Ferill 329. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 329 . mál.


499. Frumvarp til laga



um leigubifreiðar.

(Lagt fyrir Alþingi á 118. löggjafarþingi 1994.)



I. KAFLI


Almenn ákvæði.


1. gr.


Leiguakstur.


    Lög þessi taka til fólksbifreiða, vörubifreiða og sendibifreiða sem notaðar eru til leiguakst urs. Fólksbifreiðar, sem taka fleiri en átta farþega, falla þó ekki undir lög þessi. Leiguakstur fólksbifreiða telst það þegar fólksbifreið er seld á leigu ásamt ökumanni fyrir tiltekið gjald til flutnings á farþegum og farangri þeirra.
    Leiguakstur vörubifreiða og sendibifreiða telst það þegar slík bifreið er seld á leigu ásamt ökumanni til flutnings á vörum fyrir tiltekið gjald þar sem ökumaður eða eigandi bifreiðarinnar er hvorki eigandi, seljandi né kaupandi vörunnar sem flutt er.
    Heimilt er með reglugerð að kveða nánar á um mörkin milli atvinnusviðs fólksbifreiða, vörubifreiða og sendibifreiða sem notaðar eru til leiguaksturs. Rísi ágreiningur um þessi mörk sker samgönguráðuneytið úr.
    Leigubifreiðar skulu auðkenndar.

2. gr.


Bifreiðastöðvar.


    Sveitarstjórn er heimilt að ákveða að allar leigubifreiðar í sveitarfélaginu í hverjum flokki fyrir sig, þ.e. fólksbifreiðar, vörubifreiðar og sendibifreiðar, skuli hafa afgreiðslu á bifreiðastöð sem fengið hefur viðurkenningu sveitarstjórnar. Þar sem viðurkenndar bifreiðastöðvar eru starf andi er öllum sem aka utan þessara stöðva bannað að taka að sér eða stunda leiguakstur á við komandi sviði.
    Bifreiðastöðvar fyrir leigubifreiðar skulu í samráði við félög leigubifreiðastjóra skipuleggja starfsemi sína með þeim hætti að almenningi verði veitt góð og örugg þjónusta. Hver bifreiða stöð skal fylgjast með því að ökumenn, sem þar hafa afgreiðslu, fari eftir fyrirmælum laga og reglugerða um leigubifreiðar.

3. gr.


Skilyrði til aksturs.


    Þeir einir sem fullnægja eftirtöldum skilyrðum mega aka bifreið í leiguakstri:
     1 .     hafa fullnægjandi starfshæfni, þar með talin fullnægjandi ökuréttindi,
     2 .     hafa óflekkað mannorð,
     3 .     hafa fullnægjandi fjárhagsstöðu,
     4 .     hafa fullnægjandi heilbrigðisvottorð,
     5 .     vera 70 ára eða yngri.

4. gr.


Takmörkun á fjölda bifreiða.


    Samgönguráðuneytinu er heimilt með reglugerð að takmarka fjölda bifreiða í leiguakstri enda komi til meðmæli viðkomandi sveitarstjórna og héraðsnefnda. Þar sem sveitarstjórnir og héraðsnefndir eru eigi sammála sker samgönguráðuneytið úr. Bifreiðafjöldi skal ákveðinn í samráði við sveitarstjórnir, héraðsnefndir og félög bifreiðastjóra.
    Þegar heimild til takmörkunar á fjölda leigubifreiða er veitt er óheimilt að skerða atvinnu réttindi þeirra manna sem á lögmætan hátt stunda leigubifreiðaakstur er takmörkun hefst.
    Takmörkun á fjölda bifreiða er framkvæmd með útgáfu atvinnuleyfa skv. II. kafla laga þess ara.

II. KAFLI


Leiguakstur fóksbifreiða.


5. gr.


Atvinnuleyfi.


    Þeim einum sem hafa atvinnuleyfi er heimilt að taka að sér eða stunda leiguakstur á fólki, sbr. þó 2. mgr. 7. gr. Þar sem kveðið hefur verið á um takmörkun á fjölda fólksbifreiða eru at vinnuleyfi gefin út af umsjónarnefnd fólksbifreiða en utan takmörkunarsvæða fer eftir nánari reglum sem samgönguráðherra setur.
    Atvinnuleyfi er bundið við nafn. Engum má veita meira en eitt atvinnuleyfi. Leyfishafa er óheimilt að selja atvinnuleyfi, leigja það út eða ráðstafa því á annan hátt. Atvinnuleyfishafi er háður ákvæðum laga og reglugerða um leigubifreiðar svo sem þau eru á hverjum tíma.
    Bifreiðastjórar sem stunda leiguakstur samkvæmt lögum þessum skulu hafa í bifreiðinni skilríki til sönnunar á því að þeir hafi atvinnuleyfi eða stundi leiguakstur í forföllum leyfishafa.

6. gr.


Veiting atvinnuleyfa.


    Þar sem ekki hefur verið kveðið á um takmörkun á fjölda fólksbifreiða í leiguakstri á um sækjandi rétt á að fá útgefið atvinnuleyfi ef hann fullnægir skilyrðum 3. gr.
    Þar sem takmörkun á fjölda fólksbifreiða hefur verið ákveðin skal umsækjandi fullnægja skilyrðum 3. gr. og skal tekið tillit til starfsreynslu við akstur á fólki við veitingu atvinnuleyfa. Þó er heimilt að halda námskeið fyrir umsækjendur um atvinnuleyfi og má þá gera prófárangur að skilyrði fyrir því að leyfi verði veitt. Heimilt er að taka sérstakt tillit til umsókna um atvinnu leyfi frá öryrkjum, enda uppfylli þeir skilyrði þessara laga.

7. gr.


Nýting atvinnuleyfis.


