Ferill 413. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1994–95. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 413 . mál.
662. Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um varnir gegn mengun frá bifreiðum og vélum.
Frá Guðrúnu J. Halldórsdóttur.
1 . Með hvaða hætti hyggst ráðherra tryggja að varnir gegn mengun af útblæstri bifreiða og vinnuvéla verði skilvirkari?
2 . Hvernig er háttað reglum um gamlar bifreiðar og vélar? Er von á hertum reglum fyrir þær?
3 . Hvernig er séð til þess að ný tæki séu lítt mengunarvaldandi?