Ferill 331. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 331 . mál.
505. Frumvarp til laga
um matvæli.
(Lagt fyrir Alþingi á 118. löggjafarþingi 1994.)
I. KAFLI
Tilgangur og gildissvið.
1. gr.
Tilgangur laganna er að tryggja, svo sem kostur er, gæði, heilnæmi og hollustu matvæla og að merkingar og aðrar upplýsingar um þau séu réttar og fullnægjandi. Þessu skal ná með alhliða fræðslu og upplýsingamiðlun, rannsóknum og eftirliti.
2. gr.
Lög þessi taka til framleiðslu og dreifingar matvæla. Lögin taka ekki til meðferðar matvæla á einkaheimilum nema þar fari fram framleiðsla matvæla til dreifingar utan heimilisins. Lögin ná þó til allra efna og hluta sem ætlað er að koma í snertingu við matvæli á einkaheimilum.
Lyf, sbr. lyfjalög, tóbak, sbr. lög um tóbaksvarnir og vímuefni, önnur en áfengi, sbr. lög um ávana- og fíkniefni, eru undanþegin ákvæðum þessara laga. Það sama gildir um varnir gegn sjúkdómum og meindýrum á plöntum samkvæmt lögum þar um.
3. gr.
Matvæli skulu vera þannig gerð og fram boðin að þau valdi ekki heilsutjóni og viðskipti með þau blekki ekki á neinn hátt.
II. KAFLI
Skilgreiningar.
4. gr.
Matvæli eru samkvæmt lögum þessum hvers konar vörur sem ætlaðar eru mönnum til neyslu, þar með talið neysluvatn, sbr. þó einnig 2. mgr. 2. gr.
Framleiðsla er meðferð hráefnis, vinnsla, pökkun og matreiðsla. Hér er einnig átt við húsnæði, efni og hluti sem geta komist í snertingu við matvæli, störf, hreinlæti og heilbrigði starfs
Dreifing er hvers konar flutningur, framboð og afhending, þar með talið innflutningur, útflutningur og sala. Hér er einnig átt við geymslu og annað sem tengist dreifingu, sbr. ákvæði IV. kafla þessara laga.
Efni og hlutir eru allar umbúðir, ílát, áhöld, tækjabúnaður, borðbúnaður og öll efni sem slíkir hlutir eru samsettir úr og geta komist í snertingu við matvæli.
Umbúðir eru allar umbúðir sem umlykja eða hafa að geyma matvæli eða efni sem notuð eru við framleiðslu matvæla.
Örverur eru lífverur sem geta valdið skemmdum í matvælum eða verið heilsuspillandi vegna neyslu þeirra, en einnig eru tilteknar örverur notaðar til framleiðslu matvæla.
Hráefni eru öll efni, önnur en bætiefni, aukefni, bragðefni og varnarefni, sem notuð eru við framleiðslu matvæla.
Aukefni eru efni sem notuð eru við tilbúning matvæla til að hafa áhrif á geymsluþol, lit, lykt, bragð eða aðra eiginleika þeirra.
Bragðefni eru efni sem notuð eru til að hafa áhrif á bragðeiginleika matvæla. Þau teljast ekki til aukefna.
Bætiefni eru vítamín, steinefni, þar með talin snefilefni, og lífsnauðsynlegar fitu- og amínósýrur.
Aðskotaefni eru efni sem berast í matvæli eða myndast í þeim og breyta eiginleikum, samsetningu, gæðum eða hollustu þeirra.
Varnarefni eru efni sem notuð eru m.a. gegn illgresi, sveppum og meindýrum við framleiðslu og við geymslu matvæla.
Opinbert eftirlit er eftirlit á vegum stjórnvalda í þeim tilgangi að tryggja að framfylgt sé ákvæðum laga og reglna um matvæli og stuðla að fræðslu og upplýsingamiðlun.
Innra eftirlit er eftirlit á vegum framleiðanda eða dreifanda í þeim tilgangi að tryggja gæði, öryggi og hollustu vörunnar.
Faggilding er formleg staðfesting á því að starfsemi rannsóknastofa (prófunarstofa), vottunarstofa og eftirlitsaðila fari fram samkvæmt settum reglum. Markmiðið er að sannreyna hæfni, kunnáttu og áreiðanleika viðkomandi.
III. KAFLI
Stjórn og skipan.
5. gr.
Umhverfisráðherra, í lögum þessum nefndur ráðherra, fer með yfirstjórn mála samkvæmt lögum þessum, að svo miklu leyti sem hún er ekki falin öðrum ráðherrum. Hollustuvernd ríkis
6. gr.
