Ferill 336. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 336 . mál.
533. Frumvarp til laga
um mannanöfn.
(Lagt fyrir Alþingi á 118. löggjafarþingi 1994.)
I. KAFLI
Fullt nafn og nafngjöf.
1. gr.
Fullt nafn manns er eiginnafn hans eða eiginnöfn, millinafn, ef því er að skipta, og kenni
Eiginnöfn og millinafn mega aldrei vera fleiri en þrjú samtals.
2. gr.
Skylt er að gefa barni nafn innan sex mánaða frá fæðingu þess.
Barn öðlast nafn við skírn í þjóðkirkjunni eða skráðu trúfélagi eða með tilkynningu um nafn
3. gr.
Eigi að gefa barni nafn við skírn sem prestur þjóðkirkjunnar, forstöðumaður eða prestur skráðs trúfélags á að annast skal forsjármaður þess, um leið og skírnar er óskað, skýra honum frá því nafni eða nöfnum sem barnið á að hljóta. Sé eiginnafn eða millinafn sem barn á að hljóta ekki á mannanafnaskrá, sbr. 22. gr., skal prestur eða forstöðumaður trúfélags hvorki samþykkja það að svo stöddu né gefa það við skírn heldur skal málið borið undir mannanafnanefnd, sbr. þó 3. mgr. 6. gr. og 7. og 10. gr.
Berist Þjóðskrá tilkynning um eiginnafn eða millinafn sem ekki er á mannanafnaskrá skal það ekki skráð að svo stöddu heldur skal málinu vísað til mannanafnanefndar.
II. KAFLI
Eiginnöfn.
4. gr.
Hverju barni skal gefa eiginnafn, þó ekki fleiri en þrjú.
Þeir sem fara með forsjá barns hafa bæði rétt og skyldu til að gefa því eiginnafn eftir því sem greinir í lögum þessum.
5. gr.
Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. Það skal ritað í samræmi við almennar ritregl
Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.
Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
III. KAFLI
Millinöfn.
6. gr.
Heimilt er að gefa barni eitt millinafn auk eiginnafns þess eða eiginnafna. Millinafn má hvort heldur er gefa stúlku eða dreng.
Millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu. Nöfn, sem aðeins hafa unnið sér hefð sem ann
Millinafn sem víkur frá ákvæðum 2. mgr. er heimilt þegar svo stendur á að eitthvert alsystkini þess sem á að bera nafnið, foreldri, afi eða amma ber eða hefur borið nafnið sem eiginnafn eða millinafn.
Millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyr
Millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
7. gr.
Ættarnafn er einungis heimilt sem millinafn í þeim tilvikum sem um getur í þessari grein.
Hver maður sem ber ættarnafn í þjóðskrá má breyta því í millinafn, sbr. 15. gr.
Hver maður sem ekki ber ættarnafn en á rétt til þess má bera það sem millinafn.
Maður má bera ættarnafn sem millinafn hafi eitthvert alsystkini hans, foreldri, afi eða amma borið það sem eiginnafn, millinafn eða ættarnafn.
Maður á og rétt á að taka sér ættarnafn maka síns sem millinafn. Honum er einnig heimilt að taka sér nafnið sem millinafn beri maki hans það sem millinafn skv. 2. eða 3. mgr.
Þeir sem fá eða taka sér millinafn skulu kenna sig til föður eða móður.
IV. KAFLI
Kenninöfn.
8. gr.
Kenninöfn eru tvenns konar, föður- eða móðurnöfn og ættarnöfn.
Hver maður skal kenna sig til föður eða móður nema hann eigi rétt á að bera ættar
Föður- og móðurnöfn eru mynduð þannig að á eftir eiginnafni eða eiginnöfnum og millinafni, ef því er að skipta, kemur nafn föður eða móður í eignarfalli, að viðbættu son ef karlmaður er en dóttir ef kvenmaður er.
Nú óskar maður þess að hann eða barn hans beri kenninafn sem dregið er af erlendu eiginnafni foreldris og má þá með úrskurði mannanafnanefndar laga kenninafnið að ís
Maður, sem samkvæmt þjóðskrá ber ættarnafn við gildistöku þessara laga, má bera það áfram. Sama gildir um niðja hans hvort heldur er í karllegg eða kvenlegg.
Maður, sem samkvæmt þjóðskrá er kenndur til föður eða móður maka síns við gild
Ekki er manni heimilt að bera fleiri en eitt kenninafn.
Óheimilt er að taka upp nýtt ættarnafn hér á landi.
9. gr.
Íslenskur ríkisborgari má ekki taka sér ættarnafn maka síns.
Maður, sem við gildistöku þessara laga ber ættarnafn maka síns, má bera það áfram. Eftir að hjúskap lýkur er honum og heimilt að bera ættarnafn fyrrverandi maka síns. Þó getur maður krafist þess að dómsmálaráðherra úrskurði að fyrri maka sé óheimilt að bera ættarnafn hans eftir að hinn fyrri maki gengur í hjúskap að nýju. Sé viðkomandi maður látinn hefur eftirlifandi maki hans sama rétt til að gera þess háttar kröfu. Krafa skal gerð innan sex mánaða frá því að hlutaðeigandi gekk í hjúskap. Dómsmálaráðherra reisir úr
Hafi annað íslenskra hjóna tekið upp föður- eða móðurnafn hins við búsetu erlendis er því skylt að leggja það niður við flutning til landsins. Sama gildir um niðja þeirra.
V. KAFLI
Nafnréttur manna af erlendum uppruna.
10. gr.
Ákvæði 2. og 5. gr. taka ekki til barns hér á landi ef báðir foreldrar þess eru erlend
Sé annað foreldri barns erlendur ríkisborgari eða hafi verið það er heimilt að barn
11. gr.
