Ferill 309. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 309 . mál.
429. Frumvarp til laga
um köfun.
(Lagt fyrir Alþingi á 118. löggjafarþingi 1994.)
1. gr.
Enginn má stunda atvinnuköfun í ám eða vötnum við strendur landsins eða frá íslenskum skipum hér við land nema viðkomandi fullnægi þeim skilyrðum sem sett eru í lögum þessum.
Óheimilt er að ráða til köfunarstarfa aðra en handhafa atvinnuköfunarskírteina.
2. gr.
Atvinnuköfun merkir í lögum þessum allar þær athafnir sem falla undir og eru liður í atvinnustarfsemi kafarans eða annarra aðila. Einnig telst það vera atvinnuköfun ef athöfnin er liður í skipulagðri þjónustustarfsemi til verndunar almannahagsmuna.
Áhugaköfun merkir í lögum þessum allar þær athafnir sem teljast til köfunar samkvæmt lögum þessum en falla ekki undir ákvæði 1. mgr. þessarar greinar um atvinnuköfun.
Köfun merkir í lögum þessum þær athafnir manna sem fara fram undir yfirborði vatns eða sjávar þar sem líkaminn er undir meiri þrýstingi en sem nemur 50 hektópaskölum (50 mbar) yfir loftþrýstingi á yfirborði jarðar og notast er við tæki sem eru hluti af viðurkenndum köfunarbún
Köfunarbúnaður merkir í lögum þessum allan þann búnað sem notaður er við köfun.
3. gr.
Hver sem vill stunda atvinnuköfun skal fullnægja eftirfarandi skilyrðum:
1 . vera fullra 20 ára,
2 . standast með fullnægjandi hætti heilbrigðiskröfur sem settar verða í reglugerð,
3 . uppfylla menntunar- og hæfniskröfur,
4 . hafa gilt atvinnuköfunarskírteini útgefið af Siglingamálastofnun ríkisins.
Sá sem stundar áhugaköfun skal uppfylla skilyrði 2. tölul. þessarar greinar og vera 17 ára eða eldri.
4. gr.
Siglingamálastofnun ríkisins gefur út skírteini samkvæmt lögum þessum og skulu þau rituð á þar til gerð eyðublöð.
Kafaraskírteini gildir til fimm ára í senn. Samgönguráðherra setur reglur um skilyrði til end
Hver sá sem fullnægir skilyrðum þeim sem sett eru í lögum þessum og reglugerðum settum samkvæmt þeim á rétt á að fá skírteini sem veitir viðeigandi atvinnuréttindi.
Siglingamálastofnun ríkisins skal halda nákvæma skrá um handhafa atvinnuskírteina.
5. gr.
Allur köfunarbúnaður skal vera viðurkenndur af Siglingamálastofnun ríkisins og merktur eftir því sem nauðsyn krefur. Siglingamálastofnun skal viðurkenna búnað sem hlotið hefur formlega viðurkenningu annars aðildarríkis EES.
Eigandi köfunarbúnaðar ber ábyrgð á því að búnaðurinn fullnægi skilyrðum 1. mgr.
6. gr.
Siglingamálastofnun ríkisins hefur umsjón og eftirlit með framkvæmd laga þessara.
Ráðherra setur nánari reglur um framkvæmd laga þessara.
7. gr.
Rannsóknarnefnd sjóslysa skal sjá um að fram fari rannsókn á slysum og óhöppum er verða við köfun.
Við rannsókn einstakra köfunarslysa er nefndinni heimilt að tilnefna menn með sér
8. gr.
Brot á lögum þessum og reglum settum samkvæmt þeim varða sektum og/eða svipt
9. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi. Jafnframt falla úr gildi lög nr. 12/1976, um kafarastörf.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Frumvarp þetta var samið á vegum samgönguráðuneytis. Leitað var umsagnar hags
Með gildandi lögum nr. 12/1976, um kafarastörf, var þeim mönnum sem stunda at
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Í 1. mgr. þessarar greinar kemur fram sú meginregla að þeir sem stunda atvinnuköf
Í greininni er lögð sú skylda á herðar vinnuveitenda að ráða ekki til kafarastarfa aðra en handhafa atvinnuköfunarskírteina. Er tilgangur þessa ákvæðis augljós sem er fyrst og fremst sá að sporna við því að réttindalausir einstaklingar taki að sér slíka vinnu og skapi hættu.