    Sá einn getur fengið atvinnuleyfi sem á fólksbifreið og hefur það að aðalatvinnu að aka henni sjálfur. Frá skilyrðum um aðalatvinnu má víkja á svæðum þar sem íbúar eru færri en 5.000.
    Veita má leyfishafa tímabundnar undanþágur frá akstri eigin bifreiðar vegna:
     a .     orlofs, veikinda eða annarra forfalla,
     b .     vaktaskipta á álagstímum,
     c .     viðgerðar eða endurnýjunar á bifreið.
    Samgönguráðherra er heimilt að fela umsjónarnefnd fólksbifreiða eða félögum bifreiða stjóra að setja reglur um þessar undanþágur og annast framkvæmd þeirra. Ráðherra er heimilt að ákveða með reglugerð gjald fyrir veittar undanþágur.
    Heimilt er að svipta leyfishafa atvinnuleyfi tímabundið ef hann brýtur gegn ákvæðum laga og reglugerða um leigubifreiðar, en fyrir fullt og allt ef um alvarleg eða ítrekuð brot er að ræða.
    Atvinnuleyfi fellur úr gildi við lok 70 ára aldurs leyfishafa. Heimilt er að leyfa eftirlifandi maka eða dánarbúi leyfishafa að nýta atvinnuleyfi hans í allt að þrjú ár eftir andlát leyfishafa.

8. gr.


Umsjónarnefnd fólksbifreiða.


    Þar sem kveðið hefur verið á um takmörkun á fjölda fólksbifreiða í leiguakstri skipar sam gönguráðherra þriggja manna umsjónarnefnd fólksbifreiða. Sveitarfélag eða sveitarfélög sam eiginlega tilnefna einn mann, bifreiðastöð eða bifreiðastöðvar sameiginlega einn mann og hinn þriðja skipar ráðherra án tilnefningar og er hann formaður nefndarinnar. Ráðherra getur ákveðið að fjölga í nefndinni á ákveðnum svæðum ef ástæða þykir til.
    Umsjónarnefnd fólksbifreiða hefur með höndum umsjón og eftirlit með framkvæmd laga og reglugerða um leigubifreiðar á svæðinu, úthlutun atvinnuleyfa og afturköllun þeirra, svo og eftirlit með þjónustu fólksbifreiðastöðva.
    Samgönguráðherra ákveður laun nefndarmanna. Laun þeirra og annan kostnað af störfum umsjónarnefnda greiðir ríkissjóður.

III. KAFLI


Ýmis ákvæði.


9. gr.


    Gjaldmælar skulu vera í öllum fólksbifreiðum og sendibifreiðum sem notaðar eru til leigu aksturs. Löggildingarstofan hefur eftirlit með notkun og meðferð gjaldmæla.

10. gr.


    Samgönguráðherra setur reglugerð um nánari framkvæmd laga þessara.
    Þrátt fyrir ákvæði II. kafla laganna er samgönguráðherra heimilt að veita tímabundið og skil yrt atvinnuleyfi til reksturs eðalvagnaþjónustu og til bifreiðastjóra sem jafnframt er fullgildur leiðsögumaður.

11. gr.


    Brot gegn lögum þessum og reglugerðum, sem settar verða samkvæmt þeim, varða sektum, nema þyngri refsing liggi við eftir öðrum lögum, og skal farið með mál út af brotum á lögum þessum að hætti opinberra mála.

12. gr.


    Lög þessi öðlast þegar gildi. Jafnframt falla úr gildi lög um leigubifreiðar, nr. 77/1989, með síðari breytingum.
    Við gildistöku laga þessara haldast viðurkenningar á bifreiðastöðvum samkvæmt eldri lög um þar til öðruvísi verður ákveðið af réttum aðilum.
    Þeir sem hafa atvinnuleyfi eða stunda akstur leigubifreiða utan takmörkunarsvæða við gild istöku laga þessara eru háðir þeim breytingum á réttarstöðu sem lög þessi hafa í för með sér.

Ákvæði til bráðabirgða.


    Þrátt fyrir ákvæði 5. tölul. 3. gr. skulu þeir sem stunda akstur leigubifreiða við gildistöku laga þessara halda atvinnuréttindum sínum óskertum til 1. janúar 1996. Eftir þann tíma rennur heimild allra bifreiðastjóra sem stunda leiguakstur samkvæmt lögum þessum út við lok 70 ára aldurs þeirra.
    Þeir sem stunda leiguakstur á fólksbifreið utan takmörkunarsvæða við gildistöku laga þess ara skulu uppfylla skilyrði laganna og afla sér atvinnuleyfis á árinu 1995.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Frumvarp þetta var lagt fram á 117. löggjafarþingi vorið 1994 en varð þá ekki útrætt. Það er flutt nú að miklu leyti óbreytt en breytingatillögur hafa verið felldar inn í meginmál laga nr. 77/1989 og lagt fram frumvarp til nýrra laga um leigubifreiðar.
    Frumvarp þetta er samið í samgönguráðuneytinu. Tilgangur þess er einkum að gera nauðsyn legar breytingar á lögunum til samræmis við niðurstöðu Mannréttindadómstóls Evrópu vegna kæru Sigurðar Á. Sigurjónssonar leigubifreiðastjóra á hendur íslenska ríkinu. Dómurinn taldi ákvæði laga um leigubifreiðar, nr. 77/1989, sem gera það að skilyrði fyrir atvinnuleyfi leigubif reiðastjóra að þeir séu félagar í stéttarfélagi leigubifreiðastjóra, brjóta gegn mannréttindasátt mála Evrópu.
    Markmið frumvarpsins er því að fella úr gildi lögbundna skylduaðild fólksbifreiðastjóra, vörubifreiðastjóra og sendibifreiðastjóra að stéttarfélögum sínum og bregðast við þeim aðstæð um sem af þessari breytingu getur leitt.

