Ferill 95. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 95 . mál.


537. Skýrsla



landbúnaðarráðherra um framkvæmd búvörusamnings, samkvæmt beiðni.

(Lögð fyrir Alþingi á 118. löggjafarþingi 1994.)



    Með beiðni (á þskj. 97) frá þingmönnunum Ragnari Arnalds, Steingrími J. Sigfússyni, Ólafi Ragnari Grímssyni, Svavari Gestssyni, Guðrúnu Helgadóttur, Hjörleifi Guttormssyni, Ragnari Elbergssyni, Kristni H. Gunnarssyni og Margréti Frímannsdóttur var óskað eftir skýrslu landbúnaðarráðherra um framkvæmd búvörusamnings frá 11. mars 1991. Í skýrsl unni skyldu eftirfarandi upplýsingar koma fram.
     1 .     Hvernig hefur tekist að ná eftirtöldum markmiðum:
                   a .     að stuðla að því að í landinu geti þróast hagkvæmur og öflugur landbúnaður,
                   b .     að lækka vöruverð til neytenda án þess að það komi niður á afkomumöguleikum bænda,
                   c .     að koma á og viðhalda jafnvægi í framleiðslu og sölu mjólkur- og sauðfjárafurða,
                   d .     að lækka opinber útgjöld til þessarar framleiðslu,
                   e .     að stuðla að því að landbúnaður verði í sem bestu samræmi við landkosti og æskileg landnýtingarsjónarmið?
     2 .     Hvernig tókst að ná markmiðum um kaup á fullvirðisrétti í sauðfjárrækt? Var því fylgt eftir að þeir aðilar lóguðu fjárstofni sínum sem seldu fullvirðisrétt og fengu förgunar bætur fyrir fullorðið fé?
     3 .     Hver var niðurskurður á greiðslumarki á einstökum svæðum í kjölfar kaupa ríkissjóðs?
     4 .     Hvernig afsetti ríkissjóður þær birgðir kindakjöts sem voru til í landinu við lok fyrri búvörusamnings? Hver urðu áhrif þess fyrir sauðfjárbændur?
     5 .     Hve mikið fjármagn hefur runnið til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins á árunum 1992–94 í samræmi við viðauka II við búvörusamninginn?
     6 .     Hve mikið fjármagn rann til Jarðasjóðs á árunum 1992 og 1993 í samræmi við viðauka II?
     7 .     Hve mikið fjármagn hefur runnið til Byggðastofnunar á árunum 1992–94 í samræmi við viðauka II?
     8 .     Hve mikið fjármagn hefur runnið til Lífeyrissjóðs bænda á árunum 1992–94, sbr. viðauka II?
     9 .     Hver er niðurstaða endurskoðunar á kerfi verðlagningar sauðfjárafurða og kostum umboðsviðskipta, sbr. bókun II?
     10 .     Hver hefur orðið þróun í viðskiptum með fullvirðisrétt/greiðslumark með hliðsjón af tilflutningi greiðslumarks milli landshluta og verðlagningar þess?
     11 .     Hafa viðskipti með greiðslumark orsakað hættu á umtalsverðri byggðaröskun eða gengið gegn hagræðingarsjónarmiðum, sbr. bókun III?
     12 .     Hefur skipan fimmmannanefndar verið breytt, sbr. bókun IV?
     13 .     Hefur uppgjöri framleiðsluársins verið breytt frá verðlagsári yfir í almanaksár, sbr. bókun VI, eða er það í undirbúningi?
     14.     Óskað er eftir sundurliðuðu yfirliti um þá fjármuni sem runnið hafa til landgræðslu- og skógræktarstarfa á árunum 1992–94, sbr. bókun VI, og að þær fjárveitingar séu bornar saman við framlög áranna þar á undan.
     15.     Hvaða skipulagsbreytingar hafa verið gerðar á rannsókna- og leiðbeiningastarfsemi í landbúnaði í framhaldi af bókun VII?
     16.     Hvernig hefur framkvæmd á bókun VIII um ráðgjöf og leiðbeiningar fyrir bændur og endurmenntun og þjálfun þeirra til annarra starfa verið háttað? Fengu þeir bændur aðstoð við að koma jörðum sínum í verð sem þurftu á því að halda?
     17.     Hafa einhver ákvæði samningsins verið endurskoðuð og ef svo er, á hvern hátt?
     18.     Hafa samningsaðilar ræðst við vegna breytinga á starfsumhverfi landbúnaðarins með tilkomu alþjóðasamninga og innflutnings búvara, sbr. ákvæði 9. gr.?
     19.     Er hafin úttekt á framkvæmd samningsins, sbr. 10. gr.? Hafa viðræður um áfram haldandi stefnumörkun verið undirbúnar, sbr. 10. gr.?
    Skýrslan var unnin fyrir landbúnaðarráðuneytið af framkvæmdanefnd búvörusamninga sem í eiga sæti tveir fullrúar Stéttarsambands bænda og fulltrúi fjármálaráðuneytis og landbúnaðarráðuneytis.

