Ferill 442. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1994–95. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 442 . mál.
757. Frumvarp til laga
um breyting á lögum um kosningar til Alþingis, nr. 80 16. október 1987, með síðari breytingum.
Flm.: Geir H. Haarde, Páll Pétursson, Guðmundur Árni Stefánsson,
Ólafur Ragnar Grímsson, Anna Ólafsdóttir Björnsson.
1. gr.
2. málsl. 2. gr. laganna orðast svo: Hæstaréttardómarar eru þó ekki kjörgengir.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. laganna:
a . Í stað „8 þingsætum“ í upphafi b-liðar fyrri mgr. kemur: 9 þingsætum.
b . 1. tölul. b-liðar fyrri málsgreinar orðast svo: Í hverju kjördæmi skal deila tölu kjósenda á kjörskrá í næstu almennu alþingiskosningum á undan með tölunum 10, 13, 16, 19 o.s.frv. eins oft og þörf krefur. Útkomutölur eru skráðar fyrir hvert kjördæmi.
c . C-liður fyrri málsgreinar fellur brott.
3. gr.
Í stað „Sameinað Alþingi“ í 8. gr. laganna kemur: Alþingi.
4. gr.
Í stað „sameinuðu Alþingi“ í 2. málsl. 1. mgr. 9. gr. laganna kemur: Alþingi.
5. gr.
B-liður 1. mgr. 13. gr. laganna orðast svo: hreppstjórar.
6. gr.
Í stað „sjö“ í 1. tölul. 1. mgr. 15. gr. laganna kemur: þremur.
7. gr.
18. gr. laganna fellur brott.
8. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 19. gr. laganna.
a . Í stað „24 dögum“ í 1. mgr. kemur: tíu dögum.
b . Í stað „Áður en kjörskrá er lögð fram skal“ í upphafi 2. mgr. kemur: Nú er kjörskrá ekki lögð fram á skrifstofu sveitarstjórnar og skal þá.
9. gr.
20. gr. laganna orðast svo:
Dómsmálaráðuneytið skal eigi síðar en 12 dögum fyrir kjördag birta í útvarpi og dagblöðum auglýsingu um framlagningu kjörskráa. Í auglýsingunni skal tekið fram að þeir sem vilja koma að athugasemdum við kjörskrá skuli senda þær hlutaðeigandi sveitarstjórn.
10. gr.
21. gr. laganna orðast svo:
Sveitarstjórn skal þegar taka til meðferðar athugasemdir er henni berast vegna kjör
Sveitarstjórn skal enn fremur fram á kjördag leiðrétta kjörskrá ef henni berst vitneskja um andlát eða um að einhver hafi öðlast, eftir atvikum misst, íslenskt ríkisfang.
11. gr.
22. gr. laganna orðast svo:
Sveitarstjórn skal þegar tilkynna hlutaðeigandi um leiðréttingar á kjörskrá skv. 21. gr., svo og sveitarstjórn er mál getur varðað.
Sveitarstjórn skal jafnframt tilkynna hlutaðeigandi kjörstjórn um leiðréttingar á kjör
12. gr.
23. gr. laganna orðast svo:
Nú eru fyrirskipaðar kosningar til Alþingis með svo stuttum fyrirvara að ekki er unnt að láta kjörskrá liggja frammi jafnlengi og segir í 19. gr. og skal þá kveða á um það efni í auglýsingu ráðherra um kosningarnar.
Ráðherra er og heimilt að kveða nánar á um þetta, eftir því sem nauðsynlegt kann að vera, ef gera þarf ráðstafanir út af vanrækslu sveitarstjórnar um samningu kjörskrár, sbr. 17. gr.
13. gr.
24. gr. laganna fellur brott.
14. gr.
Í stað „þann dag þegar tvær vikur eru til kjördags“ í 1. mgr. 26. gr. laganna kemur: 15 dögum fyrir kjördag.
15. gr.
2. mgr. 42. gr. laganna orðast svo:
Þegar landskjörstjórn hafa borist gögn frá öllum yfirkjörstjórnum og hún hefur af
16. gr.
57. gr. laganna orðast svo:
Almennar reglulegar alþingiskosningar skulu fara fram eigi síðar en við lok kjörtíma
Kjörtímabilið er fjögur ár.
17. gr.
Í stað „Í hverjum hreppi varðveitir hreppstjóri, en í kaupstað bæjarfógeti (í Reykja
18. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 71. gr. laganna:
a. Í stað „bæjarfógetar (í Reykjavík borgarfógeti)“ í 1. mgr. kemur: sýslumenn.
b. Í stað „bæjarfógeta (borgarfógeta)“ í 2. mgr. kemur: sýslumanni.
c. Í stað „bæjarfógeti (borgarfógeti)“ í 3. mgr. kemur: sýslumaður.
19. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 113. gr. laganna:
a. Í stað orðanna „í fjórum áföngum“ í 3. mgr. kemur: í þremur áföngum.
b. 4. tölul. 3. mgr. fellur brott.
20. gr.
2.–4. málsl. 1. mgr. 114. gr. laganna falla brott.
21. gr.