I. Aðdragandi að setningu laga um leigubifreiðar, nr. 77/1989.
    Við meðferð frumvarps til laga um leigubifreiðar á Alþingi árið 1989 gerði samgöngunefnd neðri deildar Alþingis sérstaka athugun á ákvæði 1. mgr. 5. gr. frumvarpsins, sem fjallaði um félagsskyldu þeirra bifreiðastjóra sem nytu takmörkunar. Í greinargerð með þessu ákvæði frum varpsins segir:
    „Með 1. mgr. er því slegið föstu að allir bifreiðastjórar, sem njóta takmörkunar, skuli vera í sama stéttarfélagi á sínu svæði. Þetta á að sjálfsögðu við hverja stétt fyrir sig, þ.e. fólksbif reiðastjóra, vörubifreiðastjóra og sendibifreiðastjóra. Þetta kemur annars vegar í veg fyrir að sama stéttin klofni í tvö eða fleiri stéttarfélög á sama svæði og hins vegar að einstakir bifreiða stjórar, sem takmörkunar njóta, geti staðið utan félags. Stéttarfélag á frumkvæði að því að tak mörkun verði komið á, atbeina þess þarf til að framkvæma hana, og félagið hefur á hendi nauð synlegt fyrirsvar fyrir stéttina gagnvart hinu opinbera. Því er óhjákvæmilegt að skylda alla bif reiðastjóra, sem njóta þessa skipulags, til að vera félagsmenn í einu og sama stéttarfélagi á við komandi svæði, enda er hagsmunum þeirra sjálfra best borgið með þessum hætti. Ljóst er af ný gengnum dómi Hæstaréttar að reglugerðarákvæði dugir ekki til að skylda bifreiðastjóra til fé lagsaðildar. Þar þarf lagaákvæði að koma til svo örugglega sé um hnútana búið.“
    Samgöngunefndin leitaði álits lögfræðinga og prófessors við Háskóla Íslands um efni þess arar greinar. Niðurstaða nefndarinnar var að leggja ekki til breytingar á þessu ákvæði frá þeim texta sem upphaflega var í frumvarpinu.
    Í dómi Hæstiréttar Íslands frá 15. desember 1988 var litið svo á að 73. gr. stjórnarskrárinnar hefði aðeins verið „ætlað að tryggja félagsstofnunina sem slíka en ekki rétt manna til að standa utan félaga“. Í umræddum dómi kemur fram sú skýring Hæstaréttar á 73. gr. stjórnarskrár að ákvæðið verndi ekki svokallað neikvætt félagafrelsi, þ.e. rétt manna til að neita að vera í eða ganga í félag. Telur Hæstiréttur að umrætt ákvæði stjórnarskrár fari hvorki í bága við alþjóða samninga, um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og um efnahagsleg, félagsleg og menningar leg réttindi, sem samþykktir voru á 21. allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna, né ákvæði mann réttindasáttmála Evrópu frá 1950. Í dóminum segir:
    „Áfrýjandi hefur ekki sýnt fram á, að ósamræmi sé milli 73. gr. stjórnarskrárinnar og þeirra ákvæða alþjóðasamþykkta, er hann vísar til og rakin eru í héraðsdómi, og myndi enda ekki sjálfkrafa hagga settum stjórnarskrárákvæðum. Verður ekki fallist á þá skoðun áfrýjanda, að efni standi nú til að skýra þessa grein stjórnarskrárinnar svo, að hún mæli fyrir um rétt manna til að neita að ganga í félag eða að vera í félagi. Af þessu stjórnarskrárákvæði verður heldur ekki dreg in sú ályktun, að óheimilt sé að gera félagsaðild að skilyrði atvinnuleyfis.“
    
II. Mannréttindasáttmáli Evrópu.
    Mannréttindasáttmáli Evrópu var gerður á vegum Evrópuráðsins og undirritaður af aðildarríkjum þess árið 1950. Ísland undirritaði árið 1953 fullgildingarskjal varðandi sáttmálann og hefur síðan fullgilt viðauka 1–8. Á grundvelli sáttmálans var sett á stofn mannréttindanefnd Evrópu og Mannréttindadómstóll Evrópu. Nefndin getur tekið við erindum, m.a. frá einstak lingum sem halda því fram að samningsaðili hafi brotið á þeim réttindi sem verndar njóta samkvæmt samningnum. Takist ekki sátt í máli semur nefndin skýrslu um málið og lætur álit í ljós hvort um sé að ræða brot á skyldum samningsaðila. Einstaklingur getur ekki lagt mál fyrir dómstólinn, heldur aðeins nefndin og samningsríki. Mannréttindanefndin annast flutning mála fyrir dómstólnum sem hún skýtur þangað.
    Þann 25. júní 1992 gekk dómur á hendur íslenska ríkinu fyrir Mannréttindadómstólnum, þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að það hafi brotið gegn skyldum sínum samkvæmt samn ingnum vegna kæru Þorgeirs Þorgeirssonar rithöfundar. Í framhaldi af því skipaði dómsmála ráðherra nefnd til að gera tillögur um viðbrögð við dómnum. Í starfi sínu komst nefndin að þeirri niðurstöðu að rétt væri að leggja til að sáttmálinn yrði lögtekin hér á landi, en sú niður staða var einkum byggð á því að lögfesting sáttmálans yrði til að auka réttaröryggi. Frumvarp þess efnis var lagt fram á Alþingi haustið 1993 og er það orðið að lögum.
    
III. Dómur Mannréttindadómstóls Evrópu.
    Þann 15. maí 1992 úrskurðaði mannréttindanefndin í máli Sigurðar Á. Sigurjónssonar og komst að þeirri niðurstöðu með 17 atkvæðum gegn 1 að félagsskylda kæranda að Bifreiðastjóra félaginu Frama fæli í sér brot gegn 11. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.
    Með bréfi dags. 16. júlí 1992 tilkynnti nefndin dómsmálaráðuneytinu að hún hafi skotið mál inu til dómstólsins og fór málflutningur fyrir dómstólnum fram í febrúar sl.
    Þann 30. júní 1993 var kveðinn upp dómur hjá Mannréttindadómstól Evrópu vegna kæru Sigurðar Á. Sigurjónssonar leigubílstjóra á hendur íslenska ríkinu. Dómstóllinn telur að ákvæði laga um leigubifreiðar, nr. 77/1989, sem skylda leigubifreiðastjóra á svæðum þar sem takmörk un er í gildi til að vera í félagi leigubifreiðastjóra brjóti í bága við ákvæði 11. gr. mannréttinda sáttmála Evrópu um félagafrelsi, þar sem ákvæðið verndar einnig rétt manna til að vera utan fé lags. Í forsendum dómsins kemur eftirfarandi fram:
    Í 1. mgr. 11. gr. sáttmálans segir að menn hafi rétt til að mynda félög, þar á meðal stéttarfé lög til verndar hagsmunum sínum. Í ákvæðinu felst einnig réttur til að vera ekki í félagi, þ.e. svokallað neikvætt félagafrelsi og því fari ákvæði laga um leigubifreiðar, nr. 77/1989, sem kveða á um að til að fá eða halda atvinnuleyfi þurfi aðild að Bifreiðastjórafélaginu Frama — stéttarfélagi leigubifreiðastjóra, gegn 1. mgr. 11. gr. sáttmálans. Jafnframt er vísað til ýmissa sáttmála og samþykkta alþjóðastofnana er vernda neikvæða félagafrelsið.
    Í 2. mgr. 11. gr. sáttmálans er kveðið á um að réttur þessi skuli ekki háður öðrum takmörkun um en lög mæli fyrir um og nauðsyn beri til í lýðfrjálsu þjóðfélagi vegna þjóðaröryggis eða al mannaheilla, til að firra glundroða eða glæpum, til verndar heilbrigði eða siðgæði, eða réttind um eða frelsi annarra. Dómurinn telur að skylduaðild að Frama hafi verið komið á með lögum og ætlunin hafi verið að vernda réttindi annarra bílstjóra, en dregið verði í efa hvort nauðsyn hafi borið til að kveða á um skylduaðild þegar borið sé saman annars vegar réttindamissir og þvingun kæranda og hins vegar hagsmunir tengdum hlutverki Frama við framkvæmd og eftirlit með leiguakstri.
    
