Ferill 313. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 313 . mál.
453. Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um skráningu skipa, nr. 115/1985, með síðari breytingum.
(Lagt fyrir Alþingi á 118. löggjafarþingi 1994.)
1. gr.
1. gr. laganna orðast svo:
Skráningarskylt eftir lögum þessum er sérhvert skip sem er 6 metrar á lengd eða stærra mælt milli stafna. Rétt er að skrá skip hér á landi þegar íslenskir ríkisborgarar sem eiga lögheimili hér á landi eða íslenskir lögaðilar, sem eiga heimili hér á landi, eiga það. Þennan rétt hafa einnig ríkisborgarar annarra ríkja Evrópska efnahagssvæðisins frá og með gildistöku samnings um hið Evrópska efnahagssvæði samkvæmt nánari ákvæðum sem ráðherra setur með reglugerð. Til fiskveiða hér á landi má aðeins skrá skip og báta sem eru í eigu íslenskra ríkisborgara sem eiga lögheimili hérlendis og lögaðila sem eiga heimili hér á landi og eru að öllu leyti eign íslenskra ríkisborgara sem eiga lögheimili hér á landi.
Samgönguráðherra er heimilt að leyfa þegar sérstakar ástæður mæla með því að kaupskip, sem íslensk útgerð rekur samkvæmt samningi, megi skrá hér á landi enda þótt skilyrðum þeim um eignarhald, sem um getur í 1. mgr., sé ekki fullnægt. Skilyrði leyfisveitingar eru:
a. Að útgerð skips hafi lögheimili og varnarþing hér á landi.
b. Að skip uppfylli ákvæði íslenskra laga og reglna um eftirlit með skipum.
c. Að áhöfn skips sé íslensk. Veita má undanþágu frá skilyrði þessa stafliðar enda liggi fyrir samþykki viðkomandi samtaka sjómanna.
d. Að skip hafi verið fellt af skipaskrá fyrra skráningarlands.
e. Að veðbönd, sem hvíla á skipi þegar skráning þess fer fram hérlendis eða stofnast í því eftir að það er skráð, séu skráð hjá viðkomandi þinglýsingardómurum hér á landi.
2. gr.
Við 1. mgr. 15. gr. laganna bætist nýr töluliður, 6. tölul., svohljóðandi:
6. Ef Þróunarsjóður hefur greitt styrk vegna úreldingar skipsins í samræmi við lög um Þróunarsjóð sjávarútvegsins, nr. 92/1994, með síðari breytingum.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Með 24. gr. laga um breytingu á lagaákvæðum er varða fjárfestingu erlendra aðila í atvinnu
Með 24. gr. laga nr. 23/1991 féll niður 2. og 3. mgr. 1. gr. laga um skráningu skipa, nr. 115/1985, en þær kváðu á um að heimilt væri að skrá hér á landi kaupskip sem ís
Um 2. gr.
Hér er lagt til að bætt verði við nýrri ástæðu fyrir afskráningu skips. Er það gert til samræmis við ákvæði laga um Þróunarsjóð sjávarútvegsins, enda er rétt og eðlilegt að hafa tæmandi talningu á þeim tilvikum sem leiða til afskráningar skipa í þeirri löggjöf sem fjallar sérstaklega um skráningu skipa.
Um 3. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringa.
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til laga
um breytingu á lögum um skráningu skipa.
Með frumvarpinu er kveðið á um skráningu skipa í eigu erlendra aðila á Íslandi.
Frumvarpið hefur ekki í för með sér kostnaðarauka fyrir ríkissjóð.