Ferill 386. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1994–95. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 386 . mál.


620. Frumvarp til laga



um sjúkraliða.

(Lagt fyrir Alþingi á 118. löggjafarþingi 1994–95.)



1. gr.


    Rétt til að starfa sem sjúkraliði hér á landi og kalla sig sjúkraliða hefur sá einn sem til þess hefur fengið leyfi heilbrigðisráðherra.

2. gr.


    Leyfi skv. 1. gr. má veita þeim sem lokið hafa námi á sjúkraliðabraut frá skóla hér á landi sem heilbrigðs- og tryggingamálaráðuneytið viðurkennir. Einnig má veita þeim leyfi sem lokið hafa hliðstæðu námi erlendis. Áður en slíkt leyfi er veitt skal leita umsagnar landlæknis og Sjúkraliðafélags Íslands.

3. gr.


    Óheimilt er að ráða sem sjúkraliða aðra en þá sem hafa starfsleyfi samkvæmt lögum þessum.

4. gr.


    Sjúkraliða ber að þekkja skyldur sínar, viðhalda þekkingu sinni og tileinka sér nýjungar er varða starfið.

5. gr.


    Sjúkraliði starfar á hjúkrunarsviði og vinnur undir stjórn þess hjúkrunarfræðings sem fer með stjórn viðkomandi stofnunar, deildar eða hjúkrunareiningar og ber ábyrgð á störfum sínum gagnvart honum.
    Þar sem hjúkrunarfræðingur hefur ekki fengist til starfa að undangenginni auglýsingu getur sjúkraliði borið ábyrgð á störfum sínum gagnvart þeim sérfræðingi sem hlotið hefur viðurkenn ingu heilbrigðisráðuneytisins. Þó skal slík skipan háð samþykki heilbrigðis- og tryggingamála ráðuneytisins og ekki standa lengur en eitt ár í senn og er þá skylt að auglýsa á ný eftir hjúkrun arfræðingi.
    Komi upp ágreiningur um ráðningu sjúkraliða skv. 2. mgr. skal ráðuneytið skera úr um þann ágreining.
    Heimilt er að ráða sjúkraliða til starfa með læknum, ljósmæðrum og sjúkraþjálfurum undir handleiðslu og á ábyrgð þeirra að svo miklu leyti sem slík störf eru ekki falin öðrum með lögum eða reglugerðum.

6. gr.


    Sjúkraliða er skylt að gæta þagmælsku um atriði sem hann fær vitneskju um í starfi sínu og leynt skulu fara samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskylda helst þótt viðkomandi hafi látið af störfum.

7. gr.


    Ef sjúkraliði vanrækir skyldur sínar eða brýtur gegn heilbrigðislöggjöf landsins að dómi landlæknis skal landlæknir áminna hann. Komi áminning ekki að haldi leggur land læknir málið fyrir ráðherra. Getur þá ráðherra úrskurðað að hlutaðeigandi skuli sviptur starfsleyfi en skjóta má hann þeim úrskurði til dómstóla.
    Nú hefur sjúkraliði verið sviptur starfsleyfi skv. 1. mgr. og er þá ráðherra heimilt að veita honum leyfi aftur enda liggi fyrir meðmæli landlæknis og umsögn Sjúkraliðafé lags Íslands.

8. gr.


    Ráðherra getur í reglugerð sett nánari ákvæði um framkvæmd þessara laga.

9. gr.


    Lög þessi öðlast þegar gildi. Jafnframt falla úr gildi lög um sjúkraliða, nr. 58/1984, með síðari breytingum.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.


Um 1. gr.


    Greinin er samhljóða 1. gr. gildandi laga.

Um 2. gr.


    Greinin er samhljóða 1. mgr. 2. gr. gildandi laga eins og henni var breytt með lög um nr. 15/1992.

Um 3. gr.


    Greinin er samhljóða 3. gr. gildandi laga.

Um 4. gr.


    Greinin er samhljóða 4. gr. gildandi laga.

Um 5. gr.


    Greinin er samhljóða 5. gr. gildandi laga eins og henni var breytt með 1. gr. laga nr. 73/1989 að því viðbættu að heimilað er að sjúkraliðar geti starfað sem stoðstétt lækna, ljósmæðra og sjúkraþjálfara.

Um 6. gr.


    Greinin er samhljóða 6. gr. gildandi laga.

Um 7. gr.


    Greinin er samhljóða 7. gr. gildandi laga nema lagt er til að Sjúkraliðafélaga Íslands gefi einnig umsögn um endurveitingu starfsleyfa.

Um 8. gr.


    Greinin þarfnast ekki skýringa.
    

Um 9. gr.


    Greinin þarfnast ekki skýringa.



Fylgiskjal.


Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:

Umsögn um frumvarp til laga um sjúkraliða.


    Frumvarpið felur í sér breytingu á lögum um sjúkraliða, nr. 58/1984, með síðari breytingu. Ekki verður séð að frumvarpið hafi bein áhrif á útgjöld ríkissjóðs.