum.
    Mjög svipaðar niðurstöður og hér hafa verið raktar fyrir sumarið 1993 komu fram í tilraunatogum haustið 1993 nema hvað aflinn á suðursvæðinu var enn betri (mynd 1). Þá sýndu mælingar úr línuafla í haust að meir en helmingur aflans var fjögurra ára ýsa og meðallengd hennar kringum 50 cm.











(Myndir 3, 4, 5 og 6.)









2.3. Lengdar- og aldursdreifing þorsks.
    Allt frá sumrinu 1991 hefur orðið vart við smáþorsk í aflanum á suðursvæði og hefur magnið farið vaxandi síðan. Lengdardreifing þorsks á suðursvæðinu í júlí 1992 var frem ur þröng. Uppistaðan í mælingunum var af stærðinni 30 til 70 cm en lítið var af stærri þorski. Tveggja og þriggja ára fiskur var mjög áberandi í aflanum.
    Lengdardreifing þorsks í aflanum í júlí 1993 er frá 30 til 70 cm með toppi við 50 til 60 cm (mynd 6). Hér er aðallega um ókynþroska fisk að ræða og er langmest um þriggja ára fisk, en einnig sést tveggja ára og fjögurra til sex ára (mynd 7). Aldurslengdarsam band þorsksins í júlímælingunni er sýnt á mynd 8. Í mælingum haustsins var magnið mun minna en í sumarmælingunni en lengdardreifing er ekki ósvipuð og þá. Sem fyrr ber mest á þorski frá 40 til 70 cm að lengd. Lítið er af stærri fiski en vart verður við smærri fisk. Árgangaskipan er svipuð og í niðurstöðum sumarsins, mest af þriggja ára þroski, þá tveggja ára en lítið af öðrum aldurshópum (mynd 7).
    Mælingar á línuþorski haustið 1993 sýna að meira en 80% aflans er þriggja ára fiskur og meðallengd er um 62 cm sem kemur mjög vel heim við meðallengd þriggja ára þorsks úr tilraunatogunum (mynd 7).






(Myndir 7 og 8.)












3. Umræða.
    Ýsumagn á suðursvæði hefur stóraukist á þeim tveimur árum sem þriggja mílna lok unin við Eyjar hefur verið í gildi. Einnig hefur þorskafli farið vaxandi. Afli á togtíma í tilraunatogum hefur margfaldast (mynd 1) og afli á línu og handfæri fer vaxandi sam kvæmt aflaskýrslum, hvort sem litið er á ýsu eða þorsk (mynd 2). Aukið ýsumagn má fyrst og fremst rekja til tveggja árganga sem eru í uppvexti á svæðinu, þ.e. árganganna frá 1989 og 1990. Á árinu 1993 var heldur hærra hlutfall af 1990-árganginum í mæling unum. Þetta er í samræmi við að 1990-árgangurinn er talinn heldur sterkari í stofnúttekt Hafrannsóknastofnunar en 1989-árgangurinn. Má búast við enn frekari þyngdaraukningu þessara tveggja árganga á svæðinu á næstu árum og þar með auknum afla ef svæðið fær þá verndun sem það þarf áfram. Yngri árgangar (1991 og 1992) hafa einnig komið fram í togararallinu á svæðinu í kringum eyjar í mars sem bendir til að vænta megi frekari uppbyggingar á næstu árum (mynd 9 og 10).
    Þorskafli hefur einnig glæðst í kringum Eyjar, bæði í tilraunatogunum og á línu og handfæraveiðum. Mest ber á fiski úr 1990-árganginum (mynd 8), en hann hefur gert vart við sig víða við suðurströndina á síðustu tveimur árum. Svo virðist sem stærra hlutfall af klaki þessa árgangs hafi orðið eftir við suðurströndina og Eyjar en raun hefur borið vitni um aðra árganga á síðustu sex árum. Í grein, sem rituð var í Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1993, benti ég á að slíkur ungþorskur gæti gefið aukna veiði á tilteknum svæðum eins og við Eyjar á næstu árum þótt ekki væri um mikla breytingu að ræða fyrir stofnstærð þrosks. Sú virðist líka ætla að verða raunin.
    Um aðrar tegundir er erfitt að ræða þar sem gögn um þær vantar. Þó virðist keiluafli á króka fara hægt vaxandi (mynd 2). Af aflabrögðum á línu haustið 1993 má ráða að steinbítur geri meira vart við sig en verið hefur árin á undan en um þetta liggja þó ekki fyrir nein gögn. Skarkolaafli við Drangana varð minni vorið 1993 en vænst var vegna ótíðar á því tímabili sem það svæði var opið fyrir veiðum með dragnót og botnvörpu. Einnig setti páskastoppið strik í reikninginn fyrir þær veiðar.
    Uppbygging ýsustofnsins á svæðinu norðan Eyja að Þorlákshöfn (norðursvæði) virðist ganga mun hægar fyrir sig en gerist á suðursvæðinu. Segja má að ástandið þar sé í sam ræmi við það sem er að gerast með fjörum austur með suðurströndinni en þar hefur bati látið á sér standa. Á það skal þó bent að á norðursvæðinu er nokkuð um ýsu úr 1990-ár ganginum og þar finnst einnig ýsa úr 1991- og 1992-árganginum. Hér virðast því allra yngstu árgangarnir halda sig og gögn úr togararalli hafa einnig sýnt að svo er. Smáþorsk ur fæst varla í tilraunatogum á þessu svæði.
    Þegar upphaflega var farið af stað með þessar rannsóknir fyrir sex árum voru mjög skiptar skoðanir um það meðal sjómanna og útvegsmanna hvort svæðið kringum Vest mannaeyjar væri uppeldissvæði fyrir þorsk og ýsu og fleiri tegundir. Þær niðurstöður, sem hér hafa verið settar fram, sýna svo ekki verður um villst að bæði þorskur og ýsa eiga sér uppeldissvæði kringum Eyjar. Þessar tegundir komu strax fram í tilraunatogum sem eins árs og tveggja ára fiskur og niðurstöður aldursgreininga, sem hér er byggt á, sýna að þriggja til fjögurra ára ýsa á árinu 1993 og tveggja til þriggja ára þorskur á árinu 1993 eru orðin veigamikill hluti í afla tilraunatoganna. Þorskur virðist vaxa afar hratt á svæðinu árin 1992 og 1993 eins og kemur fram á aldurslengdarsamböndum. Af þessum sökum kemur hann mun fyrr inn í veiðarnar hér sem nýtanlegur fiskur en á svæðum fyr ir austan og norðan land.

