Ferill 66. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 66 . mál.


443. Framhaldsnefndarálit



um frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1994.

Frá meiri hluta fjárlaganefndar.



    Þann 9. desember sl. fór fram 2. umr. um frumvarp til fjáraukalaga fyrir árið 1994. Meiri hluti fjárlaganefndar gerði þá 23 breytingartillögur við frumvarpið sem allar hlutu samþykki þingsins. Í ræðu formanns kom fram að fjallað hafði verið um nokkur mál til viðbótar í nefnd inni en að ákvörðun um þau hefði verið frestað til 3. umr.. Umfjöllun um þau mál er nú lokið í nefndinni og leggur meiri hluti hennar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim fimm breytingum sem gerðar eru tillögur um á þingskjali 444, en þær nema alls 194 m.kr. Einstakar breytingartillögur eru skýrðar í athugasemdum með álitinu, auk þess sem fjallað verður um þær í framsögu. Í töflunni hér að neðan er yfirlit um fjárheimildir ráðuneyta árið 1994 og þær breyt ingar sem meiri hluti nefndarinnar hefur gert tillögur um við 2. og 3. umr. frumvarpsins.


Fjárheimildir ráðuneyta 1994.




    Fjárlög     Frv. til     Breytingar-     Alls nýjar     Yfirfærðar     Heimildir
    1994     fjáraukalaga     tillögur     heimildir     heimildir     ársins
Greiðslugrunnur     m.kr.     m.kr.     m.kr.     m.kr.     m.kr.     m.kr.

00 Æðsta stjórn          1.093,0     59,3     1,0     1.153,3     45,1     1.198,4
01 Forsætisráðuneyti          493,8     363,0     70,0     926,8     45,9     972,7
02 Menntamálaráðuneyti          16.737,2     61,0     -45,7     16.752,5     735,9     17.488,4
03 Utanríkisráðuneyti          1.575,0     55,3     -     1.630,3     63,1     1.693,4
04 Landbúnaðarráðuneyti          6.862,6     34,9     53,5     6.951,0     108,7     7.059,7
05 Sjávarútvegsráðuneyti          1.089,8     -192,0     -     897,8     61,4     959,2
06 Dóms- og kirkjumálaráðuneyti          5.417,2     611,0     -     6.028,2     243,1     6.271,3
07 Félagsmálaráðuneyti          5.811,7     6,7     68,0     5.886,4     233,2     6.119,6
08 Heilbr.- og tryggingam.ráðuneyti          47.673,9     1.499,0     421,0     49.593,9     88,7     49.682,6
09 Fjármálaráðuneyti          16.200,9     696,0     -206,0     16.690,9     247,0     16.937,9
10 Samgönguráðuneyti          8.908,1     434,5     9,0     9.351,6     9,5     9.361,1
11 Iðnaðarráðuneyti          1.021,2     73,0     20,0     1.114,2     13,8     1.128,0
12 Viðskiptaráðuneyti          168,2     -     -     168,2     11,5     179,7
13 Hagstofa Íslands          146,6     -     -     146,6     9,8     156,4
14 Umhverfisráðuneyti          582,4     7,0     -     589,4     7,0     596,4
Samtals          113.781,6     3.708,7     390,8     117.881,1     1.923,7     119.804,8


SKÝRINGAR VIÐ EINSTAKAR BREYTINGARTILLÖGUR



01 Forsætisráðuneyti



221    Byggðastofnun. Gerð er tillaga um 50 m.kr. viðbótarframlag til að fjármagna stuðning stofnunarinnar við atvinnuuppbyggingu á þeim svæðum sem hafa orðið fyrir mestum samdrætti í sauðfjárframleiðslu. Sú fyrirgreiðsla er í samræmi við fjárhagslegar stuðningsað gerðir ríkisvaldsins sem tilgreindar eru í viðauka II við búvöru samninginn frá 11. mars 1991. Sambærilegt framlag var samþykkt við 2. umr. um frumvarp til fjáraukalaga ársins 1993.
                  Þá er einnig gerð tillaga um 20 m.kr. viðbótarframlag til að fjármagna stuðning stofnunarinnar við útgerðir smábáta með aflamark sem hafa sætt mikilli skerðingu á aflaheimildum.
                  Byggðastofnun hefur unnið skýrslu og greinargerð um stöðu sauðfjárræktar í land inu. Þar er bent á að sauðfjárrækt er víða á landinu afar mikilvæg.
                  Vakin er athygli á því að laun sauðfjárbænda af sauðfjárframleiðslu hafa lækk að hlutfallslega meira en nemur hlutfallslegum samdrætti sauðfjárframleiðslu.
                  Í skýrslunni er bent á þau landsvæði þar sem sauðfjárræktin er mikilvægust og samdráttur í greininni hefur haft og mun hafa mestar afleiðingar.
                  Til þess að takast á við vanda á sauðfjárræktarsvæðum er gert ráð fyrir að auka framlag Byggðastofnunar sem nemur 50 m.kr.
                  Tillagan miðast við að aðgerðir sem Byggðastofnun beitir sér fyrir á sauðfjár ræktarsvæðum verði byggðar á eftirgreindum meginforsendum:
         —    Veittir verði styrkir og/eða lán til nýjunga í atvinnulífi á svokölluðum sauð fjárræktarsvæðum og til þess að styrkja þá starfsemi sem fyrir er og tengist sauðfjárframleiðslu. Verði m.a. veittir styrkir til afurða- og vinnslustöðva á sauðfjárræktarsvæðum er geri þeim kleift að fá viðurkenningu til útflutnings á mikilvæg erlend markaðssvæði.
         —    Efnt verði til sérstakra átaksverkefna á hverju svæði í samstarfi við heima menn sem hafi það markmið að efla frumkvæði til nýjunga í atvinnulífi.
                  Byggðastofnun hefur í nokkrum mæli veitt smábátaeigendum lánafyrirgreiðslu. Í ljósi mikillar skerðingar á aflaheimildum smábáta með aflamark er talið nauðsyn legt að koma til móts við þann útgerðarflokk með sérstökum aðgerðum. Í þeim til gangi er gert ráð fyrir að veita 20 m.kr. viðbótarframlag til Byggðastofnunar. Er gert ráð fyrir að Byggðastofnun ráðstafi þeim fjármunum með því að veita styrki og lán til þeirra smábátaútgerða sem hafa aflamark.
                  Fyrirgreiðslan taki mið af skerðingu á aflamarki í þorskígildum að teknu tilliti til breytinga á aflamarki vegna sölu á aflaheimildum og heildarafkomu hverrar útgerð ar. Einnig verði tekið tillit til úthlutana Hagræðingarsjóðs. Við afgreiðslu Byggða stofnunar verði tekið tillit til þeirrar fyrirgreiðslu sem Fiskveiðasjóður mun veita út gerðum aflamarksbáta.