IV. Helstu breytingar með frumvarpinu.
—    Gerðar eru nauðsynlegar breytingar í framhaldi af dómi Mannréttindadómstóls Evrópu og afnumin skylda bifreiðastjóra til að vera í einu og sama stéttarfélagi á þeim svæðum þar sem heimiluð hefur verið takmörkun á fjölda bifreiða sem nota á til leiguaksturs.
—    Lagt er til að samgönguráðherra geti falið umsjónarnefnd fólksbifreiða eða félögum bifreiðastjóra að setja reglur um undanþáguveitingar skv. 2. mgr. 7. gr. frumvarpsins og annast framkvæmd þeirra. Hið svokallaða innra eftirlit verði því hér eftir á hendi annars þessara, þar á meðal að fylgjast með að þeir sem aka í forföllum leyfishafa uppfylli skilyrði laga og reglna um leigubifreiðar.
—    Lagt er til að sama regla varðandi hámarksaldur gildi um alla atvinnubifreiðastjóra sem lög þessi taka til, þ.e. jafnt fólks-, sendi- og vörubifreiðastjóra á takmörkunarsvæðum sem utan þeirra, sbr. 5. tölul. 3. gr. frumvarpsins. Ákveðinn gildistökufrestur er þó gagnvart þeim bif reiðastjórum sem þessi regla hefur ekki þegar náð til með 1. mgr. 9. gr. núgildandi laga, sbr. ákvæði til bráðabirgða.
    
V. Brottfall leyfis vegna aldurs.
    Undanfarin ár hefur átt sér stað umræða hvort og við hvaða aldursmark atvinnuleyfi til leigubifreiðaaksturs eigi að falla brott. Það fyrirkomulag sem nú ríkir og byggir á útgáfu atvinnuleyfa hefur staðið frá árinu 1955 og er fjöldi atvinnuleyfa á höfðuðborgarsvæðinu bundinn við 570 atvinnuleyfi. Miðað er við að hver einstaklingur hafi eitt atvinnuleyfi og aki sjálfur eigin bif reið. Segja má að hver og einn leyfishafi hafi einhvers konar einkaleyfi til að bjóða upp á þessa þjónustu. Samhliða þessu einkaleyfi eða starfsvernd hefur löggjafinn talið sér rétt og skylt að gæta einnig hagsmuna og réttar þeirra sem þjónustuna nota þannig að þjónustan verði eftir sem áður góð og örugg.
    Almenningur á þá kröfu að þeir sem slíkt einkaleyfi hafa séu góðir, hæfir og fullfrískir öku menn og geti þjónustað viðskiptavininn, t.d. borið ferðatöskur og annan farangur. Í ljósi þessa og fjölda kvartana á sínum tíma gerði ráðuneytið það að tillögu sinni að kveða á um 75 ára ald urshámark leyfishafa til leigubifreiðaaksturs í frumvarpi til laga um leigubifreiðar sem lagt var fram á Alþingi vorið 1989. Í meðferð frumvarpsins á Alþingi var hámarksaldurinn lækkaður í 71 ár, sbr. 1. mgr. 9. gr. laga um leigubifreiðar, nr. 77/1989.
    Með lögum um leigubifreiðar, nr. 77/1989, sem tóku gildi 1. júlí 1989, var í fyrsta sinn kveð ið á um í lögum að atvinnuleyfi til leigubifreiðaaksturs félli niður við ákveðinn hámarksaldur leyfishafa. Ákvæði þessa efnis hafði áður verið í 16. gr. reglugerð nr. 293/1985 um takmörkun leigubifreiða í Reykjavík, en skv. 19. gr. hennar var gildistöku ákvæðisins um aldurshámark frestað um 3 ár frá gildistöku reglugerðarinnar og kom það fyrst til framkvæmda 1. júlí 1988. Þá áttu leyfishafar sem orðnir voru 75 ára að leggja inn atvinnuleyfi sín.
    Þrír leigubifreiðastjórar, sem gert var að leggja inn atvinnuleyfi sín í samræmi við þessa reglu, töldu ákvæðið ekki hafa lagastoð og báru fram kvörtun við umboðsmann Alþingis. Um boðsmaður Alþingis komst að þeirri niðurstöðu í áliti sínu að ofannefnt ákvæði reglugerðar um hámarksaldur hafi ekki átt sér viðhlítandi lagastoð, þannig að því verði beitt gagnvart leyfishöf um sem höfðu leyfi við gildistöku ákvæðisins. Jafnframt sagði umboðsmaður í áliti sínu: „ . . .  ég tel ástæðu til, að lög um leigubifreiðaakstur verði tekin til rækilegrar endurskoðunar í heild. Í þeirri endurskoðun verði meðal annars fjallað um það, hvaða skilyrðum menn verði að full nægja til að geta fengið og haldið leyfum til leigubifreiðaaksturs, og um nýtingu slíkra atvinnuleyfa“. Í framhaldi af niðurstöðu umboðsmanns Alþingis var hafist handa við heildarendurskoð un laga um leigubifreiðar. Frumvarp þess efnis var lagt fram í ársbyrjun 1989 og varð að lögum 1. júní 1989 og tóku gildi 1. júlí 1989.
    Einn leigubifreiðastjóri, sem gert var að leggja inn atvinnuleyfi sitt í samræmi við ákvæði laga um leigubifreiðar, nr. 77/1989, höfðaði mál á hendur samgönguráðherra og byggði á því að með því að svipta sig atvinnuleyfinu vegna aldurs á grundvelli laga og reglugerða um leigu bifreiðar sé brotinn á honum réttur sem honum beri samkvæmt stjórnskipulegri jafnræðisreglu. Hann taldi sig beittan ójafnræði eða misrétti sem fælist annars vegar í því að bifreiðastjórar sendi-, vöru- og langferðabifreiða séu ekki háðir sams konar ákvæðum um aldurshámark og hins vegar ekki heldur þeir bifreiðastjórar sem stunda leiguakstur á fólksbifreiðum á þeim svæðum þar sem fjöldi leigubifreiða til fólksflutninga hefur ekki verið takmarkaður. Hæstiréttur Íslands kvað upp dóm sinn í málinu 3. júní 1993. Í forsendum dómsins er staðfest það mat héraðsdómara að til grundvallar ákvæði 1. mgr. 9. gr. laga nr. 77/1989 um aldursmark bifreiðastjóra leigubif reiða til fólksflutninga liggi almenn og hlutlæg sjónarmið og gætt hafi verið jafnræðis við setn ingu laganna þar sem þau ná til allra sem eins eru settir. Brytu lögin því ekki jafnræðisreglu ís lensks stjórnskipunarréttar.
    Með frumvarpi þessu er miðað við að atvinnuréttindi allra sem lögin ná til falli brott við lok 70 ára aldurs atvinnubifreiðastjóra, sbr. 5. tölul. 3. gr. frumvarpsins. Samhliða þessu frumvarpi verður flutt frumvarp til breytinga á lögum um skipulag á fólksflutningum með langferðabif reiðum, nr. 53/1987, og frumvarp til laga um breytingu á lögum um vöruflutninga á landi, nr. 47/1994, og kveðið á um sams konar reglur hjá bifreiðastjórum langferðabifreiða og flutninga bifreiða.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.


