Ferill 321. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 321 . mál.
486. Tillaga til þingsályktunar
um lagaráð Alþingis.
Flm.: Páll Pétursson.
Alþingi ályktar að setja á stofn lagaráð til ráðgjafar um lögfræðileg álitaefni, einkum hvað varðar stjórnarskrá lýðveldisins, mannréttindi og alþjóðlegar skuldbindingar og til að gæta lagasamræmis. Skylt verði að leggja fyrir lagaráð öll stjórnarfrumvörp þar sem reyna kann á ákvæði stjórnarskrár.
Lagaráð skal skipað þremur mönnum, einum tilnefndum af Lagastofnun Háskólans, einum tilnefndum af Lögfræðingafélagi Íslands og einum tilnefndum af Dómarafélagi Íslands. Skulu þeir fullnægja skilyrðum um embættisgengi hæstaréttardómara.
Nefndir Alþingis og þingflokkar geta leitað álits lagaráðs.
Kostnaður við störf lagaráðs greiðist af Alþingi.
Greinargerð.
Alþingi skortir mjög óháðan aðila til að kanna og kveða upp úr um lögfræðileg álitaefni. Þetta er einkum bagalegt þegar um er að ræða viðkvæm deilumál er snerta stjórnarskrá Íslands, mannréttindamál og alþjóðlegar skuldbindingar og þegar gæta þarf lagasamræmis. Við síðustu endurskoðun þingskapalaga var rædd sú hugmynd að setja á stofn sérstaka stjórnlaganefnd, skipaða alþingismönnum. Sú hugmynd hlaut ekki byr að því sinni.
Alþingismenn geta leitað ráðgjafar hjá skrifstofu Alþingis og enn fremur geta þingflokkarnir leitað sér lögfræðilegrar ráðgjafar hjá starfsmönnum eða annars staðar. Loks hafa ráðuneytin á sínum snærum lögfræðinga og leita einnig ráðgjafar annars staðar.
Þetta er þó ekki nægilegt þegar um viðkvæm og flókin úrlausnarefni er að ræða. Enginn óháður aðili er til staðar til að fást við slík mál. Að sjálfsögðu eru starfsmenn þingflokka háðir sínum flokkum og starfsmenn ráðuneyta lúta húsbóndavaldi ráðherra sinna. Sama kann að gilda þegar ráðherra velur tiltekna lögfræðinga til að kanna ákveðin mál. Að sjálfsögðu kemur til tor
Ríkisendurskoðun var þar til 1987 deild í fjármálaráðuneyti og laut stjórn fjármálaráðherra. Þessu var breytt að tilhlutan ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar og Ríkisendurskoðun gerð að óháðri sjálfstæðri stofnun undir Alþingi. Engum blandast hugur um að þetta var mikið fram
Meðal grannþjóða okkar er lögfræðilegri ráðgjöf við þjóðþingin háttað með ýmsu móti.
Danska þingið hefur látið taka saman yfirlit um lögfræðilegt eftirlit og sérfræðiráðgjöf í ýmsum þjóðþingum Evrópuríkja og fylgir yfirlitið, dags. 5. september 1991, hér með sem fskj. II.
Í öllum þessum ríkjum hvílir sú skylda á þingforseta að athuga hvort frumvörp séu í samræmi við stjórnarskrá áður en þau eru tekin á dagskrá. Ef samt sem áður koma upp efasemdir við meðferð máls um hvort það sé í samræmi við stjórnarskrá er mismunandi úrræðum beitt í einstökum ríkjum.
Danir hafa til þessa beitt þeirri aðferð að forseti þingsins hefur, í samráði við þing
Ekki leikur vafi á að sú skipan, sem Alþingi hefur búið við, er ófullnægjandi og ekki svo markviss sem víðast annars staðar. Að vísu getur Hæstiréttur dæmt endanlega í slík
Þess má að lokum geta að árið 1929 voru sett lög um laganefnd, nr. 48 frá 14. júní. Þessi lög hafa aldrei verið virk og sú skipan, sem þar var ákveðin, er ekki markviss, sjá fskj. I.
Nauðsyn ber til að koma upp sjálfstæðum óháðum aðila á vegum Alþingis til að fjalla um lögfræðileg álitamál og með því mætti forðast langvinnar deilur um viðkvæm úr
Frumvarp þetta hefur áður verið flutt en ekki hlotið afgreiðslu. Síðan hafa þeir at
..........
Tvö fylgiskjöl fylgdu þingsályktunartillögu þessari. Þau eru samhljóða þeim tveim
Um þessi fylgiskjöl vísast til þskj. 755, 441. mál 116. löggjafarþings, bls. 4300–4309 í A-deild Alþt. 1992–93. Sjá einnig þskj. 530, 338. mál 117. löggjafarþings, bls. 2259 í A-deild Alþt. 1993–94.