Þróun landbúnaðar milli áranna 1991 og 1994.     
    Erfitt er að setja fram staðhæfingar um þróun íslensks landbúnaðar milli áranna 1991 og 1994 og svara því með fáum orðum hvort íslenskur landbúnaður sé nú hagkvæmur og öflugur. Umhverfi landbúnaðarins sem og annarra atvinnugreina er sífellt að breytast. Hraði breytinganna er jafnframt mun meiri en verið hefur. Spurningin hlýtur því að snú ast um það hvort landbúnaður sé hagkvæmur og öflugur miðað við aðstæður nú.
    Mjólkurframleiðslan hefur verið í jafnvægi undanfarin ár. Einingarnar hafa stækkað og framleiðsluverðmæti bænda eru u.þ.b. hin sömu árin 1991 og 1993, sjá fskj. I. Sam kvæmt úrtaki Hagþjónustu landbúnaðarins, sem hagfræðingur Stéttarsambands bænda hef ur unnið frekar úr, hafa tekjur bænda lækkað, m.a. vegna samningsbundinnar lækkunar á verði afurðanna, sjá fskj. II. Þar kemur einnig fram að launagreiðslugeta sömu 117 kúa búanna hefur staðið í stað milli áranna 1991 og 1993. Eins og áður sagði hafa tekjur af búrekstri heldur lækkað en tekist hefur jafnframt að lækka breytilegan kostnað og aðrar tekjur hafa aukist. Hlutfall eigin fjár á tímabilinu hefur lækkað úr 55% í 51%. Rétt er að benda á í þessu sambandi að lækkanir á verði nautakjöts undafarin missiri hafa sannan lega komið beint niður á afkomumöguleikum þeirra. Tekið skal skýrt fram að hér er um úrtak að ræða og verður að taka þessum niðurstöðum með fyrirvara.
    Önnur þróun hefur verið í sauðfjárframleiðslunni þar sem hún hefur dregist töluvert saman á tímabilinu. Framleiðslueiningar hafa minnkað vegna skertra framleiðsluheimilda og framleiðslutekjur hafa lækkað. Merki eru um að launagreiðslugeta hafi lækkað töluvert og búist er við frekari lækkun á árunum 1994 og 1995. Sala á framleiðsluheimildum árin 1991–92 hefur ekki enn stuðlað að hagkvæmni sökum þess hve fáir seldu frjálsri sölu, en gert var ráð fyrir mun meiri sölu óvirkra framleiðsluheimilda.
    Niðurfærslan, þ.e. flöt skerðing, varð því mikil eins og fram kemur síðar í skýrslunni. Sala á framleiðsluheimildum milli einstaklinga eftir að afskiptum ríkisvaldsins lauk hefur verið lítil undanfarin ár og má sennilega rekja orsakir þess til hins háa verðlags og erfiðs atvinnuástands í þjóðfélaginu. Staða greinarinnar er veik og ekki er hægt að halda því fram að hún sé almennt hagkvæm og öflug um þessar mundir.
    Tekist hefur í meginatriðum að standa við hagræðingarkröfu sauðfjárhluta samningsins fram að þessu. Hins vegar skortir á að lækkun á slátur- og heildsölukostnaði sé samsvar andi en það var ein af forsendum framleiðnikröfunnar hjá bændum að sama árangri yrði náð á vinnslu- og sölustigi.
    Taflan hér á eftir sýnir helstu breytingar sem orðið hafa í verðmyndun kindakjöts þessu til staðfestingar:

Verðbreytingar á dilkakjöti DIA 1991 til 1994.



    Verð     Verð     Breyting     Breyting     Verðbólga     Raunverðs-
    16/9'91     1/3'94     kr.     %     %     breyting


Grundvallarverð     438,31     435,26     -3,05     -0,70%     7,34%     -8,03%
Slátur- og heildsölukostn.          136,30
Flutt af kjöti          10,31     10,31
Leiðr. sl. og heilds. kostnaður     140,95     146,61     5,66     4,02%     7,34%     -3,32%
Sjóðagjöld     25,30     20,07     -5,23     -20,67%     7,34%     -28,01%
Óngr. Heildsv. 1/1 og 1/2 skr.                              
eða m.t.t. beinna greiðslna     604,56     591,63     -12,93     -2,14%     7,34%     -9,48%


    Samkvæmt þessari töflu hefur raunverðslækkun með tilliti til vísitölu framfærslukostn aðar orðið tæplega 9,5% á heildsöluverðinu en rúm 8% á grundvallarverðinu. Slátur- og heildsölukostnaður hefur þó ekki lækkað nema sem svarar til 3,3%, en sláturleyfishöfum hefur reynst erfitt að fá borinn uppi kostnað að upphæð 10,31 kr. sem fluttur var af kjöti árið 1993 á gærur og innmat. Ljóst er að hlutfallsleg lækkun sjóðagjalda er langt umfram aðrar lækkanir. Þar er um skerðingu að ræða fyrir framleiðendur þar sem þeim hefur ver ið varið til hagsmuna fyrir búgreinina.
    Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands hefur smásöluverð á búvörum undir verðlagsákvæðum staðið í stað í krónutölu, eða lækkað örlítið frá febrúar 1991 til ágúst 1994, sjá fskj. III. Aðrar innlendar matvörur og drykkir hafa hækkað um tæp 3% á sama tíma þrátt fyrir lækkun virðisaukaskatts úr 24,5% í 14%. Lækkun virðisaukaskatts hafði lítil áhrif á verðlag sauðfjárafurða. Var þar fyrst og fremst um að ræða áhrif á verð unn inna kjötvara en heilir og hálfir skrokkar voru niðurgreiddir fyrir. Áhrifin á verð mjólkur afurða voru einnig minni þar sem nýmjólk og skyld vara var einnig niðurgreidd niður í 14% fyrir breytingu á virðisaukaskatti. Margt virðist því benda til þess að sú hagræðing arkrafa sem bændum var gert að standast hafi náð til neytandans.
    Það sem fyrst og fremst hefur komið niður á afkomumöguleikum sauðfjárbænda eru lækkaðar framleiðsluheimildir. Eftirfarandi tafla sýnir áhrif samdráttar á launagreiðslu getu sauðfjárbúsins. Miðað er við verðlagsgrundvallarbú er framleiðir 419 ærgildi í upp hafi sem samsvarar 1,55 ársverkum.

Ærgildi     Velta     Fastur kostn.     Br. kostn.     Launagr.geta     Fjöldi     Breyting í
                        árslauna     fjölda ársv.