Nú fær maður sem heitir erlendu nafni íslenskt ríkisfang með lögum og má hann þá halda fullu nafni sínu óbreyttu. Honum er þó heimilt að taka upp eiginnafn, millinafn og/eða kenninafn í samræmi við ákvæði laga þessara.
Ákvæði 1. mgr. eiga einnig við um börn manns sem fær íslenskt ríkisfang með lög
Ákvæði 1. mgr. taka enn fremur til manna sem fá íslenskt ríkisfang skv. 2.–4. gr. laga nr. 100/1952.
Þeim sem fyrir gildistöku laga þessara hafa fengið íslenskt ríkisfang með því skil
12. gr.
Erlendur ríkisborgari sem stofnar til hjúskapar við Íslending má taka upp ættarnafn maka síns ef til er eða kenna sig til föður hans eða móður og skal kenninafn hans þá dregið af sama eiginnafni og kenninafn maka hans.
VI. KAFLI
Nafnbreytingar.
A. Eiginnöfn og millinöfn.13. gr.
Dómsmálaráðherra er heimilt að leyfa manni breytingu á eiginnafni og/eða millinafni skv. 2. mgr. 6. gr., þar með talið að taka nafn eða nöfn til viðbótar því eða þeim sem hann ber eða fella niður nafn eða nöfn sem hann ber ef telja verður að ástæður mæli með því.
Nafnbreyting barns undir 16 ára aldri er háð því skilyrði að séu forsjármenn þess tveir standi þeir báðir að beiðni um nafnbreytinguna. Beri forsjármaður barns fram ósk um breytingu á nafni þess og hafi orðið breyting á forsjánni frá því barninu var gefið nafn skal, ef unnt er, leita samþykkis þess foreldris sem með forsjána fór við fyrri nafngjöf. Þótt samþykki þess foreldris liggi ekki fyrir getur dómsmálaráðherra engu að síður heim
Sé barn undir 16 ára aldri ættleitt eftir að því var gefið nafn má gefa því nafn eða nöfn í ættleiðingarbréfi í stað hinna fyrri eða til viðbótar nafni eða nöfnum sem það hefur áður hlotið.
Breyting á eiginnafni eða millinafni barns undir 16 ára aldri skal háð samþykki þess hafi það náð 12 ára aldri.
Það er skilyrði nafnbreytingar að hin nýju nöfn séu á mannanafnaskrá eða samþykkt af mannanafnanefnd, sbr. þó 3. mgr. 6. gr. og 7. og 10. gr.
B. Kenninöfn.
14. gr.
Breytingar á kenninöfnum samkvæmt þessari grein gilda um börn yngri en 16 ára.
Nú gengur móðir ófeðraðs barns í hjónaband og má þá kenna barnið til stjúpföður þess.
Heimilt er með leyfi dómsmálráðherra að feðrað barn sé kennt til stjúpforeldris. Leita skal samþykkis þess kynforeldris sem ekki fer með forsjá barnsins, ef unnt er, áður en ákvörðun er tekin um slíkt leyfi. Nú er kynforeldri ekki samþykkt breytingu á kenni
Ákvörðun skv. 2. og 3. mgr. skal háð samþykki stjúpforeldris.
Þegar barn er ættleitt skal það kennt til kjörforeldris nema kjörforeldri óski eftir að barnið haldi fyrra kenninafni sínu.
Breyting á kenninafni barns undir 16 ára aldri skal háð samþykki þess hafi það náð 12 ára aldri.
15. gr.
Maður getur fellt niður ættarnafn sem hann hefur borið eða tekið það upp sem milli
16. gr.
Dómsmálaráðherra er heimilt að leyfa manni eldri en 16 ára að taka upp nýtt kenni
17. gr.
Nafnbreytingar samkvæmt lögum þessum, hvort sem um er að ræða breytingar til
VII. KAFLI
Skráning og notkun nafns.
18. gr.
Við skráningu kenninafns barns í þjóðskrá skal fara eftir ákvæðum 3. mgr. 8. gr. nema fram sé tekið í tilkynningu til Þjóðskrár að barnið skuli bera ættarnafn, sbr. 5. mgr. 8. gr.
Allar nafnbreytingar samkvæmt lögum þessum, sem ekki eru bundnar leyfi dóms
Breyting á eiginnafni, millinafni eða kenninafni samkvæmt lögum þessum tekur ekki gildi fyrr en hún hefur verið færð í þjóðskrá.
19. gr.
Á öllum opinberum skrám og öðrum opinberum gögnum skulu nöfn manna rituð eins og þau eru skráð í þjóðskrá á hverjum tíma.
Í skiptum við opinbera aðila, við samningsgerð, skriflega og munnlega, svo og í öll
20. gr.
Hagstofa Íslands, Þjóðskrá, getur heimilað að ritun nafns í þjóðskrá sé breytt án þess að um sé að ræða eiginlega nafnbreytingu. Slík breyting á nafnritun skal fara eftir regl
VIII. KAFLI
Mannanafnanefnd.
21. gr.
Dómsmálaráðherra skipar mannanafnanefnd til fjögurra ára í senn. Nefndin skal skip
22. gr.
Mannanafnanefnd hefur eftirtalin verkefni samkvæmt lögum þessum:
Að semja skrá um eiginnöfn og millinöfn sem heimil teljast skv. 5. og 6. gr. og er hún nefnd mannanafnaskrá í lögum þessum. Hagstofa Íslands gefur skrána út, kynn
2. Að vera prestum, forstöðumönnum skráðra trúfélaga, Hagstofunni, dómsmálaráð
3. Að skera úr öðrum álita- eða ágreiningsmálum sem upp kunna að koma um nafn
Úrskurðum mannanafnanefndar er ekki unnt að skjóta til æðra stjórnvalds. Nefndin skal birta niðurstöður úrskurða sinna árlega.
23. gr.
