Ferill 420. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1994–95. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. –
420
. mál.
688. Tillaga til þingsályktunar
um hvalveiðar.
(Lagt fyrir Alþingi á 118. löggjafarþingi 1994–95.)
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að gera ráðstafanir til að hvalveiðar geti hafist á ný að fengnum tillögum Hafrannsóknastofnunarinnar og skýrslu starfshóps embættismanna um hvalveiðihagsmuni Íslendinga á alþjóðavettvangi sem liggja skulu fyrir eigi síðar en í mars 1996.
Áður en einstökum skipum eða fyrirtækjum er veitt leyfi til hvalveiða í atvinnuskyni og þeim úthlutuð aflahlutdeild í samræmi við heildaraflamark viðkomandi hvalategunda skal tryggt að skilvirkt, alþjóðlega viðurkennt eftirlit með veiðunum sé fyrir hendi.
Ríkisstjórninni er enn fremur falið að kynna stefnu Íslands í hvalveiðimálum á alþjóða
vettvangi og að hafa samráð við aðrar þjóðir á vettvangi þeirra alþjóðastofnana sem um þau mál fjalla.
Athugasemdir við þingsályktunartillögu þessa.
Samkvæmt lögum um hvalveiðar, nr. 26/1949, ásamt breytingum á þeim, nr. 40/1979 og nr. 23/1991, veitir sjávarútvegsráðherra leyfi til hvalveiða í fiskveiðilandhelgi Íslands. Lög
in fela sjávarútvegsráðuneytinu að setja reglugerð um hvalveiðar sem tekur til veiðisvæða, veiðitímabila, veiðimagns, verkunar og eftirlits með hvalveiðum. Í ljósi þess að Alþingi ályktaði árið 1983 að mótmæla ekki ákvörðun Alþjóðahvalveiðiráðsins (IWC) um tíma
bundna veiðistöðvun á hvölum þykir rétt að mótun stefnu um að hefja hvalveiðar að nýju byggist einnig á ályktun frá Alþingi.
Á ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins (IWC) árið 1982 var samþykkt að öllum hvalveiðum í atvinnuskyni skyldi tímabundið hætt frá og með árinu 1986. Jafnframt var samþykkt að ráðið skyldi beita sér fyrir því að umfangsmiklar vísindarannsóknir færu fram. Ákvörðun um áframhaldandi veiðar skyldi tekin í síðasta lagi árið 1990 og átti að byggja á niðurstöðum rannsóknanna. Bannið var bindandi nema aðildarríki mótmæltu því fyrir tiltekinn tíma. Nokkur ríki, þar á meðal Noregur og Japan, mótmæltu hvalveiðibanninu. Þingsályktunartil
laga kom fram á Alþingi um mótmæli gegn banninu. Meiri hluti utanríkismálanefndar komst að þeirri niðurstöðu að ekki væri ráðlegt að mótmæla því en minni hluti taldi að því bæri að mótmæla. Tillaga meiri hlutans var samþykkt í sameinuðu Alþingi 1983 með 29 atkvæðum gegn 28.
Eftir ítarlega athugun komst vísindanefnd Alþjóðahvalveiðiráðsins (IWC) að þeirri nið
urstöðu að hrefnustofninn í Norður-Atlantshafi þyldi veiðar. Því átti ekkert að vera því til fyrirstöðu að hvalveiðiráðið endurskoðaði afstöðu sína frá árinu 1982 og heimilaði takmark
aðar veiðar úr þessum stofni á ný. Það kom því Íslendingum og fleiri þjóðum á óvart að hval
veiðiráðið skyldi ekki gera svo á ársfundi sínum árið 1990. Á ársfundi ráðsins árið eftir hafnaði meiri hluti ráðsins þeirri tillögu Íslendinga og nokkurra ríkja, sem stundað hafa hvalveiðar, að byggja verndun og nýtingu hvalastofna á stjórnkerfi sem vísindanefnd ráðs
ins hafði samþykkt nær samhljóða.
Í kjölfar þessa sögðu Íslendingar sig úr Alþjóðahvalveiðiráðinu (IWC) því ljóst þótti að ráðið starfaði ekki eftir sínum eigin stofnsamþykktum og hafði að engu vísindalegar for
sendur og ráðgjöf eigin vísindanefndar. Auk þess er stefna ráðsins í beinni andstöðu við nið
urstöður umhverfismálaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Rio de Janeiro þar sem staðfestur var réttur ríkja til að nýta eigin auðlindir á sjálfbæran hátt í samræmi við eigin stefnu í um
hverfis- og þróunarmálum. Í hafréttarsamningi Sameinuðu þjóðanna er viðurkenndur réttur þjóða til að stjórna þeirri nýtingu innan 200 mílna efnahagslögsögu sinnar. Sjávarspendýr eru ein þeirra auðlinda sem átt er við og þar segir að ríki skuli vinna að verndun, nýtingu og rannsóknum á þeim innan viðeigandi alþjóðlegra samtaka.