    419     3.661.168     516.179     1.325.962     1.849.024     1,55
    338     2.952.462     516.179     1.069.291     1.366.922     1,15     0,4
    270     2.362.043     516.179     855,459     990.405     0,83     0,7


    Raunveruleg skerðing á framleiðsluheimildum verðlagsgrundvallarbúsins á tímabilinu 1991–93 er í það minnsta 20% eða í 338 ærgildi. Slík skerðing þýðir yfir 25% lækkun í launagreiðslugetu. Dæmi eru um framleiðsluskerðingu allt upp í 35% sem þýðir að bú sem áður var vísitölubú er komið niður í 270 ærgildi og framfleytir ekki einu ársverki. Tekið skal fram að miðað er við að ekki takist að lækka fastan kostnað svo neinu nemi við lækkun framleiðsluheimildar. Hér er því um tilbúið dæmi að ræða sem taka verður með fyrirvara. Eitt er þó augljóst að launagreiðslugetan lækkar í flestum tilvikum meira en sem svarar lækkun framleiðsluheimilda. Að lokum skal tekið fram að ekki er miðað við að aðrar tekjur hafi hækkað á tímabilinu sem er þó víða raunin.
    Umsamin hagræðingarkrafa hefur verið framkvæmd af sexmannanefnd varðandi mjólkurframleiðendur og það hefur leitt til lækkunar á verði til bænda. Hagræðingarkraf an var 5%. Margt bendir til þess að vinnslan hafi einnig gert það þótt endanlegir útreikn ingar liggi ekki fyrir. Vinnslunni var gert að lækka sinn kostnað um 7,62% 1991–94. Í mars 1994 hafði náðst 6,7% lækkun. Eftirfarandi tafla sýnir verð mjólkur til bænda á tímabilinu. Verð mjólkur er vegið saman eftir magni, 1992, í verðlagsgrundvelli og gild istíma, en verð 1. desember 1994, í kr. á lítra, að meðtöldum beinum greiðslum. Tekið skal fram að hér er sýnd breyting á framfærsluvísitölu til hliðsjónar en tæknilega er mið að við vísitölu innan verðlagsgrundvallarins.


     Ár     Verð     Verðbreyting     Breyting á framf.vísit.
              mjólkur '91-'94     ágúst '91 til ágúst '93


    1992            52,38
    1994, 1/12     51,80     -1,1%     8,7%


    Tekist hefur að viðhalda að mestu jafnvægi í framleiðslu og sölu mjólkur og hefur markaður jafnvel stækkað, þó í litlum mæli sé. Sú breyting hefur jafnframt orðið að sala próteins hefur náð því marki að seljast betur en fita. Hins vegar hefur ekki enn tekist að ná jafnvægi í framleiðslu og sölu kindakjöts. Sala kindakjöts hefur verið sveiflukennd, en sú staðreynd blasir við að innanlandsmarkaður dregst saman um 200–300 tonn á ári að meðaltali og vonir um útflutning á ásættanlegum verðum hafa enn ekki ræst. Hér að neðan getur að líta töflu er sýnir þróunina á mjólkur- og kindakjötsmörkuðum.


     Ár     Framleiðsla     Sala
         kindakjöts,     kindakjöts,
         tonn     tonn


    1990     9.454     8.620
    1991     9.308     7.947
    1992     9.202     7.976
    1993     8.859     8.087
    1994, áætlað     8.760     7.100






     Ár     Framleiðsla     Sala
         mjólkur,     mjólkur,
         þús. ltr.     þús. ltr.


    1990     107.011     100.996
    1991     105.510     100.532
    1992     99.722     99.226
    1993     99.917     100.339
    1994, áætlað     101.000     101.100


    Opinber útgjöld hafa lækkað verulega til þessarar framleiðslu, sjá fskj. IV. Útgjöldin voru 9.979 millj. kr. 1991 á föstu verðlagi en aðeins 5.972 millj. kr. 1993. Útgjöldin 1994 taka væntanlega litlum breytingum frá árinu 1993.
    Endurskoðun á kerfi verðlagningar sauðfjárafurða hefur ekki leitt til breytinga og skipan fimmannanefndar hefur ekki verið breytt.
    Ekki er vafamál að fækkun sauðfjár undanfarinn áratug, sjá fskj. V, hefur létt mjög beitarþunga á viðkvæmustu svæði landsins. Í búvörusamningi frá 1991 er jafnframt tiltek ið í 3. tölul. 4. gr. að ef gróðurverndarsjónarmið mæla á móti því að sauðfjárrækt aukist á einstökum jörðum eða landsvæðum að mati Landgræðslu ríkisns skuli landbúnaðarráð herra takmarka eða stöðva kaup í slíkum tilvikum. Eftir þessu ákvæði hefur verið starfað.     Framleiðslusamdráttur og takmarkaðir eða engir styrkir til jarðræktar frá ríkissjóði undanfarin ár hafa leitt til þess að nýræktun mýrlenda er nánast engin um þessar mundir.
    Hægt er að fullyrða að viðhorf bænda til þessa málaflokks er jákvætt og skilningur á gildi umhverfismála hefur stóraukist.

Kaup á fullvirðisrétti í sauðfjárrækt.
    Með búvörusamningnum frá mars 1991 skuldbatt ríkissjóður sig til þess að kaupa full virðisrétt allt að 3.700 tonnum og greiða förgunarbætur fyrir allt að 55.000 fjár. Í því efni var miðað við að heildarfullvirðisrétturinn væri allt að 12.000 tonn að meðtöldum þeim framleiðsluheimildum sem ekki voru nýttar til framleiðslu vegna leigusamninga við Framleiðnisjóð eða fjárleysis vegna riðuniðurskurðar. Miðað var við að ríkissjóður keypti fullvirðisrétt þannig að eftir stæðu 8.300 tonn sem var þá nálægt innanlandsneyslu kinda kjöts. Ef þessi markmið næðust ekki með kaupum á fullvirðisrétti skyldi koma til niður færsla á öllum fullvirðisrétti. Það var von aðila að sem minnst þyrfti til þess að koma.
    Reyndin varð sú að keypt voru út 1.956 tonn en niðurfærður réttur nam samtals 1.706 tonnum, sjá fskj. VI. Í raun var stór hluti þeirra 1.956 tonna, sem keypt voru út, hrein niðurfærsla þar sem margir bændur kusu heldur að selja hluta af rétti sínum til að fá hærri bætur en greiddar voru fyrir niðurfærslu.
    Segja má að það hafi valdið verulegum vonbrigðum hve fáir framleiðendur voru til búnir til þess að selja allan sinn framleiðslurétt og rýma þannig fyrir þeim sem eftir yrðu. Afleiðingin varð sú að virkur framleiðsluréttur rýrnaði langt umfram það sem gert hafði verið ráð fyrir og sauðfjárbúin minnkuðu.
    Því var fylgt eftir að förgun fjár væri í samræmi við gerða samninga, en síðan hefur ekki verið sérstaklega fylgst með ásetningi þessara aðila.