Orðin „með þeirri undantekningu, er getur í 24. gr.“ í 1. mgr. 127. gr. laganna falla brott.
22. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Ákvæði til bráðabirgða.
I.
Þegar lög þessi hafa öðlast gildi skal dómsmálaráðuneytið auglýsa á ný í B-deild Stjórnartíðinda hvernig þingsæti skv. a- og b-lið 5. gr. laganna skiptast milli kjördæma í næstu almennum alþingiskosningum.
II.
Í kosningum, þeim sem fram fara næst eftir gildistöku laga þessara, getur dómsmála
Nú hefur verið ákveðið að kosning skuli standa í tvo daga og getur kjörstjórn þá ákveðið, þegar kosningu er lokið hinn fyrri kjördag, að eigi skuli vera fleiri kjördagar í kjördeildinni, enda sé öll kjörstjórnin sammála og allir umboðsmenn lista, sem mættir eru, samþykkja þá ákvörðun með undirritun sinni í kjörbókina. Hafi 80% eða fleiri kjósenda í kjördeildinni kosið eða fengið vottorð skv. 82. gr. laganna nægir einróma samþykki kjörstjórnar til slíkrar ákvörðunar. Yfirkjörstjórn í Reykjavík og kjörstjórn skv. 1. málsl. 2. mgr. 10. gr. í öðrum kaupstöðum tekur ákvörðun um lok kosninga í hlutaðeigandi kaupstað.
Er kosningu er lokið hinn fyrri kjördag skal um meðferð kjörgagna fara eftir ákvæð
Hinn fyrri kjördag skal hvarvetna setja kjörfund eigi síðar en kl. 10 árdegis og hinn síðari kjördag eigi síðar en kl. 12 á hádegi.
Nú hefur veður hamlað kjörsókn á hinum tveimur kjördögum og getur þá kjörstjórn ákveðið, með sama hætti og segir í 3. mgr. 120. gr. og áður en kosningu lýkur hinn síð
Greinargerð.
Að undanförnu hefur verið starfandi nefnd, sem skipuð var af forsætisráðherra, til að vinna að endurskoðun kosningalaga. Nefndin er enn að störfum en þegar hefur náðst sam
Með stjórnarskrárbreytingunni 1991, sbr. stjórnarskipunarlög, nr. 56 31. maí 1991, var breytt nokkrum ákvæðum stjórnarskrárinnar er varða ákvæði í lögum um kosningar til Al
Með breytingu á kosningalögunum 1991 var viðmiðunardagur kjörskrár færður frá því að vera miðaður við raunverulegt lögheimili í sveitarfélagi 1. desember áður en kjörskrá var lögð fram í það að vera miðaður við skráð lögheimili í sveitarfélagi samkvæmt íbúa
Nánar verður vikið að einstökum breytingartillögum í athugasemdum við einstakar greinar frumvarpsins.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Breytingin er í samræmi við breytt ákvæði 34. gr. stjórnarskrárinnar. Í stað vísunar til umboðsstarfalausra dómara er tekið fram að einungis hæstaréttardómarar hafi ekki kjör
Um 2. gr.
Í b-lið 2. mgr. 31. gr. stjórnarskrárinnar segir að ráðstafa skuli a.m.k. 8 þingsætum til kjördæma fyrir hverjar kosningar samkvæmt ákvæðum í kosningalögum. Fram til þessa (1987 og 1991) hafa þessi sæti farið til þriggja kjördæma: 4 til Reykjavíkur, 3 til Reykja
Um 3. og 4. gr.
Breytingin er vegna afnáms deildaskiptingar Alþingis.
Um 5. gr.
Í b-lið 1. mgr. 13. gr. kosningalaga segir að þegar sýslumaður og hreppstjóri eru bú
Um 6. gr.
Með breytingu á 15. gr. kosningalaganna 1991 var ákveðið að kjörskrá skuli miðuð við skráð lögheimili í sveitarfélagi samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár sjö vikum fyrir kjör
Um 7. gr.
Gert er ráð fyrir því að ákvæði um aðfinnslur og kærur til sveitarstjórna og meðferð sveitarstjórna, sem nú eru í 18. og 20.–22. gr. kosningalaga, verði einfölduð og komi í 21. og 22. gr. laganna, sbr. 10. og 11. gr. frumvarpsins. Því er lagt til að 18. gr. laganna falli brott.
Um 8. gr.
Með 6. gr. frumvarpsins er lagt til að kjörskrá miðist við skráð lögheimili í sveitar
Samkvæmt 19. gr. laganna skal leggja kjörskrá fram almenningi til sýnis á skrifstofu sveitarstjórnar eða öðrum hentugum stað. Í 2. mgr. segir að áður en kjörskrá er lögð fram skuli auglýst hvar það verður gert. Í 9. gr. frumvarpsins er lagt til að dómsmálaráðuneytið birti 12 dögum fyrir kjördag auglýsingu um framlagningu kjörskráa. Er þá óþarft að hver sveitarstjórn birti auglýsingu um framlagningu kjörskrár. Hins vegar er rétt að þar sem kjörskrá er ekki lögð fram á skrifstofu sveitarstjórnar verði birt auglýsing um það hvar hún verður lögð fram svo sem verið hefur.
