Ferill 448. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1994–95. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 448 . mál.


766. Frumvarp til laga



um breyting á lögum um atvinnuleysistryggingar, nr. 93/1993, með síðari breytingum.

(Lagt fyrir Alþingi á 118. löggjafarþingi 1994–95.)



1. gr.


    Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. laganna:
     a .     Í stað 1. málsl. 1. mgr. kemur: Stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs skipa ellefu menn. Tveir þeirra skulu tilnefndir af Alþýðusambandi Íslands, einn af Bandalagi háskóla manna-BHMR, einn af Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, einn af Vinnuveitendasam bandi Íslands, einn af fjármálaráðuneytinu og einn af Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Fjórir stjórnarmenn skulu kosnir á Alþingi með hlutfallskosningu.
     b .     Stjórnin setur sér reglur um störf sín, þar á meðal um það hvort stjórnin skipti með sér verkum þannig að hún geti starfað í tveimur hlutum sem hvor fyrir sig geti verið ályktunarhæf ur. Allir aðalmenn í stjórninni skulu þó taka þátt í gerð umsagna og tillagna um breytingar á lögum og reglum um atvinnuleysistryggingar og meiri háttar ákvörðunum sem snerta fjárhag sjóðsins. Formaður skal sitja fundi í báðum hlutum stjórnarinnar sem oddamaður.

2. gr.


    Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. laganna:
     a .     Í stað orðanna „Tryggingastofnun ríkisins“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: Vinnumálaskrifstofa félagsmálaráðuneytisins.
     b .     2. mgr. orðast svo:
                  Kostnaður af rekstri sjóðsins greiðist af tekjum hans.
     c .     3. mgr. fellur brott.

3. gr.


    1. mgr. 17. gr. laganna orðast svo:
    Sá sem fullnægir skilyrðum bótaréttar skv. 16. gr., en tekur að stunda nám eða verður að hverfa frá vinnu af heimilisástæðum, heldur í allt að 24 mánuði þeim bótarétti sem hann hafði áunnið sér.

4. gr.


    Við 20. gr. laganna bætist ný málsgrein sem orðast svo:
    Bótaþegi, sem er í atvinnuleit í EES-landi, skal sæta reglum þess lands um eftirlit og skrán ingu hjá vinnumiðlun.

5. gr.


    2. mgr. 24. gr. laganna fellur brott.

6. gr.


    Á eftir 24. gr. laganna kemur ný grein, 24. gr. a, sem orðast svo:
    Við ákvörðun bóta til manns, sem starfaði sem launamaður áður en hann varð atvinnulaus, er heimilt að taka tillit til starfstímabila sem hann á að baki í EES-landi, enda hafi hann fallið undir löggjöf um bætur vegna atvinnuleysis í því landi og leggi fram til skilin vottorð um áunnin starfstímabil og tryggingatímabil þar.
    Ráðherra setur með reglugerð nánari reglur um hvaða skilyrðum þarf að vera full nægt til að njóta réttar skv. 1. mgr.

7. gr.


    Á eftir 2. málsl. 1. mgr. 25. gr. laganna koma tveir nýir málsliðir sem orðast svo: Út hlutunarnefnd fyrir opinbera starfsmenn skal, eftir því hver á hlut að máli, skipuð þrem ur mönnum frá viðkomandi bandalagi opinberra starfsmanna, eða stéttarfélagi sem er utan bandalaga, einum fulltrúa frá fjármálaráðuneyti og einum fulltrúa frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Varamenn skulu vera jafnmargir og aðalmenn og valdir með sama hætti og þeir.

8. gr.


    Í stað orðanna „Tryggingastofnunar ríkisins“ í 5. mgr. 27. gr. laganna kemur: vinnu málaskrifstofu félagsmálaráðuneytisins.

9. gr.


    Í stað orðanna „Tryggingastofnun ríkisins“ í 1. málsl. 1. mgr. og 1. málsl. 2. mgr. 28. gr. laganna kemur: vinnumálaskrifstofa félagsmálaráðuneytisins.