Niðurskurður á greiðslumarki á einstökum svæðum.
    Eftirfarandi tafla sýnir niðurskurð frá fullvirðisrétti 1991–92 til greiðslumarks til fram leiðslu verðlagsáranna 1992–94:


                                       Áætlað
    Nýtanlegur     Greiðslu-          Greiðslu-          Greiðslu-          greiðslu-     
    fullv.r.     mark     Breyting     mark     Breyting     mark     Breyting     mark     Breyting
Svæði nr.     1991/92     1992/93     1991-1992     1993/94     1991-1993     1994/95     1991-1994     1995/96     1991 -1995

Gullbr.- og Kjós.          97.781     64.647     –34%     63.965     –35%     56.471     –42%     54.924     –44%
Borgarf. s.Skarðsh.          151.053     112.728     –25%     114.984     –24%     105.339     –30%     102.453     –32%
Borgarf. o.Skarðsh.          236.802     199.529     -16%     173.850     -27%     156.709     -34%     152.415     -36%
Mýrasýsla          371.402     312.234     -16%     272.663     -27%     253.585     -32%     246.637     -34%
Snæfellsnessýsla          399.352     331.634     -17%     286.916     -28%     261.387     -35%     254.225     -36%
Dalasýsla          578.128     504.431     -13%     433.250     -25%     393.409     -32%     382.629     -34%
A-Barð.          181.321     160.832     -11%     138.571     -24%     125.746     -31%     122.300     -33%
V-Barð.          118.660     94.707     -20%     87.601     -26%     79.493     -33%     77.315     -35%
V-Ísafj.s.          205.611     172.386     -16%     157.178     -24%     140.210     -32%     136.369     -34%
N-Ísafj.s.          178.904     145.523     -19%     132.872     -26%     121.629     -32%     118.296     -34%
Strandasýsla          512.998     459.977     -10%     399.413     -22%     374.699     -27%     364.432     -29%
V-Húnav.s.          632.315     558.622     -12%     523.160     -17%     479.320     -24%     466.186     -26%
A-Húnav.s.          559.803     480.516     -14%     504.875     -10%     457.017     -18%     444.495     -21%
Skagafj.s.          720.826     601.523     -17%     567.279     -21%     517.749     -28%     503.563     -30%
Eyjafj.s. og Hálsh.          695.477     579.632     -17%     552.258     -21%     483.447     -30%     470.201     -32%
S-Þing.          556.006     475.126     -15%     420.051     -24%     386.572     -30%     375.979     -32%
N-Þing.          491.558     443.341     -10%     401.306     -18%     372.162     -24%     361.965     -26%
Vopnafj.          217.787     195.223     -10%     187.457     -14%     163.101     -25%     158.632     -27%
Hérað og Firðir          566.828     483.056     -15%     709.852     25%     645.903     14%     628.205     11%
Norðfjörður          30.434     6.963     -77%     19.284     -37%     16.623     -45%     16.167     -47%
Suðurfjarðasvæði          257.448     203.687     -21%     206.838     -20%     179.149     -30%     174.240     -32%
A-Skaftafellssýsla          352.534     294.229     -17%     265.250     -25%     241.691     -31%     235.069     -33%
V-Skaftafellssýsla          571.981     513.046     -10%     463.569     -19%     426.486     -25%     414.801     -27%
Rangárvallasýsla          794.259     655.472     -17%     563.212     -29%     501.329     -37%     487.592     -39%
Árnessýsla          720.665     579.612     -20%     512.903     -29%     463.669     -36%     450.965     -37%

Samtals          10.199.933     8.628.676     -15%     8.158.555     -20%     7.402.894     -27%     7.200.055     -29%


Birgðastaða kindakjöts við lok fyrri búvörusamnings.
    Ríkissjóður afsetti ekki þær birgðir kindakjöts sem skráðar voru í landinu 31. ágúst 1992. Um var að ræða 300 tonn sem voru á ábyrgð framleiðenda en máttu vera allt að 500 tonn samkvæmt samningnum. Hér er því greinilega verið að spyrja um hvernig þeirri lágu birgðastöðu var náð. Það sem skiptir máli í þessu sambandi var að salan í ágúst 1992 varð mun meiri en gera mátti ráð fyrir eða rúm 1.500 tonn. Það sem virðist hafa skipt hér sköpum var að samstarfshópur um sölu á lambakjöti ákvað að tillögu afurða stöðva 40 kr. aukaniðurgreiðslu á kg alls kindakjöts í byrjun ágúst 1992. Hér var um 10% aukaniðurgreiðslu að ræða en það þótti ekki hátt, a.m.k. ekki á þeim tíma. Svo virð ist sem afurðastöðvar hafi talið það tryggast, með hliðsjón af þeim breytingum sem fram undan voru, að nýta þessa niðurgreiðslu til hins ýtrasta og tóku út úr birgðum mun meira kjöt en selt var í raun og veru í þessum mánuði. Þessi sala skapaði óánægju Stéttarsam bands bænda sem taldi að með þessu hefði ríkið komist hjá því að flytja út tilskilið magn fyrir lok eldri búvörusamnings. Þannig væri raunveruleg birgðastaða 400 tonnum meiri en skýrslur Framleiðsluráðs landbúnaðarins gæfu til kynna. Ríkisvaldið kom til móts við þessa gagnrýni bænda með því að styðja sölu á eldri birgðum kindakjöts þá um haustið, auk þess að greiða vaxta- og geymslugjöld á 200 tonn í lengri tíma en það sem tilskilið var haustið eftir.


