Ferill 301. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 301 . mál.
394. Tillaga til þingsályktunar
um dreifingu sjónvarps og útvarps.
Flm.: Stefán Guðmundsson, Finnur Ingólfsson, Páll Pétursson,
Guðni Ágústsson, Ingibjörg Pálmadóttir, Jón Kristjánsson,
Pétur Bjarnason, Valgerður Sverrisdóttir.
Alþingi ályktar að fela menntamálaráðherra að sjá svo um að á næstu tveimur árum verði fjármagn tryggt svo að standa megi við afdráttarlausa viljayfirlýsingu Alþingis frá 11. maí 1988 um að komið verði upp þeim búnaði sem þörf er á svo að allar útsendingar útvarps og sjónvarps náist hvar sem er á landinu og á helstu fiskimiðum við landið.
Greinargerð.
Árið 1987 flutti fyrsti flutningsmaður þessarar þingsályktunartillögu svohljóðandi tillögu um sama efni:
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að sjá svo um að á næstu þrem árum (1988, 1989 og 1990) verði nægjanlegt fjármagn tryggt svo að koma megi upp þeim búnaði sem þarf til þess að allar útsendingar Ríkisútvarpsins frá stöðvum þess í Reykjavík náist hvar sem er á landinu.
Í framhaldi af því samþykkti Alþingi 11. maí 1988 svofellda ályktun:
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta nú þegar gera kostnaðar- og framkvæmdaáætlun um að útsendingar Ríkisútvarpsins, þ.e. hljóðvarps og sjónvarps, náist hvar sem er á landinu og á helstu fiskimiðum við landið.
Áætlunin miðist við að hægt verði að framkvæma þetta verkefni fyrir árslok 1991.
Engum vafa er undiropið að vilji Alþingis var sá með samþykkt ályktunarinnar að efni tillögunnar yrði framkvæmt, þ.e. að búið yrði þannig að dreifikerfi hljóðvarps og sjón
Sú staðreynd blasir við að enn hefur ekki tekist að dreifa hljóðvarps- og sjónvarps
Flutningsmenn þessarar þingsályktunartillögu hafa upplýsingar um að um 50 bæir hafa óviðunandi myndgæði sjónvarps og um 30 slæm gæði myndar. Þetta ástand er ekki viðunandi enda í andstöðu við markaða stefnu í útvarpsmálum. Sú stefna hlýtur að gilda um allar aðalsendingar á vegum Ríkisútvarpsins, hvort heldur um hljóðvarpið er að ræða með sínar tvær rásir eða sjónvarpið.
Ríkisútvarpið hefur miklum skyldum að gegna við fólkið í landinu enda standa lands
Með skipulegum áætlunum og viðeigandi áherslum við röð framkvæmda hjá Ríkisútvarpinu og auknu framkvæmdafé ætti að vera unnt að ná því takmarki sem þessi þingsályktunartillaga stefnir að.