10. gr.


    Eftirfarandi breytingar verða á 29. gr. laganna:
     a.     Í stað orðanna „Tryggingastofnun ríkisins“ í 2. málsl. 1. mgr. kemur: vinnumála skrifstofa félagsmálaráðuneytisins.
     b.     Í stað orðanna „Tryggingastofnunar ríkisins“ í lokamálslið 1. mgr. kemur: vinnu málaskrifstofu félagsmálaráðuneytisins.
     c.     Í stað orðanna „Tryggingastofnun ríkisins“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: vinnumála skrifstofu félagsmálaráðuneytisins.

11. gr.


Eftirfarandi breytingar verða á 30. gr. laganna:
     a.     2. mgr. orðast svo:
                  Umboðsmenn vinnumálaskrifstofunnar skulu mánaðarlega senda skrifstofunni bótaskrár, sem þeir hafa afgreitt í liðnum mánuði, ásamt fylgiskjölum.
     b.     3. mgr., sem verður 2. mgr., orðast svo:
                  Stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs er heimilt að fela öðrum aðila en úthlutunar nefnd skv. 1. mgr. 25. gr. að annast úthlutun atvinnuleysisbóta ef eftir því er leit að og samkomulag verður um fyrirkomulag.

12. gr.


    Í stað orðanna „Tryggingastofnunar ríkisins“ í 31. gr. laganna kemur: vinnumálaskrif stofu félagsmálaráðuneytisins.

13. gr.


    Á eftir 41. gr. a laganna kemur ný grein, 41. gr. b, sem orðast svo:
    Heimilt er að birta sem reglugerðir reglur Evrópusambandsins um atvinnuleysisbæt ur, enda eigi ákvæði þeirra stoð í lögum þessum.

14. gr.


    Lög þessi öðlast þegar gildi. Þegar lög þessi hafa hlotið staðfestingu skal fella meg inmál þeirra, svo og III. kafla laga nr. 116/1993 og 9.–17. gr. laga nr. 127/1993, inn í lög nr. 93/1993 og gefa þau út svo breytt.

Ákvæði til bráðabirgða.


I.


    Bandalag háskólamanna-BHMR, Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, fjármálaráðu neytið og Samband íslenskra sveitarfélaga skulu þegar eftir gildistöku þessara laga öðl ast rétt til að eiga einn fulltrúa, hver aðili fyrir sig, í stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs sem skulu eiga sæti í stjórninni þar til ný stjórn verður skipuð eftir næstu alþingiskosn ingar.

II.