Um 9. gr.
Vegna þess hve stuttur tími verður til kjördags þegar kjörskrá verður lögð fram er lagt til að dómsmálaráðuneytið birti sérstaka auglýsingu í útvarpi og dagblöðum um fram
Um 10. gr.
Vegna hinna breyttu reglna um gerð kjörskrár, sem tekin var upp 1991, hefur fækk
Vegna þessa þykir ekki ástæða til að viðhalda sömu reglum um meðferð breytinga á framlagðri kjörskrá og nú eru í lögum og er lagt til að meðferðin verði öll einfölduð. Er við það miðað að sveitarstjórn taki athugasemdir sem berast vegna kjörskrár þegar til meðferðar og að hún geri viðeigandi ráðstafanir til leiðréttingar, ef við á. Þessar leið
Ekki þykir ástæða til að setja sérstök ákvæði um meðferð sveitarstjórnar á breyting
Um 11. gr.
Hér eru dregin saman ákvæði sem nú eru í 2. málsl. 1. mgr. 21. gr. og 22. gr. kosn
Um 12. gr.
Vegna breytinga, sem 7.–11. gr. frumvarpsins fela í sér á 18.–22. gr. kosningalaga, er nauðsynlegt að aðlaga ákvæði 23. gr. laganna hinum nýju ákvæðum.
Um 13. gr.
Með hinum nýju reglum er kjörskrárgerð orðin miklu öruggari og einfaldari en áður. Tilefni breytinga eru einnig færri og úrlausn álitaefna sem leiðrétta þarf augljósari. Sveit
Að því leyti sem tilefni yrði til dómsmáls mundu almenn ákvæði laga um meðferð einkamála eiga við og innan þeirra ákvæða vegna eðlis kjörskrármála á að vera unnt að tryggja hraða málsmeðferð. Að því er dómsgjöld varðar, sbr. 2. mgr. 24. gr. laganna, er þess að geta að kjörskrármál eru undanþegin dómsmálagjöldum skv. 5. tölul. 5. mgr. 1. gr. laga um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88 31. desember 1991.
Um 14. gr.
Með breytingu á kosningalögum 1991 var ákveðið að framboðsfrestur skyldi renna út á hádegi þann dag þegar tvær vikur eru til kjördags. Við það hafði verið miðað að frest
Um 15. gr.
Samkvæmt 2. mgr. 42. gr. kosningalaga skal landskjörstjórn birta auglýsingu um öll framboð með nöfnum frambjóðenda í Lögbirtingablaði, útvarpi og blöðum. Lagt er til að felld verði niður lagaskylda til að birta auglýsingu þessa í útvarpi, en að hins vegar verði birt auglýsing frá landskjörstjórn þar sem fram komi listabókstafir og heiti stjórnmála
Við það er miðað að auglýsing landskjörstjórnar verði birt í dagblöðum sem hafa dreifingu um land allt svo sem tíðkað hefur verið. Jafnframt er við það miðað að hver yf
Um 16. gr.
Í 57. gr. kosningalaga segir nú að kjördagur við almennar reglulegar alþingiskosn
Með frumvarpsgreininni er lagt til að 57. gr. verði breytt til samræmis við 45. gr. stjórnarskrárinnar. Jafnframt er haldið ákvæði um þau tilvik sem upp koma ef kosningu er frestað eða uppkosning fer fram, sbr. 120. og 121. gr. laganna.
Um 17. og 18. gr.
Með 97. gr. laga nr. 92/1991 var breytt nokkrum ákvæðum kosningalaga í tengslum við aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds í héraði. Í ljós kemur að 60. og 71. gr. kosn
Um 19. og 20. gr.
Greinarnar leiðir af þeirri breytingu sem 2. gr. frumvarpsins felur í sér, þ.e. að fella niður ákvæði laganna um óbundna þingsætið.
Um 21. gr.
Breytinguna leiðir af því að með 13. gr. frumvarpsins er lagt til að 24. gr. kosninga
Um 22. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringa.
Um ákvæði til bráðabirgða I.
Verði frumvarp þetta samþykkt er nauðsynlegt að dómsmálamálaráðuneytið gefi út nýja auglýsingu um skiptingu þingsæta milli kjördæma, sbr. lokamálsgrein 5. gr. lag
Um ákvæði til bráðabirgða II.
Með ákvæði þessu er lagt til að dómsmálaráðherra geti ákveðið að næstu kosningar til Alþingis, sem áformaðar eru 8. apríl nk., skuli einnig fara fram sunnudaginn eftir aug
Ef ráðherra ákveður að kosning skuli fara fram í tvo daga er lagt til að fylgt verði þeim reglum sem að jafnaði hafa tíðkast þegar kjördagar hafa verið ákveðnir fleiri en einn þannig að kjörstjórn geti ákveðið að kjördagur verði einungis einn í kjördeild enda sé öll kjörstjórnin því sammála og allir umboðsmenn sem mættir eru, svo og ef 80% kjósenda í kjördeild hafa greitt atkvæði.