Mannanafnanefnd kveður upp úrskurði í þeim málum sem til hennar er vísað skv. 3. gr. og 4. mgr. 8. gr. Úrskurðir skulu kveðnir upp svo fljótt sem við verður komið og ekki síðar en innan fjögurra vikna frá því mál berast nefndinni.
IX. KAFLI
Ýmis ákvæði.
24. gr.
Geti maður fært sönnur að því að annar maður noti nafn hans eða nafn sem líkist því svo mjög að villu geti valdið getur hann krafist þess í dómsmáli að hinn sé skyldaður til að láta af notkun nafnsins.
25. gr.
Sé barni ekki gefið nafn innan þess tíma sem um getur í 1. mgr. 2. gr. skal Hagstofa Íslands, Þjóðskrá, vekja athygli forsjármanna barnsins á þessu ákvæði laganna og skora á þá að gefa barninu nafn án tafar. Sinni forsjármenn ekki þessari áskorun innan eins mánaðar og tilgreini ekki gildar ástæður fyrir drætti á nafngjöf er Hagstofu Íslands heim
Að öðru leyti varða brot gegn lögum þessum sektum nema þyngri viðurlög liggi við eftir öðrum lögum.
26. gr.
Ríkisstjórninni er heimilt að gera samninga við önnur ríki um mörkin milli íslenskr
Dómsmálaráðherra er enn fremur heimilt að kveða á með reglugerð um mörkin milli íslenskrar löggjafar um mannanöfn og löggjafar annarra þjóða á því sviði.
27. gr.
Dómsmálaráðherra fer með mál er varða mannanöfn og er honum heimilt með reglu
28. gr.
Lög þessi öðlast gildi fyrsta dag næsta mánaðar eftir að liðnir eru sex mánuðir frá birt
Jafnframt falla þá úr gildi lög um mannanöfn, nr. 37 27. mars 1991.
Ákvæði til bráðabirgða.
I.
Hagstofa Íslands, Þjóðskrá, skal setja skýrar reglur um skráningu nafna í þeim til
II.
Dómsmálaráðherra skal þegar eftir birtingu laga þessara gera ráðstafanir til að kynna almenningi efni þeirra.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Frumvarp þetta er samið af nefnd sem dómsmálaráðherra skipaði 5. ágúst 1993. Í nefndinni áttu sæti Drífa Pálsdóttir, skrifstofustjóri í dómsmálaráðuneytinu, formaður, dr. Halldór Ármann Sigursson prófessor og sr. Hjálmar Jónsson prófastur. Með nefndinni hefur starfað Áslaug Þórarinsdóttir, deildarstjóri í dómsmálaráðuneytinu. Á fund nefnd
Í skipunarbréfum nefndarmanna var þeim falið að „endurskoða lög um mannanöfn, nr. 37/1991, og semja frumvarp til breytinga á lögunum“. Að höfðu samráði við dómsmála
Við starf sitt hafa nefndarmenn tekið mið af lögum nr. 37/1991 en jafnframt litið til eldri laga um mannanöfn á Íslandi (nr. 31/1913 og 54/1925) og frumvarpa til laga um mannanöfn sem lögð voru fyrir 75. löggjafarþing 1955 og 92. löggjafarþing 1971. Enn fremur hafa nefndarmenn kynnt sér sögu íslenskrar nafnalöggjafar að öðru leyti og at
Lög nr. 37/1991, um mannanöfn.
Lög nr. 37/1991 leystu af hólmi lög nr. 54/1925, um mannanöfn, og voru ekki sett að ástæðulausu. Lögin frá 1925 voru ágripskennd og ófullkomin og framkvæmd þeirra um margt í ólestri. Lögð voru fram frumvörp til endurskoðunar þeirra ásamt rækilegum grein
Þremur árum síðar, með bréfi þáverandi menntamálaráðherra, Svavars Gestssonar, dag
Ýmislegt í lögum nr. 37/1991 var mjög til bóta. Þar voru t.d. settar skýrar reglur um eftirfarandi atriði:
1. Hvernig að nafngjöf skal standa og hver frestur til þess er.
2. Þau skilyrði sem eiginnöfn og kenninöfn skulu fullnægja.
3. Skráningu og notkun nafna.
4. Nafnbreytingar.
5. Nafnrétt erlendra manna sem gerast íslenskir ríkisborgarar, svo og þeirra sem hafa erlent ríkisfang en eru búsettir hér á landi.
Á meðal mikilvægra nýmæla í lögunum voru þessi:
1. Þar er kveðið á um skipun mannanafnanefndar sem m.a. hefur það hlutverk að semja mannanafnaskrá og skera úr ágreiningi um mannanöfn.
2. Yfirstjórn mannanafnamála er færð frá menntamálaráðherra til dómsmálaráðherra.
3. Erlendir menn sem gerast íslenskir ríkisborgarar eru ekki lengur skyldaðir til að kasta nafni sínu heldur nægir að þeir taki sér eitt íslenskt nafn til viðbótar eiginnafni sínu.
4. Kynjamisrétti eldri mannanafnalaga er að mestu útrýmt, m.a. með ákvæði sem heim
Margt af þessu var auðsæilega mjög til bóta og í samræmi við nýjan tíðaranda. Lög
Gagnrýni á lög nr. 37/1991.
Þótt framför væri að mannanafnalögunum frá 1991 sættu þau brátt nokkurri gagnrýni almennings. Beindist gagnrýnin einkum að 2. gr. laganna og framkvæmd hennar, en greinin hljóðar svo: „Eiginnafn skal vera íslenskt eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. Það má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. Eiginnafn má ekki heldur vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Hvorki má gefa stúlku karlmannsnafn né dreng kvenmannsnafn.
Óheimilt er að gefa barni ættarnafn sem eiginnafn nema hefð sé fyrir því nafni.“
Ákvæði 1. málsl. 1. gr. felur það í sér að öll eiginnöfn af erlendum uppruna eru óheimil nema því aðeins að þau hafi unnið sér hefð í íslensku máli, hvort sem þau eru löguð að almennum reglum íslensks máls og hérlendum ritvenjum eða ekki.