Landbúnaðarráðherra fer með yfirstjórn mála er varða eftirlitsstörf dýralækna. Einnig fer hann með yfirstjórn mála er varða innflutning og útflutning búfjárafurða, smitsjúkdóma búfjár, meðferð, skoðun og mat á sláturafurðum og heilbrigðisskoðun eldisfisks. Yfirdýralæknir er ráð
7. gr.
Sjávarútvegsráðherra fer með yfirstjórn mála er varða meðferð, flutning, geymslu og vinnslu sjávarafurða vegna útflutnings þeirra. Fiskistofa er sjávarútvegsráðherra til ráðgjafar um þessi mál.
8. gr.
Samstarfsráð skal vinna að samræmingu laga, reglna og fyrirmæla um matvæli og matvæla
Ráðið gerir tillögu um úrlausn ágreiningsmála sem varða framkvæmd laga þessara og reglu
Samstarfsráð gerir árlega skýrslu um störf sín á liðnu starfsári og skal hún kynnt ráðherrum, opinberum eftirlitsaðilum og samtökum hagsmunaaðila sem starfa við framleiðslu og dreifingu matvæla.
IV. KAFLI
Framleiðsla og dreifing.
9. gr.
Þeir sem framleiða eða dreifa matvælum skulu tilkynna um starfsemi sína til fyrirtækjaskrár Hagstofu Íslands og hafa starfsleyfi frá viðkomandi eftirlitsaðila, sbr. 20. gr.
Ráðherra er heimilt með reglugerð að setja ákvæði um tilkynningarskyldu þeirra sem fram
10. gr.
Þeir sem framleiða eða dreifa matvælum skulu haga starfsemi sinni þannig að þau skorti ekki eðlilega hollustu eða geti valdið heilsutjóni. Jafnframt skal þess gætt að matvælin óhreinkist ekki eða spillist á annan hátt.
Starfsfólk, sem starfar við framleiðslu eða dreifingu matvæla, skal gæta ýtrasta hreinlætis og þrifnaðar við meðferð þeirra og hafa þekkingu á eða fá nauðsynlega fræðslu um rétta með
Þeim sem haldnir eru sjúkdómum, sem hætta er á að geti dreifst með matvælum, er óheimilt að starfa við meðferð matvæla. Eftirlitsaðilar, sbr. IX. kafla laganna, geta að höfðu samráði við landlækni gert kröfu um reglubundna heilsufarsskoðun starfsfólks.
11. gr.
Óheimilt er að hafa á boðstólum eða dreifa matvælum sem blekkt geta kaupanda eða móttak
Ráðherra skal með reglugerð setja ákvæði um með hvaða hætti hafa má matvæli á boðstólum eða dreifa á annan hátt þannig að gefið er í skyn að varan sé sérstaklega ætluð tilteknum hópum, svo sem vegna aldurs, sjúkdóma eða af öðrum ástæðum.
12. gr.
Matvæli, sem finnast á framleiðslustað eða í húsakynnum framleiðslustaðar, skulu talin framleidd þar nema annað verði sannað. Matvæli teljast jafnframt höfð á boðstólum á dreifing
Á sama hátt skulu efni, hlutir og annað, sem tengist framleiðslu matvæla, talin notuð við framleiðslu ef það er að finna á framleiðslustað eða í húsakynnum framleiðslustaðar. Jafnframt telst slíkur varningur hafður á boðstólum á dreifingarstað ef hann er þar að finna.
Ákvæði greinarinnar eiga ekki við ef sannanlega er um sýni af tilbúinni vöru að ræða eða þegar eftirlitsaðila hefur verið tilkynnt um að unnið sé að vöruþróun.
13. gr.
Matvæli skal geyma þannig að þau verði ekki fyrir skemmdum eða spillist á annan hátt. Geymsluskilyrði skulu vera í samræmi við ákvæði um geymslu matvæla sem sett eru með reglu
Eigandi eða umráðandi flutningstækis er ábyrgur fyrir því að tækið uppfylli þær kröfur sem settar eru um flutning matvæla.
V. KAFLI
Umbúðir og merking þeirra.
14. gr.
Þeim sem framleiða eða flytja inn umbúðir fyrir matvæli, eða fyrir vörur sem notaðar eru við framleiðslu matvæla, er skylt að gæta þess að umbúðir geti ekki spillt þeirri vöru sem þær eru ætlaðar fyrir, þannig að hún verði hættuleg eða varasöm heilsu manna, gæði hennar rýrni eða varan teljist óneysluhæf. Matvælaframleiðendur og dreifendur bera sömu skyldur.
15. gr.
Matvælaumbúðir skulu merktar með nafni og heimilisfangi framleiðanda eða dreifanda með aðsetur á Evrópsku efnahagssvæði. Þá skal heiti vörunnar koma fram ásamt upplýsingum um innihald, geymsluskilyrði, geymsluþol og nettóþyngd/lagarmál.
