Ferill 240. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 240 . mál.
517. Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um brunatryggingar, nr. 48/1994.
(Eftir 2. umr., 28. des.)
1. gr.
Eftirtaldar breytingar skal gera á 2. gr. laganna:
a . Á eftir 2. málsl. 1. mgr. kemur nýr málsliður svohljóðandi: Þó skal Fasteignamat ríkisins að jafnaði annast fyrstu virðingu.
b . Á eftir lokamálslið 2. mgr. kemur nýr málsliður svohljóðandi: Sjái Fasteignamat ríkisins ástæðu til getur það framkvæmt endurmat, húseiganda og vátryggingafélagi að kostnaðar
c . 3. mgr. verður svohljóðandi:
Breyta skal vátryggingarverði húsa til samræmis við vísitölu byggingarkostnaðar hinna ýmsu tegunda húseigna.
d . Á eftir 3. mgr. kemur ný málsgrein, sem verður 4. mgr., svohljóðandi:
Með reglugerð er heimilt að ákveða að húseigendur greiði árlegt umsýslugjald af bruna
2. gr.
2. mgr. 3. gr. laganna verður svohljóðandi:
Vátryggjanda er heimilt að veita undanþágu frá byggingarskyldu að höfðu samráði við skipulagsyfirvöld gegn því skilyrði að 15% dragist frá bótafjárhæðinni. Frádrætti þessum skal þó ekki beitt ef endurbygging er eigi heimil af skipulagsástæðum eða öðrum ástæðum sem tjón
3. gr.
4. gr. laganna verður svohljóðandi:
Öll iðgjöld og matskostnaður af húseignum í skyldutryggingu hvíla sem lögveð á eignunum sjálfum og ganga í tvö ár fyrir öllum öðrum skuldbindingum sem á þeim hvíla nema sköttum til ríkissjóðs.
Séu iðgjöld eigi greidd innan sex mánaða frá gjalddaga er heimilt að láta selja hina vá
4. gr.
Á eftir 4. gr. laganna kemur ný grein, sem verður 4. gr. a, svohljóðandi:
Hafi brunatrygging húss, sem tekin hefur verið, fallið niður af ástæðum sem húseiganda verður ekki um kennt ber Sambandi íslenskra tryggingafélaga að bæta honum tjón á húseign hans af völdum eldsvoða.
Samband íslenskra tryggingafélaga skal endurkrefja vátryggingafélög, sem hafa með höndum brunatryggingar húsa, um kostnað vegna slíkra bótagreiðslna nema í ljós verði leitt hver ber ábyrgð á að vátrygging féll niður og skal sambandið þá endurkrefja þann aðila. Kostnaði skal skipt á félögin í hlutfalli við bókfærð iðgjöld þeirra í lögboðnum brunatryggingum húsa hér á landi. Skal í því efni miðað við nýjustu upplýsingar um markaðshlutdeild félaganna við uppgjörsdag tjóns.
Skilyrði starfsleyfis lögboðinna brunatrygginga húseigna er að félag skuldbindi sig til að taka þátt í þessari tilhögun um greiðslu bóta vegna óvátryggðra húseigna.
5. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.