Af þeirri grunnreglu 2. gr. að eiginnöfn séu annaðhvort karlmanns- eða kven
Í samræmi við ákvæði 2. gr. og grunnreglu hennar hefur mannanafnanefnd hafnað öll
Þessi gagnrýni er að hluta sprottin af því að með lögum nr. 37/1991 var komið á að
Meginástæða gagnrýninnar er þó sú að ákvæði 2. gr. laga nr. 37/1991 um eiginnöfn eru of ströng. Með greininni er í fyrsta sinn í sögunni tekið alveg fyrir að ný tökunöfn skjóti rótum hér á landi og þar skortir einnig heimild fyrir millinöfnum, jafnvel þótt sá siður að gefa slík nöfn hefði, þegar lögin voru sett, náð nokkurri útbreiðslu og fengið að þróast að mestu afskiptalaust um alllangt skeið.
Lög nr. 37/1991 byggðust í veigamiklum atriðum á frumvarpinu frá 1971 og það byggðist aftur að verulegu leyti á frumvarpinu frá 1955. Þau sjónarmið um eiginnöfn sem fram koma í lögunum eiga því að nokkru rætur í öðrum tíðaranda en þeim sem nú er ríkj
Niðurstöðurnar voru þessar:
1. Meiri takamarkanir en nú vildu innan við 1%.
2. Ánægðir með núgildandi lög voru um 21%.
3. Aukið frjálsræði en þó einhverjar takmarkanir vildu um 45%.
4. Algert frjálsræði vildu um 34%.
Reyndar skiptir verulegu máli hvernig orðalag er í könnunum af þessu tagi og því verður að túlka þessar niðurstöður varlega. Þannig sýnist afar ósennilegt að 34% þjóð
Eiginnafnaákvæði 2. gr. laga nr. 37/1991 eru auðsæilega gölluð og að því leyti óraun
Meginhugmyndir og markmið nefndarinnar.
Nefndarmenn telja brýnt að unnið sé að varðveislu íslenska mannanafnaforðans og ís
Markmið nefndarinnar hafa einkum verið þessi:
1. Að auka frelsi í nafngiftum frá því sem nú er, einkum með því að heimila aðlöguð erlend nöfn, jafnvel þótt þau styðjist ekki við hefð í íslensku máli, og með því að heimila millinöfn, sjá síðar í þessum athugasemdum.
2. Að jafna nafnrétt manna eftir því sem kostur er, m.a. með því að auka rétt erlendra manna sem gerast íslenskir ríkisborgarar.
3. Að stuðla að því að ættarnöfn verði fremur notuð sem millinöfn en sem kenninöfn.
Enn fremur hefur nefndin lagt áherslu á að gera uppbyggingu frumvarpsins sem rök
Athugasemdir við einstakar greinar og kafla frumvarpsins.
Um I. kafla.
Í þessum kafla eru dregin saman ýmis ákvæði um fullt nafn og nafngjöf. Sáralitlar breytingar eru gerðar frá samsvarandi ákvæðum í gildandi mannanafnalögum og því verð
Um 1. gr.
Hér svarar 1. mgr. til 1. málsl. 20. gr. laga nr. 37/1991 að því breyttu að nú er gert ráð fyrir þremur flokkum nafna, þ.e. millinöfnum auk eiginnafna og kenninafna. Eðlilegt þyk
Í 2. mgr. er kveðið á um að eiginnöfn og millinöfn megi aldrei vera fleiri en þrjú sam
Um 2. gr.
Þessi grein er óbreytt 4. gr. laga nr. 37/1991 að öðru leyti en því að röð málsgreina hefur verið snúið við.
Um 3. gr.
Þessi grein svarar til 5. gr. gildandi mannanafnalaga og er óbreytt efnislega að öðru leyti en því að felld hefur verið niður 2. mgr. 5. gr. sem hljóðar svo:
„Hafi barn verið skírt skemmri skírn má, þegar skírn er lýst eða hún tilkynnt skv. 1. mgr. 4. gr., gefa barni nýtt nafn í stað þess sem því var áður gefið eða annað nafn til við
Á þetta ákvæði hefur aldrei reynt og sýnist það því óþarft. Vilji forráðamenn breyta nafni barns síns við þær aðstæður sem um getur í málsgreininni er þeim í lófa lagið að gera það með leyfi dómsmálaráðherra skv. 1. mgr. 13. gr., enda hefur þeirri málsgrein nú verið breytt á þann veg að ekki er lengur áskilið að ástæður nafnbreytingar þurfi að vera gildar.
Um II. kafla.
Í þessum kafla eru tvær greinar um eiginnöfn. Hin fyrri er óbreytt 1. gr. laga nr. 37/1991 en hin síðari kemur í stað 2. gr. þeirra laga og felur í sér umtalsverða rýmkun á henni.
Um 4. gr.
Þessi grein samsvarar 1. gr. laga nr. 37/1991 og er alveg óbreytt. Tekið er fram að hverju barni skuli gefa eiginnafn og að forsjármenn barns hafi bæði rétt og skyldu til þess. Af sjálfu leiðir því að notkun a.m.k. eins eiginnafns er skylda og að menn geta ekki notað millinafn sem sitt eina eða fyrsta nafn.
Um 5. gr.