Ráðherra er heimilt með reglugerð að gera frekari kröfur um umbúðamerkingar en fram koma í þessari grein og á sama hátt er heimilt að gera vægari kröfur til merkingar tiltekinna vörutegunda eða vöruflokka.
VI. KAFLI
Sérreglur um efnainnihald.
16. gr.
Ráðherra er heimilt með reglugerð að setja ákvæði um heiti, framleiðslu og samsetningu matvæla þegar slíkt er talið nauðsynlegt til að stuðla að heilbrigði eða til að tryggja hagsmuni framleiðenda og neytenda.
Þegar vöruheiti er bundið við tiltekna vörutegund samkvæmt þessari grein er ekki heimilt að nota sama heiti á aðrar vörur eða veita einhverjar þær upplýsingar sem gætu orðið til þess að neytendur villtust á vörunni og öðrum vörum sem hafa annan uppruna eða aðra samsetningu.
17. gr.
Ráðherra skal með reglugerðum setja ákvæði um notkun aukefna, bragðefna, varnarefna og bætiefna við framleiðslu matvæla og um leyfilegt magn aðskotaefna í matvælum.
VII. KAFLI
Framkvæmd og fræðslustarfsemi.
18. gr.
Til þess að stuðla að framkvæmd laga þessara setja ráðherrar reglugerðir um atriði sem lög þessi ná til. Þar skal m.a. kveðið nánar á um framleiðslu og dreifingu matvæla, efnainnihald, viðmiðunarmörk fyrir örverur, umbúðir, matvælaeftirlit og matvælarannsóknir.
19. gr.
Hollustuvernd ríkisins, yfirdýralæknir og Fiskistofa skulu, hver á sínu sviði, sjá um að haldið sé uppi fræðslu fyrir almenning um þau málefni sem lög þessi ná til. Jafnframt skulu þessir aðil
Menntamálaráðuneytið setur ákvæði í námskrá skóla sem undir það heyra um kennslu í mat
VIII. KAFLI
Leyfisveitingar.
20. gr.
Framleiðsla og dreifing matvæla er háð leyfi heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga. Heimilt er að binda slíkar leyfisveitingar ákveðnum kröfum til þess að tryggja að matvæli verði ekki fyrir skemmdum eða spillist á annan hátt. Þegar ákvæði þessi eiga við um starfsemi sem er undir yfir
Leyfisveiting og endurnýjun leyfa er háð því að eftirlits- og leyfisgjald sé greitt, sbr. og 25. og 26. gr., og leyfi til framleiðslu og dreifingar matvæla má fella úr gildi ef sá sem slíkt leyfi hefur gerist sekur um ítrekuð eða alvarleg brot á lögum þessum, reglugerðum eða fyrirmælum settum samkvæmt þeim.
Þeir sem annast leyfisveitingu geta endurskoðað veitt leyfi ef framleiðandi eða dreifandi ráðgerir að taka í notkun framleiðslutækni sem ekki hefur áður verið almennt í notkun og skal viðkomandi eftirliti tilkynnt um slíkar fyrirætlanir.
21. gr.
Þrátt fyrir ákvæði 20. gr. og III. og IX. kafla laganna geta ráðherrar, að höfðu samráði við samstarfsráð, gert með sér samkomulag um að einn og sami aðili annist leyfisveitingar og eftir
IX. KAFLI
Matvælaeftirlit.
22. gr.
Heilbrigðisnefnd hefur undir yfirumsjón Hollustuverndar ríkisins opinbert eftirlit með fram
Yfirdýralæknir hefur yfirumsjón opinbers eftirlits með matvælum sem falla undir ákvæði 6. gr. laga þessara.
Fiskistofa hefur með höndum opinbert eftirlit með framleiðslu og dreifingu matvæla sem falla undir ákvæði 7. gr. laganna.
23. gr.
Hlutaðeigandi ráðherra er heimilt að ákveða með reglugerð að opinberir eftirlitsaðilar skuli hljóta faggildingu. Það sama á við um aðra aðila sem kunna að taka að sér eftirlit með fram
Hlutaðeigandi ráðherra er heimilt með reglugerð að ákveða með hvaða hætti komið skal á innra eftirliti framleiðenda og dreifenda matvæla og hvort og þá með hvaða skilyrðum það getur verið þáttur í opinberu eftirliti.
Samstarfsráð skal vera ráðherrum til ráðgjafar um lagasetningu og framkvæmd mála varð
24. gr.