Í framhaldi af úrsögninni stofnuðu Íslendingar, Norðmenn, Færeyingar og Grænlending
ar Norður-Atlantshafssjávarspendýraráðið (NAMMCO) í apríl 1992. Ráðið hefur það mark
mið að vinna að rannsóknum á sjávarspendýrum í Norður-Atlantshafi, verndun þeirra og nýtingu. Hefur ráðið síðan verið aðalvettvangur Íslands fyrir samstarf við aðrar þjóðir í mál
efnum hvalveiða.
Í október 1993 skipaði sjávarútvegsráðherra nefnd til þess að undirbúa umræður á Al
þingi um hvalamál Íslendinga. Í nefndinni voru alþingismennirnir Matthías Bjarnason en hann var jafnframt formaður, Guðjón Guðmundsson, Hjörleifur Guttormsson, Ingibjörg Pálmadóttir, Kristín Einarsdóttir og Sigbjörn Gunnarsson. Nefndinni var m.a. falið að gera tillögur um stefnu Íslendinga í hvalamálinu og hvort hvalveiðar skyldu hafnar að nýju. Nefndin skilaði greinargerð í maí 1994 með tillögum um stefnu Íslendinga í hvalamálum, sjá fylgiskjal.
Þingsályktunartillaga þessi er byggð á niðurstöðum nefndarinnar. Í þeim er lögð áhersla á að vanda vel til undirbúnings veiðanna á öllum sviðum m.a. með kynningu á sjónarmiðum Íslands á alþjóðavettvangi. Um þau atriði er fjallað í 3. mgr. tillögunnar.
Í framhaldi af tillögum þingmannanefndarinnar, skýrslu um fundi sendinefndar utanrík
ismálanefndar með þingmönnum og embættismönnum í Washington 12. og 13. maí 1994 og ræðu utanríkisráðherra um utanríkismál á Alþingi 27. október 1994 þar sem hann áréttaði þá skoðun sína að kanna beri inngöngu í Alþjóðahvalveiðiráðið (IWC) á ný ákváðu síðan utanríkis- og sjávarútvegsráðherra 25. nóvember 1994 að setja á fót starfshóp til að meta hvernig hagsmunum Íslands varðandi nýtingu hvalastofna verði best borgið á alþjóðavett
vangi. Í starfshópi þessum eru embættismennirnir Arnór Halldórsson, lögfræðingur í sjávar
útvegsráðuneytinu, Jóhann Sigurjónsson, aðstoðarforstjóri Hafrannsóknastofnunarinnar, Jón Egill Egilsson, skrifstofustjóri í utanríkisráðuneytinu, og Þórður Ásgeirsson fiskistofu
stjóri, sem jafnframt er formaður hópsins.
Starfshópnum var m.a. falið að meta stöðu Íslands gagnvart þeim alþjóðastofnunum er á þessum vettvangi starfa, þar á meðal Alþjóðahvalveiðiráðinu (IWC) og Norður-Atlants
hafssjávarspendýraráðinu (NAMMCO). Í báðum þessum stofnunum er nú unnið að því að semja reglur um eftirlit með hvalveiðum og þykir sjálfsagt að væntanleg hvalveiði hér við land verði undir eftirliti sem sé skilvirkt og alþjóðlega viðurkennt. Um það atriði er fjallað í 2. mgr. tillögunnar. Ekki er unnt að segja fyrir um það hvenær ofangreindar alþjóðastofn
anir ná að fullgera eftirlitsreglur sem hljóta samþykki tilskilins meiri hluta aðildarríkja en ljóst þykir að það verði ekki á þessu ári, a.m.k. hvað snertir Alþjóðahvalveiðiráðið (IWC). Þær eftirlitsreglur, sem samkvæmt þingsályktunartillögu þessari er nauðsynlegt að setja, verða óhjákvæmilega að taka mið af þeirri umfjöllun sem á sér stað í Alþjóðahvalveiðiráð
inu (IWC) og Norður-Atlantshafssjávarspendýraráðinu (NAMMCO) ef takast á að fá þær viðurkenndar af öðrum þjóðum.
Mikil vinna er fram undan hjá starfshópi embættismanna að kynna stefnu Íslands í hval
veiðimálum á alþjóðavettvangi og að hafa samráð við aðrar þjóðir á vettvangi alþjóðastofn
ana sem um þessi mál fjalla. Því er ljóst að ekki er unnt að ákveða nú að hvalveiðar hér við land skuli hefjast þegar á þessu ári. Með þingsályktun samkvæmt tillögu þessari er hins veg
ar mörkuð skýr stefna Alþingis að hefja beri hvalveiðar á ný að fengnum tillögum Hafrann
sóknastofnunarinnar og undir skilvirku, alþjóðlega viðurkenndu eftirliti. Þetta er sú stefna sem starfshópnum er ætlað að kynna og meta hvernig best megi framkvæma og samkvæmt þingsályktunartillögunni er starfshópnum, með tilliti til þess umfangs og vanda sem hér um ræðir, gefið eitt ár til að ljúka þessari vinnu.