Framlag til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins á árunum 1992–94.
    Fjármagn til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins á árinu 1992 var 340 millj. kr., en fram lög síðar samkvæmt viðauka II koma fram í eftirfarandi töflu. Upphæðir eru í millj. kr.


     Ár     Framlag     Framlag skv. viðauka II

    1993     250     300
    1994     300     250


    Framlög hafa verið veitt í samræmi við viðauka II, en 50 millj. kr. færðust þó á milli áranna 1993 og 1994 eins og sjá má af töflunni.

Framlög til Jarðasjóðs á árunum 1992 og 1993.
    Á fjárlögum voru í samræmi við viðauka II veittar samtals 150 millj. kr. til Jarða sjóðs árin 1992 og 1993 umfram það sem verið hafði. Það skilyrði var sett að Jarðasjóður aflaði þessa fjár með sölu jarða á tímabilinu. Hins vegar seldust jarðir fyrir aðeins um 21 millj. kr. af þeim 150 millj. kr. sem áætlaðar voru samkvæmt fjárlögum.

Framlög til Byggðastofnunar og Lífeyrissjóðs bænda á árunum 1992–94.
    Samkvæmt upplýsingum frá Byggðastofnun hafa verið veittar 20 millj. kr. á grundvelli viðauka II.
    Til Lífeyrissjóðs bænda hafa árlega verið veittar 10 millj. kr. sérstaklega á grundvelli viðauka II, en þeir fjármunir voru ætlaðir bændum milli 63 og 70 ára aldurs eftir að þeir höfðu selt fullvirðisrétt sinn til þess að mæta réttindamissi er ella hefði orðið. Rétt er jafnframt að taka fram að breyting var gerð á forsendum fjárframlaga til Lífeyrissjóðs bænda í fjárlögum 1993 og síðan, en fjárveitingar miðast nú eingöngu við greiðslu mót framlags vegna sauðfjár- og mjólkurframleiðslu. Áður miðuðust fjárveitingar við heildar verðmæti búvöruframleiðslunnar.

Þróun í viðskiptum með fullvirðisrétt/greiðslumark.
    Sala á greiðslumarki í mjólk hefur verið samkvæmt eftirfarandi töflu sem sýnir sölu eftir svæðum í þúsundum lítra. Ekki liggja fyrir upplýsingar um hvert selt hefur verið, en hægt er að fullyrða að í velflestum tilvikum hefur sala átt sér stað innan svæðis.

Heildarsala á greiðslumarki í mjólk 1992 til 1994, í þúsundum lítra.



          1992/93     1993/94

    Reykjavík     180     84
    Borgarnes     249     177
    Búðardalur     200     113
    Ísafjörður     53     38
    Hvammstangi     63     104
    Blönduós     91     115
    Sauðárkrókur     454     259
    Akureyri     856     578
    Húsavík     102     177
    Vopnafjörður     0     0
    Egilsstaðir     153     151
    Neskaupstaður     0     0
    Höfn     218     17
    Selfoss     1.188     627

         3.807     2.440

    Sala á greiðslumarki í sauðfé hefur verið lítil. Eftirfarandi tafla sýnir sölu á greiðslu marki eftir svæðum í tonnum. Ekki liggja fyrir tölur um það hvert selt hefur verið en hægt er að fullyrða að í velflestum tilvikum hefur sala átt sér stað innan svæðis.


Heildarsala á greiðslumarki í sauðfé 1993–95, tonn.




    1993/94     1994/95

    Gullbr.- Kjós.     0,1     0
    Borgarf. s.Skarðsh.     1,7     1,5
    Borgarf. o.Skarðsh.     2,2     1,4
    Mýrasýsla     6,9     7,6
    Snæfellsnessýsla     12     4,3
    Dalasýsla     3,3     12,2
    A-Barð.     0,7     0,5
    V-Barð.     0,3     0,8
    V-Ísafj.s.     3,7     0
    N-Ísafj.s.     0     5,9
    Strandasýsla     22,7     15,5
    V-Húnav.s.     10     4,2
    A-Húnav.s.     21,7     6,8
    Skagafj.s.     14,6     14,2
    Eyjafj.s. og Hálsh.     5,6     6,7
    S-Þing.     7,5     2,9
    N-Þing.     3,9     5,6
    Vopnafj.     9,1     0

    1993/94     1994/95

    Hérað og Firðir     66     30,7
    Norðfjörður     2,5     0
    Suðurfjarðasvæði     9,2     1,3
    A-Skaftafellssýsla     5,7     0,8
    V-Skaftafellssýsla     2,9     10,9
    Rangárvallasýsla     6,9     9,7
    Árnessýsla     7,9     12,1

         227,1     155,6

    Fullyrða má að sala greiðslumarks síðan 1992 hefur ekki valdið byggðaröskun. Ætla verður að sú takmarkaða tilfærsla á rétti sem orðin er hafi verið í hagræðingarátt. Það er hins vegar ástæða til að óttast að sú mikla skerðing framleiðsluheimilda sem átt hefur sér stað muni valda byggðaröskun.

Uppgjör framleiðsluársins.
    Uppgjör framleiðsluársins hefur ekki verið breytt frá framleiðsluári yfir í almanaksár. Segja má að uppgjör sauðfjárafurða við framleiðendur miðist við áramót, þ.e. svo hefur verið frá setningu búvörulaga 1985, þar sem lögbundið er að uppgjöri við þá skuli lokið í síðasta lagi 15. desember ár hvert. Vissir erfiðleikar fylgja því að breyta uppgjörstíma mjólkur en hann miðast við ágústlok í dag. Það sem hér um ræðir er það að talið er hag kvæmt að sumarmjólkin sé sú mjólk sem framleidd er næst uppgjöri sökum þess hve knappt menn nýta sinn framleiðslurétt. Þar á móti kemur að reynt hefur verið með góðum árangri að fá framleiðendur til þess að framleiða vetrarmjólk með breytilegri verðlagn ingu. Heimild til þess að breyta uppgjörstímabili í almanaksár var lögfest 1992 en niður staða samnings við Stéttarsamband bænda um stjórn mjólkurframleiðslunnar er gerður var í ágúst það ár varð sú að breyta ekki að svo stöddu verðlagsárinu.

