Ferill 438. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1994–95. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. –
438
. mál.
742. Frumvarp til laga
um breyting á lögum nr. 29/1993, um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., með síðari breytingum.
(Lagt fyrir Alþingi á 118. löggjafarþingi 1994–95.)
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. laganna:
a .
Í stað hlutfallstölunnar „45“ í töflu í 1. mgr. kemur: 40.
b .
Við greinina bætist ný málsgrein, er verður 2. mgr., sem orðast svo:
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. skulu ökutæki, sem knúin eru dísilolíu, raðast í gjald
flokka með eftirfarandi hætti: Í gjaldflokk I ef sprengirými aflvélar er á bilinu 0–1900 rúmsentimetrar, í gjaldflokk II ef sprengirými aflvélar er á bilinu 1901–2500 rúmsentimetrar, í gjaldflokk III ef sprengirými aflvélar er á bilinu 2501–3000 rúmsentimetrar og í gjaldflokk IV ef sprengirými aflvélar er yfir 3000 rúmsentimetrar.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 4. gr. laganna:
a .
Við bætist nýr töluliður er verður 1. tölul., en töluröð síðari töluliða breytist samkvæmt því. Orðast hann svo: 5% vörugjald: Hópferðabifreiðar, þ.e. ökutæki sem aðallega eru ætl
uð til fólksflutninga, sem skráðar eru fyrir 18 farþega eða fleiri að meðtöldum ökumanni.
b .
e-liður 2. tölul. fellur brott.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. mgr. 5. gr. laganna:
a .
Við bætist nýr töluliður, er verður 11. tölul., sem orðast svo: Hópferðabifreiðar, þ.e. ökutæki sem aðallega eru ætluð til fólksflutninga, sem skráðar eru fyrir 10–17 farþega að meðtöldum ökumanni. Ekki er þó heimilt að lækka gjald af bifreiðum þessum niður fyrir 20%.
b .
Við bætist nýr töluliður, er verður 12. tölul., sem orðast svo: Fólksbifreiðar sem falla í gjaldflokk II skv. 3. gr. og ætlaðar eru til útleigu hjá bílaleigum. Ekki er þó heimilt að lækka gjald af bifreiðum þessum niður fyrir 30%.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 23. gr. laganna:
a .
Orðið „innfluttum“ fellur brott.
b .
Í stað orðsins „sex“ kemur: tólf.
5. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Með frumvarpi þessu eru lagðar til breytingar á lögum nr. 29/1993, um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., með síðari breytingum. Eru breytingar þessar sem hér segir:
Í fyrsta lagi er lagt til að vörugjald á vélknúin ökutæki, sem falla í gjaldflokk II, lækki úr 45% í 40%. Þannig er vörugjald á meðalstórar fólksbifreiðar lækkað, en full ástæða er talin til að draga úr þeim mun sem er á vörugjaldi á litlum og meðalstórum fólksbif
reiðum. Samanburður við aðrar þjóðir bendir til þess að hér á landi hafi átt sér stað óæskileg neyslustýring með of miklum mun á algengustu vörugjaldsflokkunum. Talið er að þessi breyting muni kosta ríkissjóð um 65 m.kr. Þá hefur verið reiknað með nokk
urri söluaukningu við þessa ráðstöfun, en hún gæti leitt til 4–5% lækkunar á smásölu
verði bifreiða í þessum gjaldflokki.
Í öðru lagi er lagt til að breyting verði gerð á röðun ökutækja, sem knúin eru dísilolíu, í gjaldflokka skv. 3. gr. laganna. Vörugjald er lagt á fólksbifreiðar og önnur vélknúin ökutæki, sem ekki eru sérstaklega tilgreind í 4. gr. laganna, í fjórum gjaldflokkum og raðast ökutækin í gjaldflokka eftir sprengirými aflvélar þeirra, mælt í rúmsentimetrum. Lagt er til að aðrar og hærri viðmiðanir verði látnar gilda um sprengirými aflvéla dísil
bifreiða varðandi röðun í gjaldflokka en gilda um önnur ökutæki. Meginrökin fyrir slíkri breytingu eru þau að aflvélar dísilbifreiða þurfa að vera stærri en aflvélar bensínbifreiða til að framleiða sama hestaflafjölda. Þannig bera bensínknúnar bifreiðar almennt lægra vörugjald við núverandi löggjöf en jafnöflugar dísilbifreiðar. Markmiðið með breyting
unni er að draga úr þessum mismun og stuðla að lægra verði dísilbifreiða og gera þær jafnsettar bensínbifreiðum í innkaupum. Talið er að þessi breyting muni kosta ríkissjóð um 5 m.kr.