02 Menntamálaráðuneyti



997    Uppgjör við sveitarfélög. Lagt er til að fjárheimild á þessum lið verði aukin um 7 m.kr. til að ljúka uppgjöri á byggingu grunnskóla Stöðvarfjarðar.

04 Landbúnaðarráðuneyti



811    Búnaðarfélag Íslands. Í lögum um ráðstafanir í ríkisfjármálum fyrir árið 1992 var lögum breytt í þá veru að allur réttur til framlaga samkvæmt jarðræktarlögum væri háður fjárveitingu Alþingis. Með þessu ákvæði var verið að tryggja að frá og með árinu 1992 myndaðist ekki sjálfkrafa réttur til framlaga samkvæmt jarðræktarlög um. Frá því að þessi breyting var gerð hefur mikill þrýstingur verið á stjórnvöld að veita framlög vegna byggingar áburðarhúsa og vatnsveitna. Er til þess vitnað að þær jarðabætur séu að stórum hluta til komnar vegna stjórnvaldsákvæða um hreinlæti við mjólkurframleiðslu.
                  Meiri hluti fjárlaganefndar hefur ákveðið í samráði við landbúnaðarráðherra og fjármálaráðherra að leggja til 40 m.kr. framlag vegna áburðarhúsa og vatnsveitna sem byggð voru á árunum 1992 og 1993, enda uppfylli jarðabætur þessar skilyrði jarð ræktarlaga um greiðslur framlags. Jafnframt vilja sömu aðilar láta það koma skýrt fram að ekki verði um frekari fjárveitingar að ræða til framkvæmda samkvæmt jarð ræktarlögum.

07 Félagsmálaráðuneyti



801    Jöfnunarsjóður sveitarfélaga. Lagt er til að fjárheimild liðarins hækki um 65 m.kr. Sjóðurinn fær 1,4% af skatttekjum ríkisins í sinn hlut. Fjármálaráðuneytið hefur nú endurskoðað tekjuáætlun ríkissjóðs fyrir yfirstandandi ár í tengslum við 3. umr. um fjárlagafrumvarp næsta árs og tekur tillagan mið af þeirri hækkun skatttekna sem þar er gert ráð fyrir.

09 Fjármálaráðuneyti



999    Ýmislegt. Á viðfangsefninu 1.19 Ýmsar endurgreiðslur undir þessum lið hafa á undanförnum árum farið fram endurgreiðslur á aðflutningsgjöldum og virðisauka skatti til björgunarsveita af innflutningi þeirra á björgunartækjum. Lagt er til að fjár heimild þessa viðfangsefnis verði aukin um 10 m.kr. til að mæta þeim vanda sem björgunarsveitirnar standa frammi fyrir á yfirstandandi ári vegna endurnýjunar tækja búnaðar.
                  Í frumvarpi til fjáraukalaga ársins 1994 er gert ráð fyrir að veita 1 m.kr. til greiðslu verðjöfnunargjalda á viðfangsefninu 1.81 Verðjöfnunargjöld vegna útflutn ings . Sú fjárhæð hefur nú verið endurmetin og er lagt að heimildin hækki um 2 m.kr.

Alþingi, 20. des. 1994.



    Sigbjörn Gunnarsson,     Sturla Böðvarsson.     Einar K. Guðfinnsson.
    form., frsm.          

    Gunnlaugur Stefánsson.     Árni Johnsen.     Árni M. Mathiesen.