Ferill 450. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1994–95. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 450 . mál.
768. Tillaga til þingsályktunar
um fullgildingu á samingsviðauka nr. 11 við samninginn um verndun mannréttinda og mann
(Lagt fyrir Alþingi á 118. löggjafarþingi 1994–95.)
Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að fullgilda fyrir Íslands hönd samningsviðauka nr. 11, sem gerður var í Strassborg 11. maí 1994, við samninginn um verndun mannréttinda og mannfrelsis frá 4. nóvember 1950 varðandi eftirlitskerfi samningsins.
Athugasemdir við þingsályktunartillögu þessa.
Þingsályktunartillaga þessi er borin fram til að afla heimildar fyrir ríkisstjórnina til að full
Fram til þessa hefur eftirlitskerfi mannréttindasáttmálans verið þannig háttað að mannrétt
Það hefur verið til umræðu frá því 1985 að sameina mannréttindanefndina og Mannréttinda
Þau mál sem eru skráð sem kærur fyrir dóminum ganga fyrst til nefndar sem í eiga sæti þrír dómarar. Þessar nefndir athuga málin á frumstigi og geta vísað þeim frá sem ótækum. Dómstóll
Eftir sem áður mun ráðherranefndin annast um fullnustu dóma, þ.e. taka við dómum frá dómstólnum og fylgjast með að ríki fari eftir því sem fyrir er mælt í dóminum. Hlut
Samkvæmt ákvæðum þessa samningsviðauka öðlast hann ekki gildi fyrr en liðið er eitt ár frá því að allir aðilar mannréttindasáttmálans hafa lýst sig samþykka því að vera bundnir af samningsviðaukanum með fullgildingu. Nú þegar hafa fjögur ríki fullgilt samn
Að því er íslenska löggjöf varðar þá var mannréttindasáttmáli Evrópu samþykktur sem lög á Íslandi með lögum nr. 62 frá 19. maí 1994. Áður en samningsviðauki þessi kem
Samningsviðaukinn fylgir hjálagður á ensku og íslensku.
Fylgiskjal.
Samningsviðauki nr. 11
við samning um verndun mannréttinda og mannfrelsis
varðandi endurskipulagningu á eftirlitskefi samningsins.
Aðildarríki Evrópuráðsins sem undirritað hafa þennan samningsviðauka við samn
telja að bráð þörf sé að endurskipuleggja eftirlitskerfi það sem stofnað er til sam
telja að það sé því æskilegt að breyta tilteknum ákvæðum samningins sérstaklega í því skyni nýr dómstóll sem starfi samfellt komi í stað núverandi Mannréttindanefndar og Mannréttindadómstóls Evrópu,
vísa til samþykktar nr. 1 sem gerð var á Evrópsku ráðherraráðstefnunni um mann
vísa til ályktunar 1194 (1992) sem samþykkt var af þingi Evrópuráðsins 6. október 1992,
vísa til ákvörðunar sem tekin var um endurbætur á eftirlitskerfi samningsins af leið
og hafa orðið ásátt um eftirfarandi:
1. grein.
Í stað texta II. til IV. kafla samningsins ( 19. til 56. grein ) og samningsviðauka nr. 2 við samning um verndun mannréttinda og mannfrelsis um vald Mannréttindadómstóls Evrópu til að láta uppi ráðgefandi álit skal koma eftirfarandi II. kafli samningsins (19. til 51. grein):
II. KAFLI
Mannréttindadómstóll Evrópu.
19. gr.
Stofnun dómstólsins.
Til að tryggja það að staðið sé við skuldbindingar þær sem aðilar samnings þessa og samningsviðauka við hann hafa tekist á hendur skal setja á stofn Mannréttindadómstól Evrópu sem hér á eftir verður kallaður dómstóllinn. Hann skal starfa samfellt.20. gr.
Fjöldi dómara.
Dómstóllinn skal skipaður jafnmörgum dómurum og samningsaðilarnir eru.
21. gr.
Hæfisskilyrði.
Dómararnir skulu vera menn grandvarir, og verða þeir annaðhvort að fullnægja kröf
2. Dómararnir skulu skipa sæti sitt sem einstaklingar.
3. Meðan kjötímabil þeirra varir skulu dómararnir ekki taka þátt í neinni starfsemi sem er ósamrýmanleg sjálfstæði þeirra, hlutleysi eða kröfum sem gerðar eru til fulls dóm
22. gr.
