Ferill 343. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 343 . mál.


547. Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 99/1993, um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum.

Flm.: Páll Pétursson, Guðni Ágústsson, Jóhannes Geir Sigurgeirsson.



1. gr.

    72. gr. laganna orðast svo:
    Landbúnaðarráðherra er heimilt, til þess að jafna samkeppnisstöðu innlendra og innfluttra vara, að leggja verðjöfnunargjöld á innfluttar landbúnaðarvörur sem tilgreindar eru í viðauka I og II með lögum þessum og jafnframt eru framleiddar hér á landi. Verðjöfnun á unnum og/eða samsettum vörum miðast við þátt landbúnaðarhráefna í verði þeirra.
    Verðjöfnunargjöld samkvæmt þessari grein skulu innheimt við tollafgreiðslu og renna í rík issjóð.
    Fjárhæð verðjöfnunargjalds má að hámarki vera mismunur annars vegar á innlendu verði hráefnis sem ákveðið er skv. 1. tölul. og hins vegar erlendu viðmiðunarverði sem ákveðið er skv. 2. tölul.:
     1 .     Innlent verð skal ákveðið í eftirfarandi röð:
        1.1.    Umsamið innlent viðmiðunarverð í fríverslunar- og milliríkjasamningum sem Ísland er aðili að og bókunum við þá og tekur til hlutaðeigandi innflutnings.
        1.2.    Samkvæmt IV. kafla laga þessara ef verð er ákveðið og birt í samræmi við þær reglur.
        1.3.    Í samræmi við reglur 6. gr. laga nr. 97/1987, um vörugjald.
     2 .     Erlent viðmiðunarverð skal ákveðið þannig eftir því sem við á um hlutaðeigandi innflutning:
        2.1.    Viðmiðunarverð sem lagt er til grundvallar samkvæmt verðjöfnunarákvæðum í bókun 3 við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið.
        2.2.    Viðmiðunarverð sem lagt er til grundvallar samkvæmt bókun 2 við samning milli Íslands og Efnahagsbandalags Evrópu.
        2.3.    Viðmiðunarverð sem lagt er til grundvallar í verðjöfnunarákvæðum í öðrum fríverslunarsamningum en skv. 2.1 og 2.2 sem Ísland er aðili að á hverjum tíma.
        2.4.    Viðmiðunarverð sem birt er sem heimsmarkaðsverð einstakra landbúnaðarhráefna af hálfu Evrópusambandsins eða fríverslunarsamtaka, og skal ráðherra ákveða nánar í reglugerð við hvaða verð miðað er á hverri hráefnistegund. Komi í ljós að framleið endur vöru eigi kost á að kaupa hráefni á lægra verði en birtu viðmiðunarverði sam kvæmt framangreindu í að minnsta kosti þrjá mánuði er ráðherra heimilt að ákveða tímabundið að miða við það verð sem sérstaklega ákvarðað viðmiðunarverð. Sé við miðunarverð ekki birt með framangreindum hætti skal viðmiðunarverð ákvarðað í samræmi við það verð sem framleiðendur eiga kost á að kaupa hráefni á.
    Landbúnaðarráðherra skal jafnan við ákvörðun verðjöfnunargjalds birta í reglugerð það inn lenda og erlenda viðmiðunarverð sem notað er við ákvörðun gjaldsins.
    Jafnan skal miða við verð á sama sölustigi nema annað leiði af ákvæðum fríverslunar- og milliríkjasamninga. Verðjöfnunargjöld má leggja á sem krónutölu á magneiningu eða sem hlut fallslegt gjald.
    Ráðherra ákveður álagningu gjalda samkvæmt þessari grein í reglugerð. Álagning verðjöfnunargjalds skal vera í samræmi við þá skilmála sem kveðið er á um í fríversl unar- og milliríkjasamningum og takmarkast hverju sinni af því að verðjöfunargjald að viðbættum innflutningsgjöldum sé innan þeirra marka sem skilgreind eru í fríverslunar- og milliríkjasamningum sem Ísland er aðili að.
    Að því leyti sem eigi er ákveðið í lögum þessum eða reglugerð eða öðrum fyrirmæl um settum samkvæmt lögum þessum um vöruflokkun, gjalddaga, innheimtu, lögvernd verðjöfnunargjalda, refsingar og aðra framkvæmd varðandi verðjöfnunargjöld skulu gilda eftir því sem við geta átt ákvæði tollalaga, nr. 55/1987, með síðari breytingum.
    Heimild landbúnaðarráðherra samkvæmt þessari grein skal koma í stað heimildar fjár málaráðherra skv. 120. gr. A í tollalögum, nr. 55/1987, með síðari breytingum, að því er varðar þær vörur sem grein þessi tekur til.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Samkvæmt ályktun Alþingis frá 29. desember 1994, um fullgildingu samnings um stofnun Alþjóðaviðskiptastofnunar, hefur verið ákveðið að „landbúnaðarráðherra verði tryggt forræði um allar efnislegar ákvarðanir í því stjórnkerfi sem varðar landbúnað og innflutning landbúnaðarvara“. Þess vegna er þriðja síðasta málsgrein 72. gr. búvöru laganna orðin úrelt og því er lagt til að málsgreinin verði felld brott úr 72. gr.



Fylgiskjal.


Ályktun Alþingis 29. desember 1994.


    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að fullgilda fyrir Íslands hönd samning um stofnun Alþjóðaviðskiptastofnunar sem undirritaður var í Marakess í Marokkó 15. apríl 1994.
    Alþingi ítrekar að þrátt fyrir fullgildingu samningsins gildi óbreytt skipulag á inn flutningi landbúnaðarvara þar til lögum hefur verið breytt með hliðsjón af samningnum. Þær lagabreytingar, þar með taldar tollabreytingar, skulu gerðar með hliðsjón af GATT-tilboði Íslands til að veita innlendri framleiðslu nauðsynlega vernd. Landbúnaðarráð herra verði tryggt forræði um allar efnislegar ákvarðanir í því stjórnkerfi sem varðar land búnað og innflutning landbúnaðarvara og komið verður á fót á grundvelli þessarar álykt unar.