Um 1. gr.


    Ákvæðið er samhljóða núgildandi 1. gr. laga um leigubifreiðar, nr. 77/1989, og fjallar um skilgreiningar og starfssvið einstakra leigubifreiðastjórastétta.
    

Um 2. gr.


    1. mgr. er efnislega samhljóða 2. gr. núgildandi laga. Eina breytingin er að í stað bæjar stjórnar kemur sveitarstjórn og með því er greinin samræmd 4. gr. fumvarpsins. 2. mgr. er sam hljóða 3. gr. núgildandi laga að öðru leyti en því að í stað stéttarfélags kemur félag. Sú breyting miðar að því að koma í veg fyrir misskilning þar sem félög bifreiðastjóra eru ekki stéttarfélög í skilningi laga um stéttarfélög og vinnudeilur, nr. 80/1938.
    

Um 3. gr.


    Hér er lagt til að allir bifreiðastjórar í leiguakstri verði að uppfylla sömu skilyrði til að stunda slíkan akstur. Fram til þessa hafa einungis fólksbifreiðastjórar í leiguakstri á svæðum þar sem takmörkun hefur verið ákveðin þurft að uppfylla skilyrði sem þessi, sbr. 1. mgr. 8. gr. laga um leigubifreiðar, nr. 77/1989.
    Allir fólksbifreiðastjórar í leiguakstri verða að uppfylla skilyrði þessi til að fá útgefið at vinnuleyfi, sbr. 6. gr. frumvarpsins. Sama gildir um alla sendi- og vörubifreiðastjóra sem stunda leiguakstur. Bifreiðastöðvum ber að fylgjast með að þeir sem þar eru í afgreiðslu uppfylli þessi skilyrði, sbr. 2. mgr. 2. gr. frumvarpsins.
    Skilyrði þau sem hér er kveðið á um eru efnislega í samræmi við þau skilyrði sem nú eru í 8. gr. laganna. Þau eru einnig í samræmi við þau skilyrði sem sett hafa verið öðrum bifreiða stjórum í framhaldi af aðild Íslands að samningnum um hið Evrópska efnahagssvæði, sbr. lög um skipulag á fólksflutningum með langferðabifreiðum, nr. 53/1987, með síðari breytingum, og lög um vöruflutninga á landi, nr. 47/1994. Nánari skýringar og leiðbeiningar um þessi skil yrði verða gefin út með reglugerð.
    Með 5. tölul. er lagt til að sama regla varðandi hámarksaldur gildi um alla atvinnubifreiða stjóra sem lögin taka til, þ.e. jafnt fólks-, sendi- og vörubifreiðastjóra. Ákveðinn gildistöku frestur er þó gagnvart þeim bifreiðastjórum sem þessi regla hefur ekki þegar náð til með 1. mgr. 9. gr. laga um leigubifreiðar, nr. 77/1989, sbr. ákvæði til bráðabirgða. Eðlilegt þykir að sama regla gildi um allan akstur í atvinnuskyni. Samhliða þessu frumvarpi verður flutt frumvarp til breytinga á lögum um skipulag á fólksflutningum með langferðabifreiðum, nr. 53/1987, með síðari breytingum, og frumvarp til laga um breytingu á lögum um vöruflutninga á landi, nr. 47/1994, og er í þeim kveðið á um sams konar reglu hjá bifreiðastjórum hópbifreiða og flutn ingabifreiða.
    

Um 4. gr.


