Ferill 427. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1994–95. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 427 . mál.
698. Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um Hitaveitu Suðurnesja, nr. 100/1974, með síðari breytingum.
(Lagt fyrir Alþingi á 118. löggjafarþingi 1994–95.)
1. gr.
1. gr. laganna orðast svo:Ríkissjóður Íslands og fimm sveitarfélög á Suðurnesjum, sbr. 2. gr., eiga og reka fyrirtæki er nefnist Hitaveita Suðurnesja.
Fyrirtækið er sjálfstæður réttaraðili og hefur sjálfstæðan fjárhag og reikningshald.
Heimili þess og varnarþing er í Keflavík-Njarðvík-Höfnum.
2. gr.
1. mgr. 2. gr. laganna orðast svo:Hitaveita Suðurnesja er sameignarfyrirtæki ríkisins og eftirtalinna sveitarfélaga sem eiga fyrirtækið í þessum hlutföllum:
Ríkissjóður Íslands 20,00%
Keflavík-Njarðvík-Hafnir 52,20%
Grindavíkurkaupstaður 11,17%
Sandgerðisbær 6,99%
Gerðahreppur 6,07%
Vatnsleysustrandarhreppur 3,57%
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. laganna:a . 3. málsl. verður að 4. málsl. og orðast svo: Önnur sveitarfélög, sem aðilar eru að fyrirtækinu, skipa hvert einn fulltrúa í stjórnina og einn til vara.
b . Við greinina bætist nýr málsliður er verður 3. málsl. og orðast svo: Keflavík-Njarðvík-Hafnir skipa þrjá fulltrúa í stjórnina og þrjá til vara.
4. gr.
Í 11. gr. laganna kemur: fjögurra þeirra, í staðinn fyrir „fimm þeirra“.5. gr.
13. gr. laganna fellur niður.6. gr.
Lög þessi taka þegar gildi.Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Í ljósi þess að Keflavík, Njarðvík og Hafnarhreppur hafa verið sameinuð í eitt sveitÍ 11. gr. laganna er kveðið svo á um að stjórn Hitaveitu Suðurnesja geti ekki skuld
Þar sem heimild 13. gr. laganna um stækkun raforkuvers í Svartsengi hefur verið full