Ferill 380. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1994–95. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 380 . mál.


611. Skýrsla



um störf Vestnorræna þingmannaráðsins árið 1994.

Frá Íslandsdeild Vestnorræna þingmannaráðsins.



1. Kjör fulltrúa í Íslandsdeild Vestnorræna þingmannaráðsins.
    Á fundi Alþingis 18. desember 1993 voru eftirtaldir fulltrúar kosnir til setu í Vestnorræna þingmannaráðinu: Árni Johnsen, Jón Helgason, Petrína Baldursdóttir, Steingrímur J. Sigfússon og Jóna Valgerður Kristjánsdóttir. Varamenn voru þá kosnir Guðmundur Hallvarðsson, Val gerður Sverrisdóttir, Sigbjörn Gunnarsson, Margrét Frímannsdóttir og Anna Ólafsdóttir Björns son. Á fundi sínum 7. janúar 1994 kaus Íslandsdeild Vestnorræna þingmannaráðsins Jón Helga son formann og Petrínu Baldursdóttur varaformann.
    Á fundi Alþingis 28. desember 1994 voru eftirtaldir fulltrúar kosnir til setu í Vestnorræna þingmannaráðinu: Árni Johnsen, Ingibjörg Pálmadóttir, Petrína Baldursdóttir, Steingrímur J. Sigfússon og Jóna Valgerður Kristjánsdóttir. Varamenn voru þá kosnir Guðmundur Hallvarðs son, Valgerður Sverrisdóttir, Sigbjörn Gunnarsson, Margrét Frímannsdóttir og Anna Ólafsdóttir Björnsson.
    Á fundi sínum 6. febrúar 1995 kaus Íslandsdeild Vestnorræna þingmannaráðsins Árna Johnsen formann og Steingrím J. Sigfússon varaformann.

2. Störf Íslandsdeildar Vestnorræna þingmannaráðsins.
    Deildin hélt sjö fundi á starfsárinu. Meðferð samþykkta ráðsins í þjóðþingunum var til um ræðu í Íslandsdeildinni í framhaldi af miðsvetrarfundi landsdeildaformanna í Kaupmannahöfn í janúar 1994 og á fundi í deildinni í mars var til umræðu bréf Sighvats Björgvinssonar, sam starfsráðherra Norðurlanda, þar sem gerð var grein fyrir fundi vestnorrænu samstarfsráðherr anna í tengslum við 44. þing Norðurlandaráðs í Stokkhólmi. Þar fór samstarfsráðherra þess á leit að ráðið sýndi aðhald og raunsæi í tillögugerð. Í framhaldi af þessu ákvað Íslandsdeildin að láta skrifstofuna gera yfirlit yfir samþykktir ráðsins frá upphafi og meðferð þeirra og leggja í ljósi þess fram tillögu um hvaða tillögur ætti að fella endanlega af dagskrá. Þessi vinna yrði lögð til grundvallar við gerð tillögu sem lögð yrði fyrir næsta ársfund um að fella af dagskrá ráðsins megnið af þeim gömlum tillögum sem enn voru á dagskrá. Auk þess var rætt um þau drög að samstarfsáætlun um byggðamál sem lögð höfðu verið fram í Norðurlandaráði og sem Davíð Oddsson forsætisráðherra hafði gert að umtalsefni í ræðu sinni á Norðurlandaráðsþinginu í Stokkhólmi.
    Á fundum ráðsins á árinu var mikið rætt um framtíðarsamstarfið í ljósi framangreindrar sam starfsáætlunar um byggðamál. Á fundi í júlí skýrði Sigurður Guðmundsson, formaður NÄRP, norrænu embættismannanefndarinnar um byggðamál, deildinni frá starfi nefndarinnar og gerði grein fyrir hugmyndum hennar um að endurskipuleggja samstarfið og kanna möguleika á sam starfi við strandhéruð Noregs og e.t.v. í framtíðinni við Skotland. Í nefndinni höfðu engar hug myndir komið fram um breytingu á starfsemi Vestnorræna þingmannaráðsins. Ákveðið var að fylgjast áfram með störfum NÄRP. Í framhaldi af umræðunum um framtíðarstarfið var gerð samþykkt á ársfundi ráðsins um að skipa starfshóp til að endurmeta störf Vestnorræna þing mannaráðsins.
    Vandinn í færeysku efnahagslífi og þjóðlífi var á árinu mikið til umræðu í Íslands deild og á fundi í maí gerði Jan Klövstad, fyrrverandi forstöðumaður Norðurlandahúss ins í Tórshavn, grein fyrir ástandinu í Færeyjum. Rætt var um mögulegt frumkvæði Ís lendinga um aðstoð Færeyingum til handa. Í bréfi til Davíðs Oddssonar forsætisráðherra 4. maí var komið á framfæri samþykkt Íslandsdeildarinnar um að beina þeim tilmælum til ríkisstjórnarinnar að skipaður yrði starfshópur fulltrúa allra þingflokka og ríkisstjórn ar til að fara með málið.
    Á miðsvetrarfundi landsdeildaformanna ráðsins í Kaupmannahöfn 12. janúar 1994 var m.a. til umræðu meðferð samþykkta ráðsins í þjóðþingunum, þátttaka vestnorrænna kvenna í kvennaráðstefnunni „Nordisk Forum“ í Åbo í ágúst 1994, samningur frá sept ember 1993 milli Grænlands og Íslands um ferðamál og fyrirhugaður sumarfundur á Grænlandi 1994.
    