    Það hefur verið meginefni laga um leigubifreiðar að fjalla um heimildir til að takmarka fjölda leigubifreiða á félagssvæðum viðkomandi félaga bifreiðastjóra, en þetta á við um fólks bifreiðar, vörubifreiðar og sendibifreiðar. Þróun mála hefur orðið misjöfn eftir því um hvaða flokk bifreiða er að ræða.
    Ákvæði 1. mgr. 5. gr. laga nr. 77/1989 er fellt brott, en það kveður á um skyldu bifreiðastjóra í sömu grein til að vera í einu og sama stéttarfélagi. Þessi skylda hefur aðeins náð til bifreiða stjóra í hverjum flokki bifreiða á þeim svæðum þar sem takmörkun er í gildi. Í gildi er takmörk un á félagssvæðum fimm fólksbifreiðastjórafélaga, 28 vörubifreiðastjórafélaga og þriggja sendibifreiðastjórafélaga. Bifreiðastjórum á þeim svæðum þar sem takmörkun á fjölda bifreiða sem notaðar eru til leiguaksturs verður áfram í gildi er heimilt hér eftir að ganga úr félaginu, sem bað um takmörkun, og vera utan félags eða stofna nýtt félag.
    Í 4. gr. er miðað við að ákvæði um heimild til takmörkunar verði efnislega samhljóða núgild andi ákvæði 5. gr. laganna og samgönguráðuneytinu verði heimilt að takmarka fjölda allra leigubifreiða. Verði slík takmörkun ákveðin er miðað við að um hana gildi II. kafli laganna, þ.e. með útgáfu atvinnuleyfa, hvort sem er á sviði fólks-, sendi- og vörubifreiða, sem gefin verði út af sérstökum umsjónarnefndum.
    Vörubifreiðastjórar hafa í flestum tilvikum notið takmörkunar og skv. 8. gr. reglugerðar nr. 121/1990 um vörubifreiðar og sendibifreiðar, sem notaðar eru til leiguaksturs og takmarkanir á fjölda þeirra, hefur takmörkun verið ákveðin á félagssvæðum 28 vörubifreiðastjórafélaga.
    Sendibifreiðastjórar hafa í mjög fáum tilvikum notið takmörkunar, þar sem félög þeirra hafa yfirleitt ekki óskað eftir takmörkun. Þó njóta þrjú félög sendibifreiðastjóra takmörkunar, en það er á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og Vestmannaeyjum, sbr. 8. gr. reglugerðar nr. 121/1990.
    Í takmörkun á fjölda vörubifreiða og sendibifreiða hefur falist að öllum utanfélagsmönnum hefur verið bannað að taka að sér eða stunda leiguakstur á vörum, sbr. 2. mgr. 5. gr. laga um leigubifreiðar, nr. 77/1989. Takmörkunin hefur verið framkvæmd með þeim hætti að í reglugerð er ákveðin hámarkstala vörubifreiða og sendibifreiða á viðkomandi félagssvæði. Nýir félagar hafa síðan verið teknir inn í stað þeirra sem hætta störfum og félagið auglýst eftir umsóknum um félagsréttindi til að fylla töluna á ný, sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 121/1990. Það eru því félögin sjálf sem ráðið hafa hverjir bætast við í stéttina og öðlast rétt til að stunda leiguakstur á þess sviði. Sú starfsvernd sem vörubifreiðastjórar hafa notið á grundvelli þessara laga og reglna hef ur aðeins verið bundin við leiguakstur á vörubílum af hefðbundinni gerð og tekur ekki til verk takastarfsemi á sviði flutninga.
    Í frumvarpi þessu er miðað við að samgönguráðuneytinu verði heimilt að takmarka fjölda sendi- og vörubifreiða, sbr. 4. gr. frumvarpsins. Verði slík takmörkun ákveðin er miðað við að um hana gildi II. kafli laganna, þ.e. með útgáfu atvinnuleyfa.
    Fjöldi fólksbifreiða er nú takmarkaður á fimm stöðum á landinu, þ.e. á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum, Akureyri, Ísafirði og Selfossi. Takmörkun er framkvæmd með útgáfu atvinnu leyfa til einstakra leigubifreiðastjóra sem sérstakar umsjónarnefndir annast. Þetta atvinnuleyfa kerfi hefur nú staðið í áratugi og er orðið mjög fast í sessi. Til þess að koma þessu takmörkunar kerfi á þurfti í upphafi að liggja fyrir beiðni frá viðkomandi félagi, síðan þurfti atbeina félagsins til þess að halda kerfinu við. Jafnframt var til þess ætlast að allir atvinnuleyfishafar á viðkom andi félagssvæði væru meðlimir félagsins og að lokum var félagsaðildin lögbundin. Með því átti m.a. að tryggja að félagið væri í fyrirsvari fyrir alla stéttina.
    

Um II. kafla.


    II. kafli frumvarpsins er í meginatriðum í samræmi við IV. kafla núgildandi laga að öðru leyti en því að uppsetningu kaflans hefur verið breytt. Þá er það nýmæli að allir fólksbifreiða stjórar í leiguakstri þurfi atvinnuleyfi. Fram til þessa hafa einungis verið gefin út atvinnuleyfi á þeim svæðum þar sem heimiluð hefur verið takmörkun á fjölda bifreiða, en utan þeirra hefur ekki verið krafist sérstaks leyfis, hvorki frá samgönguráðuneyti né viðkomandi sveitarstjórnum.
    

Um 5. gr.


    Í 1. mgr. kemur fram sú grundvallarregla að allir bifreiðastjórar sem stunda leiguakstur fólksbifreiða þurfa til þess atvinnuleyfi. Eins og áður er komið fram hafa slík atvinnuleyfi að eins verið gefin út á takmörkunarsvæðum. Þetta tekur þó ekki til þeirra bifreiðastjóra sem leysa leyfishafa af tímabundið samkvæmt reglum þar um, sbr. 2. mgr. 7. gr. frumvarpsins. Þeir bif reiðastjórar þurfa hins vegar eftir sem áður að uppfylla skilyrði 3. gr. frumvarpsins. Byggt er á því að svokallaðar umsjónarnefndir úthluti atvinnuleyfum þar sem kveðið hefur verið á um takmörkun á fjölda bifreiða, en utan þeirra fari eftir reglugerð sem samgönguráðuneytið setur.
    2. mgr. 5. gr. frumvarpsins er í samræmi við 2. mgr. 7. gr. núgildandi laga.
    Í 3. mgr. er kveðið á um það nýmæli að bifreiðastjórar, jafnt leyfishafar sem launþegar, þurfa að hafa í bílnum skilríki um að þeir hafi heimild til að stunda leiguakstur með fólk. Tekur þetta ákvæði jafnt til þeirra sem hafa atvinnuleyfi á takmörkunarsvæðum sem utan þeirra. Þykir þetta horfa til öryggis fyrir þá sem nýta sér þjónustu leigubifreiða.
    

Um 6. gr.