Kosning dómara.
1. Dómararnir skulu kjörnir af þinginu, af hálfu sérhvers samningsaðila, með meiri
2. Sami háttur skal hafður á til að fylla tölu dómara við tilkomu nýs samningsaðila eða þegar sæti losnar í dómstólnum.
23. gr.
Kjörtímabil.
1. Dómararnir skulu kosnir til sex ára í senn. Þá má endurkjósa. Kjörtímabili helm
2. Þeir dómarar, sem ganga eiga úr að fyrstu þremur árum liðnum, skulu valdir með hlutkesti af aðalframkvæmdastjóra Evrópuráðsins þegar að kosningu þeirra lokinni.
3. Til að tryggja það, svo sem fært er, að skipt verði um helming dómara þriðja hvert ár er þinginu heimilt að ákveða, áður en til síðari kosninga er gengið, að kjör eins eða fleiri dómara, er kjósa skal, skuli gilda til annars tíma en sex ára, þó eigi leng
4. Þegar um starfstíma fleiri en eins dómara er að ræða og þingið beitir ákvæðum næstu málsgreinar á undan skal starfstími hvers ákvarðaður með hlutkesti er aðalfram
5. Dómari, sem kjörinn hefur verið í stað annars er eigi hafði lokið kjörtímabili sínu, skal eiga sæti í dómstólnum út það kjörtímabil.
6. Kjörtímabil dómara rennur út þegar þeir verða 70 ára.
7. Dómarar skulu halda sæti sínu þar til aðrir koma í þeirra stað. Þeir skulu samt halda áfram að starfa að þeim málum sem þeir voru teknir við.
24. gr.
Brottvikning.
Því aðeins verður dómara vikið úr starfi að hinir dómararnir ákveði með tveggja þriðju meirihluta að hann fullnægi ekki lengur þeim skilyrðum sem krafist er.
25. gr.
Skrifstofa og löglærðir aðstoðarmenn.
Dómstóllinn skal hafa skrifstofu og skal hlutverk hennar og skipulag
ákveðið í starfsreglum dómstólsins. Dómstólnum til aðstoðar skulu vera löglærðir að
26. gr.
Fullskipaður dómstóll.
Fullskipaður dómstóll skal
a. kjósa forseta sinn og einn eða tvo varaforseta til þriggja ára; þá má endurkjósa;
b. skipa deildir til ákveðins tíma;
c. kjósa forseta deilda dómstólsins; þá má endurkjósa;
d. samþykkja starfsreglur dómstólsins; og
e. kjósa ritara og einn eða fleiri aðstoðarritara.
27. gr.
Nefndir, deildir og yfirdeild.
1. Til að fara með mál sem lögð eru fyrir dómstólinn skal hann starfa í nefndum sem þrír dómarar skipa, í deildum sem sjö dómarar skipa og yfirdeild sem sautján dóm
2. Sjálfskipaður í deildina og yfirdeildina er dómari sá sem kjörinn er af hálfu þess rík
3. Yfirdeildina skulu einnig skipa forseti og varaforsetar dómstólsins, forsetar deilda og aðrir dómarar sem valdir eru samkvæmt starfsreglum dómstólsins. Þegar máli er vísað til yfirdeildarinnar í samræmi við ákvæði 43. gr. skal enginn þeirra dómara sem sæti áttu í þeirri deild sem sem kvað upp dóm í málinu eiga sæti í yfirdeildinni, að undanskildum þó forseta deildarinnar og dómara þeim sem sæti átti af hálfu þess rík
28. gr.
Yfirlýsingar nefnda um að kæra sé ótæk.
Með samhljóða atkvæðum er nefnd heimilt að að lýsa ótæka eða fella af málaskrá sinni kæru einstaklings sem borin er fram samkvæmt 34. gr. þegar unnt er að taka slíka ákvörðun án frekari könnunar. Ákvörðunin skal vera endanleg.
29. gr.
Ákvarðanir deilda um að kæra sé tæk og um efnishlið hennar.
1. Sé ekki tekin ákvörðun í samræmi við 28. gr. skal deild kveða á um hvort kæra sem borin er fram af einstaklingi samkvæmt 34. gr. sé tæk og um efnishlið hennar.