Þessi grein svarar til 2. gr. í gildandi lögum um mannanöfn, nr. 37/1991. Mikilvæg
Í 1. mgr. segir að eiginnafn skuli geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unn
Í 1. málsl. er kveðið á um að eiginnafn skuli geta tekið íslenska eignarfallsendingu en skuli að öðrum kosti hafa unnið sér hefð í íslensku máli. Þarna er því sú breyting að ekki er lengur tilskilið að eiginnafn skuli að jafnaði vera íslenskt. Þessi breyting felur í sér mikla rýmkun því að fjöldi tökunafna, sem ekki hafa unnið sér hefð í íslensku máli, get
Með íslenskri eignarfallsendingu er átt við eignarfallsendingu sem á sér hliðstæðu í íslensku máli, annaðhvort í mannanöfnum eða hinum almenna orðaforða málsins. Á með
Þessu ákvæði um eignarfallsendingu er ætlað að tryggja að ný tökunöfn lagist að regl
Á tímabilinu frá 1. nóvember 1991 til 1. september 1994 hafnaði mannanafnanefnd samtals 237 beiðnum um eiginnöfn og nafnritanir. Þessar hafnanir má flokka á eftirfar
Stúlknanöfn Drengjanöfn Samtals
Millinöfn 42 48 90
Ritmyndir 9 4 13
Önnur nöfn 87 47 134
Samtals 138 99 237
Sú breyting sem hér er lögð til að nægjanlegt sé að nafn geti tekið íslenska eignar
Einungis 9 af 87 stúlknanöfnum í flokknun „önnur nöfn“ geta ekki tekið íslenska eign
Af 47 drengjanöfnum í flokknum „önnur nöfn“ geta aðeins eftirfarandi fimm nöfn ekki tekið íslenska eignarfallsendingu með góðu móti (en reyndar hefur nánari athugun leitt í ljós að Nikolai hefur unnið sér hefð í íslensku máli og er því heimilt þrátt fyrir að eign
Að sjálfsögðu er oft matsatriði hvort nafn getur tekið íslenska eignarfallsendingu eða ekki og verður að eftirláta mannanafnanefnd að meta það hverju sinni.
Þetta ákvæði hefur jafnframt í för með sér að heimil verða blendingsnöfn, sett sam
Ákvæði 2. gr. gildandi mannanafnalaga þess efnis að eiginnafn skuli vera íslenskt eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli gefur vísbendingu um hvað skuli teljast „nafn“. Þannig er t.d. unnt að halda því fram að gælunöfn eins og Frissi, Bíbí og Gudda séu ekki „ís
Nokkrar almennar takmarkanir eiga þó við um nafnstofna. Einstakir bókstafir teljast t.d. ekki tækir nafnstofnar. Nafnstofnar mega heldur ekki vera til ama, sbr. 3. mgr., og þeir mega ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi, sbr. 2. málsl. 1. mgr. Dæmi um hið síð
Hið aukna frjálsræði, sem ákvæði 1. málsl. um íslenska eignarfallsendingu hefur í för með sér, heimilar auðsæilega mörg nöfn sem ýmsir telja óæskileg. Eins og áður segir er þetta óhjákvæmileg afleiðing þess að heimila aðlöguð tökunöfn sem ekki hafa unnið sér hefð í íslensku máli. Það sýnist og vafasamt að stjórnvöld setji strangar reglur í þessum efnum. Ríkjandi smekkur veldur því að litlar sem engar líkur eru á að stafarunur eins og Skunnar verði teknar upp sem eiginnöfn, jafnvel þótt þær séu ekki bannaðar með lög
Í 1. málsl. er kveðið á um að þau nöfn sem ekki geta tekið íslenska eignarfallsend
1. Ung tökunöfn eru þau tökunöfn sem hafa komið inn í íslenskt mál eftir 1703. Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð ef það fullnægir einhverju einu af eftirfarandi skil
Það er nú borið af a.m.k. 20 Íslendingum.
b. Það er nú borið af 15–19 Íslendingum og sá elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri.
c. Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og sá elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri.
d. Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910 (eða fyrr).
e. Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1845 (eða fyrr).
f. Það er nú ekki borið af neinum Íslendingi en kemur þegar fyrir í manntalinu 1845 (eða fyrr) og hefð þess hefur ekki rofnað.
2. Hefð ungs tökunafns telst rofin ef það kemur hvorki fyrir í manntalinu 1910 né síð
3. Gömul tökunöfn eru þau tökunöfn sem hafa komið inn í íslenskt mál 1703 eða fyrr. Hefð gamals tökunafns telst rofin ef það kemur hvorki fyrir í manntölunum 1845 og 1910 né síðar. Hefð tökunafna sem hafa unnið sér menningarhelgi rofnar þó ekki. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum íslenskum forn
Þótt nauðsynlegt sé að áfram verði stuðst við skýrar reglur í þessu efni er ljóst að það mun nú heyra til undantekninga að á þær reyni. Reglurnar þarf auðsæilega að endur
Ákvæði 2. málsl. um að eiginnafn megi ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi svar
Í 3. málsl. 1. mgr. er tekið fram að eiginnöfn skuli rituð í samræmi við almennar rit
Í 2. mgr. segir að stúlku skuli gefið kvenmannsnafn en dreng karlmannsnafn. Þetta ákvæði kemur í stað 2. mgr. 2. gr. gildandi laga, en þar segir að hvorki megi gefa stúlku karlmannsnafn né dreng kvenmannsnafn. Ákvæðið hefur í för með sér að ekkert eigin
Í 3. mgr. er kveðið á um að eiginnafn megi ekki vera nafnbera til ama. Ákvæðið er efnislega samhljóða 3. málsl. 1 mgr. 2. gr. gildandi laga. Ekki þykir annað fært en hafa þetta ákvæði áfram í lögum. Það eru auðsæilega mikilvægir hagsmunir barna að þeim séu ekki gefin nöfn sem telja verður ósiðleg, niðrandi eða meiðandi, eins og t.d. Skessa, Þrjótur eða Hel. Ákvæðið er þó vandmeðfarið því að erfitt er að leggja hlutlægt mat á ama. Besta tryggingin fyrir því að gætt sé jafnræðis borgaranna við framkvæmd ákvæð
Tillögur nefndarmanna um eiginnöfn miða að því að auka frjálsræði í nafngiftum um
Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.