Framlög til landgræðslu- og skógræktarstarfa á árunum 1992–94.
    Eftirfarandi tafla sýnir framlög til landgræðslu og skógræktar á árunum 1989 til 1993, samkvæmt greiðslum en 1994 samkvæmt fjárlögum. Tölur eru í millj. kr.



Fjárlagaliður     1989     1990     1991     1992     1993     1994
Skógrækt ríkisins                         148,8     156,9     154,7
Landgræðsla ríkisins                         240,0     213,0     196,3
Skógr. og landgr., ýmis verkefni.*                         55,7     57,5
Landgræðslusjóður                         3,0     3,0
Ýmis verkefni**                                   9,0
Héraðsskógar                                   53,1

Samtals          240,0     321,3     369,8     447,1     430,4     413,1

*     Framlög til Skógræktarfélags Íslands og Héraðsskóga.
**     Framlög til Skógræktarfélags Íslands, Landgræðslusjóðs og Landgræðsluáætlana.


    Framlög af þessum fjárlagaliðum, sérstaklega merkt til landgræðslu- og skógræktar starfa bænda, hafa verið um 40 millj. kr. ár hvert frá árinu 1992. Ljóst er, með hliðsjón af töflunni, að auknar fjárveitingar til þessa málaflokks eru ekki í samræmi við bókun VI sem gerði ráð fyrir 2 milljörðum kr. í auknum framlögum til þessara málaflokka á bú vörusamningstímanum. Hér var um viljayfirlýsingu að ræða sem því miður hefur ekki verið unnt að verða við vegna erfiðrar stöðu efnahagsmála.

Rannsókna- og leiðbeiningastarfsemi í landbúnaði.
    Tilraunastarf hefur verið aflagt á Skriðuklaustri og Reykhólum og á Sámsstöðum er starfsemin til endurskoðunar. Nú er þar einungis viðhaldið vissum langtímatilraunum í jarðrækt. Í staðinn hefur starfsemin verið efld á Hesti, Möðruvöllum og á Stóra-Ármóti sem Búnaðarsamband Suðurlands rekur. Stefnt er að nánu samstarfi milli Rala og Bænda skólans á Hvanneyri um rannsóknir og kennslu í sauðfjárrækt á Hesti þar sem auk alhliða framleiðslutilrauna er lögð megináhersla á rannsóknir og ræktun fjár með tilliti til kjöt gæða. Á Möðruvöllum er sérstök áhersla lögð á hagkvæmni og gæði nautakjötsfram leiðslu, auk jarðræktartilrauna, en á Stóra-Ármóti snýr starfið einkum að mjólkurfram leiðslu með kynbóta- og fóðrunarrannsóknum. Náið samstarf er milli Rala og Land græðslu ríkisins um frærækt og landgræðslurannsóknir og hefur starfsemi á þessu sviði verið flutt frá Sámsstöðum að Gunnarsholti.
    Hvað fiskeldi varðar er megináhersla lögð á kynbætur og rannsóknir á því sviði. Sú starfsemi hefur verið efld verulega fyrir bleikju á Hólum og lax í Laxeldisstöðinni í Kollafirði og hjá Stofnfiski hf. sem rekinn er í Kollafirði.
    Lítið hefur enn farið fyrir skipulagsbreytingum á leiðbeiningarþjónustunni. Þó hefur nokkuð verið unnið í þróun bókhaldsforrits fyrir bændur sem gefur möguleika á auknum hagfræðileiðbeiningum. Vonir standa til að sameining Búnaðarfélags Íslands og Stéttar sambands bænda tengi betur en verið hefur rekstur einstakra búa og viðfangsefni leið beiningarþjónustunnar.
    Ljóst er að búnaðarskólarnir hafa í samvinnu við Framleiðnisjóð landbúnaðarins unnið mikið starf í endurmenntun bænda og ráðunauta. Námskeið, haldin í skólunum á sl. ári, skipta tugum.

Búvörusamningurinn - stefnumörkun.
    Engin bein ákvæði samningsins hafa verið endurskoðuð. Hins vegar eru í gangi við ræður milli landbúnaðarráðherra og stjórnar Stéttarsambands bænda um störf bænda að landgræðslumálum þar sem bændum verði gefinn kostur á að halda beinum greiðslum að mestu óbreyttum, þrátt fyrir minni framleiðslu, ef um er að ræða störf við landgræðslu.
    Á öllum samningstímanum hafa verið í gangi óformlegar viðræður aðila og marghátt að samráð hefur verið haft við bændasamtökin um undirbúning og útfærslu alþjóðasamn inga.
    Rétt er að benda á skýrslu Ríkisendurskoðunar um framkvæmd búvörusamnings 1989–93 og úttekt OECD á landbúnaði á Íslandi sem væntanleg er vorið 1995. Síðasta vor fól landbúnaðarráðherra sjömannnanefnd að hefja úttekt á framtíðarstarfsumhverfi landbúnaðarins og móta tillögur um áframhaldandi stefnumörkun.
         
Fylgiskjal I, tafla um framleiðsluverðmæti unnin af Hagþjónustu landbúnaðarins
Fylgiskjal II, tafla unnin úr búreikningum Hagþjónustu landbúnaðarins þar sem borin er saman afkoma sömu 117 búa í þrjú ár.
Fylgiskjal III, frá Hagstofu Íslands.
Fylgiskjal IV, úr skýrslu Ríkisendurskoðunar um framkvæmd búvörusamninga 1989–93.
Fylgiskjal V, fjöldi búfjár samkvæmt Árbók landbúnaðarins 1992.
Fylgiskjal VI, Aðlögun á grundvelli viðauka I í búvörusamningi, úr skýrslu Helga Jó hannessonar lögfræðings sem unnin var fyrir Framkvæmdanefnd búvörusamninga.