2. Deild skal kveða á um hvort milliríkjakærur samkvæmt 33. gr. séu tækar og um efn
3. Ákvörðun um hvort kæra sé tæk skal tekin sérstaklega nema dómstóllinn, í undan
30. gr.
Eftirgjöf lögsögu til yfirdeildarinnar.
Ef mál sem deild hefur til meðferðar gefur tilefni til alvarlegs vafa um túlkun á samn
31. gr.
Hlutverk yfirdeildarinnar.
Yfirdeildin skal
a. úrskurða um kærur sem bornar eru fram samkvæmt 33. gr. eða 34. gr. þegar deild hefur eftirlátið lögsögu samkvæmt 30. gr. eða þegar máli hefur verið vísað til henn
b. fjalla um beiðnir um ráðgefandi álit sem bornar eru fram samkvæmt 47. gr.
32. gr.
Lögsaga dómstólsins.
1. Lögsaga dómstólsins skal ná til allra málefna varðandi túlkun og framkvæmd samn
2. Ef ágreiningur verður um lögsögu dómstólsins sker hann úr.
33. gr.
Milliríkjamál.
Sérhverjum samningsaðila er heimilt að vísa til dómstólsins meintu broti annars samn
34. gr.
Kærur einstaklinga.
Dómstólnum er heimilt að taka við kærum frá hvaða einstaklingi sem er, samtökum eða hópi einstaklinga sem halda því fram að samningsaðili hafi brotið á þeim réttindi þau sem lýst er í samningnum og samningsviðaukum við hann. Samningsaðilar skuldbinda sig til að hindra ekki á nokkurn hátt raunhæfa beitingu þessa réttar.
35. gr.
Skilyrði þess að mál sé tækt.
1. Dómstóllinn getur því aðeins tekið mál til meðferðar að leitað hafi verið til hlítar leiðréttingar í heimalandinu, samkvæmt almennt viðurkenndum reglum þjóðaréttar og innan 6 mánaða frá því að fullnaðarákvörðun var þar tekin.
2. Dómstóllinn skal eigi taka til meðferðar kæru einstaklings sem lögð er fyrir hann samkvæmt 34. gr. ef hún er
frá ónafngreindum aðila, eða
b. efnislega sú sama og mál sem þegar hefur verið rannsakað af dómstólnum eða hef
3. Dómstóllinn skal lýsa ótæka hverja þá kæru einstaklings sem borin er fram sam
4. Dómstóllinn skal vísa frá hverri þeirri kæru sem hann telur ótæka samkvæmt þess
36. gr.
Málsaðild þriðja aðila.
1. Nú er ríkisborgari samningsaðila kærandi og hefur samningsaðili þá rétt til að bera fram skriflegar athugasemdir og taka þátt í munnlegum málflutningi í öllum mál
2. Í því skyni að tryggja rétta dómsniðurstöðu er forseta dómstólsins heimilt að bjóða sérhverjum samningsaðila sem ekki er aðili að málaferlunum eða manni sem mál
37. gr.
Kærur felldar niður.
1. Dómstóllinn getur ákveðið á hvaða stigi málsmeðferðar sem er að fella kæru af mála
a. kærandi hyggist ekki fylgja kæru sinni eftir, eða
b. málinu hafi verið ráðið til lykta, eða
c. af einhverri annarri ástæðu sem dómstóllinn sannreynir, sé ekki lengur réttlæt
Dómstóllinn skal þó halda áfram rannsókn kærunnar ef nauðsynlegt er til þess að mannréttindi þau sem skýrgreind eru samningi þessum eða samningsviðaukum við hann séu virt.
2. Dómstóllinn getur ákveðið að taka kæru að nýju á málaskrá sína ef hann telur að að
38. gr.
Rannsókn máls og sáttaumleitanir.
1. Ef dómstóllinn lýsir kæru tæka skal hann
a. framkvæma athugun á málinu með fulltrúum málsaðila og ef þörf krefur fram
b. vera málsaðilum til reiðu við að ná sáttum í málinu enda sé við þær að fullu gætt þeirra mannréttinda sem skilgreind eru í samningnum og samningsviðaukum við hann.
2. Það sem fram fer samkvæmt b. lið 1. mgr. skal vera trúnaðarmál.
39. gr.
Sáttagerð.
Ef sættir takast skal dómstólinn fella málið af málaskrá sinni með ákvörðun sem skal vera stutt greinargerð um málsatvik og þá lausn sem náðist.