Matvælaframleiðendum og dreifendum er skylt að láta aðilum, sem fara með eftirlit sam
Eftirlitsaðilar eru bundnir þagnarskyldu um framleiðslu- og verslunarleynd er þeir kunna að komast að við leyfisveitingar, sbr. VIII. kafla, og framkvæmd eftirlits.
X. KAFLI
Rekstrarkostnaður og gjaldtaka.
25. gr.
Hlutaðeigandi ráðherra getur sett gjaldskrá vegna kostnaðar að því er varðar starfsemi Holl
Eftirlitsgjöld heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga vegna matvælaeftirlits skulu vera samkvæmt lögum um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit.
26. gr.
Hlutaðeigandi ráðherra skal setja gjaldskrá vegna útgáfu starfsleyfa og vottorða samkvæmt VIII. og IX. kafla laganna, sbr. 6. mgr. 17. og 2. mgr. 22. gr. laga nr. 81/1988, um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit. Það sama gildir um setningu gjaldskrár vegna skráningar og móttöku um
27. gr.
Þegar rökstuddur grunur leikur á að vara eða starfsemi uppfylli ekki ákvæði laga eða reglu
XI. KAFLI
Valdsvið og þvingunarúrræði.
28. gr.
Þegar hætta er talin á að matvæli geti valdið alvarlegu heilsutjóni er ráðherra heimilt að fyr
29. gr.
Eftirlitsaðila er heimilt að stöðva eða takmarka framleiðslu og dreifingu matvæla og leggja hald á þau þegar rökstuddur grunur er um að matvæli uppfylli ekki ákvæði laga þessara eða reglugerða settra samkvæmt þeim.
Þegar eftirlitsaðilar leggja hald á matvæli er þeim heimil förgun þeirra sé það talið nauðsyn
Þegar eftirlitsaðili stöðvar dreifingu vöru, svo sem inn- eða útflutning, og hætta er talin á að vörunni verði þrátt fyrir það dreift á markað þar sem eftirlit er í höndum annars aðila er eftirlitsaðilum skylt að hafa samráð sín á milli eða gera viðeigandi ráðstafanir, allt eftir eðli málsins.
30. gr.
Um valdsvið og þvingunarúrræði eftirlitsaðila gilda að öðru leyti ákvæði laga um hollustu
XII. KAFLI
Málsmeðferð, úrskurðir og viðurlög.
31. gr.
Sá er sekur gerist um brot gegn ákvæðum þessara laga skal greiða allan kostnað sem leitt hefur af útvegun sýna, rannsóknum og öðru sem af því hefur hlotist. Um málsmeðferð, úrskurði og viðurlög gilda að öðru leyti ákvæði laga um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit.
XIII. KAFLI
Gildistaka.
32. gr.
Með lögum þessum, sem taka gildi 1. júní 1995, falla úr gildi ákvæði um matvæli og aðrar neysluvörur í lögum nr. 24/1936, um eftirlit með matvælum og öðrum neyslu- og nauðsynjavör
Ákvæði til bráðabirgða.
Samstarfsráð, sbr. 8. gr., skal taka til starfa þegar við samþykkt laganna og skal ráðið vinna að undirbúningi fyrir gildistöku þeirra.
Lög þessi skulu endurskoðuð innan fimm ára.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Frumvarp þetta var fyrst lagt fram til kynningar á 116. löggjafarþingi. Á 117. löggjafarþingi var frumvarp þetta enn lagt fram sem 85. mál, þskj. 88, og mælt fyrir því. Þegar frumvarpið var lagt fram á 116. löggjafarþingi fylgdi því ítarleg greinargerð um starf nefndar þeirrar sem samdi frumvarpið ásamt lýsingu á þróun matvælamála hér á landi og erlendis. Frumvarpið er nú lagt fram að nýju, að mestu óbreytt. Þó hafa nokkrar breytingar verið gerðar, m.a. með hliðsjón af umsögnum sem bárust til heilbrigðis- og trygginganefndar á 117. löggjafarþingi. Þann 1. júní 1994 færðust málefni er varða hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit og með því Hollustuvernd rík
Helstu nýmæli frumvarpsins eru:
Ákvæði í 1. mgr. 2. gr. varðandi einkaheimili eru ný en sambærileg ákvæði er að finna í lög
Flestar skilgreiningar 4. gr. eru nýjar og er nánar fjallað um þær í athugasemdum við ein
Gert er ráð fyrir samræmdri yfirstjórn matvælalöggjafar og eftirlits á vegum þriggja ráðu
Ákvæði um þekkingu og fræðslu í 2. mgr. 10. gr. eru ný og eru sett fram með tilliti til þess að framleiðendur og dreifendur eiga að bera ábyrgð á eigin vöru og að vandað sé til framleiðslu og meðferðar hennar. Í 3. mgr. sömu greinar er að finna nýmæli að því er varðar samræmingu á heimildum eftirlitsaðila um að gera kröfu til heilsufarsskoðunar starfsfólks sem starfar við framleiðslu og dreifingu matvæla.