Með þessu móti mundi greinin aðeins vernda brýnustu hagsmuni barna en ekki fela í sér nein þrengjandi ákvæði um form nafna.
Þótt nefndarmenn hafi rætt þennan kost og telji hann koma til álita mæla þeir ekki með honum. Hann hefði m.a. í för með sér að hvers kyns afbakanir á rótgrónum nöfn
Um III. kafla.
Með þessum kafla er heimilaður nýr flokkur nafna, svokölluð millinöfn. Um er að ræða nöfn eins og Önfjörð, Vatnsnes, Sædal, Mosfells og Bláfeld.
Nöfn þessi eru að því leyti eins og ættarnöfn að þau eru borin af báðum kynjum en frábrugðin þeim að því leyti að þau eru ekki kenninöfn. Í faglegri umræðu um manna
Ástæður þess að nefndin leggur þetta nýmæli til eru einkum þessar:
1. Allmikil ásókn er í að fá að gefa millinöfn. Um það bil 38% af þeim nöfnum sem mannanafnanefnd hafnaði frá 1. nóvember 1991 til 1. september 1994 voru milli
2. Lítt var amast við millinöfnum allt til þess að lög nr. 37/1991, um mannanöfn, tóku gildi. Fjöldi manna ber því nöfn af þessu tagi.
3. Algengt er að margir í sömu fjölskyldu beri sama millinafn og því tengist notkun þeirra mjög vitund fólks um uppruna sinn og tilfinningum þess í garð náinna ætt
4. Menningarlegir hagsmunir samfélagsins af því að varðveita íslenska kenninafnasið
5. Með millinafnakerfinu er þeim sem nú bera ættarnafn gert kleift að kenna sig til föð
6. Eins og vikið verður að síðar felst verulegt misrétti í ákvæðum gildandi manna
Við þetta er því að bæta að upphafleg hugmynd nefndarinnar var sú að öll ættarnöfn breyttust smám saman í millinöfn, eins og vikið verður að síðar.
Um 6. gr.
Í 1. mgr. er veitt almenn heimild fyrir millinöfnum, tekið fram að eiginnöfn ásamt millinafni megi aldrei vera fleiri en þrjú samtals og kveðið á um að millinöfn séu ekki kynbundin, þ.e. að dreng og stúlku megi gefa sama millinafn.
Í 2. mgr. eru almennar reglur um myndun og form millinafna. Í 1. málsl. er tekið fram að millinöfn skuli annaðhvort dregin af íslenskum orðstofnum eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli og að þau skuli ekki hafa nefnifallsendingu. Nefndarmenn ræddu það sjón
Rétt er að taka fram að hugtakið „hefð“ hefur hér sömu merkingu og í 5. gr. Mat á hefð millinafna byggist því á sömu reglum og mat á hefð eiginnafna, sbr. athugasemd
Í 2. málsl. 2. mgr. er kveðið á um að jafnvel þótt nöfn séu endingarlaus í nefnifalli séu þau óheimil sem millinöfn hafi þau aðeins unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna. Með ákvæðinu er komið í veg fyrir að endingarlaus eiginnöfn eins og Þórdís, Agnes, Hermann, Jón og Erling séu gefin sem millinöfn.
Í 3. málsl. 2. mgr. er tekið fram að eignarfallsmyndir eiginnafna séu óheimilar sem millinöfn. Um er að ræða nafnmyndir eins og Egils og Guðrúnar. Ákvæðið kemur því í veg fyrir „dulbúin“ tvöföld kenninöfn eins og í Jón Guðrúnar Egilsson og María Egils Guðrúnardóttir. Aðrar eignarfallsmyndir eru hins vegar heimilar sem millinöfn, t.d. Mos
Í 4. málsl. 2. gr. er loks tekið fram að millinöfn, sem eru mynduð eins og föður- eða móðurnöfn, séu óheimil. Er þetta í samræmi við íslenska hefð og þá stefnu nefndarinn
Í 3. mgr. er veitt heimild fyrir millinöfnum jafnvel þótt þau fullnægi ekki skilyrðum 2. mgr. standi svo á að þau hafi tíðkast í fjölskyldu þess sem nafnið á að bera. Nokkuð algengt er að nöfn af þessu tagi, svo sem eignarfallsmyndir eiginnafna, hafi tíðkaðst í ákveðnum fjölskyldum. Þykir ótækt annað en að heimila þessum tilteknu fjölskyldum áframhaldandi notkun þessara nafna, úr því að millinöfn eru á annað borð leyfð. Milli
Í 4. mgr. er kveðið á um að millinöfn skuli rituð í samræmi við almennar ritvenjur ís
Um 7. gr.
Í þessari grein er kveðið á um að ættarnöfn séu aðeins heimil sem millinöfn í ákveðn
Sú meginregla að ættarnöfn skuli ekki almennt heimil sem millinöfn styðst við þá ríkj
Það kann reyndar að vera umdeilanlegt hvaða ættarnöfn skuli njóta þeirrar nafnvernd
Um rétt til ættarnafns gildir sú almenna regla sem gert er ráð fyrir í 4. mgr. 7. gr. frumvarpsins að hann hafa þeir og aðeins þeir sem bera nafnið í þjóðskrá við gildistöku laganna og niðjar þeirra. Álitamál um nafnvernd ættarnafna sem falla út af þjóðskrá munu því ekki rísa fyrr en að alllöngum tíma liðnum eftir gildistöku laganna.
