Ferill 354. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1994–95. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 354 . mál.


577. Frumvarp til laga



um veitingu ríkisborgararéttar.

(Lagt fyrir Alþingi á 118. löggjafarþingi 1994–95.)



1. gr.

Ríkisborgararétt skulu öðlast:
     1 .     Akasof, Yutaka, eftirlitsmaður á Þingeyri, f. 17. júlí 1946 í Japan.
     2 .     Hannam, Sólveig, húsmóðir í Garðabæ, f. 20. júlí 1947 í Englandi.
     3 .     Okuniewska, Grazyna María, starfsmaður í Bolungarvík, f. 10. júlí 1965 í Póllandi.
     4 .     Spencer, Theresa Jane, húsmóðir í Neskaupstað, f. 19. september 1952 í Englandi.

2. gr.

    Þeir sem heita nöfnum sem ekki fullnægja reglum laga um mannanöfn, nr. 37 27. mars 1991, skulu ekki öðlast íslenskt ríkisfang samkvæmt lögum þessum fyrr en fullnægt er ákvæðum 15. gr. laga um mannanöfn. Sama gildir um börn þeirra.

3. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Umsækjendur þeir sem teknir hafa verið á lagafrumvarp þetta fullnægja skilyrðum sem sett hafa verið af allsherjarnefnd Alþingis.
    Frumvarp þetta er annað frumvarp til laga um veitingu ríkisborgararéttar sem borið er fram á yfirstandandi 118. löggjafarþingi.