    1. mgr. fjallar um veitingu atvinnuleyfa til fólksbifreiðastjóra utan takmörkunarsvæða, en þar er lagt til að allir þeir sem uppfylla skilyrði 3. gr. eigi rétt á að fá útgefið atvinnuleyfi.
    2. mgr. fjallar um veitingu atvinnuleyfa á svæðum þar sem kveðið hefur verið á um takmörk un á fjölda fólksbifreiða í leiguasktri. Reynslan hefur sýnt að umsækjendur um atvinnuleyfi eru yfirleitt margfalt fleiri en þau atvinnuleyfi sem eru laus til úthlutunar. Lög um leigubifreiðar, nr. 77/1989, byggja á því að starfsreynsla við akstur á fólki ráði í meginatriðum úthlutun at vinnuleyfa ef ekki er haldið sérstakt námskeið þar sem prófárangur ræður úthlutun, sbr. 3. mgr. 8. gr. núgildandi laga. Hvers konar starfsreynsla við akstur á fólki er nú metin jöfnu, þ.e. akstur hópbifreiða eða leigubifreiðar. Hins vegar höfðu launþegar í leigubifreiðastjórastétt forgang við veitingu atvinnuleyfa í þrjú ár frá gildistöku laga nr. 77/1989, þ.e. til 1. júlí 1992. Frumvarp þetta gerir ráð fyrir óbreyttum reglum við úthlutun atvinnuleyfa á takmörkunarsvæðum.
    

Um 7. gr.


    Í 1. mgr. kemur fram sú meginregla að grundvöllur atvinnuleyfanna er að leyfishafi eigi fólksbifreið og hafi það að aðalatvinnu að aka henni sjálfur. Þetta ákvæði er samhljóða 2. og 3. málsl. 1. mgr. 7. gr. núgildandi laga.
    2. mgr. er samhljóða 4. mgr. 9. gr. núgildandi laga.
    Í 3. mgr. er lagt til að samgönguráðherra geti falið umsjónarnefnd eða félögum bifreiðastjóra að setja reglur um undanþáguveitingar skv. 2. mgr. 7. gr. frumvarpsins og annast framkvæmd þeirra. Hið svokallaða innra eftirlit verði því hér eftir á hendi annars þessara aðila, þar á meðal að fylgjast með að þeir sem aka í forföllum leyfishafa uppfylli skilyrði laga og reglna um leigu bifreiðar. Miðað er við að sá aðili sem hefur þetta með höndum geti gert allar nauðsynlegar ráð stafanir til að annast þetta eftirlit og falið það sérstökum eftirlitsmönnum eftir því sem nánar verður ákveðið í reglugerð. Jafnframt eiga bifreiðastöðvar að hafa eftirlit með að reglum þess um sé fylgt, sbr. 2. gr. frumvarpsins. Til að mæta þeim kostnaði sem af þessu eftirliti hlýst er miðað við að ráðherra verði heimilt að kveða á um sérstakt gjald fyrir veittar undanþágur.
    4. mgr. er samhljóða 3. mgr. 9. gr. núgildandi laga.
    5. mgr. er í samræmi við 1. og 2. mgr. 9. gr. núgildandi laga. Miðað er við að atvinnuleyfi falli úr gildi við lok 70 ára aldurs leyfishafa, en sú regla kemur jafnframt fram í 5. tölul. 3. gr. frumvarpsins. Að öðru leyti er málsgreinin í samræmi við 2. mgr. 9. gr. laga um leigubifreiðar, nr. 77/1989. Í reglugerð nr. 308/1989 er kveðið á um að sambýlismaður eða sambýliskona skoð ist sem eftirlifandi maki hafi sambúðin staðið yfir í að minnsta kosti tvö ár samkvæmt þjóðskrá.
    

Um 8. gr.


    Nú eru starfandi umsjónarnefndir fólksbifreiða á þremur svæðum, þ.e. á höfuðborgarsvæð inu, Suðurnesjum og Akureyri. Þær eru allar þriggja manna, þ.e. einn frá bifreiðastjórafélögum, einn frá sveitarfélögum og þann þriðja skipar ráðherra án tilnefningar. Frumvarpið gerir ráð fyr ir því að fleiri en eitt félag geti verið starfandi á svæðum þar sem takmörkun á fjölda bifreiða hefur verið heimiluð. Með hliðsjón af því er hér lagt til að hlutaðeigandi sveitarfélag eða sveit arfélög sameiginlega tilnefni einn mann og bifreiðastöð eða bifreiðastöðvar sameiginlega til nefni einn mann og samgönguráðherra skipi formann án tilnefningar.
    2. og 3. mgr. eru samhljóða 2. og 3. mgr. 10. gr. núgildandi laga.
    

Um 9. gr.


    Samkvæmt 11. gr. laga um leigubifreiðar, nr. 77/1989, eiga lögreglustjórar, hver í sínu um dæmi, að hafa eftirlit með notkun og meðferð gjaldmæla. Eftir að lög um leigubifreiðar, nr. 77/1989, tóku gildi hafa verið sett lög um vog, mál og faggildingu, nr. 100/1992, en skv. 5. gr. þeirra er skylt að löggilda öll mælitæki sem notuð eru hér á landi til að mæla stærðir sem hafa áhrif á verð eða afgjald í hvers konar viðskiptum með vöru og þjónustu og skatt- og gjaldstofna. Það er Löggildingarstofan sem löggildir mælitæki, hefur eftirlit með mælitækjum, löggildir vigtarmenn og sér að öðru leyti um að lögunum og reglugerðum settum samkvæmt þeim sé framfylgt, sbr. 15. gr. laga nr. 100/1992. Hér er efni 11. gr. fært til samræmis við lög um vog, mál og faggildingu, nr. 100/1992, og Löggildingarstofunni fengið það hlutverk að löggilda og hafa eftirlit með notkun og meðferð gjaldmæla í fólksbifreiðum og sendibifreiðum sem notaðar eru til leiguaksturs.
    

Um 10. gr.