3. Tíundi ársfundur Vestnorræna þingmannaráðsins árið 1994.
    Vegna lögþingskosninga í Færeyjum þurfti að fresta fyrirhuguðum ársfundi í Ilulissat í júní 1994. Í umræðum í Íslandsdeildinni um nýjan fundarstað kom fram sú eindregna skoðun að hann skyldi vera í einhverju vestnorrænu landi, helst á Grænlandi. Að lokum var þó samþykkt að fara að tillögu Færeyinga um að halda hann í Kaupmannahöfn þar sem annað væri illframkvæmanlegt en tekið fram að um undantekningu væri að ræða.
    Þar af leiðandi var 10. ársfundur ráðsins haldinn í Kaupmannahöfn 14. september 1994. Hann sóttu af hálfu Íslandsdeildar þingmannaráðsins eftirtaldir þingmenn: Árni Johnsen, Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, Jón Helgason, Petrína Baldursdóttir og Stein grímur J. Sigfússon. Alls sóttu 11 vestnorrænir þingmenn ársfundinn. Á fundinum fluttu formenn landsdeildanna stuttar skýrslur um störfin á árinu og gerðu í stuttu máli grein fyrir stjórnmálalegri stöðu, hver í sínu landi. Í almennu umræðunum kom fram eindreg inn vilji fulltrúanna til að efla framtíðarsamstarfið, ekki síst í ljósi stöðu vestnorrænu landanna þriggja utan Evrópusambandsins í fyrirsjáanlegri framtíð. Fyrir þinginu lá ein tillaga. Hún var til landsstjórna Færeyja og Grænlands og ríkisstjórnar Íslands um að skipa starfshóp til að ræða mögulegt samstarf um samskipti við og sameiginlegar áhersl ur landanna gagnvart Evrópusambandinu í ljósi stöðu vestnorrænu landanna utan sam bandsins um fyrirsjáanlega framtíð og var hún samþykkt einróma. (Sjá þingsályktunar tillögu sem lögð er fram á Alþingi samhliða skýrslunni.) Auk þess voru samþykktar þrjár eftirfarandi ákvarðanir um störf ráðsins sjálfs:
    Ársfundur Vestnorræna þingmannaráðsins, haldinn 14. september 1994 í Kaup mannahöfn, samþykkir að setja niður vinnunefnd, skipaða tveim fulltrúum frá hverju landi, til að endurmeta stöðu samstarfsins innan Vestnorræna þingmannaráðsins.
                  Nefndin skal kynna sér þær hugmyndir sem uppi hafa verið um breytingar á vest norrænu samstarfi og hugsanlega útvíkkun þess svo að það taki til Norður-Noregs og e.t.v. Skotlands, sem og aðrar breytingar sem rætt hefur verið um á vettvangi nor ræns samstarfs og taka þarf mið af.
                  Nefndinni ber einnig að meta stöðu ráðsins í ljósi almennt breyttra aðstæðna frá því að ráðið var stofnað.
                  Nefndin skal skila skýrslu um starf sitt eigi síðar en mánuði fyrir næsta ársfund og senda hana ráðsmönnum til kynningar. Skýrslan verði tekin fyrir á fundinum og verði þar grundvöllur umræðna um framtíð samstarfsins.
     2.     Vestnorræna þingmannaráðið ákveður að fella af dagskrá öll áður samþykkt tilmæli að undanskildum eftirfarandi tilmælum: Tilmæli nr. 1/1992, nr. 2/1992, nr. 4/1992, nr. 5/1992, nr. 6/1992 og nr. 1–6/1993. Tilmælin frá árinu 1993 eru ekki felld af dag skrá þar eð það er enn ekki tímabært.
                  Varðandi tilmæli nr. 5/1992 var ákveðið að hafa samband við þá ráðherra sem fara með menningarmál og mælast til að þeir flýti málinu. Auk þess var ákveðið að snúa sér til fulltrúa vestnorrænu landanna í Norðurlandaráði varðandi 2. lið í tilmælun um.
     3.     Vestnorræna þingmannaráðið ákveður að breyta 2. gr. þingskapalaganna eins og hér segir:
                  Formaður ráðsins verður kosinn eftir tilnefningu frá landsdeild verðandi gest gjafalands.
     4.     Landsdeildir hinna landanna tilnefna landsdeildarformenn. Eftir samþykkt ráðsins mynda þeir ásamt formanninum forsætisnefnd, 1. varaformaður er formaður lands deildar þess lands sem verður gestgjafaland næst, 2. varaformaður er formaður lands deildar gestgjafalandsins. Formaður og forsætisnefnd eru kosin til eins árs í senn.
                  Formaðurinn setur fundinn og sér um eftirlit og samþykkt af fulltrúum ráðsins ásamt fundarstjórn. Í lok fundarins hefur hann frumkvæði um kosningu nýs for manns og varaformanna.
                  Við forföll formannsins gegna varaformennirnir í réttri röð fundarstjórn.
    Samkvæmt nýgerðum breytingum á 2. gr. í þingskapalögum ráðsins um formennsku o.fl. tók grænlenski þingmaðurinn Kaj Egede við formennsku í ráðinu í lok fundarins.
    Ákveðið var að halda 11. ársfund þingmannaráðsins á Grænlandi sumarið 1995.

Alþingi, 6. febr. 1995.



    Árni Johnsen,     Steingrímur J. Sigfússon,     Ingibjörg Pálmadóttir.
    form.     varaform.     

    Jóna Valgerður Kristjánsdóttir.     Petrína Baldursdóttir.