    Á árunum 1995 og 1996 er Atvinnuleysistryggingasjóði heimilt að greiða þeim sem þegið hafa atvinnuleysisbætur í samtals fjóra mánuði eða lengur á tólf mánaða tímabili sambærilega uppbót og kjarasamningar aðila vinnumarkaðarins gera ráð fyrir. Í reglu gerð sem félagsmálaráðherra setur, að fengnum tillögum stjórnar Atvinnuleysistrygg ingasjóðs, skal setja nánari reglur um uppbótina.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Frumvarp þetta felur í megindráttum í sér þrenns konar breytingar á lögum um at vinnuleysistryggingar.
    Í fyrsta lagi er um að ræða nauðsynlegar breytingar vegna laga nr. 99/1994, en með þeim var VI. kafli laga um kjarasamninga opinberra starfsmanna, sem fjallaði um at vinnuleysisbætur, felldur brott. Af þessari lagabreytingu leiðir að réttur opinberra starfs manna til atvinnuleysisbóta fer nú eftir lögum um atvinnuleysistryggingar og er nauð synlegt að gera breytingar á þeim með hliðsjón af því, sbr. 1., 5. og 7. gr. frumvarpsins og bráðabirgðaákvæði þess. Tekið skal fram að samráð var haft við Bandalag háskóla manna-BHMR, Bandalag starfsmanna ríkis og bæja og Kennarasamband Íslands við samningu þessara ákvæða frumvarpsins.
    Í öðru lagi felur frumvarpið í sér nauðsynlegar breytingar vegna þess að Trygginga stofnun ríkisins annast ekki lengur þjónustu við Atvinnuleysistryggingasjóð, sbr. 2. og 8.–12. gr. frumvarpsins.
    Í þriðja lagi felur frumvarpið í sér breytingar, sem taldar eru nauðsynlegar, vegna samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Með 30. gr. laga nr. 116/1993 um breyting ar á lagaákvæðum á sviði heilbrigðis- og tryggingamála vegna aðildar Íslands að samn ingi um Evrópskt efnahagssvæði voru gerðar tvær breytingar á lögum um atvinnuleys istryggingar. Annars vegar var gerð breyting á 2. tölul. 1. mgr. 16. gr. laganna til að tryggja þeim sem eru í atvinnuleit í EES-landi rétt til að fá greiddar íslenskar atvinnu leysisbætur í því landi og hins vegar bættist við ný grein, 41. gr. a, sem heimilar At vinnuleysistryggingasjóði að greiða, fyrir hönd þar til bærrar stofnunar í EES-landi, rík isborgara í EES-ríki, sem hingað kemur í atvinnuleit, atvinnuleysisbætur. Við nánari skoð un þykir nauðsynlegt að tvö efnisákvæði til viðbótar verði lögfest vegna skuldbindinga Íslands samkvæmt EES-samningnum. Í fyrsta lagi er um að ræða ákvæði um að bóta þegi, sem er í atvinnuleit í EES-landi, skuli sæta reglum þess lands um eftirlit og skrán ingu hjá vinnumiðlun, sbr. 4. gr. frumvarpsins. Í öðru lagi er um að ræða heimild til að reikna starfstímabil launamanns í öðru EES-landi með við ákvörðun atvinnuleysisbóta til hans hér á landi, sbr. 6. gr. frumvarpsins. Enn fremur þykir nauðsynlegt að lögfesta sér staka heimild til að birta reglur Evrópusambandsins um atvinnuleysisbætur, sbr. 13. gr. frumvarpsins.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.


Um 1. gr.


    Með lögum nr. 99/1994 var VI. kafli laga um kjarasamninga opinberra starfsmanna, sem fjallaði um atvinnuleysisbætur, felldur brott. Af því leiðir að lög um atvinnuleysis tryggingar taka nú til opinberra starfsmanna enda á fyrirvarinn í 3. mgr. 1. gr. þeirra, um að lögin taki ekki til þeirra sem tryggður er réttur til atvinnuleysisbóta með öðrum lög um, ekki lengur við. Með hliðsjón af þessari breytingu þykir rétt að leggja til að banda lög opinberra starfsmanna fái hvort fyrir sig einn fulltrúa í stjórn sjóðsins og að fjár málaráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga fái á sama hátt einn fulltrúa, hvor að ili fyrir sig, í sjóðstjórnina. Með þessari breytingu eru stjórnarmenn orðnir ellefu. Til að auðvelda störf stjórnarinnar er gert ráð fyrir að stjórnin geti starfað í tveimur hlutum sem hvor fyrir sig geti tekið fullnaðarákvörðun um þau málefni sem undir hann heyra. Gert er ráð fyrir að stjórnin setji sér sjálf reglur um hvort og hvernig verkefnum skuli skipt milli þessara tveggja hópa. Af orðalaginu „oddamaður“ í síðasta málsliðnum leiðir að at kvæði formanns ræður úrslitum ef stjórnin skiptist þannig að tala stjórnarmanna er jöfn.
    

Um 2. gr.