Fylgiskjal I.


Framleiðsluvermæti búvara, á verðlagi ársins 1980.*



Afurð     1987     1988     1989     1990     1991     1992     1993
Nautgripaafurðir     410.1     392.5     382.9     401.9     398.4     385.2     397.2
Sauðfjárafurðir     395     355     305.4     303.2     300.6     295.7     283.8
Hrossaafurðir**     14.2     13.6     18     19.5     20     22.2     24.9
Svínaafurðir     44.9     49.3     59.9     56.1     57.6     58.7     64.2
Alifuglaafurðir     99.8     82.3     82.3     32.4     82.2     82.2     68.2
Garða- og gróðurh.     92.2     84.8     84.6     90     93.7     84.6     81.4
Hlunnindi     21.6     21.6     19     19.5     19.5     20.4     19
Ferðaþjónusta
Loðdýraafurðir     45.1     49     68.1     47.1     33.8     37.3     63
Kanínuafurðir     0.5     0.5     0.4     0.4     0.3     0.2     0.2
    1123.4     1048.6     1020.6     970.1     1006.1     986.5     1001.9

*     Verðmæti á tonn/einingu sama og verðið 1980, heimild: Þjóðhagsstofnun.
**     Af skráðu útflutningsverði eru 85% talin skilaverð til bænda en 15% í flutnings kostnað o.fl.



Framleiðsluverðmæti búvara, á verðlagi hvers árs.



Afurð     1987     1988     1989     1990     1991     1992     1993
Nautgripaafurðir     3808.5     4553.9     5500.1     6450.6     6690     6495.9     6671.4
Sauðfjárafurðir     3634.6     3529.7     3887.5     4009.8     4583.1     4476     4342.2
Hrossaafurðir     126.6     161.6     238.8     293.5     300     320.5     340.9
Reiðhross innanl.*          89.65     108.9     132     145.2     132
Svínaafurðir     383.1     538.8     798.2     835.9     899.6     951.4     939.6
Alifuglaafurðir     709.5     744.8     919.1     1043.5     1041.5     1041     909.5
Garða- og gróðurh.     869     1075.9     1303.5     1485.4     1708.6     1679.1     1657.7
Hlunnindi     170     170     307.4     360     385.2     400     307.4
Veiðileiga*     195     283.5     337.6     392     425.5     445.4     439.3
Ferðaþjónusta**          58.9     83     99.6     256.9     245     281.7
Loðdýraafurðir     185.9     176.9     221.5     172.7     210.1     232.6     414.6
Kanínuafurðir     7.5     9.1     9.2     10.6     7.8     7     7
Silungur*     53     68     23.4     42     175     150     163.5
Fiskeldi, annað*     467     215.5     314.2     350     250.5     295.4     1305
Samtals     10609.7     11676.25     14052.4     15677.6     17079     16871.3     17779.8
Vísitala     440498.5     552634.3     669127.5     768405.7     820625.5     851521.5     886433.8
framfærslukostnaðar                                   8
Vístala     100.0     110.1     132.4     147.8     161.0     159.0     167.6
afurðaverðmætis
Vísitala framfærsluk.     100.0     125.5     151.9     174.4     186.3     193.3     201.2


*     Samkvæmt verðmætaáætlun Framleiðsluráðs landbúnaðarins.
**     Eingöngu gisting til 1991 en veitingar síðan meðtaldar.



Fylgiskjal II.


Yfirlit um yfir rekstur kúabúa samkvæmt niðurstöðum búreikninga.




1991     1992     1993
Tekjur af nautgripum     5903     5479     5236
Tekjur alls     6380     5999     5718
Breytilegur kostnaður     2604     2347     2304
Framlegð     3776     3652     3414
Fastur kostnaður     1312     1213     1213
Afskriftir     867     871     808
Vaxtakostnaður     482     422     368
Aðrar tekjur     394     364     500
Launagreiðslugeta     1509     1509     1525
Eignir alls     11821     11332     10730
Skammtímaskuldir     1889     1803     2123
Langtímaskuldir     2938     3231     2971
Tekjur utan bús     209     207     315
Höfuðstóll     6544     5875     5513
Hlutfall eigin fjár     0,55     0,52     0,51
Fjöldi     117     117     117



Fylgiskjal III.



Vísitala framfærslukostnaðar eftir eðli og uppruna 1992-94.



    1991     1992     1993     1994
    Feb.     Maí     Ág.     Nóv.     Feb.     Maí     Ág.     Nóv.     Feb.     Maí     Ág.     Nóv.     Feb.     Maí     Ág.     Okt.     
1. Búvörur háðar verðlags-
grundvelli     138,7     140,5     142,4     144,8     146,8     147,0     147,3     145,9     145,1     144,5     137,3     141,5     141,4     137,6     138,0     140,0     
2. Aðrar innlendar mat- og
drykkjarvörur     140,8     141,5     144,8     144,7     144,3     144,3     145,3     146,6     150,0     150,0     149,7     152,1     145,0     141,8     143,3     143,4
3. Innfluttar mat- og
drykkjarvörur     155,1     155,9     157,6     153,8     149,2     147,7     145,7     145,1     152,8     153,2     159,9     172,4     161,5     163,6     161,3     163,5
4. Innlendar vörur,
aðrar en í 1. og 2.     155,2     157,2     158,6     162,5     163,1     163,9     164,6     165,6     165,9     167,3     177,5     180,9     177,8     176,6     178,6     178,9
5. Innfluttar vörur, nýr bíll,
bensín og varahlutir     168,5     170,8     178,4     180,7     177,2     179,1     182,6     180,8     198,0     202,9     215,3     213,0     212,1     216,7     217,5     219,0
6. Innfluttar vörur, aðrar
en í 3. og 5.     157,8     159,6     161,2     164,2     164,6     164,8     165,0     165,6     166,6     166,6     169,3     170,9     171,7     171,0     170,9     170.8
7. Áfengi og tóbak     151,9     151,9     155,4     161,4     165,8     165,8     165,8     168,4     175,0     175,0     175,0     179,9     179,9     182,2     182,2     182,2
8. Húsnæðiskostnaður     134,6     138,2     149,9     152,9     150,9     145,9     145,2     144,3     145,1     145,5     146,6     146,1     144,0     146,3     146,1     146,5
9. Vörur og þjónusta háð
opinberum verð-
ákvörðunum     144,1     144,3     148,1     153,9     160,3     160,3     163,1     164,3     173,1     174,8     177,9     179,6     183,0     182,7     182,7     182,9     
10. Önnur þjónusta      153,0     159,9     163,1     166,8     168,0     170,0     171,7     171,1     172,5     174,0     176,7     177,8     178,0     178,4     180,1     179,4