Sett eru ákvæði um sérfæði í 2. mgr. 11. gr. og þá m.a. fæðu sem ætluð er börnum. Hér er höfð hliðsjón af umfangsmikilli og ítarlegri löggjöf annarra ríkja og ESB á þessu sviði og því eru sett ný ákvæði um þennan málaflokk.
Í 2. mgr. 12. gr. eru ákvæði sem eru hliðstæð núgildandi ákvæðum sem fram koma í 1. mgr. greinarinnar.
Skýr ákvæði um ábyrgð eiganda eða umráðanda flutningstækis hafa ekki verið í lögum og eru því ný, sbr. 2. mgr. 13. gr.
Ákvæði 15. gr. um umbúðamerkingar eru ítarlegri en áður og taka m.a. mið af þeirri áherslu sem lögð er á góðar umbúðamerkingar í löggjöf annarra ríkja og má nefna Bandaríkin og ESB í því samhengi.
Ný ítarleg ákvæði um fræðslustarfsemi er að finna í 19. gr. og er talið mikilvægt að ná mark
Í 3. mgr. 20. gr. er ákvæði um tilkynningarskyldu þegar ný framleiðslutækni er tekin í notk
Ákvæði í 21. gr. varðandi samræmingu á starfsemi eftirlitsaðila hefur ekki verið í matvæla
Verksvið eftirlitsaðila er skilgreint í 22. gr. og kemur þar skýrt fram hver verkaskipting aðila er með hliðsjón af ákvæðum þessa frumvarps og sérlaga sem þeir starfa eftir.
Í 23. gr. er fjallað um þætti sem varða ný viðhorf varðandi eftirlit þar sem lögð er áhersla á innra eftirlit framleiðenda og dreifenda, auk þess sem fjallað er um faggildingu, sbr. skilgrein
Ákvæði um þagnarskyldu og aðrar skyldur eftirlitsaðila í 2. mgr. 24. gr. eru ný í matvælalög
Gjaldskrárheimildir eru þær sömu fyrir ríkisstofnanir sem tilgreindar eru í 25. gr., en heil
Í sérstökum tilvikum getur orðið nauðsynlegt að grípa til ráðstafana sem ekki eiga við undir eðlilegum kringumstæðum og er tekið á þessu í 28. gr. með samráði heilbrigðisyfirvalda og eft
Með 29. gr. eru heimildir eftirlitsaðila við eftirlit samræmdar og er talið eðlilegt að þessir aðilar starfi á grundvelli sömu heimilda og að þeir hafi samráð í ákveðnum tilvikum, sbr. 3. mgr. þessarar greinar. Valdsvið og þvingunarúrræði eru á sama hátt samræmd með 30. gr. og það sama gildir um málsmeðferð, úrskurði og viðurlög í 31. gr.
Með ákvæðum til bráðabirgða er þegar við samþykkt laganna gert ráð fyrir auknu samstarfi eftirlitsaðila, sbr. 1. tölul. um samstarfsráð, auk þess sem skoða skal grundvöll fyrir samræm
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Samkvæmt ákvæðum í 1. gr. nær tilgangur laganna ekki eingöngu til öryggis matæla og holl
Um 2. gr.
Gildissvið laganna er víðtækt og sést þetta vel þegar skoðaðar eru skilgreiningar á fram
Tóbak er skilgreint sem neysluvara í eldri lögum, en ekki er talið rétt að telja tóbak til mat
Ekki var talin ástæða til að láta lög þessi ná yfir eftirlit með sjúkdómum og meindýrum á plöntum sem framkvæmt er af Rannsóknastofnun landbúnaðarins samkvæmt lögum nr. 51/1981, með síðari breytingum. Ástæðan fyrir þessu er m.a. sú að um er að ræða sérhæfða starfsemi sem nær ekki aðeins til matjurta og því ekki talið rétt að skilgreina hana sérstaklega í matvælalögum. Þá er ekki talið rétt að Rannsóknastofnun landbúnaðarins fái sama vægi og aðrir eftirlitsaðilar í þessum lögum vegna ofangreinds eftirlits.
Um 3. gr.
Í þessari grein er vikið að þeim markmiðum laganna sem fram koma í 1. gr., sbr. athuga
Um 4. gr.