    Eins og kunnugt er færðist yfirstjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs um áramótin 1993–94 frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu til félagsmálaráðuneytisins. Vegna þessar ar breytingar lét félagsmálaráðuneytið gera úttekt á starfsemi Atvinnuleysistrygginga sjóðs og hvernig mætti samþætta starfsemi sjóðsins við aðra vinnumálastarfsemi á veg um ráðuneytisins. Meginniðurstaða úttektarinnar var sú að með því að vista alla vinnu málastarfsemi ráðuneytisins á einum stað og reka hana sem eina heild væri unnt að styrkja vinnumálastarfið faglega og ná fram hagræðingu. Í samræmi við þessa niður stöðu var starfsemi sjóðsins flutt vorið 1994 frá Tryggingastofnun ríkisins til vinnumála skrifstofu ráðuneytisins. Þar með voru tengsl sjóðsins við Tryggingastofnun ríkisins rof in og hefur stofnunin ekki lengur afskipti af málefnum Atvinnuleysistryggingasjóðs. Með hliðsjón af því er nauðsynlegt að gera breytingar á þeim ákvæðum laga um atvinnuleys istryggingar sem kveða á um hlutverk stofnunarinnar og umboðsmanna hennar gagnvart sjóðnum. Í samræmi við breytta framkvæmd felur a-liður 2. gr. það í sér að vinnumála skrifstofa félagsmálaráðuneytisins annist þau verkefni sem Tryggingastofnun ríkisins hafði áður með höndum skv. 1. málsl. 1. mgr. 7. gr. laganna.
    Samkvæmt b-lið ákvæðisins er lagt til að 2. mgr. 7. gr. laganna, sem kveður á um þóknun sjóðsins til Tryggingastofnunar ríkisins vegna þjónustu hennar, verði felld brott með hliðsjón af því að sjóðurinn nýtur ekki lengur þjónustu stofnunarinnar. Í staðinn komi almennt ákvæði um að kostnaður af rekstri sjóðsins greiðist af tekjum hans.
    Í c-lið ákvæðisins er lagt til að 3. mgr. 7. gr., sem kveður á um að handbært fé sjóðs ins skuli ávaxta í lánastofnunum á þeim stöðum þar sem fé sjóðsins fellur til, verði felld brott enda ákvæðið orðið úrelt.

Um 3. gr.


    Í 1. mgr. 17. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er kveðið á um að sá sem sé at vinnulaus og fullnægi skilyrðum bótaréttar en taki starfi, sem ekki er tryggingaskylt sam kvæmt lögunum og stundi það allt að 24 mánuðum, haldi að loknu því starfi bótarétti sem hann hafði áunnið sér, enda taki ákvæði annarra laga eða samninga um atvinnuleysis tryggingar ekki til starfsins. Sama gildi í allt að 24 mánuði um þá sem taka að stunda nám svo og þá sem verða að hverfa frá vinnu af heimilisástæðum. Í fyrstu lögum um at vinnuleysistryggingar var það skilyrði bótaréttar að umsækjandi væri félagsmaður í verka lýðsfélagi og að laun hans hefðu verið goldin samkvæmt kjarasamningi eða kauptaxta verkalýðsfélags. Eingöngu þeir atvinnurekendur sem höfðu í þjónustu sinni menn, sem tóku laun með þessum hætti, voru gjaldskyldir í sjóðinn. Með ákvæðinu í 1. mgr. 17. gr. var því verið að tryggja rétt manna sem réðust í störf sem ekki tíðkaðist að gera kjara samninga um og voru þar af leiðandi ekki tryggingaskyld. Þetta átti t.d. við um þá sem réðust til starfa í sveitum, en kjarasamningar vegna landbúnaðarstarfa tíðkuðust ekki og þar af leiðandi veittu slík störf ekki rétt til atvinnuleysisbóta. Núna eru öll störf trygg ingaskyld og því á ákvæði þetta ekki lengur við um vinnumarkaðinn. Hins vegar hefur það vakið þann misskilning að menn geti geymt bótarétt sinn þann tíma sem þeir stunda svokallaða „svarta vinnu“. Þykir því rétt að leggja til að ákvæði þetta verði fellt brott. Rök þykja hins vegar til þess að viðhalda rétti þeirra sem taka að stunda nám og þeirra sem verða að hverfa frá vinnu af heimilisástæðum til að geyma bótarétt sinn. Er byggt á því að réttur þeirra sé óbreyttur eins og í gildandi lögum.