4. Lokaorð.
    Lokun veiðisvæða kringum Vestmannaeyjar (suðursvæði) fyrir dragnóta- og togveiðar færum hefur nú þegar skilað svo miklum árangri. Það er engum vafa undirorpið að líf á svæðinu í kringum Vestmannaaeyjar (suðursvæði) hefur farið mjög vaxandi á síðustu tveimur árum og hefur í rauninni gjörbreyst til hins betra. Því tel ég mjög nauðsynlegt að halda áfram þeim lokunum sem verið hafa í gildi gagnvart veiðum með botnvörpu og dragnót. Það væri mikil skammsýni að opna svæðið fyrir veiðum stórtækra veiðiskipa og gæti á skömmum tíma lagt í rúst þá uppbyggingu sem orðið hefur á svæðinu. Enda hefur sjávarútvegsráðuneytið ákveðið að svæðið skuli vera lokað áfram fyrir veiðum með botn vörpu og dragnót. Útibú Hafrannsóknastofnunar í Vestmannaeyjum mun halda áfram reglubundnum rannsóknum á fiskgengd á svæðinu.







(Myndir 9 og 10)



Fylgiskjal II.


ÞRÓUN AFLAHEIMILDA HAMARS SH 224 Í KVÓTAKERFI



Afli á viðmiðunarárum og aflamark frá 1984–93/94.


Afli og aflamark í sl. tonnum, nema karfi er óslægður.


Tekið saman af Birni Jónssyni starfsmanni LÍÚ 1. febrúar 1994.


Skrn.     ár     þ     ý     u     k     g     s
0253 meðalafli á viðmiðunarárum               720     78     32     3     0     0
                        1984     482     75     74     6     0     24
                        1985     498     69     71     6     0     –
                        1986     548     69     71     5     0     –
                        1987     575     69     71     5     0     –
                        1988     541     76     78     5     0     –
                        1989     487     76     78     5     0     –
                        1990     438     76     87     5     0     –
(8 mán kvóti)          91/91     380     56     70     4     0     1
                        91/92     362     55     72     6     0     2
                        92/93     259     65     84     6     0     2
                        93/94     195     65     77     5     0     2
Skerðing v/smábáta skv. frumvarpi          94/95     172     63     76     5     0     2


Heildarafli af veiddum þorski samkvæmt skýrslum Fiskifélags Íslands.


    
Hlutdeild í heildar-

    Þús. tonn     þorskafla (%)
1983               292     0,246
1984               281     0,172
1985               322     0,155
1986               365     0,150
1987               389     0,148
1988               375     0,144
1989               354     0,138
1990               333     0,132
1991               306     0,124
1992               266     0,136
1993               215     0,120
1994               165     0,118
1995 samkvæmt frumvarpi          165     áætlað:     0,104

    Hamar hefur hvorki selt né keypt varanlegan kvóta frá upphafi kvótakerfis.


Fylgiskjal III.

Kvótamarkaðurinn:

Verð á aflaheimildum.


(2. desember 1998.)


