Ferill 403. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1994–95. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 403 . mál.


645. Frumvarp til laga



um breytingu á lyfjalögum, nr. 93/1994.

(Lagt fyrir Alþingi á 118. löggjafarþingi 1994–95.)



1. gr.


    Á eftir 1. málsl. 1. mgr. 16. gr. laganna bætist nýr málsliður svohljóðandi: Óheimilt er þó að auglýsa lausasölulyf í sjónvarpi.

2. gr.


    43. gr. laganna verður svohljóðandi:
    Um mál sem rísa kunna út af brotum á lögum þessum fer að hætti opinberra mála nema öðru vísi sé mælt fyrir í lögum.
    Fyrir brot gegn lögum þessum eða reglugerðum settum samkvæmt þeim skal refsa með sekt um, nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum. Nú er brot ítrekað eða stórfellt og getur refsing þá orðið varðhald eða fangelsi allt að tveimur árum.
    Tilraun eða hlutdeild í brotum í lögum þessum eru refsiverðar eftir því sem segir í III. kafla almennra hegningarlaga.
    Lyf og lyfjaefni, sem eru framleidd, flutt inn eða seld ólöglega hér á landi skulu gerð upptæk með dómi og enn fremur ágóði af ólöglegri lyfjasölu. Andvirði hins upptæka rennur í ríkissjóð.

3. gr.


    Við 44. gr. laganna bætist nýr málsliður svohljóðandi: Ráðherra er heimilt að setja í reglu gerð ákvæði um takmörkun og eftirlit með framleiðslu og markaðssetningu tiltekinna efna sem nota má við ólöglega framleiðslu á ávana- og fíkniefnum.

4. gr.


    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Við undirbúning lyfjalaga, nr. 93/1994, féllu niður af misgáningi refsiákvæði laganna. Í frumvarpi þessu er því lagt til að orðalagi 43. gr. laganna verði breytt þannig að inn verði sett sérstakt refsiákvæði samhljóða 60. gr. lyfjadreifingarlaga nr. 76/1982 og 58. gr. lyfjalaga, nr. 108/1984.
    Þá þykir nauðsynlegt að bann það sem fyrirhugað er að setja við sjónvarpsauglýsingum lausasölulyfja eigi sér skýra lagastoð.
    Loks er talið nauðsynlegt að kveða skýrt á um í lögunum um heimild ráðherra til að setja reglugerð um framleiðslu og markaðssetningu efna sem gjarnan eru notuð við ólöglega fram leiðslu ávana- og fíkniefna. Evrópusambandið hefur sett sérstaka tilskipun um þetta efni, til skipun ráðsins 92/109/EBE frá 14. desember 1992 um framleiðslu og markaðssetningu tiltek inna efna sem notuð eru við ólöglega framleiðslu á ávana- og fíkniefnum. Höfð verður hliðsjón af þeirri tilskipun þegar reglugerð verður sett hér á landi.



Fylgiskjal.


Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:

Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á


lyfjalögum, nr. 93/1994.


    Meginefni frumvarpsins eru refsiákvæði sem féllu niður við setningu lyfjalaga, nr. 93/1994.
    Ekki verður séð að frumvarpið hafi áhrif á útgjöld ríkisjóðs.