Um 4. gr.


    Samkvæmt 20. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er það skilyrði bótaréttar að um sækjandi láti skrá sig vikulega hjá vinnumiðlun. Reglur Evrópusambandsins, sem gilda á EES-svæðinu, gera ráð fyrir að fari atvinnulaus einstaklingur í atvinnuleit innan svæð isins beri landinu þar sem hann á rétt á atvinnuleysisbótum að greiða honum áfram bæt ur þann tíma sem honum er atvinnuleitin heimil, þ.e. að hámarki í þrjá mánuði, og að hann eigi þennan tíma að sæta reglum þess lands þar sem hann er í atvinnuleit um skrán ingu og eftirlit. Það er því auðsætt að skilyrði um vikulega skráningu getur almennt ekki átt við þegar íslenskir bótaþegar fara í atvinnuleit til annars EES-lands og er því lögð til breyting á þessu ákvæði laga um atvinnuleysistryggingar í samræmi við reglur Evrópu sambandsins, sbr. b-lið 1. mgr. 69. gr. reglugerðar (EBE) nr. 1408/71, með síðari breyt ingum.
    

Um 5. gr.


    2. mgr. 24. gr. felur í sér heimild til að meðreikna vinnu, sem unnin er samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna, við ákvörðun bóta til umsækjanda sem nær ekki 425 dagvinnustunda lágmarkinu til að geta átt bótarétt. Ákvæðið á ekki við eftir að sú breyting varð að lög um atvinnuleysistryggingar taka til opinberra starfsmanna og er lagt til að það verði fellt brott úr lögunum.
    

Um 6. gr.


    Samkvæmt 67. gr. reglugerðar Evrópusambandsins (EBE) nr. 1408/71 skal aðildar ríki við ákvörðun atvinnuleysisbóta taka tillit til starfs- og tryggingatímabila sem laun þegi hefur lokið samkvæmt löggjöf annarra aðildarríkja eins og þeim hefði verið lokið samkvæmt löggjöf fyrstnefnda ríkisins. Í lögum um atvinnuleysistryggingar er ekki að finna heimild til þess. Samkvæmt 3. tölul. 1. mgr. 16. gr. laganna er það skilyrði fyrir bótarétti að hinn atvinnulausi hafi unnið a.m.k. 425 dagvinnustundir í tryggingaskyldri vinnu á síðustu 12 mánuðum og skv. 24. gr. skal við útreikning á fjárhæð bóta taka mið af fjölda dagvinnustunda í tryggingaskyldri vinnu á síðustu 12 mánuðum fyrir fyrsta skráðan atvinnuleysisdag. Enda þótt það sé ekki beinlínis tekið fram verður að telja víst að með orðalaginu „tryggingaskyldri vinnu“ sé átt við vinnu hér á landi sem trygginga gjald hefur verið greitt af. Því er nauðsynlegt að inn í lög um atvinnuleysistryggingar komi heimild til að meðreikna starfstímabil í öðru EES-landi en Íslandi. Það leiðir af 3. mgr. 67. gr. reglugerðar nr. 1408/71 að það er skilyrði fyrir því að meðreikna starfs tímabil erlendis frá að hinn atvinnulausi hafi síðast átt að baki starfstímabil í samræmi við ákvæði þeirrar löggjafar sem bótakrafan byggist á. Í samræmi við þetta ákvæði er unnt að setja það skilyrði fyrir að meðreikna starfstímabil í öðru EES-landi að viðkom andi hafi síðast átt að baki starfstímabil hér á landi. Er gert ráð fyrir að nánari reglur um slík skilyrði verði sett í reglugerð. Slík skilyrði eiga samkvæmt áðurnefndri 3. mgr. 67. gr. ekki við um þá sem haldið hafa búsetu sinni í því landi sem greiðir bæturnar enda þótt þeir hafi stundað vinnu í öðru landi. Eðli sínu samkvæmt getur slíkt varla átt sér stað hér á landi, enda mundi það líklegast stangast á við ákvæði lögheimilislaga. Rétt er að árétta að heimildin á aðeins við um launþega. Hinn atvinnulausi verður að hafa starfað sem launþegi bæði hér og í viðkomandi EES-landi. Hann verður að hafa verið tryggður sam kvæmt lögum um atvinnuleysisbætur í öðru EES-landi til þess að njóta góðs af ákvæð inu og hann verður að leggja fram tilskilin vottorð, útgefin af viðkomandi yfirvöldum í því landi sem staðfesta áunnin starfs- og tryggingatímabil þar. Gert er ráð fyrir að ráð herra setji með reglugerð, og í samræmi við reglur Evrópusambandsins, nánari reglur um hvaða skilyrðum þarf að fullnægja að öðru leyti til að njóta góðs af heimildinni.