         Síðasta kvótasala          Lægsta sölut.               Hæsta kaupt.     
Tegund     Leiga     Varanleg     Leiga     Varanleg     Leiga     Varanleg
Þorskur          77     260     -     -     77
200 veiddur

Ýsa                    8     80     8     80     7     -
Ufsi               7     60     7     60     6     -
Karfi               18     80     -     -     18     80
Grálúða          -     160     35     -     20     160
Koli               18     125     18     125     -     -
Rækja          28     85     -     -     30     130
Humar          340     1.800     320     1.800     -     -
Síld                    2,80     11     -     -     2,7     11
Loðna          0,40     -     -     1%=60 millj.     -     -
Undirstrikað eldra en eins mánaðar sala

Leigukvóti
Til sölu:
kr./kg

Ýsa
8

Ufsi
7

Skarkoli
18

Humar
320

Grálúða
35

Vantar:
Þorskur
77

Ýsa
7

Ufsi
6

Karfi
18

Rækja
30

Síld
Tilb.
Varanlegt
Til sölu:
kr./kg

Ýsa
80

Ufsi
60

Skarkoli
125

Humar
1.800


Vantar:
Rækja
130

Grálúða
160

Þorskur
260

Síld
11

Margir möguleikar á skiptum.


    Skipti innan ársins     (á>vantar)     Varanleg skipti
    humar     >     rækja     |     50t ufsi     >     ýsa
    þorskur     >     rækja     |     90t koli     >          þorskur
    koli     >     þorsk     |     karfi og koli     >     rækja
    grálúða     >     rækja     |     karfi     >     koli
    ufsi     >     koli     |     ufsi og ýsa     >     koli
    koli     >     rækja     |     þorskur     >     rækja
    þorskur     >     karfi     |     50t koli     >     rækja
    humar     >     þorskur     |     50t rækja     >     grálúða
    karfi     >     grálúða     |     ufsi     >     rækja
    karfi|grálúða|ufsi     >     koli/ýsa     |     humar     >     koli
    72 ufsi|11               |
      rækja|8 karfi     >     49 þorsk.+pen.     |     rækja     >     síld
                        humar     >     rækja
Fylgiskjal IV.

20 stærstu kvótahafar landsins.




(REPRÓ súlurit)





Fylgiskjal V.


Úr frumvarpi til laga um samningsveð.


(Þskj. 88, 88. mál 118. löggjafarþings.)



E. Veð í búnaði skipa, afla, sjávarafurðum og rekstrarvörum sjávarútvegs.


31. gr. Búnaður skipa og veiðiheimildir.


    1. Þeim er veðsetur skip er rétt að semja svo um að skipinu skuli fylgja, auk venju legs fylgifjár, annað lausafé sem ætlað er til nota á skipinu, svo sem olíubirgðir þær sem í skipinu eru hverju sinni, veiðarfæri, skipsbúnaður og önnur áhöld.
    2. Veðsetningin gerist samtímis veðsetningu viðkomandi skips. Veðrétturinn öðlast réttarvernd með skráningu á blað veðsala í skipabók í samræmi við ákvæði þinglýsinga laga.
    3. Þegar skip er sett að veði er heimilt að semja í veðbréfi að veðrétturinn nái einnig til veiðiheimilda skips.
    4. Ákvæði 3., 5. og 6. mgr. 24. gr. og 1.–4. mgr. 27. gr. eiga hér við, eftir því sem við getur átt.



Fylgiskjal VI.


Úr skýrslu Rannsóknarstofnunar fiskiðnaðarins.




(REPRÓ 1 síða)




Fylgiskjal VII.

Ýmsar núgildandi sóknartakmarkanir.




(REPRÓ ÍSLANDSKORT)



Fylgiskjal VIII.


Fiskifélag Íslands:

Afli Íslendinga á helstu fisktegundum.




Fylgiskjal IX.

Nokkrar ályktanir 53. fiskiþings 1994.


(Haldið 19.–21. október 1994.)




(Repró 2 síður — klippa saman.)





Fylgiskjal X.


Ályktanir formannaráðstefnu Farmanna- og fiskimanna-


sambands Íslands um stjórn fiskveiða.


(Haldin 21. og 22. nóvember 1994.)




Repró 3 síður.




Fylgiskjal XI.


Ályktun samtaka fiskvinnslustöðva.


    Aðalfundur Samtaka fiskvinnslustöðva haldinn 23. september 1994 samþykkir að fela stjórn SF að leita samstarfs við Landssamband íslenskra útvegsmanna um að fram fari ítarleg úttekt á núverandi stöðu botnfiskveiða og vinnslu. Stefnt verði að því að úttektinni verði lokið fyrir næstu áramót.



Fylgiskjal XII.


Nokkrar ályktanir aðalfundar Landsambands íslenskra útvegsmanna.




(REPRÓ 6 síður.)





Fylgiskjal XIII.


Samstarfsnefnd um bætta umgengni um auðlindir sjávar:

Tillögur um úrræði gegn útkasti fisks og löndun fram hjá vigt.


Áfangaskýrsla til sjávarútvegsráðherra.


(Desember 1994.)




Repró 10 síður.




Fylgiskjal XIV.


Þórður Ásgeirsson:

Veiðieftirlit Fiskistofu.


Erindi flutt á aðalfundi Landssambands íslenskra útvegsmanna.


(28. október 1994.)



Repró 6 síður




Fylgiskjal XV.


Ályktanir 10. aðalfundar Landsambands smábátaeigenda.





Repró 8 síður.