40. gr.
Opinber málsmeðferð og aðgangur að málsgögnum.
1. Málsmeðferð skal vera opinber nema dómstóllinn ákveði annað í sérstökum tilvik
2. Málskjöl sem lögð eru fram hjá ritara skulu vera aðgengileg almenningi nema for
41. gr.
Sanngjarnar bætur.
Dómstóllinn skal ef nauðsyn krefur veita sanngjarnar bætur til þess aðila sem orðið hefur fyrir tjóni ef hann kemst að þeirri niðurstöðu að um brot á samningnum eða samn
42. gr.
Dómar uppkveðnir í deildum.
Dómar uppkveðnir í deildum skulu vera endanlegir í samræmi við ákvæði 2. mgr. 44. gr.
43. gr.
Vísun máls til yfirdeildar.
1. Sérhverjum málsaðila er heimilt þegar um óvenjuleg mál er að ræða að óska eftir því innan þriggja mánaða frá dagsetningu dóms deildar að málinu sé vísað til yfirdeild
2. Nefnd fimm dómara yfirdeildarinnar skal verða við beiðninni ef málið vekur alvar
3. Samþykki nefndin beiðnina skal yfirdeildin ljúka málinu með dómi.
44. gr.
Endanlegir dómar.
1. Dómur yfirdeildarinnar skal vera endanlegur.
2. Dómur deildar verður endanlegur
a. þegar málsaðilar lýsa yfir að þeir muni ekki óska þess að málinu verði vísað til yfirdeildarinnar, eða
b. þrem mánuðum frá dagsetningu dómsins ef ekki hefur verið óskað eftir að mál
c. þegar nefnd yfirdeildarinnar vísar frá beiðni um málskot samkvæmt 43. gr.
3. Endanlegur dómur skal birtur.
45. gr.
Rökstuðningur dóma og ákvarðana.
1. Rökstyðja skal dóma og ákvarðanir sem lýsa kærur tækar eða ótækar.
2. Ef dómarar verða ekki sammála um dóm sinn að öllu eða einhverju leyti skal hver dómari hafa rétt til að skila séráliti.
46. gr.
Bindandi áhrif dóma og fullnusta þeirra.
1. Samningsaðilar heita því að hlíta endanlegum dómi dómstólsins í hverju því máli sem þeir eru aðilar að.
2. Endanlegur dómur dómstólsins skal fenginn ráðherranefndinni sem hefur umsjón með fullnustu hans.
47. gr.
Ráðgefandi álit.
1. Dómstólnum er heimilt ef ráðherranefndin æskir að láta uppi ráðgefandi álit um lög
2. Eigi má í slíkum álitsgerðum fjalla um nokkurt atriði er varðar efni eða umfang rétt
3. Til þess að ákvörðun ráðherranefndarinnar um að æskja álits dómstólsins nái fram að ganga þarf meirihluta atkvæða fulltrúa þeirra er rétt eiga til setu í nefndinni.
48. gr.
Ráðgefandi lögsaga dómstólsins.
Dómstóllinn sker úr um það hvort ósk um álit er ráðherranefndin ber fram sé innan verksviðs hans eins og það er skilgreint í 47. gr.
49. gr.
Rökstuðningur ráðgefandi álits.
1. Álit dómstólsins skal vera rökstutt.
2. Nú er álit eigi að öllu eða nokkru leyti einróma, og ber hverjum dómara þá réttur til að setja fram sérálit.
3. Áliti dómstólsins skal skilað til ráðherranefndarinnar.
50. gr.
Kostnaður við dómstólinn.
Evrópuráðið skal standa straum af kostnaði við dómstólinn.
51. gr.
Sérréttindi og friðhelgi dómara.
Dómarar skulu við störf sín njóta þeirra sérréttinda og friðhelgi sem greind eru í 40. gr. stofnskrár Evrópuráðsins og þeim samningum sem gerðir hafa verið samkvæmt henni.
2. grein.
1. V. kafli samningsins verður III. kafli samningsins; 57. gr. samningsins verður 52. gr. samningsins; 58. og 59. gr. samningsins falla niður og 60. til 66. gr. samningsins verða 53. til 59. gr. samningsins.
2. I. kafli samningsins skal nefnast „Réttindi og frelsi“ og nýr III. kafli samningsins „Ýmis ákvæði“. 1. til 18. gr. og ný 52. til 59. gr. samningsins skulu fá fyrirsagnir sem greindar eru í viðauka við þennan samningsviðauka.