Í 11. gr. dönsku mannanafnalaganna, nr. 193/1981, er kveðið á um að hverjum manni sé heimilt að bera millinafn sem fullnægir einu af þremur skilyrðum:
1. Nafnið er borið sem millinafn af föður eða móður mannsins.
2. Nafnið er manninum heimilt sem ættarnafn.
3. Nafnið tengist manninum sérstaklega.
Heimildirnar í 2. og 3. tölul. eru allvíðtækar og fela m.a. í sér að menn geta fengið ættarnafn eða millinafn hálfsystkinis eða stjúpforeldris sem millinafn, enn fremur geta menn fengið sem millinafn sérhvert það ættarnafn sem hefur verið borið af einhverjum forföður í 1., 2. eða 3. lið, barni umsækjandans, fósturforeldri hans, eða systkini foreldr
Nefndin hefur tekið nokkurt mið af þeim hugmyndum sem fram koma í ákvæðum dönsku mannafnalagananna um millinöfn en telur jafnframt að dönsku reglurnar geti ekki átt við nema að litlu leyti hér á landi og séu allt of flóknar í framkvæmd. Nefndin legg
Í öllum þessum tilvikum gildir ávallt einu hvort nafnið fullnægir skilyrðum 2. mgr. 6. gr. eða ekki (og verða því erlend ættarnöfn heimil sem millinöfn í fjölskyldum sem eiga ættir að rekja til útlanda, t.d. Marcher og Öder).
Eins og fyrr segir þykir rétt að fjalla sérstaklega um 4. mgr., en þar segir að menn megi bera ættarnafn sem millinafn hafi alsystkini þeirra, foreldri, afi eða amma borið nafnið sem eiginnafn, millinafn eða ættarnafn. Með þessu ákvæði er m.a. gætt réttar þeirra sem eru af erlendu bergi brotnir því að það veldur því að nánustu afkomendur þeirra sem borið hafa erlend ættarnöfn en lagt þau af (t.d. Öder) geta tekið þau upp sem millinöfn. Nánustu niðjar innfæddra Íslendinga sem leggja ættarnafn sitt af eða breyta því í millinafn hafa einnig rétt til að bera það sem millinafn og er sá réttur tryggður með orðalagi 4. mgr. Auk þess hafa fjarlægari niðjar sama rétt ef nánustu ættingjar þeirra nýta sér hann (en að öðrum kosti fellur hann niður). Í 4. mgr. er einnig kveðið á um að menn eigi rétt til að bera ættarnafn sem millinafn ef náið skyldmenni hefur borið nafnið sem eiginnafn, þ.e. fyrir gildistöku laganna (og þar af leiðandi á tíma þegar hugtakið „milli
1. Mjög margar af þeim umsóknum um millinöfn, sem mannanafnanefnd berast, eru einmitt um nöfn sem eru ættarnöfn en hafa jafnframt tíðkast sem eiginnöfn í fjöl
2. Notkun þeirra nafna sem um ræðir sem eiginnafna/millinafna hefur verið látin átölu
3. Um mörg ættarnöfn í þjóðskrá gildir að þau eru miklu algengari sem eiginnöfn/milli
Ekki er vitað til þess að mál hafi verið höfðað fyrir íslenskum dómstóli vegna notk
Í 6. mgr. 7. gr. er loks tekið fram að þeir sem fá eða taka sér millinafn skuli kenna sig til föður eða móður. Ákvæðið kemur í veg fyrir notkun tvöfaldra ættarnafna og er í sam
Réttur til millinafna skv. 7. gr. og 3. mgr. 6. gr. er ekki almennur heldur ættbundinn. Þau nöfn sem um er að ræða færast því ekki á mannanafnaskrá.
Við nafngjöf og nafntilkynningu fer eins um millinöfn og eiginnöfn að öðru leyti en því að taka verður skýrt fram í skírnarskýrslu eða nafntilkynningu hvort nafn sé eigin
Í 1. mgr. 13. gr. kveður á um að dómsmálaráðherra sé heimilt að leyfa breytingu á eig
Um IV. kafla.
Íslendingar eru eina þjóðin á Norðurlöndum og þótt miklu víðar væri leitað sem tek
Það væri óbætanlegur skaði ef Íslendingar glötuðu þeim merkilega arfi sem kenni
Sáralitlar rannsóknir hafa verið gerðar á sögu ættarnafna á Íslandi og verður því fátt um hana fullyrt. Engu að síður er unnt að staðhæfa að notkun ættarnafna hefur færst mjög í aukana á undanförnum áratugum. Í manntalinu 1855 voru ættarnöfn borin af einstak
Ár Ættarnöfn
1855 108
1910 297
1994 2.227
Aðeins eru talin með nöfn íslenskra ríkisborgara sem voru búsettir hér á landi 21. október 1994 en hvorki þeirra fjölmörgu Íslendinga í þjóðskrá sem búa í öðrum lönd
Flest ættarnöfn eru aðeins borin af örfáum mönnum en fjöldi íslenskra ríkisborgara sem báru ættarnöfn í þjóðskrá 21. október 1994 og voru þá búsettir hér á landi reyndist þó vera um 13.000 eða um 5% íbúa landsins. Tölur frá fyrri tíð um fjölda þeirra sem hafa borið ættarnöfn eru ekki tiltækar en naumast þarf að fara í grafgötur um að ekki aðeins fjöldi heldur einnig tíðni ættarnafna hefur aukist mjög á undanförnum áratugum og held
Hagstofa Íslands, Þjóðskrá, hefur tekið saman tölur um fjölda nafnbreytinga á tíma
Konur Karlar Samtals
Ættarnafn tekið upp í karllegg 164 172 336
Ættarnafn tekið upp í kvenlegg 119 106 225
Ættarnafn maka tekið upp 70 4 74
Samtals 323 282 635
Ættarnafn fellt niður 33 25 58
Ættarnafn maka fellt niður 13 – 13
Samtals 46 25 71
Upptaka ættarnafns samkvæmt heimildarákvæðum gildandi mannanafnalaga þar um er því um níu sinnum algengari en niðurfelling ættarnafns.
