Ferill 296. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 296 . mál.
388. Tillaga til þingsályktunar
um viðmiðun lágmarkslauna við reiknaðan lágmarksframfærslukostnað.
Flm.: Kristín Sigurðardóttir, Guðrún J. Halldórsdóttir, Jóna Valgerður Kristjánsdótt
Kristín Ástgeirsdóttir, Kristín Einarsdóttir.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að vinna að því að enginn launþegi í fullu starfi þurfi að sæta launakjörum undir því marki sem reiknaður lágmarksframfærslukostnaður gefur. Markmiði þessu verði náð með lagasetningu, samningum eða öðrum ráðum og verkefninu lokið innan tveggja ára.
Greinargerð.
Lægstu laun í landinu hafa um langt árabil verið svo lág að þau duga engan veginn fólki á lægstu launatöxtum. Miðað við þær kröfur og aðstæður, sem eru í samfélagi okk
Það er óþolandi ástand að atvinnurekendum líðist að nýta sér fulla starfskrafta fólks án þess að greiða því laun sem duga til eðlilegrar framfærslu. Slíku má jafna við þræla
Reyndar er ekki við atvinnurekendur eina að sakast varðandi þetta ástand. Allir þekkja hinn óformlega launastiga verkalýðshreyfingarinnar þar sem flestir hópar miða við ákveðið bil milli sín og annarra hópa, bæði þeirra sem hafa hærri laun og hinna sem hafa lægri. Menn reyna er að koma í veg fyrir að hinir lægra launuðu nálgist um of og leitast við að fylgja hækkunum hinna hærra launuðu fast eftir. Þessi viðhorf hafa m.a. komið í veg fyrir varanlegar leiðréttingar lægstu launa.
Flutningsmenn hafna þeim nauðhyggjurökum að þessu ástandi verði ekki breytt.
Kvennalistakonur hafa ítrekað flutt frumvarp um lögbindingu lægstu launa við eðli
Ýmsar leiðir eru færar til þess að meta lágmarksframfærslu, t.d. kannanir á högum lág
Þingsályktun um athugun á lágmarksframfærslukostnaði var samþykkt á Alþingi 20. desember 1990. Flutningsmaður var Stefán Valgeirsson. Ályktunin hljóðaði svo eftir afgreiðslu þingsins:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að skipa nefnd til að vinna að athugun á lágmarks
Nefndin skili greinargerð um störf sín fyrir árslok 1991.“
Það á því þegar að vera til staðar viðmiðun til að vinna út frá og þessa niðurstöðu þarf aðeins að framreikna.
Grundvallarkrafa í mannúðlegu samfélagi er að fullvinnandi manneskja geti framfært sig. Niðurstöður misfrjálsra samninga hafa þó leitt til þess að stór hluti launþega fer afskiptur frá samningaborðinu og bíður því líf undir fátæktarmörkum. Tilgangur þessarar tillögu er að hindra slíka nauðasamninga.