Um 7. gr.


    Í 1. málsl. 1. mgr. 25. gr. laganna er kveðið á um að úthlutunarnefnd skuli skipuð þremur mönnum frá því stéttarfélagi eða félagasambandi sem hlut á að málum, einum frá Vinnuveitendasambandi Íslands og einum frá Vinnumálasambandi samvinnufélaga. Það er ljóst að þessi skipan getur ekki átt við um opinbera starfsmenn og að nauðsynlegt er að kveða sérstaklega á um skipun úthlutunarnefndar fyrir þá. Ákvæðið byggir á því að sams konar fyrirkomulag sé á úthlutun atvinnuleysisbóta til opinberra starfsmanna og ann arra launþega. Þykir rétt að róttækari breytingar á þessu fyrirkomulagi bíði heildarend urskoðunar laganna. Ákvæðið felur í sér það frávik frá 1. málsl. 1. mgr. 25. gr. laganna að fjöldi úthlutunarnefnda fyrir opinbera starfsmenn takmarkist við bandalög opinberra starfsmanna, þ.e. annars vegar Bandalag háskólamanna-BHMR og hins vegar Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, og að eingöngu verði skipaðar sérstakar úthlutunarnefndir fyr ir þau stéttarfélög sem standa utan þessara bandalaga en Kennarasamband Íslands er langstærst þeirra. Er þetta gert með hliðsjón af því að æskilegt þykir að fækka úthlut unarnefndum atvinnuleysisbóta. Í stað fulltrúa frá Vinnuveitendasambandi Íslands og Vinnumálasambandi samvinnufélaga komi fulltrúar frá fjármálaráðuneyti og Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
    Í aðildarfélögum bandalaga opinberra starfsmanna og í þeim stéttarfélögum þeirra sem standa utan bandalaga eru ekki eingöngu opinberir starfsmenn. Gert er ráð fyrir að út hlutunarnefnd fyrir þá félaga sem ekki eru opinberir starfsmenn verði skipuð samkvæmt hinu almenna ákvæði í 1. málsl. 1. mgr. 25. gr. laganna.
    Tekið skal fram að ákvæðið er samið að höfðu samráði við Bandalag háskóla manna-BHMR, Bandalag starfsmanna ríkis og bæja og Kennarasamband Íslands.
    Í samræmi við 1. mgr. 32. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, er kveðið sérstaklega á um skipun varamanna í úthlutunarnefndir.
    

Um 8.–10. gr.


    Greinarnar fela í sér nauðsynlegar breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar vegna þess að Tryggingastofnun ríkisins annast ekki lengur þjónustu við sjóðinn. Í sam ræmi við breytta framkvæmd er lagt til að vinnumálaskrifstofa félagsmálaráðuneytisins annist þau verkefni sem Tryggingastofnun ríkisins hafði áður með höndum samkvæmt lögunum. Tekið skal fram að sýslumenn, sem eru umboðsmenn Tryggingastofnunar, ann ast enn nokkur umsýsluverkefni fyrir sjóðinn, þ.e. utan Stór-Reykjavíkursvæðisins, og er byggt á því að þeir annist þessi verkefni sem umboðsmenn vinnumálaskrifstofunnar.

Um 11. gr.