3. Í nýrri 56. gr., 1. mgr., skal bæta inn orðunum „þó með fyrirvara samkvæmt 4. mgr. þessarar greinar“ á eftir orðinu „skuli“; í 4. mgr. skulu í stað orðanna „að nefndin sé bær um að taka við erindum“ og skv. ,25. gr. samnings þessa" koma orðin „dóm
Í nýrri 58. gr., 4. mgr., skulu orðin „56. gr.“ koma í stað orðanna „63. gr.“.
4. Samningsviðauki nr. 1 skal breytast þannig
a. greinarnar skulu fá fyrirsagnir þær sem greindar eru í viðauka við samningsvið
b. í síðustu setningu 4. greinar skulu orðin 56. gr. koma í stað orðanna 63. gr.
5. Samningsviðauki nr. 4 skal breytast þannig
a. greinarnar skulu fá fyrirsagnir þær sem greindar eru í viðauka við samningsvið
b. í 3. mgr. 5. gr. skulu orðin 56. gr. koma í stað orðanna 63. gr.; og bæta skal við nýrri 5. mgr. svohljóðandi:
Hvert það ríki sem gefið hefur yfirlýsingu í samræmi við 1. og 2. mgr. þess
c. 2. mgr. 6. gr. skal falla niður.
6. Samningsviðauki nr. 6 skal breytast þannig
a. greinarnar skulu fá fyrirsagnir þær sem greindar eru í viðauka við samningsvið
b. í 4. gr. skulu orðin samkvæmt 57. gr. koma í stað samkvæmt 64. gr. .
7. Samningsviðauki nr. 7 skal breytast þannig
a. greinarnar skulu fá fyrirsagnir þær sem greindar eru í viðauka við samningsvið
b. í 4. mgr. 6. gr. skulu orðin 56. gr. koma í stað orðanna 63. gr. og við bætist ný 6. mgr. svohljóðandi:
Hvert það ríki sem gefið hefur yfirlýsingu í samræmi við 1. og 2. mgr. þess
c. 2. mgr. 7 gr. skal falla niður.
8. Samningsviðauki nr. 9 skal falla úr gildi.
3. grein.
1. Samningsviðauki þessi skal liggja frammi til undirritunar aðildaríkjum Evrópuráðs
a. undirritun án fyrirvara um fullgildingu, viðurkenningu eða samþykki: eða
b. undirritun með fyrirvara um fullgildingu, viðurkenningu eða samþykki og full
2. Fullgildingar-, viðurkenningar- eða samþykktarskjöl skulu afhent aðalframkvæmda
4. grein.
Samningsviðauki þessi skal öðlast gildi fyrsta dag þess mánaðar þegar liðið er eitt ár frá þeim degi er allir aðilar samningsins hafa lýst sig samþykka því að vera bundnir af honum í samræmi við ákvæði 3. gr. Frá þeim degi er allir aðilar samningsins hafa lýst samþykka því að vera bundnir af samningsviðaukanum getur farið fram kosning nýrra dómara og frekari ráðstafanir má gera til stofnunar nýja dómstólsins í samræmi við ákvæði þessa samningsviðauka.
5. grein.
1. Kjörtímabil dómara, nefndarmanna Mannréttindanefndarinnar, ritara og aðstoðarrit
2. Kærur sem til meðferðar eru hjá Mannréttindanefndinni og ekki hafa verið lýstar tæk
3. Kærur sem hafa verið lýstar tækar á gildistökudegi þessa samningsviðauka skulu í eitt ár þaðan í frá vera áfram til meðferðar hjá nefndarmönnum Mannréttindanefnd
4. Að því er varðar kærur sem Mannréttindanefndin hefur samþykkt skýrslu um í sam
5. Málum sem til meðferðar eru fyrir dómstólnum og ekki hefur verið úrskurðað í á gildistökudegi þessa samningsviðauka skal vísað til yfirdeildar dómstólsins sem skal taka þau til meðferðar í samræmi við ákvæði þessa samningsviðauka.
6. Málum sem til meðferðar eru fyrir ráðherranefndinni og ekki hefur verið úrskurð
6. grein.
Þegar samningsaðili hefur gefið yfirlýsingu um að viðurkenna lögsögu Mannréttinda
7. grein.