Í stað þess að aðgreina matvæli og tilteknar neysluvörur eins og gert er í gildandi lögum eru matvæli skilgreind í 4. gr. þannig að allar neysluvörur, sem lögin ná til, teljast matvæli. Því verður ekki lengur nauðsynlegt að tala um matvæli og aðrar neysluvörur. Skilgreiningar á fram
Skilgreining efna og hluta er einnig ný og tekur mið af umfangsmikilli löggjöf sem sett verð
Hinir ýmsu efnisþættir í matvælum hafa ekki áður verið skilgreindir í lögum. Þetta á t.d. við um örverur og má einnig nefna að skilgreining orðsins bætiefni er víðtækari en almennur skiln
Skilgreining opinbers eftirlits hefur ekki komið fyrir áður í matvælalögum, en kemur hér fram í greininni, m.a. með hliðsjón af ákvæðum um opinbert eftirlit og hlutverk þess í matvæla
Um 5. gr.
Umhverfisráðherra fer með yfirstjórn mála samkvæmt þessu frumvarpi en ekki er gerð til
Um 6. gr.
Hér er fjallað um yfirstjórn landbúnaðarráðherra samkvæmt gildandi sérlögum og hlutverk yfirdýralæknis sem ráðgjafa ráðherrans á þessu sviði.
Um 7. gr.
Hér er fjallað um yfirstjórn sjávarútvegsráðherra og verksvið Fiskistofu. Vakin er athygli á því að hér er gert ráð fyrir að sjávarútvegsráðherra fari með yfirumsjón mála er varðar með
Um 8. gr.
Lögð er áhersla á aukið samstarf ráðuneyta og stofnana sem fjallað er um í 5.–7. gr. og í þeim tilgangi er lagt til að skipað verði samstarfsráð. Ráðið verður skipað fulltrúum stofnana sem fara með yfirumsjón eftirlits, þ.e. Hollustuverndar ríkisins, Fiskistofu og yfirdýralæknis. Er ráðinu ætlað að hefja störf þegar frumvarpið er samþykkt og vinna þá að undirbúningi fyrir gildistöku laganna, sbr. bráðabirgðaákvæði þar að lútandi. Samstarfsráð mun vinna að samræm
Þess má geta að einnig er tekið á samskiptum eftirlitsaðila í 21. og 29. gr. og þá í þeim til
Um 9. gr.
Tilkynningarskylda, sem lögð er á framleiðendur og dreifendur matvæla, er til að tryggja að hægt sé að hafa gott yfirlit yfir þá aðila sem reka slíka starfsemi. Um starfs
Um 10. gr.
Um ákvæði þessarar greinar má segja að þar er kveðið skýrar á um ábyrgð framleið
Af nýmælum má nefna ákvæði um þekkingu og fræðslu í 2. mgr. 10. gr. og er mik
Um 11. gr.
Hér er vikið að mikilvægum atriðum sem varða eitt af meginmarkmiðum laganna um réttmæta viðskiptahætti. Ákvæði þessi geta átt við um misnotkun aukefna, svo sem þeg
Það sama getur átt við um ákvæði í 2. mgr. 11. gr. varðandi sérfæði eða aðrar vörur sem auglýstar eru, kynntar og merktar þannig að þær séu ætlaðar tilteknum hópum fólks vegna aldurs, sjúkdóma eða af öðrum ástæðum. Mikilvægt er að hafa heimild til að setja reglur um þessa þætti, bæði til að tryggja gæði vörunnar og réttmæta markaðssetningu hennar. Rétt að geta þess að á þessum málum er tekið í tilskipunum ESB um matvæli. Má þar sem dæmi nefna almennt sérfæði og barnamat.
Um 12. gr.
Ákvæði 1. mgr. eru í samræmi við breytingu sem gerð var á gildandi lögum, sbr. lög nr. 5/1985, þar sem sönnunarbyrði er lögð á framleiðanda eða dreifanda, svo sem ef óstimplað kjöt eða önnur matvæli sem ekki samræmast lögum eða reglum finnast á fram
Ákvæði í 2. mgr. ná til efna, hluta og annars sem notað er við framleiðslu matvæla og eru þau sett fram til samræmis við 1. mgr. en eiga við aðra þætti eins og óleyfileg aukefni eða umbúðir sem ekki standast reglur.
Í 3. mgr. er fjallað um það að ákvæði greinarinnar eigi ekki við ef sannanlega er um sýni af tilbúinni vöru að ræða eða þegar eftirlitsaðila hefur verið tilkynnt um að unnið sé að vöruþróun. Sönnunarbyrðin er lögð á framleiðanda eða dreifanda.
Um 13. gr.
Geymsla matvæla og flutningur þeirra við rétt geymsluskilyrði eru þættir sem geta haft veruleg áhrif á gæði og heilnæmi vörunnar. Mikilvægt er að taka á þessum þáttum við framleiðslu og dreifingu, þar með töldum flutningi, og þarf skýrar lagaheimildir til stuðn
Um 14. gr.