Samtals     150,0     152,8     157,2     160,0     160,4     160,5     161,4     164,1     165,3     166,3     169,2     170,8     169,5     169,9     170,5     170,8
Þar af:     
Innlendar vörur alls
(liðir 1, 2 og 4)     143,7     145,0     147,5     149,1     149,7     150,0     150,7     151,1     152,7     152,8     152,8     156,0     151,7     148,7     150,0     150,8
Innfluttar vörur alls
(liðir 3, 5, 6 og 7)     160,3     161,9     165,6     168,1     167,2     167,8     168,8     168,8     176,1     177,7     183,5     185,5     184,4     185,9     185,9     186,5



Fylgiskjal IV.


Framlög ríkissjóðs vegna búvörusamninga (milljónir króna).




    1987     1988     1989     1990     1991     1992     1993
Framleiðnisjóður landb.     272     429     490     592     666     340     250
Sauðfjárveikivarnir 1)     52     277     420     321     326     193     112
Uppkaup á fullvirðisrétti     0     0     0     0     1.213     667     208
Útflutningsbætur o.fl.     710     858     1.885     1.153     1.573     1.129     229
Lífeyrissjóður bænda 2)     260     230     375     408     397     419     313
Niðurgreiðslur     1.465     3.622     4.072     5.097     4.903     4.353     860
Beinar greiðslur til bænda     0     0     0     0     0     1.764     3.895
Samtals     2.758     5.416     7.243     7.570     9.079     8.865     5.868

Á föstu verðlagi 3)     5.647     8.844     9.764     8.887     9.979     9.393     5.972

1)     Bætur fyrir fé sem skorið er niður vegna riðu.
2)     Framlag til Stofnlánadeildar landbúnaðarins meðtalið.
3)     Fast verðlag í nóvember 1993 miðað við framfærsluvísitölu.



Fylgiskjal V.


Fjöldi búpenings í landinu árin 1972-92.




    Nautgripir     Sauðfé
         Varp-     Holda-     Kan-
Ár     Alls     Kýr     Alls     Ær     Hross     Geitfé     Svín     hæn ur     fuglar     Minkar     Refir     ínur
1972     65280     36580     828589     672106     39209     238     tölur     200067          11230
1973     67338     36975     845796     689329     41918     266     ekki     229394          12055
1974     66530     37087     863638     708703     44330     284     til     234389     Taldir     10050
1975     61780     36312     860376     613704     46925     222          210348     með     12350
1976     60783     36511     870848     717206     48205     275     1013     296252     öðrum     11960
1977     62677     36859     896192     733232     49528     300     1177     296252     fuglum     900
1978     62789     36326     890807     744338     51019     292     1392     369024          8760
1979     67172     33748     796755     696131     50067     232     1435     393974          8600
1980     59933     33577     827927     684589     52346     220     1552     310724          8080     280
1981     60366     32769     794644     667544     52999     222     1494     270695     144721     8275     838
1982     64435     32845     747701     625828     53650     242     1923     292621     119136     6690     2043     230
1983     68540     33189     711936     594469     52056     212     2203     294425     172311     7170     5154     494
1984     72665     342230     712900     582993     52245     260     2287     302260     186745     5488     9840     729
1985     72889     35115     709257     573536     54132     280     2575     322600     358468     11490     18395     4010
1986     71383     33776     675065     553904     56406     262     2751     301663     258599     20492     21480     5667
1987     69030     32880     624087     510584     59319     264     3351     272730     146500     50423     21174     3943
1988     70824     32005     586887     484443     63531     288     3453     229733     185555     86645     9000     3259
1989     72789     31490     560920     461728     69238     323     3247     231997     183181     55973     7618     2179
1990     74889     32249     548599     445513     72030     332     3135     214975     291000     42000     4974     1814
1991     77681     31641     510782     414041     74067     359     3315     197123     233199     38617     5116     1570
1992     76034     30359     487312     390899     75171     318     3474     178954     71894*     29045*     5419     430

.     Árið 1992 eru skráðir stofnungar og lífungar en holdakjúklingar eru ekki skráðir, skráður er heildarfjöldi anda, gæsa og kalkúna.



Fylgiskjal VI.


Aðlögun á grundvelli viðauka I í búvörusamningi.





Sérstök fullvirðisréttarskrá     11.857.690,0


1. maí - 31. ágúst 1991

Keyptur virkur réttur     1.060.318,8
- leiguréttur     493.376,5
- riðuréttur     109.802,1
- réttur utan lögbýla     38.751,9
Fyrri niðurfærslu
- virkur réttur     122.229,4
- óvirkur réttur     13.500,5
- Samtals     1.837.979,2



1. sept. - 31. ágúst 1992s

Keyptur virkur réttur     210.240,4
- leiguréttur     8.688,8
- riðuréttur     30.501,4
Seinni niðurfærsla     1.570.072,5
Fellt niður utan lögbýla     1.261,3
Forkaupsréttur ríkissjóðs     3.813,0
Innlagður fullvirðisréttur     1.605,1
Samtals     1.826.182,5

Samtals 1. og 2. hluti aðlögunar     3.664.161,7
Fellt niður á ríkisjörðum     49.924,4
Samtals     3.705.292,3


Fullvirðisréttur að lokinni aðlögun,
þ.e. verðlagsárið 1993-94     8.143.603,9