Um 2. gr.
Í 1. mgr. þessarar greinar er hugtakið atvinnuköfun skilgreint. Á undanförnum árum hefur það verið miklum vafa undirorpið hvernig skilgreina beri atvinnuköfun og hefur verið mikið ósamræmi í túlkun þess. Vafi hefur t.d. leikið á því hvort athafnir kafara í skipulagðri sjálfboðavinnu eða annarri þjónustustarfsemi, svo sem kafanir björgunar
Enn fremur má nefna dæmi um söfnun ígulkera, ljósmyndaköfun, leiðbeinendur við köfun og fleira. Söfnun ígulkera hefur verið talin atvinnuköfun ef kafarinn selur vinnu sína sem kafari en annar aðili selur ígulkerin. Hins vegar hefur það verið talin áhuga
Hér er valin sú leið að hafa skilgreingu á atvinnuköfun rúma svo það ráði ekki úr
Þessi skilgreining er einnig til þess fallin að eyða þeim mikla vafa sem verið hefur á túlkun hugtaksins atvinnuköfun og hvatt til ósamræmis. Með mismunandi menntunar- og hæfniskröfum í reglugerð verður síðan unnt að koma til móts við þarfir t.d. neyðarþjón
Hugtakið áhugaköfun (sportköfun) er skilgreint í 2. mgr. sem allar athafnir sem telj
Í 3. mgr. er hugtakið köfun skilgreint. Samkvæmt orðalagi 2. gr. núgildandi laga um kafarastörf má ætla að áhafnir kafbáta og aðila sem nota reykköfunarbúnað falli undir lögin. Af þessum sökum og vegna eðlis þeirrar hættu sem fólgin er í þeim eðlisfræði
Í 4. mgr. er hugtakið köfunarbúnaður skilgreint.
Um 3. gr.
Í 1. mgr. koma fram þau skilyrði sem aðili er áformar að stunda atvinnuköfun í skiln
Í 2. mgr. eru sett fram skilyrði sem áhugafólk (sportkafarar) verða að uppfylla til þess að mega stunda köfun. Hættueiginleikar köfunar kalla á aukið aðhald með þeim aðilum er stunda köfun sér til ánægju og yndisauka. Er þess krafist samkvæmt þessu ákvæði að áhugakafarar fullnægi skilyrðum 2. tölul. um læknisskoðun og séu orðnir 17 ára að aldri. Ber m.a. leiðbeinendum og öðrum þeim aðilum er sjá um kennslu að athuga hvort við
Um 4. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringar.
Um 5. gr.
Í 1. mgr. kemur fram að Siglingamálastofnun ríkisins viðurkennir köfunarbúnað. Samkvæmt skilgreiningu 3. mgr. 2. gr. á köfunarbúnaði er þar átt við öll þau tæki sem notuð eru við köfun. Þessi tæki gegna því hlutverki að halda kafaranum á lífi í súrefn
Í 2. mgr. er lögð sú ábyrgð á eigendur köfunarbúnaðar að sjá til þess að búnaðurinn uppfylli skilyrði 1. mgr. um viðurkenningu.
Um 6. gr.
Samkvæmt 11. tölul. 1. mgr. 2. gr. laga nr. 20/1986 annast Siglingamálastofnun rík
Í 2. mgr. er heimild fyrir ráðherra samgöngumála til að setja nánari reglur um fram
Um 7. gr.
Tilgangur þessarar greinar er að færa rannsókn slysa frá hinum opinbera eftirlitsað
Um 8. gr.
Ljóst þykir að öryggissjónarmið krefjast þess að hart verði tekið á brotum samkvæmt lögum þessum. Í þessari grein kemur fram heimild til þess að sekta og/eða svipta menn réttindum gerist þeir brotlegir við ákvæði laganna eða reglugerða settra samkvæmt þeim.
Um 9. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringar.
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til laga um köfun.
Með frumvarpinu er kveðið á um nýja heildarlöggjöf um köfunarstarfsemi og kem
Frumvarpið hefur ekki í för með sér kostnaðarauka fyrir ríkissjóð.