Ferill 383. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1994–95. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 383 . mál.
614. Tillaga til þingsályktunar
um breytingu á merkingum þilfarsfiskiskipa.
Flm.: Guðmundur Hallvarðsson, Guðjón Guðmundsson.
Alþingi ályktar að fela samgönguráðherra að breyta reglugerð um merkingu skipa, nr. 550/1982, hluta N, lið 2.3, en þar segir að þilfarsfiskiskip skuli vera merkt með skipaskrárnúm
1 . Ef skipslengd er á bilinu 15–20 m skal hæð stafa vera 50 sm.
2 . Ef skipslengd er á bilinu 20–45 m skal hæð stafa vera 75 sm.
3 . Ef skipslengd er 45 m eða lengri skal hæð stafa vera 100 sm.
Stafirnir verði settir á sérstök merkingarspjöld, svartir á lit á ljósum bakgrunni sem gefur endurskin.
Greinargerð.
Reglur um merkingu skipa í núverandi mynd hafa verið í gildi í rúm 12 ár. Þar er gerð krafa um að stærri skip séu auðkennd með umdæmisstöfum og tölum á bóg beggja megin ásamt nafni. Auk þess skulu þilfarsfiskiskip merkt með skipaskrárnúmeri á heppilegum stað á báðum hliðum skipsins.
Tveir helstu gallar núgildandi reglugerðar hvað varðar þilfarsfiskiskip eru að stærð stafa, sem mælt er fyrir um í 4. kafla hennar, er of lítil og að notast er við skipaskrárnúmer í stað kall
Í núgildandi reglugerð um merkingu íslenskra fiskiskipa eru ákvæði þess efnis að ef skip eru minni en 30 brt (undir 20 m að lengd) skal hæð stafa vera 25 sm en á skipum stærri en 30 brt (yfir 20 m að lengd) skal hæð stafa vera 45 sm. Þar sem íslensk fiskiskip undir 30 brt hafa ekki kallmerki yrði sú skráningarskylda sem nú gildir að vera áfram við lýði fyrir hin smærri fiski
Ætla má að einhvern aðlögunartíma þurfi fyrir útgerðir og Siglingamálastofnun, sem og Til