    Eina breytingin sem gerð er á 2. mgr. 30. gr. er sú að vinnumálaskrifstofa félags málaráðuneytisins tekur við hlutverki Tryggingastofnunar ríkisins. Í b-lið ákvæðisins er lagt til að stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs verði heimilt að fela öðrum aðila en út hlutunarnefnd að annast úthlutun atvinnuleysisbóta ef eftir því er leitað og samkomulag verður um fyrirkomulag. Með þessu ákvæði er veittur möguleiki til þess að víkja frá út hlutunarnefndafyrirkomulaginu. Hugsanlegt er að einstök stéttarfélög, sérstaklega fá menn stéttarfélög, óski eftir að taka upp einfaldara úthlutunarfyrirkomulag en nú tíðkast. Núgildandi 3. mgr. 30. gr. var samin með opinbera starfsmenn í huga og á hún ekki leng ur við eftir að VI. kafli laga um kjarasamninga opinberra starfsmanna var felldur brott með lögum nr. 99/1994.
    

Um 12. gr.


    Samkvæmt 31. gr. skal stjórn sjóðsins fylgjast með störfum úthlutunarnefnda og Tryggingastofnunar ríkisins og umboðsmanna hennar um allt er atvinnuleysisbætur varð ar. 12. gr. felur því í sér sjálfsagða breytingu með hliðsjón af þeim breytingum sem átt hafa sér stað á starfsemi sjóðsins.
    

Um 13. gr.


    Reglur Evrópusambandsins um atvinnuleysisbætur eru í 6. kafla reglugerðar (EBE) nr. 1408/71, með síðari breytingum, um beitingu almannatryggingareglna gagnvart launþeg um, sjálfstætt starfandi einstaklingum og fjölskyldum þeirra sem flytjast á milli aðild arríkja, sbr. 1. tölul. VI. viðauka við EES-samninginn, og í 6. kafla reglugerðar (EBE) nr. 574/72, með síðari breytingum, um framkvæmd reglugerðar nr. 1408/71. Samkvæmt 66. gr. laga um almannatryggingar, nr. 117/1993, er ráðherra heimilt að birta sem reglu gerðir reglur Evrópubandalagsins um almannatryggingar, enda eigi ákvæði þeirra stoð í þeim lögum. Af fyrirvaranum um að ákvæðin skuli eiga stoð í almannatryggingalögum leiðir að heimildin nær ekki til reglna Evrópusambandsins um atvinnuleysisbætur. Ákvæð um 7. gr. EES-samningsins um að gerð, sem samsvarar reglugerð EBE, skuli sem slík tekin upp í landsrétt samningsaðila hefur því ekki verið fullnægt hvað reglur um atvinnu leysisbætur áhrærir. Ákvæði 13. gr. er ætlað að bæta úr því og er í ákvæðinu notað hlið stætt orðalag og í áðurgreindri 66. gr. almannatryggingalaga.
    

Um 14. gr.


    Með hliðsjón af tíðum breytingum á lögum um atvinnuleysistryggingar, nr. 93/1993, sbr. breytingalög nr. 116/1993 og nr. 127/1993 og þetta frumvarp, er lagt til að lögin verði gefin út að nýju ef frumvarpið nær fram að ganga.
    

Um ákvæði til bráðabirgða I.


    Ákvæðinu er ætlað að tryggja að BHMR, BSRB, fjármálaráðuneytið og Samband ís lenskra sveitarfélaga fái hvert fyrir sig einn fulltrúa í stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs sem eigi þar sæti þar til ný stjórn verður skipuð eftir næstu alþingiskosningar.
         

Um ákvæði til bráðabirgða II.


    Ákvæðið styðst við 3. lið yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar í tenglsum við kjarasamn inga lands- og svæðasambanda innan ASÍ og vinnuveitenda frá 20. febrúar 1995.


Fylgiskjal.

Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:

Umsögn um frumvarp til laga um breyting á lögum


um atvinnuleysistryggingar, nr. 93/1993, með síðari breytingum.





FYLGISKJAL REPRÓ