    Í 1. mgr. 12. gr. laga um leigubifreiðar, nr. 77/1989, er við það miðað að samgönguráðuneyti setji tvær reglugerðir á grundvelli laganna, annars vegar um fólksbifreiðar og hins vegar um vörubifreiðar og sendibifreiðar. Áður voru settar reglugerðir fyrir hvert félagssvæði fyrir sig í hverjum flokki bifreiða.
    Með 8. gr. reglugerðar nr. 308/1989 um fólksbifreiðar, sem notaðar eru til leiguaksturs og takmarkanir á fjölda þeirra, var kveðið á um takmörkun á fjölda fólksbifreiða á félagssvæðum fimm bifreiðastjórafélaga, þ.e. á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum, Akureyri, Ísafirði og Sel fossi. Reglugerðin leysti af hólmi 21 reglugerð, sem gilti fyrir hvert svæði og felld var niður tak mörkun á fjölda leigubifreiða á Akranesi, Sauðárkróki, Seyðisfirði, Neskaupstað, Hveragerði, Vestmannaeyjum og Grindavík. Ástæðan fyrir því að takmörkun var ekki heimiluð á þessum svæðum var að ráðuneytið setti sér þá starfsreglu að heimila ekki takmörkun nema fjöldi bif reiða væri a.m.k. sjö.
    Með 7. og 8. gr. reglugerðar nr. 307/1989, ásamt síðari breytingum um vörubifreiðar og sendibifreiðar sem notaðar eru til leiguaksturs og takmarkanir á fjölda þeirra, var kveðið á um takmörkun á fjölda vörubifreiða á félagssvæðum 28 vörubifreiðastjórafélaga og þriggja sendi bifreiðastjórafélaga. Reglugerðin leysti af hólmi 38 reglugerðir sem giltu fyrir hvert svæði vöru- og sendibifreiðastjórafélaga.
    Með hliðsjón af því að í 4. gr. frumvarpsins er miðað við að takmörkun verði framkvæmd með svipuðum hætti í hverjum flokki bifreiða fyrir sig og þykja ekki efni til að hafa sérstaka reglugerð um vörubifreiðar og sendibifreiðar sem notaðar eru til leiguaksturs, heldur verði heimilt að gefa út eina reglugerð fyrir allar leigubifreiðar.
    Í 2. mgr. er lagt til að samgönguráðherra geti þrátt fyrir ákvæði II. kafla veitt tímabundið og skilyrt atvinnuleyfi til reksturs eðalvagna (limousine). Með eðalvögnum er átt við glæsilega fólksbifreið oft með skilrúmi milli bílstjóra og farþegarrýmis. Slíkar bifreiðar eru búnar sérþæg indum fyrir farþega, t.d. með bílasíma. Þær eru notaðar til sérstakrar viðhafnarþjónustu, t.d. við brúðkaup og heimsóknir erlendra gesta. Jafnframt er gert ráð fyrir því að ráðherra geti veitt at vinnuleyfi til bifreiðastjóra þegar hann er jafnframt leiðsögumaður samkvæmt reglum sem um það gilda. Atvinnuleyfi samkvæmt þessari málsgrein eru bundin við tiltekna þjónustu og eru utan við þann heildarfjölda fólksbifreiða sem ákveðinn er með takmörkunarreglugerð. Þeir sem sækja um atvinnuleyfi þessi þurfa sem atvinnuleyfishafar að uppfylla skilyrði 3. gr. laganna.
    

Um 11. gr.


    Greinin er samhljóða 13. gr. núgildandi laga um leigubifreiðar, nr. 77/1989.
    

Um 12. gr.


    Greinin er efnislega samhljóða 14. gr. núgildandi laga að öðru leyti en því að hér er lagt til að felldar verði niður tvær málsgreinar í 14. gr., þar sem þær eiga ekki lengur við.     Í 1. mgr. 14. gr. núgildandi laga segir að þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 5. gr., sem fjallar skyldu til að vera í einu og sama félagi þar sem takmörkun er í gildi, sé ráðherra heimilt að veita undan þágu frá ákvæðinu þar sem önnur tilhögun hefur tíðkast. Ákvæði þetta var sett vegna þess að á Suðurnesjum, en þar var takmörkun í gildi, hafði verið stofnað nýtt félag og því starfandi tvö félög á svæðinu. Í 3. gr. frumvarpsins er 1. mgr. 5. gr. laganna, sem fjallar um félagsskyldu, felld niður og þjónar þessi undanþáguheimild því ekki neinum tilgangi lengur.
    Í 2. mgr. 14. gr. núgildandi laga segir að þrátt fyrir ákvæði 5. tölul. 8. gr. skuli launþegar í leigubifreiðastjórastétt hafa forgang við veitingu atvinnuleyfa næstu þrjú ár frá gildistöku lag anna. Lög um leigubifreiðar, nr. 77/1989, tóku gildi 1. júlí 1989 og rann forgangsréttur launþeg anna því út 1. júlí 1992 og er því eðlilegt að fella ákvæðið brott úr lögum.
    
    

Um ákvæði til bráðabirgða.


    Í 1. mgr. er lagt til að þeir sem stunda akstur leigubifreiða við gildistöku laganna verði frumvarp þetta að lögum haldi atvinnuréttindum sinum óskertum til 1. janúar 1996. Eftir þann tíma rennur heimild allra bifreiðastjóra sem stunda akstur leigubifreiða samkvæmt lögum þessum út við lok 70 ára aldurs þeirra. Þessi aðlögunartími tekur til þeirra bifreiðastjóra sem þessi regla um hámarksaldur hefur ekki þegar náð til með 1. mgr. 9. gr. núgildandi laga.
    Í 2. mgr. er þeim sem stunda leiguakstur fólksbifreiða þar sem ekki hefur verið kveðið á um takmörkun á fjölda bifreiða veittur kostur á að uppfylla skilyrði laganna og sækja um atvinnu leyfi fyrir 1. janúar 1996.



Fylgiskjal.

Fjármálaráðuneytið,
fjárlagaskrifstofa:
    

Umsögn um frumvarp til laga um leigubifreiðar.


    Tilgangur þessa frumvarps er að gera nauðsynlegar breytingar á lögunum til samræmis við niðurstöðu Mannréttindadómstóls Evrópu um félagsskyldu.
    Frumvarpinu er ætlað að leysa af hólmi lög um leigubifreiðar, nr. 77/1989.
    Í 7. gr. frumvarpsins er lagt til að samgönguráðherra sé heimilt að fela umsjónarnefnd fólks bifreiða eða félögum bifreiðastjóra að annast innra eftirlit. Frumvarpið gerir ráð fyrir að inn heimt verði gjald til að mæta kostnaði sem stofnað er til vegna þessa.
    Ekki verður séð að frumvarpið hafi í för með sér kostnaðarauka. Kostnaður við starf umsjón arnefnda fólksbifreiða er um 1 1/ 2 m.kr. á ári.