Í þriðja lagi er lagt til að vörugjald af hópferðabifreiðum verði lækkað frá því sem nú er. Er lagt til að vörugjald af hópferðabifreiðum, sem skráðar eru fyrir 18 farþega eða fleiri að meðtöldum ökumanni, lækki úr 15% niður í 5%. Gert er ráð fyrir því að vöru
gjald af hópferðabifreiðum, sem skráðar eru fyrir 10–17 farþega að meðtöldum öku
manni, verði áfram 30%, en hins vegar verði fjármálaráðherra veitt heimild til að lækka gjaldið af þessum bifreiðum, þó ekki niður fyrir 20%. Verði af lækkun þessari mun verða auðveldara fyrir eigendur hópferðabifreiða að endurnýja bifreiðar sínar. Einnig mun lækk
un þessi bæta verulega stöðu innlendra hópferðaleyfishafa, en þeir eiga nú í vaxandi sam
keppni við erlenda aðila er flytja bifreiðar sínar til landsins yfir ferðamannatímann til aksturs á erlendum ferðamönnum. Rétt þykir að halda minni hópferðabifreiðunum, þ.e. þeim sem skráðar eru fyrir 10–17 farþega, áfram í 30% vörugjaldsflokknum, en láta nægja að opna heimild til handa ráðherra til að lækka gjaldið niður í 20% þar sem talið er að slíkar bifreiðar geti ýmist verið ætlaðar til einkanota eða í atvinnurekstri eiganda. Ekki standa rök til að lækka gjaldið niður í 20% ef bifreiðin er ætluð til einkanota. Áætl
að er að þessi breyting muni kosta ríkissjóð 15–20 m.kr. miðað við sama innflutnings
verðmæti hópferðabifreiða og verið hefur. Á móti kemur að reikna má með því, verði af breytingunni, að dýrari bifreiðar verði keyptar til landsins en verið hefur. Mun það draga nokkuð úr tekjumissi ríkissjóðs.
Í fjórða lagi er lagt til að fjármálaráðherra verði veitt heimild til að lækka vörugjald af fólksbifreiðum sem falla í gjaldflokk II og eru ætlaðar til útleigu hjá bílaleigum. Ekki verður þó heimilt að lækka gjaldið af þessum bifreiðum niður fyrir 30%. Sambærileg heimild er í núgildandi lögum varðandi leigubifreiðar að öðru leyti en því að þar er lækk
unarheimild ekki bundin við tiltekinn gjaldflokk. Líkt og með hópferðaleyfishafa er lit
ið til bílaleigna sem hluta af mikilvægum og vaxandi ferðamannaiðnaði hér á landi. Lækkun vörugjalds af algengustu stærðum þeirra fólksbifreiða sem leigðar eru út af bíla
leigum veitir svigrúm til verðlækkunar og bætir samkeppnisstöðu innlends ferðamanna
iðnaðar. Þá þykir ljóst eftir viðræður við ferðamálayfirvöld að sá markhópur sem horft er til varðandi erlenda ferðamenn eru fjölskyldur sem vilja ferðast á eigin vegum um landið. Mundi breytingin stuðla að því að laða þetta fólk til landsins. Jafnframt má benda á að sú þróun hefur orðið að undanförnu að erlendir ferðamenn flytja í auknum mæli eig
in bifreiðar með skipi til landsins. Þannig munu 1.939 erlendar og 212 innlendar bif
reiðar hafa verið fluttar hingað til lands með Norrænu á sl. ári. Einnig voru um 500 bif
reiðar fluttar með íslenskum skipum til landsins. Er talið að draga muni úr þessari þró
un verði af breytingunni. Loks er talið að lækkun vörugjalds af algengustu stærðum fólks
bifreiða, sem leigðar eru út af bílaleigum, muni auka ásókn í að leigja út fólksbifreiðar á kostnað jeppabifreiða. Er sú þróun æskileg út frá umhverfisverndarsjónarmiðum. Verði heimild þessi til að lækka vörugjald af bifreiðum í gjaldflokki II, sem er algengasti stærð
arflokkur bílaleigubifreiða, nýtt má ætla að árlegur tekjumissir ríkissjóðs verði 10–15 m.kr.