Í þessari grein er kveðið á um ábyrgð þeirra sem framleiða eða flytja inn umbúðir, svo og þeirra sem nota þær umbúðir fyrir vörur sem þeir framleiða eða dreifa. Almenn ákvæði um þessa þætti er að finna í gildandi matvælalögum en fáar sértækar reglur hafa verið settar um umbúðir og efni sem geta borist úr þeim í matvæli. Í tilskipunum ESB eru hins vegar umfangsmiklar reglur á þessu sviði og ljóst að úrbóta er þörf hér á landi.
Um 15. gr.
Hér er fjallað um umbúðamerkingar og eru ákvæði þessi í samræmi við þær reglur sem nú gilda um merkingu umbúða fyrir matvæli. Einnig samræmast ákvæði greinarinnar þeim kröfum sem gerðar eru til umbúðamerkinga í tilskipunum ESB. Þess má geta að í gegn
Ákvæði 2. mgr. taka mið af því að veittar eru undanþágur frá tilteknum ákvæðum um merkingar þegar umbúðir eru litlar og jafnframt því að í reglugerðum eru gerðar frek
Um 16. gr.
Ákvæði greinarinnar eiga við um setningu sérstakra reglna um ákveðnar vörur, svo sem mjólkurvörur og kjötvörur, þar sem markmiðið getur verið að staðla vörurnar með tilliti til ákveðinna efnisþátta. Tilgangurinn getur bæði verið heilsufarslegs eðlis, svo sem manneldissjónarmið, og að tryggja að neytendur fái þá vöru sem þeir eiga rétt á þegar til
Ákvæði greinarinnar geta einnig átt við um tilteknar framleiðsluaðferðir og má sem dæmi nefna lífræna ræktun matvæla. ESB hefur reglur um lífræna ræktun og hér er því lagalegur stuðningur fyrir setningu reglna um slíkar aðferðir eða vörur eða aðra þætti sem greinin nær til.
Gert er ráð fyrir að hagsmunir neytenda og framleiðenda fari í flestum tilvikum sam
Um 17. gr.
Í greininni kemur fram að setja skuli reglur um tiltekin efni í matvælum. Ekki er tek
Um 18. gr.
Framkvæmd laganna felst í setningu reglna um þá þætti sem lögin ná til og er fram
Um 19. gr.
Ekki hefur áður í lögum verið tekið á ýmsum þeirra þátta sem fjallað er um í þess
Umfang íslensks matvælaiðnaðar má glögglega sjá þegar skoðaðar eru tölur yfir árs
Um 20. gr.
Um leyfisveitingar hefur ekki verið fjallað í lögum á þann hátt sem hér er gert en ákvæði um þessi atriði er að finna bæði í sérlögum og reglugerðum á matvælasviði. Ótví
Um 21. gr.
Skörun á verksviði eftirlitsaðila er fyrir hendi og með ákvæðum þessarar greinar er skapaður möguleiki til að skipa málum þannig að aðeins einn aðili annist leyfisveiting
Um 22. gr.
Skipting opinbers eftirlits samkvæmt ákvæðum þessarar greinar er með sama hætti og nú er samkvæmt gildandi lögum um matvæli og sérlögum um tiltekna flokka matvæla.
Ekki var talið raunhæft að sameina starfsemi eftirlitsaðila á þessu stigi, en í 2. mgr. bráðabirgðaákvæða kemur fram að stefnt er að endurskoðun laganna innan fimm ára. Er þá m.a. gert ráð fyrir að skoðað verði hvort rétt er að samræma starfsemi opinbers eft
Um 23. gr.
Meðal helstu nýmæla frumvarpsins eru þau ákvæði sem fram koma í greininni um fag
Í tilskipunum ESB eru ákvæði um innra eftirlit, svo sem vegna fiskafurða, og nýlega hafa verið samþykktar ESB-reglur um innra eftirlit við framleiðslu, dreifingu, tilreiðslu og aðra meðferð matvæla. Því er nauðsynlegt að hafa heimildarákvæði í lögum til setn
Grein þessi gerir ráð fyrir að aðrir en opinberir aðilar geti haft eftirlit með framleiðslu og dreifingu matvæla, en eftirlit þeirra getur ekki tengst opinberu eftirliti nema um það séu settar nánari reglur. Ráðherrum er heimilt að setja slíkar reglur og jafnframt er þeim heimilt að gera kröfu um að aðilar, sem sinna eftirlitsstörfum á matvælasviði, skuli hljóta faggildingu.
Um 24. gr.
Með ákvæðum þessarar greinar er tryggt að eftirlitsaðilar hafa fullan aðgang að eft
Um 25. gr.
Hér er bæði byggt á nýjum ákvæðum og ákvæðum sem er að finna í lögum um holl
Matvælarannsóknir eru í dag framkvæmdar samkvæmt gjaldskrám sem settar hafa ver
Gjaldskrárheimildir aðila, sem tengjast eftirliti, eru samræmdar með ákvæðum þess
Um 26. gr.
Það sama á við hér og um 25. gr. að framan en þessi grein varðar gjaldtöku vegna starfsleyfa og sérstakrar þjónustu sem hagsmunaaðilar leita eftir, svo sem vegna útgáfu vottorða eða umsókna um heimild til notkunar tiltekinna efna eða annarra slíkra leyfis
Um 27. gr.
Ekki hefur áður verið fjallað á þann hátt sem hér er gert um greiðslu rannsóknar
Um 28. gr.
Greinin er ný og með ákvæðum hennar er samskiptum eftirlitsaðila og heilbrigðisyf
Um 29. gr.
Með þessari grein er verið að samræma valdsvið og þvingunarúrræði eftirlitsaðila og er m.a. stuðst við ákvæði þar að lútandi í lögum um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit. Í 3. mgr. greinarinnar, þar sem tekið er á framleiðslu og dreifingu matvæla sem dæmd eru óhæf til útflutnings eða dreifingar innan lands, er einnig fjallað um samskipti eftirlits
Í 2. mgr. greinarinnar er fjallað um förgun matvæla og er rétt að taka fram að um hana geta einnig gilt önnur lög og reglur, svo sem vegna mengunarvarna, sem ber að virða við ákvörðunartöku um hvernig að henni er staðið.
Um 30. gr.
Það telst til nýmæla í þessari grein og 29. gr. að öllum eftirlitsaðilum er ætlað að starfa eftir sömu ákvæðum hvað valdsvið og þvingunarúrræði varðar.
Um 31. gr.
Á sama hátt og fyrir valdsvið og þvingunarúrræði er með 31. gr. verið að samræma málsmeðferð, úrskurði og viðurlög, hvort sem eftirlitið beinist að fiskafurðum, kjöti eða öðrum matvælum.
Um 32. gr.
Með frumvarpi þessu er lagt til að felld verði úr gildi ákvæði um matvæli og aðrar neysluvörur í lögum nr. 24/1936, um eftirlit með matvælum og öðrum neyslu- og nauð
Gert er ráð fyrir að ákvæði um matvæli í 17. gr. laga nr. 52/1988, um eiturefni og hættuleg efni, falli einnig úr gildi. Í bráðabirgðaákvæðum þeirra laga kemur fram að ákvæði 17. gr. skuli gilda þar til fyllri ákvæði hafi verið sett um notkun eiturefna og hættulegra efna í matvælum og mengun matvæla af völdum slíkra efna. Ákvæði þessa frumvarps um aðskotaefni og þá sérstaklega varnarefni komi í stað þeirra ákvæða sem eru í áðurnefndum lögum og þau megi því fella úr gildi.
Um ákvæði til bráðabirgða.
Með ákvæðum til bráðabirgða er samstarfsráði falið að hefja þegar undirbúning að gildistöku laganna. Með þessu er samstarf eftirlitsaðila og þeirra sem fara með yfirstjórn laganna tryggt þegar við samþykkt frumvarpsins.
Ákvæði um endurskoðun laganna er talið mikilvægt, ekki síst með hliðsjón af þeirri öru þróun og miklu breytingum sem nú eru fyrirsjáanlegar með sameiginlegum markaði í Evrópu og aðild Íslands að Evrópsku efnahagssvæði. Á því tímabili sem tilgreint er í 2. mgr. mun einnig fást meiri reynsla af samstarfi opinberra eftirlitsaðila og því raun
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til laga um matvæli.
Markmið laganna er að tryggja gæði, heilnæmi og hollustu matvæla og að merking
Frumvarpið er fyrst og fremst samræming á matvælaeftirliti, auk þess sem lögin eru færð í nútímalegra horf. Breytingar frá gildandi lögum eiga ekki að leiða til aukinna út
Með frumvarpinu á að koma í veg fyrir skörun á verksviði eftirlitsaðila og tvöfalda gjaldtöku og á það því að leiða til hagræðis. Nefndin, sem samdi frumvarpið, taldi það ekki í sínum verkahring að skoða frekari samræmingu á starfsemi eftirlits- og rannsókn
Með tilkomu samnings um Evrópskt efnahagssvæði hafa kröfur um matvælaeftirlit aukist og eru lög um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, nr. 81/1988, nú til endurskoð