Aðalframkvæmdastjóri Evrópuráðsins skal tilkynna aðildarríkjum um
a. sérhverja undirritun;
b. afhendingu sérhvers fullgildingar-, viðurkenningar- eða samþykktarskjals;
c. gildistökudag þessa samningsviðauka eða sérhvers ákvæðis hans í samræmi við 4. gr.; og
d. sérhvern annan gerning, tilkynningu eða yfirlýsingu varðandi samningsviðauka þenn
Þessu til staðfestu hafa undirritaðir, sem til þess hafa fullt umboð, undirritað samn
Gjört í Strassborg, 11. maí 1994, á ensku og frönsku — jafngildir textar báðir — í einu eintaki sem varðveitt skal í skjalasafni Evrópuráðsins. Aðalframkvæmdastjóri Evr
VIÐAUKI.
Fyrirsagnir sem bæta skal við greinar í texta Samningsins um verndun mannréttinda og mannfrelsis og samningsviðauka við hann.
1. gr. — Skylda til að virða mannréttindi.
2. gr. — Réttur til lífs.
3. gr. — Bann við pyndingum.
4. gr. — Bann við þrældómi og nauðungarvinnu.
5. gr. — Réttur til frelsis og mannhelgi.
6. gr. — Réttur til réttlátrar málsmeðferðar fyrir dómi.
7. gr. — Engin refing án laga.
8. gr. — Friðhelgi einkalífs og fjölskyldu.
9. gr. — Hugsana-, samvisku- og'trúfrelsi.
10. gr. — Tjáningarfrelsi.
11. gr. — Funda- og félagafrelsi.
12. gr. — Réttur til að stofna til hjúskapar.
13. gr. — Réttur til raunhæfs úrræðis til að leita réttar síns.
14. gr. — Bann við mismunun.
15. gr. — Skerðing réttinda á hættutímum.
16. gr. — Skorður við stjórnmálaumsvifum útlendinga.
17. gr. — Bann við misnotkun réttinda.
18. gr. — Takmörkun á skerðingu réttinda.
52. gr. — Fyrirspurnir aðalframkvæmdastjóra.
53. gr. — Verndun núverandi mannréttinda.
54. gr. — Vald ráðherranefndarinnar.
55. gr. — Útilokun annarra úrræða til að leysa úr ágreiningi.
56. gr. — Svæðisbundið gildissvið.
57. gr. — Fyrirvarar.
58. gr. — Uppsögn.
59. gr. — Undirritun og fullgilding.
Samningsviðauki nr. 1
1. gr. — Friðhelgi eignarréttar.
2. gr. — Réttur til menntunar.
3. gr. — Réttur til frjálsra kosninga.
4. gr. — Svæðisbundið gildissvið.
5. gr. — Tengsl við samninginn.
6. gr. — Undirritun og fullgilding.
Samningsviðauki nr. 4.
1. gr. — Bann við skuldafangelsi.
2. gr. — Ferðafrelsi.
3. gr. — Bann við brottvísun eigin borgara.
4. gr. — Bann við hópbrottvísun útlendinga.
5. gr. — Svæðisbundið gildissvið.
6. gr. — Tengsl við samninginn.
7. gr. — Undirritun og fullgilding.
Samningsviðauki nr. 6.
1. gr. — Afnám dauðarefsingar.
2. gr. — Dauðarefsing á stríðstímum.
3. gr. — Bann við frávikum.
4. gr. — Bann við fyrirvörum.
5. gr. — Svæðisbundið gildissvið.
6. gr. — Tengsl við samninginn.
7. gr. — Undirritun og fullgilding.
8. gr. — Gildistaka.
9. gr. — Framlagningar.
Samningsviðauki nr. 7.
1. gr. — Réttarfarsreglur um brottvísun útlendinga.
2. gr. — Réttur til áfrýjunar sakamáls.
3. gr. — Bætur fyrir ranga sakfellingu.
4. gr. — Réttur til að vera ekki saksóttur eða refsað tvívegis.
5. gr. — Jafnrétti hjóna.
6. gr. — Svæðisbundið gildissvið.
7. gr. — Tengsl við samninginn.
8. gr. — Undirritun og fullgilding.
9. gr. — Gildistaka.
10. gr. — Framlagningar.
..........
Í fylgiskjalinu var auk samningsviðauka nr. 11 og viðauka með honum á íslensku birt