Í fimmta lagi eru lagðar til smávægilegar orðalagsbreytingar á 23. gr. laganna. Ann
ars vegar er lagt til að ákvæðið nái til allra skráningarskyldra ökutækja hvort sem þau eru flutt inn til landsins eða framleidd hér á landi. Þessi breyting er lögð til í því skyni að gætt verði samræmis í gjaldtöku af innfluttum ökutækjum og þeim sem framleidd eru eða sett saman hér á landi. Felur tillagan í sér viðbrögð við ábendingu frá eftirlitsstofnun EFTA þar um. Áhrif breytingarinnar eru í raun og veru ekki mikil þar sem framleiðsla bifreiða innan lands er ekki fyrir hendi í dag. Hins vegar er lögð til sú breyting að lengd
ur verði gjaldfrestur sá sem veittur er vegna innfluttra ökutækja sem ekki eru nýskráð fljótlega eftir tollafgreiðslu. Í núgildandi lögum er fresturinn sex mánuðir en lagt er til að hann verði lengdur í tólf mánuði. Þessi breyting hefur þau áhrif að unnt verður að af
nema svokölluð sýningarleyfi, en þau hafa verið veitt með heimild í 6. gr. tollalaga sam
kvæmt sérstöku bréfi fjármálaráðuneytis til tollstjóra. Með leyfum þessum hefur bif
reiðaumboðunum verið heimilað að taka bifreiðar til sýningar án greiðslu aðflutnings
gjalda í allt að sex mánuði frá komu þeirra til landsins. Bifreiðaumboðin hafa óskað eft
ir lengingu leyfanna. Fjármálaráðuneytið hefur ekki talið að lagaheimild væri fyrir hendi til þess og er því lagt til að umræddur frestur verði lengdur og sýningarleyfin afnumin. Talið er að breyting þessi muni hafa hverfandi áhrif á afkomu ríkissjóðs þótt hún kunni að leiða til einhverrar tilfærslu á tekjum milli mánaða fyrst í stað.
Þegar á heildina er litið má telja að tekjumissir ríkissjóðs vegna þessara breytinga verði nálægt 100 m. kr. á ári. Á móti áætluðu tekjutapi ríkissjóðs vegur að reikna má með því að breytingarnar muni leiða til aukinna skatttekna vegna notkunar ökutækja, þ.e. af bensíngjaldi, þungaskatti og bifreiðagjaldi. Er talið að þessar tekjur gætu numið 10–15 m.kr. á ári. Þá má búast við auknum umsvifum í ferðaþjónustu í kjölfar þessara breyt
inga, enda ætti samkeppnisstaða hennar að batna við þessar ráðstafanir og gjaldeyris
tekjur þar með að aukast. Að öllu samanlögðu má ætla að tekjutap ríkissjóðs vegna þess
ara breytinga verði á bilinu 60–70 m.kr. á ársgrundvelli.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Lagt er til að tvær breytingar verði gerðar á 3. gr. laganna. Í fyrsta lagi er lagt til að vörugjald á ökutæki, sem falla í gjaldflokk II, lækki úr 45% í 40%. Í öðru lagi er lagt til að mismunandi viðmiðanir verði fyrir dísilbifreiðar annars vegar og aðrar bifreiðar hins vegar varðandi röðun í gjaldflokka vörugjalds. Er gert ráð fyrir því að þau mörk varð
andi sprengirými aflvéla ökutækja, er ákvarða í hvaða gjaldflokk bifreið raðast, verði hærri hjá dísilbifreiðum en hjá öðrum bifreiðum.
Um 2. gr.
Lagt er til að gerðar verði breytingar á 1. mgr. 4. gr. laganna á þann veg að vöru
gjald af hópferðabifreiðum fyrir 18 farþega eða fleiri að meðtöldum ökumanni verði lækkað úr 15% í 5%.
Um 3. gr.
Með ákvæði þessu er opnuð heimild til handa fjármálaráðherra til að lækka vöru
gjald, annars vegar af hópferðabifreiðum fyrir 10–17 farþega að meðtöldum ökumanni, þó ekki niður fyrir 20%, og hins vegar af þeim fólksbifreiðum sem falla undir gjald
flokk II skv. 3. gr. laganna og ætlaðar eru til útleigu hjá bílaleigum, þó ekki niður fyr
ir 30%. Nýting heimildar þessarar kæmi fram sem breyting á reglugerð nr. 254/1993 um vörugjald af ökutækjum.
Um 4. gr.
Lagðar eru til tvær breytingar á 23. gr. laganna. Annars vegar verði orðið „innflutt
um“ fellt brott úr lagagreininni. Það mundi þýða að ákvæðið næði til allra skráningar
skyldra ökutækja hvort sem þau væru flutt inn til landsins eða framleidd eða sett sam
an hér á landi. Hins vegar verði gjaldfrestur sá sem veittur er á greiðslu vörugjalds vegna innfluttra ökutækja, sem ekki eru nýskráð fljótlega eftir tollafgreiðslu, lengdur úr sex mánuðum í tólf mánuði.
Um 5. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringa.