Ferill 402. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1994–95. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 402 . mál.
644. Frumvarp til laga
um breytingu á yfirstjórn vátryggingastarfsemi.
(Lagt fyrir Alþingi á 118. löggjafarþingi 1994–95.)
1. gr.
Í stað orðsins „Atvinnumálaráðherra“ í 1. mgr. 3. gr. laga um ófriðartryggingar, nr. 2 21. janúar 1944, kemur: Ráðherra.
2. gr.
Á lögum um Viðlagatryggingu Íslands, nr. 55 2. júní 1992, verða svofelldar breytingar:
1 . Í stað orðsins „tryggingamálaráðherra“ í 2. málsl. 2. gr. kemur: ráðherra.
2 . Í stað orðsins „Tryggingamálaráðherra“ í 26. gr. kemur: Ráðherra.
3. gr.
Í stað orðsins „Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra“ í 5. gr. laga um brunatryggingar, nr. 48 6. maí 1994, kemur: Ráðherra.
4. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. mars 1995.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að gera þá breytingu á yfirstjórn stjórnarmálefna að málefni vá
Skipan stjórnarmálefna og skipting starfa milli ráðherra og ráðuneyta heyrir samkvæmt ákvæðum stjórnarskrárinnar til þeirra starfa sem handhöfum framkvæmdarvaldsins eru falin, sbr. síðari málslið 15. gr. stjórnarskrárinnar svo og 2. gr. hennar um þrískiptingu ríkisvaldsins. Samhljóða og ítarlegri ákvæði voru síðar sett í lög um Stjórnarráð Íslands, nr. 73 28. maí 1969, sbr. 1. gr. i.f. og 8. gr., fyrirmælum stjórnarskrár til nánari útfærslu. Við gildistöku laganna var síðan með úrskurði forseta gefin út reglugerð um Stjórnarráð Íslands, nr. 96 31. desember 1969, þar sem stjórnarmálefnum er skipað undir ráðuneyti og er það meginréttarheimildin um vald
Þrátt fyrir þá skipan sem stjórnarskrárgjafinn hefur þannig valið þessum þætti stjórnarskip
Með því að ríkisstjórnin hefur nú ákveðið að gera þá breytingu á skipan stjórnarmálefna, sem í upphafi var lýst, þykir jafnframt rétt að leita atbeina Alþingis til að færa viðeigandi laga
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1.–3. gr.
Þegar fyrstu lögin um vátryggingastarfsemi voru sett fyrir 22 árum var framkvæmd þeirra og opinberu eftirliti skipað við hlið almannatrygginga í heilbrigðis- og trygginga
Þróun vátryggingastarfsemi hefur á síðari árum breytt áherslunum, enda þótt hlut
Af þessum sökum þykir eðlilegt að flytja yfirstjórn málaflokksins til þess ráðuneyt
— Um bátaábyrgðarfélög,
— um brunatryggingar,
— um ófriðartryggingar,
— um Samábyrgð Íslands á fiskiskipum,
— um stríðsslysatryggingar,
— um vátryggingasamninga,
— um vátryggingastarfsemi og
— um Viðlagatryggingu Íslands.
Til upplýsingar skal þess jafnframt getið að annars staðar á Norðurlöndum er það ein
Um 4. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringa.
Í samræmi við ákvörðun ríkisstjórnarinnar og væntanlega samhliða gildistöku laga
Fylgiskjal I.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til laga um
breytingu á yfirstjórn vátryggingastarfsemi.
Í frumvarpi þessu felst að vátryggingamál færast frá heilbrigðis- og tryggingamála
Gert er ráð fyrir að málaflokkurinn færist á milli ráðuneyta án kostnaðarbreytinga. Starfsemi vátryggingamála hefur verið sinnt í hlutastarfi í heilbrigðis- og tryggingamála
Fylgiskjal II.
Drög:
REGLUGERÐ
um breytingar á reglugerð um Stjórnarráð Íslands,
nr. 96 31. desember 1969, með síðari breytingum.
1. gr.
Í 7. gr., sbr. 3. gr. reglugerðar um breytingar á reglugerð þessari nr. 114/1993, falli brott 7. og 11. tölul. Töluliðir 8 til og með 10 breytist í samræmi við það í töluliði 7 til og með 9.2. gr.
Á eftir 8. tölul. 15. gr., sbr. 2. gr. reglugerðar um breytingu á reglugerð þessari nr. 64/1987 og 1. gr. reglugerðar um breytingu á reglugerð þessari nr. 5/1990, komi nýr tölu9. Vátryggingastarfsemi.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt 8. gr. laga um Stjórnarráð Íslands, nr. 73/1969, öðlast gildi 1. mars 1995.