Í 4. mgr. 9. gr. gildandi laga um mannanöfn er lagt bann við upptöku nýrra ættar
1. Ættarnöfn ganga nú bæði í karl- og kvenlegg og það stuðlar að aukinni tíðni þeirra ættarnafna sem þegar hafa fest rætur á Íslandi.
2. Ný ættarnöfn berast stöðugt inn í málið. Þessi nöfn berast með margvíslegum hætti en þó einna helst með börnum erlendra karla og íslenskra kvenna. Þessi börn bera oft eða oftast hið erlenda ættarnafn föður síns og heimilt er að nafnið gangi áfram til niðja þeirra í fyllingu tímans, sbr. 1. málsl. 11. gr. og 2. mgr. 9. gr. laga nr. 37/1991.
Flest algengustu ættarnöfnin eru kunnugleg, svo sem Thorarensen, Blöndal, Hansen, Thoroddsen og Bergmann. Sé hins vegar litið til fátíðari ættarnafna, þ.e. þeirra ættar
Af þessum 109 nöfnum eru einungis 19 sem geta talist íslensk og er þó öllu til tjald
Einhver af þessum nöfnum eru vísast borin af fólki sem á eftir að hverfa af landi brott en þó er ástæða til að ætla að flest þeirra muni breiðast út hér á landi. Ýmis af algeng
Einsýnt er að ættarnöfn eru í hraðari sókn hér á landi en menn gera sér almennt grein fyrir, svo hraðri að íslenska kenninafnasiðnum stendur af henni veruleg ógn. Verði ekk
Hér er raunar um fleira að tefla en örlög íslenska kenninafnasiðarins. Ákvæði gild
1. Flestir innfæddir Íslendingar eiga ekki val um neitt annað en föður- eða móðurnafn en aðrir geta valið á milli slíks nafns og ættarnafns, jafnvel þótt ættarnafnið eigi í sumum tilvikum rætur að rekja til sjálftöku sem ekki átti sér neina lagastoð.
2. Ættarnöfn þeirra sem eru Íslendingar að fæðingu ganga til niðja þeirra en ekki ætt
3. Útlendir karlar hafa í raun lakari nafnrétt en útlendar konur, þótt þeir eigi þess kost að taka sér kenninafn íslensks maka síns (t.d. Jónsdóttir) getur það ekki talist raun
4. Þess eru jafnvel dæmi að alsystkini hafi ólíkan nafnrétt. Börn þeirra sem fá íslensk
Auðsætt er að við svo búið má ekki standa.
Unnt er að útrýma þessari mismunun með því að lögleiða almennt ættarnafnakerfi hér á landi og leyfa upptöku nýrra íslenskra ættarnafna. Með því móti ynnist einnig það að komið væri í veg fyrir þau hraklegu örlög að kenninöfn Íslendinga verði fyrst og fremst útlend ættarnöfn. Reynsla annarra þjóða bendir til þess að þar sem ættarnöfn fá að þríf
Önnur leið út úr þessum ógöngum væri að banna ættarnöfn með öllu hér á landi en þótt ýmsum kunni að þykja sú leið æskileg verður að telja hana ófæra. Það er auðsætt brot á mannréttindum að taka af mönnum þau nöfn sem þeir bera. Eins og minnst var á í athugasemdum við III. kafla hugðist nefndin því leggja til að farinn yrði sá meðalveg
Í upphaflegum hugmyndum nefndarinnar var, eins og nú, enn fremur gert ráð fyrir að niðjar þeirra sem nú bera ættarnöfn mættu bera þau sem millinöfn.
Áður er minnst á nafnvernd ættarnafna. Nefndin dregur ekki í efa að ættarnöfn njóti ríkrar verndar fyrir hvers konar misnotkun, þar á meðal gegn því að maður taki upp ætt
Í starfi sínu varð nefndin þess hins vegar áskynja að víða væri hörð andstaða gegn því að nokkuð yrði hróflað við ættarnöfnum. Hefur nefndin því ekki talið raunhæft að halda þessari tillögu til streitu. Nefndin telur þó enn að þessi millinafnaleið sé besta leiðin út úr þeim ógöngum sem kenninafnakerfi Íslendinga hefur ratað í.
Þar eð nefndin telur sér ekki fært að leggja þennan kost til gerir hún það að tillögu sinni að ákvæði gildandi mannanafnalaga um kenninöfn haldist að mestu óbreytt, þó þannig að dregið verði úr mismunun og sú skorða reist við útbreiðslu ættarnafna að ís
Um 8. gr.
Þessi grein kemur einkum í stað 9. gr. laga nr. 37/1991. Í 4. mgr. er þó ákvæði sem kemur í stað 2. málsl. 11. gr. laga nr. 37/1991, í 2. málsl. 2. mgr. er ákvæði sem svar
Í 1. mgr. er hugtakið „kenninafn“ skilgreint og þarfnast sú skilgreining ekki nánari skýringar.
Í 1. málsl. 2. mgr. er sett fram sú meginregla að hver maður skuli kenna sig til föð
Það kann að þykja óeðlilegt að kenna börn til afa síns þegar svona stendur á og ræddi nefndin það sjónarmið en komst að þeirri niðurstöðu að óhjákvæmilegt væri að hafa þessa heimild áfram í lögum. Þótt kenna megi ófeðrað barn til móður þess ber reynsla Þjóð
Í 3. mgr. er tekið fram að föður- og móðurnöfn séu dregin af eignarfalli nafns föður eða móður með því að bæta við það son ef karlmaður er en dóttir ef kvenmaður er. Auk kenninafna sem mynduð eru með þessum hætti er nokkuð um kenninöfn sem eru dreg
Í 4. mgr. er kveðið á um að heimilt sé með úrskurði mannanafnanefndar að laga kenni
Hér er rétt að vekja athygli á að gert er ráð fyrir því í frumvarpinu að menn af er