Ferill 89. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1994–95. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 89 . mál.


605. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. um málflytjendur, nr. 61 4. júlí 1942, með síðari breytingum.

Frá allsherjarnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fékk hún á sinn fund Ara Edwald, aðstoðarmann dóms málaráðherra, Sigmar Ármannsson, framkvæmdastjóra Sambands íslenskra tryggingafélaga, Gest Jónsson hrl. og frá Lögmannafélagi Íslands Ragnar Aðalsteinsson formann, Ingólf Hjartar son varaformann og Martein Másson framkvæmdastjóra. Þá studdist nefndin við umsagnir er bárust um málið á 117. löggjafarþingi frá Neytendasamtökunum, Lögmannafélagi Íslands, Önnu Guðrúnu Björnsdóttur, Gesti Jónssyni og Gunnlaugi Claessen, Sambandi íslenskra trygg ingafélaga og Friðriki Arngrímssyni, Hákoni Árnasyni og Ingólfi Hjartarsyni.
    Í frumvarpi þessu eru lagðar til breytingar sem snúa m.a. að öryggi viðskiptamanna lög manna. Í fyrsta lagi verði fé viðskiptamanna geymt á sérstökum reikningum, vörslufjárreikning um, og í öðru lagi verði lögmönnum skylt að kaupa starfsábyrgðartryggingar. Talsvert hefur verið rætt um síðarnefnt atriði í nefndinni og í framhaldi af því eru lagðar til breytingar á 2. gr. Enn fremur hefur, í tengslum við vörslufjárreikninga, verið fjallað um samskipti lögmanna og viðskiptamanna þeirra hvað varðar upplýsingar um innheimtufé. Rætt var um hvort hægt væri að koma því við að lögmenn sendu viðskiptamönnum sínum reglulega yfirlit eða tryggðu þeim með öðru móti upplýsingar um stöðu reikninganna. Nefndin lítur svo á að viðskiptamenn lög manna geti gert samkomulag um að fá slík yfirlit. Ekki eru lagðar til breytingartillögur um þetta atriði að sinni en bent er á að nú stendur yfir heildarendurskoðun á lögum um málflytjendur og er gert ráð fyrir að þessi atriði, sem nefnd hafa verið hér að framan, verði athuguð frekar við þá endurskoðun.
    Lagðar eru til eftirtaldar breytingar á frumvarpinu:
     1 .     2. mgr. 2. gr. verði breytt þannig að lögmönnum gefist tveir kostir til að sinna skyldu um starfsábyrgðartryggingu, þeir geti keypt ábyrgðartryggingu hjá vátryggingafélagi eða lagt fram aðra jafngilda tryggingu að mati stjórnar Lögmannafélagsins. Síðari möguleikinn verður að vera fyrir hendi ef vátryggingafélag telur sér ekki fært að selja lögmanni ábyrgð artryggingu.
                  Þá er lagt til að Lögmannafélagið hafi í samþykktum sínum um tryggingarskyldu hlið sjón af góðum venjum á sviði vátrygginga og hagsmunum viðskiptamanna lögmanna og er það í ljósi þess að Lögmannafélagið kveður sjálft á um þessi atriði í samþykktum sínum. Í þessu sambandi er bent á að samþykktir félagsins öðlast ekki gildi fyrr en ráðherra hefur staðfest þær, sbr. lokamálslið 1. mgr. 2. gr., og til að tryggja neytendavernd enn frekar hef ur verið bætt við 2. mgr. að ráðherra skuli, áður en hann staðfestir samþykktir um trygging arskyldu, leita umsagnar samtaka neytenda og vátryggingafélaga.
     2 .     Lögð er til breyting á síðari málslið 4. mgr. 2. gr. í samræmi við síðastnefnda breytingu þannig að ráðherra leiti umsagnar þessara aðila áður en hann setur reglugerð, ef til þess kemur.
    Lagt er til að frumvarpið verði samþykkt með þessum breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali. Fjarstödd afgreiðslu málsins voru Anna Ólafsdóttir Björnsson, Eyjólfur Konráð Jónsson, Ingi Björn Albertsson og Kristinn H. Gunnarsson.

Alþingi, 6. febr. 1995.



    Sólveig Pétursdóttir,     Guðmundur Árni Stefánsson.     Pétur Bjarnason.
    form., frsm.          

    Tómas Ingi Olrich.     Jón Helgason.